Dagur - 12.02.1981, Blaðsíða 8
Akureyri, fimmtudagur 12. febrúar 1980
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁbRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Leikfélag Húsavíkur:
Frumflytja
íslenskt
verk
í fyrsta sinn
Leikfélag Húsavíkur hóf
leikárið í hausl, nieð sýning-
um á „Vals“, eftir Jón
Hjartarson, undir stjórn
Ingimundar Jónssonar, og
„Því rneir sem við kaupum“,
eftir Jan Jansen. Var sá leik-
þáttur þýddur og sviðsettur
af nokkrum félögum L.H. án
sérstaks leikstjóra. Nú eru
hafnar æfingar á gamanleik
eftir hinn kunna gaman-
leikjahöfund Jónas Árnason.
Jónas lauk við þetta verk nú
um áramótin og afhenti það
L.H. til frumflutnings. Leikur-
inn fjallar um forsetakosningar
á bráðskemmtilegan hátt og er
ekki ;tð efa að leikhúsgestir eiga
eftir að skemmta sér vel. Leik-
stjóri er María Kristjánsdóttir,
sem er í hópi snjöllustu
leikstjóra okkar í dag. Gert er
ráð fyrir að frumsýning geti
orðið seinnipartinn í mars. Þetta
er í fyrstaskipti sem L.H. frurri-
flytur íslenskt verk, og kann
félagið höfundi: bestu þakkir
fyrir að g'efa því slíkt tækifæri.
Starf L.H. hefur verið þrótt-
mikið um árabil og er skemmst
að minnast sýninga á Fiðlaran-
um á þakinu 1979, en sýningar
urðu 38 og sýningargestir um
4800.
Verður nýr flugvöllur
byggður á Kópaskeri?
Undanfarin misseri hafa verið til
athugunar hjá flugmálastjórn hug-
myndir um endurbætur í flugvallar-
málum Kópaskers. Þar er nú norð-
ur-suður flugbraut, sem gerð var
1963. Auk hennar hefur verið notast
við þverbraut eldri flugvallar, sem er
þar skammt frá. Þverbrautin er að-
eins valtaður melur og ónothæf
vetur og vor. Starfsmenn flugmála-
stjórnar og flugmenn eru sammála
um að mikilla aðgerða sé þörf, ef
flugvöllurinn á að gegna vaxandi
hlutverki sínu. Þarna vantar t.d.
góða þverbraut, blindaðflug að
vellinum sjálfum, flugbrautarljós,
farþegaskýli og fleira mætti telja
upp.
Nú hefur sú hugmynd skotið upp
kollinum, að ekki skuli ráðist í
neinar framkvæmdir við núverandi
flugvöll, heldur hafin gerð vallar á
öðrum stað, nær ströndinni
skammt norðan Kópaskers. Það
virðist e.t.v. einkennilegt að ráðast í
slíka nýsmíði nú, þegar ætla mætti,
að fénu væri betur varið til endur-
bóta þess, sem þegar er fyrir hendi,
en að sögn Sigurðar Aðalsteins-
sonar, framkvæmdastjóra Flug-
félags Norðurlands h.f. yrðu end-
urbæturnar svo kostnaðarsamar,
og kostir nýs flugvallar svo miklir
að flest mælir með gerð nýs vallar.
Ólafur Friðriksson, kaupfélags-
stjóri á Kópaskeri og Sigurður Að-
alsteinsson, sögðu í viðtaii við
DAG að flest benti til þess að
framkvæmdir gætu hafist við gerð
vallar í sumar, ef yfirvöld gæfu
grænt ljós, en í sjóði eru til nokkur
hundruð þúsund sem myndu nægja
í fyrstu lotu.
Blindaðflug verður ekki gert að
núverandi flugvelli og góðri þver-
braut verður ekki við komið hjá
honum. Að vísu má segja að 800 m.
þverbraut rúmist á svæðinu. Er það
skammt sunnan flugbrautarinnar
milli þjóðvegarins og hæðanna
„MANNSÆMANDI LlF
- Mánudagsmynd Borgarbíós
íí
Borgarbíó sýnir á mánudag
sænsku myndina „Mannsæm-
andi líf“ eftir Stefan Jarl.
Myndin fjallar um eiturlyfja-
vandamálið í Svíþjóð, þar sem
sakleysisleg hassneysla, að því
er virðist, þróast í friðlausa eit-
urlyfjanautii.
