Dagur - 10.02.1981, Side 6
Norðurlands
auglýsir
til sölu:
Daihatsu Charade. Árgerð 79,
ekinn 18 þúsund km. Verð: kr.
55.000. Kjör: Sem mest út —
skipti.
Volvo 264 Grand Luxe. Árgerð
’78, ekinn 36 þúsund km. Verð:
kr. 100.000. Kjör: Samkomulag
— skipti á ódýrari. ATH. Bíll í
sérflokki að öllu leiti. Sem nýr
að utan sem innan.
Daihatsu Charmant. Árgerð 79,
ekinn 23 þúsund km. Verð: kr.
55.000. Kjör: Samkomulag —
skipti á dýrari.
Ford Fiesta 110 L. Árgerð 79,
ekinn 12. þúsund km. Verð:
60.000. Kjör: Skipti á Bronco
árgerð 74 eða nýrri, helst 8 cyl.
sjálfskiptum. ATH. Bifreiðin er í
algjörum sérflokki hvað útlit og
úttjúnað varðar. Topp bíll.
Ford Granada. 2ja dyra, 6 cyl
sjálfskiptur árgerð 76. Verð: kr.
70.000. Kjör: sem mest út —
skipti á ódýrari + pen. ATH.
Mjög fallegur bíll.
Range Rover. Árgerð 73. Verð:
65.000. Kjör: Sem mest út. Bein
sala.
Comet Custom. 6 cyl, sjálf-
skiptur. Vökvastýri, 4ra dyra
árgerð 74. Verð: 35.000. Kjör:
Sem mest út. Bein sala.
Lanser. 4ra dyra, árgeró 74,
ekinn 73 þúsund km. Verð:
25.000. Kjör: Samkomulag —
skipti á ódýrari.
Ford Cortina 1600 L Decor. 2ja
dyra árgerð 74. Verð: 27.000.
Kjör: Samkomulag — skipti á
ódýrara. ATH. Nýtt lakk, falleg-
urbíll og lítið ekinn.
Lanser 1400. 4ra dyra, árgerð
'80, ekinn 10 þúsund km. Verð:
78.000. Kjör: Sem mest út —
bein sala.
Peugeot 504 GL. Sjálfskiptur
árgerð '74. Verð: 35.000. Kjör:
Samkomuiag — skipti.
Toyota Corolia Hard top k-30.
Árgerð 77, ekinn 47 þúsund
km. Verð: 50.000. Kjör: Sem
mest út — skipti á nýrri bíl.
Blazer K-5. 6 cyl. beinskiptur
árgerð 71, ekinn 106 þúsund
km. Verð: 38.000. Kjör: Sam-
komulag — skipti.
Einnig eigum við til sölu úrval
annara bíla, á verði og kjörum
sem flestir geta ráðið við.
Þá eigum við til sölu ódýra bíla
sem borga má með víxlum, svo
sem:
Moskvits árgerð 72, á krónur
6000.
Dodge Dart Swinger árgerð 71,
ákr. 13.000.
Rambler Am. árgerð 64, á kr.
12.000.
Willis árgerð 46, á kr. 7000.
Willis árgerð 46, á kr. 6000.
Willis árgerð 46, á kr. 11.000.
Skoda árgerð 70, á kr. 4000.
Rambler.SST 8 cyl. á kr.
20.000.
Allar frekari upplýsingar gefa
sölumenn á staðnum og í síma
21213.
Hringið og látið skrá bílinn ung-
an sem gamlan og við seijum
hann.
Bílasala Norðurlands
Hafnarstræti 86
Sími 21213.
Ráðherra
vísar á bug
aðdróttunum
Vegna ályktunar Kvenréttinda-
félags Islands frá 3. þ. m. um veit-
ingu mína á embætti prófessors í
ónæmisfræði við Háskóla íslands
vil ég taka eftirfarandi fram:
1. Ég vísa á bug aðdróttun sem í
ályktuninni felst að ég hafi látið
kynferðisfordóma ráða vali mínu milli
umsækjenda um embættið. Ákvörðun
mín var reist á mati á starfshæfni um-
sækjenda skv. fyrirliggjandi gögnum.
2. Það gefur ranga mynd af efni
þessa máls að segja að ég hafi snið-
gengið umsækjanda sem umsagnarað-
ilar mátu hœfastan til starfa. Hið rétta er
aðdómnefnd um hæfi umsækjenda mat
báða hcefa til prófessorsstarfsins. I
dómnefndaráliti er ekki gert upp á milli
umsækjendanna, dr. Helgu ögmunds-
dóttur og Helga Valdimarssonar læknis.
