Dagur - 20.01.1981, Blaðsíða 4

Dagur - 20.01.1981, Blaðsíða 4
HMGUM. Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Eru Norðlendingar við- búnir haf ískomu? Á hafísárunum fyrir 1970 var hin svonefnda Hafísnefnd kosin af Al- þingi, en þessi nefnd hlutaðist til um að Páll Bergþórsson athugaði hvort hægt væri að segja fyrir um hafískomur og gera hafísspár. Um áramótin sagði Páli að hættan á hafís væri mun meiri nú en oft áður. Og eins og Norðlendingum er kunnugt hefur veðráttan verið mjög umhleypingasöm í vetur og ísinn hefur þokast austur með Norðurlandi. Það hefur komið fyrir, eftir að hafís hefur lagst upp að strönd- inni, að fóik hefur uppgötvað að birgðir af oiíu, kjarnfóðri og ýmsu öðru hafa verið í lágmarki. Slíkt ástand getur haft í för með sér al- varlegar afleiðingar, sem óþarft er að tíunda hér, því flutningar á landi yfir háveturinn eru ýmsum annmörkum háðir. Það er aldrei nógsamlega brýnt fyrir forráða- mönnum verslunar og bæja að hlutast svo tii um, þegar útlit er fyrir hafís, að hafa til nægar birgðir af nauðsynjavöru. Vegamál í Eyjafirði Eins og fram kemur í blaðinu í dag eru uppi ráðagerðir um að byggja brú yfir Eyjafjarðará, skammt frá Hrafnagili í samnefndum hreppi. Heitt vatn fannst fyrr í vetur hjá Botni og nú þarf að koma því yfir í skiljustöðina hjá Laugalandi. Þarna fara því saman hagsmunir íbúa í hreppum í innanverðum Eyjafirði og Hitaveitu Akureyrar. Það er lífsnauðsynlegt fyrir Hita- veitu Akureyrar að fá aukið vatns- magn fyrir næsta vetur svo ráða- menn verða að iáta hendur standa fram úr ermum ef takast á að hefja verkið í sumar. Þessi brúarsmíð er ekki í vega- áætlun svo leita verður annarra leiða til að fjármagna verkið, en á því leikur víst lítill vafi að brúna er hægt að byggja ef vilji er fyrir hendi. Hins vegar skal líka lögð á það áhersla að þessi brú, ef byggð verður, má ekki tefja fyrir því að byggð verði ný brú yfir Eyjafjarð- ará nær Akureyri. Gömlu brýrnar eru orðnar úreltar og má furðulegt teljast að þær skuli enn hanga uppi. Þegar er farið að beina um- ferð mjög þungra bifreiða yfir brúna hjá Möðruvöllum, en ef ekkert verður gert í smíði nýrra brúa yfir Eyjafjarðará, er eins víst að allri umferð verði beint yfir brúna hjá Möðruvöllum Læknaráð F.S.A.: HÍutverk F.S.A Sjúkrahúsið á Akureyri hefir verið deildasjúkrahús síðan árið 1954. Það er almennt og deildasjúkrahús fyrir Akureyri, Eyjafjarðarsýslu, Dalvík, Ólafsfjörð, þrjá vestustu hreppa Suður-Þingeyjarsýslu og vegna flugsamgangna fyrir Þórs- hafnar- og Vopnafjarðarlæknis- héruð. Að auki hefir það verið að hluta deildasjúkrahús fyrir önnur læknishéruð á Norðurlandi. Jafn- legi hefur farið fram kennsla og þjálfun fólks í heilbrigðisstéttum á sjúkrahúsinu. Síðan árið 1954 hefir sáralítið húsnæði bætst við spítalann til af- nota. Á þessu tímabili hefir orðið veruleg íbúafjölgun á Akureyri og nokkur fólksfjölgun i öðrum byggðarlögum á Norðurlandi þeim, sem sjúkrahúsið þjónar. Á þessu árabili hafa orðið miklar og vaxandi framfarir í læknisfræði. Jafnframt hefir átt sér stað aukin sérhæfing og fjölgun starfs- og læknaliðs sjúkrahússins, vaxandi aðsókn að því og aukin starfsemi þess. Á árabilinu 1965-1975 fjölgaði innlögðum á sjúkrahúsið um 