Dagur - 19.02.1981, Page 8
Pakkningaefni
korkur og skinn
sími 96-22700
mmm
Fyrsta könnunin
á högum fatlaðra
Sjötti bekkur, félagsfræðideild-
ar M.A., vinnur nú að því í sam-
ráði við Sjálfsbjörg á Akureyri,
að gera könnun á högum fatl-
aðra í bænum. Á næstunni geta
margir félagar í Sjálfsbjörg átt
von á því að nemendur í um-
rædduni bekk heinvsæki þá, með
spurningar varðandi þessa
könnun. Heiðrún Steingríms-
dóttir, formaður Sjálfsbjargar
Stofnfundur
félags áhuga-
manna um
heimspeki á
Akureyri
Ákveðið hefur verið að boða til
stofnfundar félags áhuga-
manna um heimspcki á Akur-
eyri. Fundurinn verður haldinn í
Rauða húsinu, Skipagötu 17, kl.
20.30, þriðjudaginn 24. febrúar.
Fyrirhugað er að félagið standi
að fyrirlestrahaldi uin
heimspekileg efni.
Á fundinum á þriðjudaginn mun
Eyjólfur Kjalur Emilsson flytja er-
indi. sem nefnist Um efnishvggju,
þar sem fjallað verður um rök með
og móti efnishyggju. og fáeinar
nýjar kenningar um það efni.
Eyjólfur hefur m.a. íslenskað
samræðuna Gorgías eftir Platón.
Allir áhugamenn um heimspeki
eru hvattir til að mæta og hlýða á
fyrirlesturinn og gerast um leið
stofnfélagar í þessu nýja félagi.
sagði í viðtali við DAG að hún
vænti sér mikils af könnuninni,
sem er sú fyrsta sinnar tegundar
sem gerð er meðal fatlaðra á
Akureyri.
Lesendur DAGS minnast þess
eflaust að blaðið birti mynd af
nemendum félagsfræðideildar, þar
sem þeir voru að reyna að koma
hjólastól upp tröppurnar og í lyft-
una í skrifstofuhúsnæði Akureyr-
arbæjar. Hvorugt dæmið gekk upp,
enda er ekki gert ráð fyrir að
fatlaðir í hjólastól eigi neitt erindi á
bæjarskrifstofurnar eða í aðrar
skrifstofur í sama húsi. Þessi at-
hugun nemendanna var hluti af
könnuninni, sem sagt var frá í
upphafi.
„Áður hafa þrír nemendur 6.
bekkjar gert ritgerðir í íslensku, þar
sem þeir hafa fjallað um málefni
fatlaðra en svona könnun hefur
aldrei verið gerð áður,“ sagði
Heiðrún. „Nemendurnir eru búnir
að vinna alla undirbúningsvinnu
og setja saman spurningar sem
koma inn á ýmis svið. T.d. eru
spurningar sem fjalla um atvinnu,
hvernig fötluninni er háttað,
möguleikana að lifa með fötluninni
og viðhorf til atvinnu og félagslegra
þátta af ýmsu tagi.“
Nemendurnir munu taka úrtak
úr félagaskrá Sjálfsbjargar og fara
eitl eða tvö til hvers og eins. Þetta
verkefni er hluti af námi í félags-
fræðideild.
„Nemendurnir ætla að afhenda
okkur niðurstöðurnar svo verkið sé
ekki unnið til einskis. Við munum
því geta notfært okkur þetta þegar
það liggur fyrir. Ég held að allt
svona sé jákvætt fyrir okkar mál-
stað,“ sagði Heiðrún að lokum.
m köldum
vetrarmörgrii
Landsmót skáta í
Kjarna í sumar
Ákveðið hefur verið að Lands-
inót skáta 1981 verði haldið í
Kjarnaskógi dagana 26. júlí-2.
ágústs. Undirbúningur mótsins
er þegar hafinn og dagskrá þess
verður mjög f jölbreytt.
Búast má við að fjölmenni verði
á mótinu og að í Kjarnaskógi geti
risið eitt þúsund manna tjaldbúðir,
eða þorp, þar sem ýmis þjónusta
verður veitt, eins og venja er á
landsmótum sem þessum. T.d.
verður gefið út mótsblað, þar sem
birtar verða fréttir af mótinu, við-
töl, myndir og annað efni. banka-
útibú verður starfrækt á svæðinu,
þar verður almenn póst- og síma-
þjónusta og verslun, svo eitthvað sé
nefnt. Ferðaskrifstofa Landsmóts-
ins mun skipuleggja ferðir uni
Eyjafjörð og Norðurland.
Mótsstjórar verða Gunnar Jóns-
son og Þorbjörg lngvadóttir, fjár-
málastjóri verður Valtýr Hreiðars-
son, dagskrárstjóri Garðar Lárus-
son, tjaldbúðarstjóri Tryggvi
Marinósson, útbreiðslustjóri Björn
Sverrisson og ritari mótsstjórnar
verður Edda Hermannsdóttir.
Þátttökutilkynningar skulu berast
félags- og fararstjórnum fyrir 15.
apríl. Nánar verður sagt frá mótinu
síðar.
Fárviðrið sl. mánudagskvöld:
MIKID EIGNATJON
Nú er ljóst að gífurlegt tjón
hefur orðið á landinu í óveðrinu
er geisaði s.l. mánudagskvöld og
aðfararnótt þriðjudagsins. Mest
er tjónið á Suður- og Vestur-
landi. Veðrið er sagt minna á
fárviðrið sem var hér 1973, en þá
var um að ræða leifar feilibylsins
Ellenar.