Árið 196^ gerði Stefan Jarl mynd
um eiturleyfjanotkun ungs fólks,
þar sem hann fylgdist með
unglingum í Stokkhólmi, einkum
STÆRSTA SENDINGIN
„Ég er búinn að flytja þessa gerð af
sleðum til landsins í ein 15 ár, en
þetta er stærsta scndingin sem ég
hef fengið til þessa,“ sagði Tómas
Eyþórsson, þegar hann sýndi Ijós-
myndaranum laglegan hóp snjó-
sleða fyrir framan verkstæði sitt
fyrir helgi. „Þessir eru allir seldir. Á
leiðinni er önnur sending sem ætti
að koma til bæjarins fljótlega.“
Tómas flytur sjálfur þessa sleða
inn til landsins og er því umboðs-
maður fyrir þá. Sleðarnir eru af
gerðinni POLARIS og framleiddir
í Ameríku. Tómas sagði að þessi
tegund sleða hefði staðið sig ákaf-
lega vel í snjósleðakappökstrum í
útlandinu, enda er hún hraðskreið.
Verðið er mismunandi eftir gerð-
um — frá kr. 27 þúsund tii kr. 44
þúsund. Tómas sagði að menn á
sínum vegum önnuðust viðgerðir á
sleðunum og hann bætti því við að
hann kappkostaði að hafa góðan
varahlutalager.
„Ég hef ekkert auglýst þessa
sleða síðan ég fór að flytja þá inn —
vildi fyrst sjá hvernig þeir reynd-
ust,“ sagði Tómas. „Nú hefur
komið á daginn að þeir duga vel
hér á landi, en til þessa hef ég
einkum selt þá til manna á Akur-
eyri og í nágrenni. Frá mínum
bæjardyrum séð er það mikið atriði
að flytja sleðana beint til Akureyr-
ar, en vera ekki að sækja þá suður,
enda verða þeir dýrari með því
móti.“
austan við völlinn. Austurendi
slíkrar þverbrautar næði þá að
brekkurótum. Yrði það háskaleg
tilhögun. Á nýja staðnum er rými
fyrir um 800m. þverbraut án nokk-
urra hindrana.
Heimamenn hafa bent á að
snjóléttara sé á nýja staðnum, nær
ströndinni, en á núverandi flug-
velli. Á vorin verður oft mikill
vatnagangur í kring um flugvöllinn
og ef þverbraut yrði byggð hjá
gamla vellinum yrði nauðsynlegt
að leggja ræsi undir brautirnar til
að forða þeim frá árlegum
skemmdum. Með gerð þverbraut-
ar, ræsi og tilfærslu núverandi
flugbrautar er í raun verið að
byggja nýjan flugvöll.
Ekkert vatn er á gamla flugvell-
inum, og engin aðstaða fyrir far-
þega, og völlurinn er svo langt frá
vatnsveitu að geymslutankur er
skársti kosturinn. Flugstöðvar-
bygging á hinum nýja stað gæti
tengst vatnsveitu Kópaskers. Þegar
liggur vegur norður frá Kópa-
skeri með ströndinni og þyrfti ekki
að endurbæta hann mikið eða
lengja til þess að hann kæmi að
fullum notum fyrir hinn nýja flug-
völl og ökuleiðin styttist um
helming.
tveimur piltum. Stefan leitaði þessa
unglinga uppi og kannaði hvernig
þeim hefði vegnað í lífinu að 10
árum liðnum og sést það í þessari
mynd. Þar sést hrikalegt líf, þar sem
áfengi og eiturlyf eru sem dagleg
fæða og allt er gert til að komast
yfir lyfin.
Þessi mynd fékk geysilega góðar
viðtökur í Svíþjóð, ef svo má að
orði komast, því hún vakti menn til
meðvitundar um hversu gífurlegt
eiturlyfjavandamálið þar var orðið.
Þeir sem áður voru eirðarlausir og
mótþróafullir unglingar eru nú
orðnir eiturlyfjaþrælar. Myndin er
sýnd kl. 9 og er fólk hvatt til að sjá
hana.
Búnaðarþing
Mánudaginn 16. febrúar kl. 10.00
verður Búnaðarþing sett í Bænda-
höllinni. Venja hefur verið að
landbúnaðarráðherra ávarpi
Búnaðarþing á fyrsta fundi þess.
Búnaðarþingsfulltrúar eru 25, auk
þeirra sitja fundi þess stjórn og
ráðunautar Búnaðarfélags íslands,
sem hafa þar málfrelsi og tillögu-
rétt.