Ef átt er við niðurstöðu atkvæðagreiðslu
í læknadeild, þá er þvi til að svara, að
hún var ekki til neinnar leiðsagnar fyrir
ráðherra, vegna þess hversu mjótt var á
munum. Af öðrum aðgerðum innan
læknadeildar sem mér eru kunnar. má
ráða að leiðbeiningar úr þeirri átt voru
lítils virði fyrir ráðherra. Ég tel mig ekki
eiga sökótt við læknadeild í þessu máli,
hvað þá Kvenréttindafélag Islands. Ég
hef mikla samúð með baráttu félagsins
fyrir jafnrétti kynjanna. Þess vegna vara
ég félagið við að nota hvatvíslegar
ásakanir sem baráttuaðferð fyrir góðum
málstað.
Afrit af bréfi þessu verður sent fjöl-
miðlum og Jafnréttisráði.
Ingvar Gíslason.
Um síðustu helgi var blaðburðarbörnum Dags, og gestum þeirra, boðið á kvikmyndasýn-
ingu i Borgarbíói. Hér er barnahópurinn á sviði Borgarbíós. Mynd: á.þ.
Nú vilja
menn
salta og
hengja
Á Dalvík er búið að úthluta lóðum
undir þrjú fiskverkunarhús. Það
eru eigendur Ránar h/f, sem gerir
út Sæljón EA, eigendur Stefáns
Rögnvaldssonar h/f, sem reka
samnefndan bát og eigendur Blika
h/f, sem gera út samnefndan bát,
sem ætla að fara að byggja fisk-
verkunarhús. Lóðirnar eru allar við
Ránarbraut. Útgerðarmennirnir
hafa í hyggju að salta og hengja
upp, en samkvæmt síðustu fréttum
er sæmilegt upp úr því að hafa.
I.O.O.F.Rb2=1302118'/2=911
Lionskiúbbur Akureyrar fundur
í Sjálfstæði^húsinu fimmtu-
daginn 12. febr. kl. 12.15.
Kvenfélagið Baldursbrá, heldur
aðalfund sinn í Glerárskóla
laugardaginn 14. febr. kl.
2.00 e.h. Mætið vel. Stjórnin.
Styrktarfélag vangefinna,
kvennadeild. Aðalfundur
verður haldinn á Sólborg
miðvikudaginn 11. febr. kl.
8.30 e.h. Stjórnin.
SÁMKÖMUR
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 15. febr. sunnudaga-
skóli kl. II. Öll börn vel-
koniin. Samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður María Rein-
holtsen. Allir velkomnir.
Bibliulestur hvern fimmtu-
dag kl. 20. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 15. febrúar kl. 13,30
sunnudagaskóli fyrir börn
ogkl. 17 fjölskyldusamkoma
þar sem yngri liðsmennirnir
tíika þátt með söng o.fl. Allir
velkomnir. Mánudaginn 16.
febr. kl. 16 er heimilissam-
bandið og kl. 20,30 hjálpar-
flokkar. Allar konur vel-
komnar. Athugið að barna-
vikan byrjar mánudaginn
16/2.
Akureyrarkirkja. Messað ' n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Nýju
vikna fastan hefst. Prófessor
Duncan B. Forrester guð-
fræðideild Edinborgarhá-
skóla predikar. Ræða hans
verður þýdd á íslensku.
Sálmar nr. 26, 35, 288, 74,
41. P.S. Kl. 5 síðdegis verður
umræðufundur með pró-
fessornum að Hótel Varð-
borg. Þeir Akureyringar sem
hefðu áhuga á að taka þátt í
að vera á fundinum gefi sig
fram við sóknarprestinn.
□ RÚN 59812117 — Frl.
^JAFIROGÁhIiT11™
Páll Kristjánsson, fræðimaður,
færði Héraðsskjalasafni
Svarfdæla nýlega að gjöf
gkr. 100.000,00 til kaupa á
lesfilmum.
Héraðsskjalasafn Svarfdæla.
Þess skal getið að gjafir til
Héraðsskjalasafns Svarf-
dæla eru undanþegnar
skatti.
Gjafir til Kaupangskirkju: Frá
Gerði Árnadóttur og
Tryggva Signiundssyni kr.
200,00 (nýkr.). Frá N.N. kr.
50,00. Frá N.N. kr. 50,00.
Frá N.N. kr. 100,00. Bestu
þakkir. Bjartmar Kristjáns-
son.
Eftirtaldar gjafir hafa borist
Kristniboðsfélagi kvenna
Akureyri til Sambands ís-
lenskra kristniboða í nóv.,
des. 1980. Frá einstakling-
um: Í.S. kr. 25,00. Margréti
Unni kr. 1000. Þ.H. kr.
