Dagur - 05.02.1981, Blaðsíða 6
msm
Akureyrarkirkja. Fjölskyldu-
messa verður n.k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sungið verður úr
ungu kirkjunni nr. 23, 54, 64,
50, 6. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og fjöl-
skyldna þeirra. Sóknar-
prestar.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n.k. sunnudag
kl. 11 f.h. Öll börn velkomin.
Sóknarprestur.
Ffladclfía Lundargötu 12,
Fimmtudag 5. Biblíulestur
kl. 20.30. Laugardagur 7.
safnaðarsamkoma kl. 20.30.
Sunnudagur 8. sunnudaga-
skóli kl. 11.00 f. h. Vakning-
arsamkoma kl. 20.30. Indriði
Kristjánsson frá ísafirði tal-
ar. Allir velkomnir.
I.O.O.F. 2— 162268 !ó
Styrktarfélag vangefinna,
kvennadeild. Þorrablót fyrir
börnin á Sólborg föstudag-
inn 6. febrúar kl. 6. Mætum
sem flestar. Stjórnin.
Nýja bíó. Sýningum fer senn að
ljúka á myndinni Meistarinn
og fer því hver að verða síð-
astur til að sjá þessa mynd.
Sýningartími er kl. 9. Miða-
verð kr. 22. Úrdráttur um
myndina birtist s.l. fimmtu-
dag. Næsta mynd verður
Piranha. Maggie McKeown
starfar hjá fyrirtæki, sem
tekur að sér rannsókn ým-
issa einkamála, svo sem að
leita uppi fólk, sem hefur
horfið að heiman af ein-
hverjum ástæðum og þykir
mjög fær í starfi. Þess vegna
trúir yfirmaður hennar
henni fyrir því að leita uppi
ungmenni, pilt og stúlku,
sem höfðu farið í útilegu en
ekki komið aftur á tilsettum
tíma. Maggie heldur upp í
fjöll og hittir þar Paul
Grogan, sem er einsetu-
maður. Hann slæst í för með
henni. Á leið þeirra verður
vísindamaður dr. Hoak sem
ræktar drápfiska af
piranha-tegund.
Borgarbíó. Sýningum er að
ljúka á ævintýramyndinni
Buck Rogers. Næsta mynd
kl. 9 er jólamynd Regnbog-
ans er heitir Jass söngvarinn
með Neil Diamond og
Laurence Oliver í aðalhlut-
verkum. Yussel Robinovitch
lifir í samkomuhúsi Gyð-
inga og ósk föður hans er að
hann verði forsöngvari. Kl.
11 sýnir bióið Óður ástar-
innar (Erotísk mynd)
Myndin er ekki með ís-
lenskum texta.
Frá kjörbúðum KEA
Grunnverð er bættur hagur
.t
Eiginmaður minn
BJÖRGVIN JÚLfUSSON
Helgamagrastræti 29,
Akureyri
sem andaöist mánudaginn 2. febrúar verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 10. febrúar kl. 13.30. Þeir sem
vildu minnast hans er bent á Fjóróungssjúkrahúsið á Akureyri.
Gréta Júlíusdóttir.
Gólfteppi
í miklu úrvali
Nýkominn ódýr
veggjakorkur
Sníðum gardínubrautir
og kappa eftir máli
skapfi
FURUVÖLLUM 13, SÍMI 23830.
Fjórðu áskriftartónleikar T.A.:
Berkofsky leikur
Fjórðu áskriftartónleikar Tónlist-
arfélags Akureyrar verða í Borg-
arbiói laugardaginn 7. febrúar kl.
17.00.
Píanóieikarinn Martin Berk-
ofsky leikur fimm sónötur eftir Be-
ethoven, þar á meðal Tungiskins-
sónötuna svonefndu. Þetta eru
fjórðu tónleikar listamannsins á
Akureyri, en auk þess leikur hann á
Sauðárkróki sunnudaginn 8.
febrúar kl. 16.00. Berkofsky er nú
búsettur í París og hefur haldið
marga tónleika undanfarið, bæði í
Vínarborg, Búdapest, í Englandi og
víðar. Margir sjónvarpsáhorfendur
muna sjálfsagt eftir þætti um
Berkofsky, sem íslenska sjónvarpið
lét gera og var sýndur í desember-
byrjun s.l.
Martin Berkofsky kemur hingað
á vegum Tónlistarskóla Akureyrar
og heldur námskeið fyrir
píanónemendur og kennara skól-
ans dagana 9. 14. febrúar. Á Akur-
eyri verður sala aðgöngumiða í
Bókabúðinni Huld og við inngang-
inn.
Einn fremsti vísna-
söngvari Norðurlanda
heimsækir Akureyri
Hinn víðkunni sænski vísna-
söngvari, Thorstein Bergman kem-
ur til Akureyrar og heldur tónleika í
Amtsbókasafninu mánudaginn 9.
febrúar, og hefjast tónleikarnir kl.
20.30.
Thorstein Bergman hefur um
árabil notið mikilla vinsælda, jafnt
sem flytjandi eigin ljóða og laga, og
einnig ljóða eftir skáldin Dan And-
erson, Nils Ferlin, svo einhverjir
séu nefndir.
Thoerstein Bergman fæddist í
Harnösund, smábæ norðarlega í
Svíþjóð, árið 1942. Hann lærði
ungur að handleika gítar, og fékk
snemma áhuga á kvæðasöng.
Árið 1965 kom hann fram í
sjónvarpsþætti hjá hinum vinsæla
sjónvarpsmanni Lennart Hylland,
og tókst svo vel upp að fljótlega var
gefin út hljómplata með honum,
sem hafnaði strax ofarlega á
sænska vinsældalistanum. Frá
þeim tíma starfar Thorstein sem
vísnasöngvari, og hafa hljómplötur
hans selst í tugum þúsunda eintaka
í heimalandi hans og víðar. Til
landsins kemurThorstein Bergman
á vegum Norræna hússins og
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu, en tónleikarnir á Akureyri
eru haldnir í samvinnu milli Tón-
listarfélagsins á Akureyri og
Menningar- og fræðslusambands-
ins.
Aðgöngumiðasala fer fram við
innganginn í Amtsbókasafninu, og
hefst salan 1 klst. fyrir tónleika.
Kristján Jóhanns-
son syngur í La
Bohéme
Fjöldi kunnra söngvara mun
syngja í LA Bohéme nú í vetur.
Kristján Jóhannsson mun syngja
Rudolf og verður það frumraun
hans á íslensku leiksviði. Garðar
Cortes mun syngja hlutverk
Rudolfs á móti Kristjáni. Óperan
La Bohéme verður flutt á
frummálinu og frumsýning er
fyrirhuguð 3. apríl.
6.DAGUR