85% en á sama tíma styttist meðal legu- tími á sjúkling um meira en helm- ing. Á þessum árum þrefölduðust ríflega röntgen og almennar rann- sóknir á sjúkrahúsinu, göngudeild- arstarfsemi þess fjórfaldaðist og starfs- og læknalið þess tvö til þre- faldaðist. Á hinn bóginn hefir sjúkrahúsið á Akureyri dregist mjög aftur úr í fjárveitingum til nýbyggingar og býr nú við mikið þrengri húsakost en flest önnur sjúkrahús í landinu miðað við íbúatölu þess svæðis, sem þau þjóna. Ef íbúatala þjónustusvæðis Ak- ureyrar er talin 21 þúsund manns og húsnæði Kristneshælis, Lækna- miðstöðvarinnar og Heilsuvernd- arstöðvar Akureyrar er talið með sjúkrahúsinu á Akureyri, hefir það á að skipa l.l rúmmetra á íbúa þjónustusvæðis. Á sama tíma hefir sjúkrahúsið á Sauðárkróki á að skipa 1.9 rúmmetra á íbúa þjón- ustusvæðis og sjúkrahúsið á Húsa- vík 2.0 rúmmetra á íbúa þjónustu- svæðis. Ef 130 þúsund manns eru talin vera á þjónustusvæði sjúkra- húsanna í Reykjavík hafa Land- spítalinn að frátalinni geðdeild hans, Borgarspítalinn og Landa- kotsspítali ásamt tilheyrandi hús- næði á að skipa 3.7 rúmmetra á íbúa þjónustusvæðis. Sjúkrahúsið á Akureyri hefir því orðið mjög hart úti í húsnæðismál- uni. Þrengsli í sjúkrahúsinu eru hvarvetna mikil og eru því fjötur uni fót. Vinnuaðstaða er yfirleitt örðug af þeim sökum. Húsnæðis- skortur háir sjúkrahúsinu meira en nokkuð annað, setur starfsemi þess skorður, hindrar eðlilega þróun þess og veldur því, að það er vax- andi erfiðleikum bundið fyrir spítalann að anna hlutverki sínu sem almennt og deildasjúkrahús fyrir þjónustusvæði sitt. Tvennskonar þarfir sjúkrahúss- ins eru einkum aðkallandi í bráð, annars vegar aukið vinnurými. hins vegar aukið hjúkrunarrými. Brýna nauðsyn ber til að taka í notkun og fullgera sem fyrst hluta af þeirri þjónustubyggingu, sem verið hefir í smíðum við sjúkrahúsið síðan árið 1975 ásamt hluta af tengiálmu. Þjónustubyggingiunni ásamt tengi- álmu er einmitt ætlað að vera að meginhluta vinnurými. Þegar að því kemur að skurðstofur, slysa- stofu, gjörgæslu og römtgendeild flytja í þjónustubygginguna og innréttuð verður þar legudeild til bráðabirgða, skapast möguleiki á, að aðrar deildir spítalans stækki og þróist í samræmi við aukna starf- semi þeirra. Nauðsyn ber til að fá fullnaðar- gerð þjónustubyggingarinnar ásamt tengiálmu viðurkennda sem eitt af þremur forgangsverkefnum í heilbrigðisþjónustunni ásamt B- álmu Borgarspítalans og K-bygg- ingu Landspítalans. Þess háttar.til- mæli eða kröfugerð af hálfu sjúkrahússins á Akureyri er ekki ósanngjörn, þegar haft er í huga, hversu sjúkrahúsið hefir verið sniðgengið og er orðið illa sett í húsnæðismálum miðað við hlut- verk sitt. Með því móti einu fengi sjúkrahúsið á Akureyri leiðréttingu á því misrétti, sem það hefir orðið fyrir og fær að þróast sem almennt og deildasjúkrahús í samræmi við framfarir í læknisfræði, kröfur tímans og íbúatölu þess svæðis, sem það hefir þjónað. Með því móti yrði ráðin bót á þeirri kyrrstöðu, sem ríkt hefir í byggingarmálum sjúkrahússins í 27 ár að miklu leyti. Eðlilegt má telja, að sjúkrahúsið á Akureyri þróist í sérdeildasjúkra- hús og verði jafnframt aðalvara- sjúkrahús landsins í almannavörn- um þess, það er stærsta