5.000. Ó.Ó. kr. 10.000. G.J.
frá Birnustöðum kr. 10,000.
E.G. frá Akranesi kr. 10,000.
M.J. kr. 5,000. A og R kr.
10,000. N.N. kr. 6,500. R.H.
kr. 2,000. G.H. kr. 10,000.
A.S. kr. 5,000. A. og G. kr.
101,195. Þ.S. kr. 50,000. J.E.
kr. 29,400. I.J. kr. 12,000.
S.Z. kr. 10,000. Aðrar tekjur
á árinu: Árstillög kr. 17,500.
Fórnarsarukomur kr.
582,500. Sunnudagaskólinn
kr. 16,236. K.F.U.K. y.d.
Lundarskóla kr. 92,045.
Glerárskóla kr. 10,620. Zíon
kr. 30,440. K.F.U.M. y.d.
Lundarskóla kr. 3,157.
K.F.U.M. og K. fyrir barna-
gæslu í Zíon kr. 123,200.
Kristniboðsbaukar kr.
28,370. Innkomið á furtdum
kr. 59,800. Basar kr. 770,985.
Akurliljukonur Reykjavík
kr. 142,500. Minningargjafir
um Gíslínu Friðriksdóttur
kr. 227,000. Um Guðnýju
Helgadóttur kr. 50,000. Um
Gunnar Sigurjónsson kr.
550.000. Aðrar minningar-
gjafir kr. 10,000. Sent í sam-
bandssjóð kr. 4,000,000.
Þökkum innilega allar gjafir
á árinu. Biðjum Guðs bless-
unar öllum gefendum.
Kristniboðsfélag kvenna. S.
Zakaríasd. (gjaldkeri).
AÐALBJÖRG TRYGGVADÓTTIR,
frá Gilsá,
lést 7. þ. m. Útförin verður gerð frá Saurbæjarkirkju, laugar-
daginn 14. þ. m. kl. 2.00 e.h. Blóm afþökkuð. Fyrir hönd vanda-
manna.
Jón Ólafsson.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓREY STEINÞÓRSDÓTTIR,
Ránargötu 31,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. febrúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 14.
febrúar kl. 13,30.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Eiginmaður minn
SIGURBJÖRN YNGVI ÞÓRISSON,
vélstjóri, Hríseyjargötu 19, Akureyri,
sem lést 5. febrúar verður jarðsunginn frá Möðruvöllum í
Hörgárdal, föstudaginn 13. febrúar kl. 2 e.h.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Fyrir hönd vandamanna,
Brynhildur Arnaldsdóttir.
Sérfargjöld fyrir aldraða
Frá og með í. febrúar tóku
Flugleiðir upp ný sérfargjöld
fyrir aldraða á innanlandsleið-
um félagsins. Sérfargjöldin eru
50% ódýrari en venjuleg fargjöld
og gildir þessi afsláttur hvort
heldur tekinn er tvímiði eða að-
eins miði aðra leiðina.
Þessi fargjöld gilda aðeins á
miðvikudögum og laugardögum og
aðeins fyrir þá sem orðnir eru 67
ára eða eldri. Þá er tekið fram í
reglum um þessi nýju sérfargjöld
að farmiði gildi í sex mánuði. Sé
ófært til flugs miðvikudag eða
laugardag gildir miðinn næsta dag
sem fært er.
Með þessu nýja sérfargjaldi fyrir
aldraða vilja Flugleiðir koma til
móts við mikinn fjölda fólks sem
náð hefur 67 ára aldri. Mikill hluti
fólks á þeim aldri hefur að verulegu
leyti hætt þátttöku í atvinnulífinu
og hefur rúman tíma. Þessi nýju
sérfargjöld Flugleiða ættu að auð-
velda þessum aldursflokki ferðalög
og þar á meðal heimsóknir til ætt-
ingja og vina.
Með þessum nýju sérfargjöldum
Flugleiða fyrir aldraða verður
veruleg breyting. Sérfargjöld fyrir
þennan aldurshóp hafa verið í gildi
mörg undanfarin ár en afsláttur frá
venjulegu fargjalði nam þá aðeins
15 af hundraði. Hér er hins vegar
um helmingsafslátt að ræða og er
það von félagsins að margir geti
notað sér þessi kjör.
(pob)
>=< Kaupum hreinar
>2< léreftstuskur
(POD)
^ Prentverk Odds Björnssonar h.f.
^POD) Tryggvabraut 18-20 - Sími 22500
6.DAGUR