Fundir Búnaðarþings eru opnir
öllum sem áhuga hafa á að fylgjast
með störfum þess.
Skoskur prófessor predikar í Akur-
eyrarkirkju n.k. sunnudag
Næstkomandi sunnudag 15. febr.
mun Dr. Duncan B. Forrester,
prófessor við Edinborgarháskóla
heimsækja Akureyri. Prófessor
Forrester veitir forstöðu þeirri
deild guðfræðideildar Edinborg-
arháskóla sem fjallar um kristna
siðfræði og kennimannlega guð-
fræði. (Department of Christian
Athics and Practical Theology.)
Það er Háskóli íslands sem á
frumkvæðið að því að próf.
Forrester er hingað kominn.
Hefur honum verið boðið að
flytja þar tvo fyrirlestra í næstu
viku. En fyrst mun hann leggja
leið sína til Norðurlands eins og
fyrrsegir. Á laugardag mun hann
skoða sig um í Þingeyjarsýslu en á
sunnudag mun hann prédika í
Akureyrarkirkju. Prédikunin
mun verða þýdd og dreift fjölrit-
aðri til þeirra kirkjugesta sem
þess þurfa með. Kl. 5 sama dag
mun verða efnt til fundar með
prófessornum á Hótel Varðborg.
Mun hann segja frá háskólastarf-
inu, kirkjulífi í Skotlandi og svara
fyrirspurnum. Er þess vænst að
áhugamenn um guðfræði og
kirkjulegt starf notfæri sér þetta
einstæða tækifæri.
J.A.B.
fy rri ÍRT" 3rp rr
Ö ii /ÍIU J v Jlfl ö Jju.
0 Atvinnu-
leikhús
Eins og fram hefur komið í
fréttum var staða Leikfélags
Akureyrar sú á síðast liðnu
vori að óvíst var um framhald
atvlnnuleikhúss á Akureyri.
Leikurum og öðru starfsfólki
var sagt upp störfum og öll
starfsemi félagsins dróst
saman. Leikhúsráð hóf þá
viðræður við ráðamenn Ak-
ureyrarbæjar og stjórnvöld
um þann vanda sem steðjaði
að félaginu. Stóðu þessar
viðræður fram á haust og var
fyrirsjáanlegt að starfsemin
gæti ekki hafist á venjulegum
tíma, og alls ekki í þeirri
mynd sem áður hafði verið.
Var þá tekin ákvörðun um að
starfsemin hæfist um áramót
og fastráðnir 3 leikarar og
tveir starfsmenn í hlutastörf.
0 Kabarettinn
flýtti fyrir
[ október tóku nokkrir af fyrr-
verandi starfsmönnum
félagsins og hópur áhuga-
fólks sig saman, og æfði upp
skemmtiprógram sem hlaut
nafnið KABARETT, sem sýnt
var við miklar vinsældir í
Sjálfstæðishúsinu, og rann
allur ágóði af því óskiptur til
félagsins. Vegna þessa fram-
taks var hægt að byrja starf-
semina mánuði fyrr eða í
byrjun desember, hófust þá
æfingar á áðurnefndu leikriti
sem nú eru að hefjast sýn-
ingar á þ.e.a.s. Skáid-Rósu.
Með breyttum æfingartíma
leikhússins var hægt að fá
margt af því fólki til starfa
sem áður hafði starfað með
félaginu.
0 Ennaflanda
Á dögunum sagði DAGUR frá
Þingeyingi, sem fékk sér
snjósleða og borgaði hann
með 52 flöskum af landa. Við
vorum einnig að velta fyrir
okkur hvort Þingeyingar
hefðu þarna fundið gjaldmið-
il framtíðarinnar og svo virð-
ist vera sem við höfum hitt
naglann á höfuðið. f gær kom
kunningi DAGS á ritstjórnina
og sagði okkur að fyrir
skömmu hefði bóndi nokkur
fyrir austan keypt hey og
borgað fyrir það með landa!
Bílstjórinn sem með heyið
heim til bónda fékk einnig
greitt með sama gjaldmiðli.
Heimiidarmaður blaðsins
vissi ekki um hve mikið magn
af heyi og landa var að ræða,
en það skiptir í sjálfu sér ekki
máli, aðalatriðið er að Þing-
eyingar virðast hafa fundið
gjaldmiðil sem þeir þekkja og
treysta.
Tómas og sleðarnir, sem eru 17 talsins. Mynd: á.þ.