sjúkrahúsið utan Reykjavíkur. Á sjúkrahúsinu starfa eins og sakir standa þrír skurðlæknar, þrír lyflæknar, einn fæðinga- og kvensjúk- dómalækmir, einn barnalæknir, annar að hluta og einn svæfingar- læknir, einn geðlæknir og á röntgendeild tveirlæknar. Að hluta starfa á sjúkrahúsinu tveir augn- læknar og einn háls, nef og eyrna- læknir. Á sjúkrahúsinu er í viðbót þörf fyrir sérfræðing í meinafræði, sérfræðing í lækningarannsóknum, sérfræðing í röntgengreiningu og kvensjúkdómalækni, annan geð- lækni, bæklunarlækni, hjartalækni og sérfræðinmg í orkulækningum. Tímabært má telja, að eitt þróað sérdeildasjúkrahús sé staðsett úti á landsbyggðinni. Akureyri má heita eini staðurinn, sam þar kemur til greina. Kemur þar til stærð og starfsemi sjúkrahússins á Akureyri, lega Akureyrar, fjarlægð hennar frá Reykjavík og sú byggð, sem nú er á Akureyri og Norðurlandi. Ak- ureyri er staðsett miðsvæðis á Norðurlandi. Hún er stærsti bær- inn utan höfuðborgarsvæðisins. Samgöngur eru greiðar þangað frá öðrum bæjum og sýslum og Norð- urlandi og Norð-Austurlandi allt árið að kalla. I'búafjöldi Norður- lands og norðurhluta Austurlands mun vera hátt í 40 þúsund manns. Fullvíst má telja, að stækkun sjúkrahússins á Akureyri í þróað sérdeildasjúkrahús myndi bæta stöðu og hag annarra sjúkrahúsa á Norðurlandi. Samskipti og gagn- kvæm miðlun á gögnum og fræðslu myndi aukast innbyrðis milli sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva í þessum landshluta. Styttra og auð- veldara yrði að senda sjúkling til sérfræðingu innan og utan sjúkra- hússins og betri sérfræðingaþjón- ustu myndi fást. Styttra og auð- veldara yrði fyrir sérfræðinga að fara sem ráðgefandi læknar til annarra sjúkrahúsa í fjórðungnum. Það myndi bæta mjög heilbrigðis- þjónustu á Norðurlandi öllu. Það er sanngirnis- og réttlætis- mál og er þjóðhagslega hagkvæmt og það er þýðingarmikill þáttur í almannavörnum landsins, að eitt þróað sérdeildasjúkrahús sé stað- sett úti á landsbyggðinni. Það myndi efla landsbyggðina og stuðla að auknu jafnvægi í heilbrigðis- málum landsins. Það myndi vega á móti þeirri röskun, sem óneitanlega er í byggð landsins, á meðan búseta er að rneiri hluta bundin við einn landshluta, sem allt stendur og fellur með, ef nokkuð ber út af í þjóðlífinu. Tilkoma þróaðs sér- deildasjúkrahúss á Akureyri yrði ótvírætt spor fram á við í heil- brigðismálum Norður- og Norð- Austurlands og raunar alls lands- ins. Þessi börn eru fyrir hádegi. Fara fóstrur í verkfall? Fóstrur á Akureyri ætla að hætta störfum þann 1. febrúar n.k. ef samningar hafa ekki náðst. Fyrir foreldra barna á dagvistarstofnunum eru þetta alvarleg tíðindi, en hér í bæ eru dagvistarrými fyrir rúmlega 300 börn á forskólaaldri og má fastlega gera ráð fyrir að meirihluti foreldranna séu úti- vinnandi. Á Akureyri starfa nú 16 fóstrur sem eru á Pálmholti, Iðavelli, Árholti, Stekk og Lundaseli. Félagsmálastofnun hefur auglýst eftir fóstrum til starfa, en Ragnheiður taldi ólíklegt að þær auglýsingar bæru árangur. Vandræðaástand á mörgum vinnustöðum Það var hörkugaddur úti daginn sem Dagur var á ferð í Lundaseli og því voru allir íbúarnir inni að púsla. Alls dvelja 70 börn í Lundaseli — þ.e. 34 börn á morgnana og 26 eftir