Viðlagatrygging greiðir ekki tjón
af völdum fárviðris, en t.d. greiðir
kaskótrygging bifreiða það tjón
sem verður á bifreið ef hún
fýkur. Þær tryggingar sem greiða
tjón vegna veðurs eins og varð á
mánudagskvöldið eru húseigenda-.
óveðurs- og foktryggingar og einn-
ig glertryggingar. Heimilistrygging
greiðir tjón sem verður á innbúi ef
rúður brotna og vatn og veður
skemma innanstokksmuni.
Á Norðurlandi varð tjón lítið ef
miðað er við skemmdir á Suður- og
Vesturlandi. Á Hvammstanga rak
rækjubát á grunn og þök fuku af
nokkrum húsum. Bílarfukuútafvegum
í Skagafirði og skemmdir urðu á
nokkrum byggingum. Á Siglufirði
var rnjög hvasst, en ekki urðu
umtalsverðar skemmdir. Þriggja
tonna trilla sökk í höfninni í
Grímsey og eru aðrir bátar töluvert
skemmdir. Frá Kópaskeri bárust
þær fréttir að tvær kindur hefðu
drepist í fjárhúsum á Presthólum,
FJÓRIR HÆTTU
í liaust hættu mjólkurfram-
leiðslu í Svarfdæladeild þeir
Hallur Steingrímsson, Skálda-
læk, og Snorri Árnason, Völlum.
Og eftir áramótin bættust við
þeir Haraldur Hjartarson á
Grund og Baldvin Magnússon,
Hralnsstaðakoti. Tveir þeirra
fóru alfarið í sauðfjárbúskap, en
hinir tveir í nauta- og sauöfjár-
búskap.
En maður kemur í manns stað.
Guðmundur Gunnlaugsson
Göngustöðum, sem hóf búskap
haustið 1979, byrjaði kúabúskap
um mánaðamótin, en hann keypti
nokkrar mjólkurkýr af Haraldi
Hjartarsyni.
en skepnurnar ærðust þegar hluti
af fjárhúsþakinu fauk. Einnig fauk
hluti af fjárhúsþaki í Leirhöfn og
skemmdir urðu í Klifshaga. Dagur
greindi frá því í síðasta blaði að
skemmdir hefðu orðið á skíðalyft-
unni í Hlíðarfjalli. Aðrar alvarlegar
skemmdir munu ekki hafa orðið á
Akureyri eða í nágrenni bæjarins.
Námskeið
fyrír trún-
aðarmenn
Mánudaginn 9. febrúar hófst
námskeið fyrir trúnaðar-
menn á vinnustöðum á Akur-
eyri á vegum Alþýðusant-
bands Norðurlands og MFA.
Námskeiðinu lauk föstudag-
inn 13. febrúar og voru þátt-
takendur 25 talsins.
Þátttakendurnir voru frá
Einingu, lðju, Félagi málmiðn-
aðarmanna, ásamt einum iðn-
nema. Námskcið þetta var
haldið í framhaldi af ákvæðum
kjarasamninga frá 1977 varð-
andi stöðu trúnaðarmanna á
vinnustöðum. Leiðbeinandi og
stjómandi námskeiðsins var
Lárus Guðjónsson, starfsmaður
MFA, og fieiri.
iTfl
yju
0 Kvikmynda-
hátíðinni
lokið
Um 18000 manns sóttu sýn-
ingar á kvikmyndahátíðinni,
sem lauk í Regnboganum um
s.l. helgi. I fyrra sóttu öllu
fleiri hátíðina, eða rúmlega
22 þúsund manns, en þá var
hátíðin framlengd um nokkra
daga.
0 Menn
reynslunni
ríkari
Um 300 manns unnu við
björgunarstörf í Reykjavík
aðfararnótt s.l. þriðjudags.
Það hefur verið haft eftir
borgarstjóranum í Reykjavík
að eftir þessa nótt væru
menn reynslunni ríkari og
mun betur til þess fallnir að
takast á aftur við svipaðan
vanda. Eins og oft fyrr, sagði
Egill Skúli, var álag á síma-
kerfinu einn helsti Þrándur í
götu þeirra sem skipulögðu
björgunarstörfin.
0 Forvitni
En það er ekki bara á óveð-
ursnóttum sem ýmsir tefja
björgunarstörf með óþarfa
símtölum. Talsmenn lög-
reglu og slökkviliðs hafa oft
bent fólki á að safnast ekki
saman þar sem hafa orðið
slys eða brunar, en það hefur
æði oft komið fyrir að sjúkra-
bílar eða farartæki slökkvi-
liðsins komast ekki leiðar
sinnar vegna forvitinna
áhorfenda. Það er alveg
makalaust hve margir telja
sig eiga erindi á brunastað
eða á slysstað og næsta ör-
uggt að flestir væru betur
geymdir heima hjá sér.
0 Jafnréttisráð
í byrjun vikunnar héit jafn-
réttisráð annan fund vegna
stöðuveitingar í læknadeild
og lyfsöluleyfi á Dalvík. Málin
eru sögð vera í athugun og
ekki búið að ákveða hver eða
hvenær næsti fundir ráðsins
verður haldinn. Fregnir
herma að meðlimir ráðsins
séu ekki sammála um hver
eigi að vera opinber afstaða
ráðsins og því megi gera ráð
fyrir að fátt fréttist úr herbúð-
um þess á næstunni.
0 Frábær sigur
Á sunnudagskvöldið sigraði
íslenska landsliðið Olympíu-
meistara Austur-Þjóðverja.
Þjálfari Þjóðverjanna sagði
að þetta væri „Besta íslenska
liðið sem við höfum leikið
gegn“, en niðurstöðutölurnar
voru 18-14.