hádegi. Börnunum er skipt niður í tvær deildir — „Bangsadeild og Kisudeild" — og skal það tekið fram að börnunum er ekki skipt niður í deildirnar eftir aldri. Á morgnana eru 2ja til 6 ára börn í Lundaseli, en 3ja til 6 ára eftir hádegi. „Flest börnin eiga foreldra sem eru bæði í fullu starfi utan heim- ilis“, sagði Ragnheiður Ólafs- dóttir, forstöðukona er við geng- um eftir „Kisudeild" „og svo sannarlega yrði vandræðaástand á mörgum vinnustöðum í bænum ef fóstrurnar hætta störfum í næsta mánuði, en það má ekki starfrækja barnaheimili nema fóstra sé þar í forsvari". í Lundaseli starfá 3 lærðar fóstrur og fimm aðstoðarstúlkur. Til samans eru í Lundaseli 5 stöðugildi, en nokkrar kvennanna eru þarna í hálfri stöðu. Fóstrurnar á Akureyri sögðu upp frá og með 1. nóvember og hafði Akureyrarbær rétt á að framlengja uppsagnarfrestinn um 3 mánuði. Ragnheiður sagði: að forráðamenn bæjarins hefðu ekki neytt þessa réttar og því kæmu uppsagnirnar fyrr til fram- kvæmda en ella hefði orðið. Svona líður dagurinn í Lundaseli En hvers er þá krafist? Fóstrurnár sextán fara fram á launaflokka- hækkanir, þ.e. að forstöðukonur fari í 16. launaflokk og fóstrur í 14. launaflokk. Ragnheiður sagði að heildarhækkunin í krónum næmi einum árslaunum fóstru. „Við gerurn einnig þá kröfu að fá 10 tíma á viku til að undirbúa starfið — gera starfsáætlanir og viða að okkur efni sem síðar er t.d. notað í samverustundum. Svona fyrirkomulag tíðkast á hinum Norðurlöndunum, en þekkist ekki hér á landi“. — Hvernig verjiðþið deginum? „Börnin eru að koma hingað til klukkan 9 og fram til klukkan 9.30 eru frjálsir leikir eða föndur, en þá er samverustund. 1 henni reynum við að fræða börnin um ýmislegt og vinnum þar eftir starfsætlunum, sem gerðar eru langt fram í tímann. Sl. haust og vetur voru börnin t.d. frædd um þessar árstíðir, en einnig hefur þeim verið sagt frá tannvernd svo dæmi sé tekið. Eftir samveru- stundina fá börnin að drekka og eru síðan úti fram að hádegi. Eftir hádegi snýst þetta við með nýjum hóp. Við byrjum á útivistinni, þá fá börnin að drekka, síðan kemur samverustund og á eftir henni er föndur og leikir“, sagði Ragn- heiður. í nóvember var foreldruni bama, sem dvelja í Lundaseli á morgnana, boðið upp á lengri opnunartíma þ.e. að börnin kæmu með aukabita með sér og yrðu á barnaheimilinu til klukkan 13.30 eða að öðrum kosti til 12.15 eins og venja hefur verið. Til þess að þetta fyrirkomulag yrði tekið upp var nauðsynlegt að hafa a.m.k. 4 börn til 13.30, en aðeins foreldrar eins barns óskuðu eftir að það yrði lengur. Ragnheiður sagði að þetta boð stæði enn ef lágmarkinu yrði náð. Hann hafði engar áhyggjur. „Hæ, manni, hvað ertu að gera héma“, spurði ljóshærður hnokki Ijósmyndara Dags, þegar hann gekk um sali Lundasels. Svar ljósmyndarans var eitthvað á þá leið að hann væri að skoða heim- ilið og síðar væri ætlunin að birta myndir og frásögn í Degi. Ungi maðurinn var ánægður með upp- lýsingarnar og virtist ekki hafa ýkja rniklar áhyggjur af launa- baráttu fóstranna á barnaheimil- um bæjarins. Ungur hugsuður. ÞÓR TAPAR IFJÖR- UGUM LEIK Á laugardaginn léku í fyrstu deild í körfubolta Þór og Fram. Þórsarar veittu Frömurum harða keppni til að byrja með, en Framarar náðu fljótlega yfir- höndinni og náðu öruggri for- ustu. í hálfleik var staðan 41-37 Fram í vil. Þeir juku síðan for- skotið og sigruðu örugglega með 101 stigi gegn 82. Til að byrja með reyndu Framarar að taka Garry úr umferð, en það tókst ekki betur en það að sá leikmaður sem fékk það hlutverk fékk mjög fljótlega á sig þrjár villur, og einnig það að hann réði hrein- lega ekki við Garry. Jón Héð- insson var drýgstur Þórsara að hirða fráköstin. Garry var stigahæstur Þórsara með 27 stig, Jón var með 20, Alfreð 17 og Eiríkur 6. Blökkumaðurinn Val Bracy var stigahæstur Framara með 31 stig og Símon kom næstur með 29. Framarar eru nú efstir í deildinni, en Þórsarar v.erða nú að fara að vinna eitthvað af leikjum ef þeir ætla ekki að lenda í fallhættu. A enn Norðurlandsmet fþróttasiðunni barst fyrir nokkru afrekaskrá í sundi og er þar getið allra gildandi meta á Norðurlandi. Flest þessara meta eru ný, þar er sundíþróttin hefur tekið miklum framförum und- anfarin ár svo sem aðrar iþróttir. Elstu mctin í skránni eru frá 1967. Þar ber fyrst að geta 50 m skriðsund en það niet á Óli G. Jóhannsson listmálari, en hann var mikill keppnismaður í sundi hér fyrr á árum. Óli synti þá á 27,4 sek. og er það næstum því tveimur sek. betra en næsti tími. Þá á sveit Óðins ennþá Norður- landsmet í 4x50 metra skrið- sundi, og er það met frá sama ári, og var Óli einnig í þeirri sveit. Þá á Óðinn einnig met í 4x50 m fjórsundi og er það einnig frá sama ári. Mjög líklega hefur Óli einnig verið í þeirri sveit. Kemur Guðjón? Nú um helgina var staddur á Akureyri Guðjón Guðjónsson úr Keflavík, en hann hefur und- anfarin ár leikið sem vinstri bakvörður í knattspyrnuliði Keflvíkinga. Guðjón hefur áhuga á að flytja norður og ef af því yrði þá að ganga til liðs við knatt- spyrnumenn KA. Ekki er að efa að það yrði fengur fyrir KA menn að fá Guðjón í sínarraðir, en samkvæmt þeim upplýsing- um sem blaðið hefur aflað sér stóð hann sig mjög vel með liði sínu sl. leiktímabil. Úr því fæst skorið nú næstu daga hvort af þessu verður. Tvö töp Nú um helgina léku Þórsarar tvo leiki í annarri deild í hand- bolta, og fóru þeir báðir fram sunnan heiða. Þórsarar töpuðu þeim báðum, og ekkert nema kraftaverk getur forðað þeim frá falli í þriðju deild. Fyrri leikinn léku þeir við Breiðablik og töpuðu honum 26-18, og siðari leikinn léku þeir við ÍR og töpuðu honum 30-19. /Kfingar skíóamanna eru nú að hcfjast. Hér má sjá Ólaf Harðarson á punktanióti. Mynd: Kögnvaldur. Skíðamenn erlendis Nú eru þrettán ungir skiöamenn frá Akureyri við æfingar i hinum frœga skiðastað Geiló i Noregi. Unglingarnir eru þarna á vegum Skiðaráðs Akureyrar, en verða sennUega sjálf að hera mestan kostnaðinn af ferðinni. Mcðþcim er Margrét Baldvinsdóttir sem ráðin hefur verið þjálfari hjá Skiðaráðinu, en henni til aðstoðar við þjálfunina i vetur verða þau Valþór Þorgeirssón og Guðrún B. Leifsdóttir. Að sögn ívars Sigmundssonar framkvœmdastjóra Skiðastaða, erskíðafœrið óðum að lagast, en töluvert hefur hœst á snjóinn nú undanfarið. Fyrsla skiðamót vetrarins verður um nœstu helgi, en þá er Svigmót Þórs, og er keppt i öllum flokkum frá 7 ára og uppúr. 4.DAGUR DAGUR•5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.