Dagur - 05.03.1981, Síða 4
nMOLm
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAG3
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Heimamenn vilja
togarann
Ein þeirra röksemda sem færð
hefur verið fram gegn kaupum á
togaranum til Þórshafnar er sú, að
heimamenn séu andvígir kaupun-
um. Það rétta í málinu er hins
vegar það, að einstaka menn hafa
lýst sig andvíga því að Norður-
Þingeyingar fái togara, en stærsti
hluti íbúanna er fylgjandi kaupun-
um. Það segir nokkra sögu, þegar
17 forráðamenn þriggja hreppa á
staðnum og eins verkalýðsfélags
halda sameiginlegan fund og
skora á ríkisstjórnina að standa
við gefín loforð í þessum efnum.
Fundur þessi var haldinn 22.
febrúar og að honum stóðu
hreppsnefndir Sauðanes-, Sval-
barðs- og Þórshafnarhrepps, auk
stjórnar Verkalýðsfélags Þórs-
hafnar. f skeyti sem fundurinn
sendi ríkisstjórninni segir á þessa
leið:
„Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnina að hún standi við bókun
sína frá 1. ágúst 1980, þar sem
segir, að ríkisstjórnin heimili kaup
á notuðum erlendum togara sem
gerður verði út sameiginlega af
aðilum á Þórshöfn og Raufarhöfn,
og taki að sér að útvega fjármagn
til kaupanna.
Fundurinn átelur harðlega þann
skrípaleik, er sviðsettur hefur ver-
ið af einstökum aðilum vegna
togarakaupa Útgerðarfélags
Norður-Þingeyinga.
Fundarmenn hafa fram til þessa
staðið í þeirri góðu trú, að Fram-
kvæmdastofnun ríkisins og
Byggðasjóður séu stofnanir
stjórnvalda til að stuðla að jafn-
vægi í byggð landsins, en ekki til
að setja á svið skollaleiki, þar sem
tekist er á um pólitíska hagsmuni
einstakra manna, en byggðasjón-
armið að engu höfð.
Fundarmenn hafa einnig staðið
í þeirri góðu trú, að landinu væri
stjórnað af Alþingi og ríkisstjórn,
en ekki af misjafnlega vönduðum
fjölmiðlastarfsmönnum.
Að lokum ítrekar fundurinn þá
áskorun sína til ríkisstjórnarinnar,
að hún hlaupist ekki undan
ábyrgð í málinu og standi vörð um
byggð á Norðausturlandi.“
Augljóst ætti að vera af þessu,
að það stendur ekki á heima-
mönnum í togarakaupamálinu.
Varla þarf heldur að óttast það að
þeir standi sig ekki við útgerð
hans, svo mjög hafa þeir verið
brýndir með hvers kyns brigslum
um aumingjaskap, þó ekki komi
annað til, s. s. það að þetta er upp
til hópa dugnaðarfólk.
Egilsdóttur og þættir úr leiknum
Óvitum eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur. Auk þess að vekja kátinu, þá
hefur þessi sýning boðskap að
flytja, sem er vel við hæfi á árinu
1981, sem heigað er fötluðu fólki.
Leikstjórinn, Guðrún Alfreðs-
dóttir, hefur náð öruggum tökum á
viðfangsefninu, svo heildarsvipur
verður góður, sérstaklega á Vatns-
berunum. Koma 11 leikarar fram í
sýningunni. Sumir þeirra hafa ekki
spreytt sig á þessum vettvangi fyrr,
en aðrir hafa nokkra reynslu að
baki. Svo er um Björn Ingólfsson
og Matthildi Þórhallsdóttur, sem
leika Vatnsberaforeldrana af ör-
yggi og halda þeim stíl til enda, sem
er við hæfi 1 furðuheimi ævintýrs-
ins og dæmisögunnar. Kotroskin
telpa, Linda Hrönn Helgadóttir,
leiðir gleggst í ljós með skemmti-
legu hispursleysi og fullorðinsleg-
um tilburðum, hvað vakir fyrir
Guðrúnu Helgadóttur með leikrit-
inu Óvitum.
Og allir aðrir leggja sig fram með
ósvikinni leikgleði. Leikmynd og
búninga hafa Margrét Baldurs-
dóttir, Árni Helgason og Arnar
Óskarsson unnið af hugkvæmni og
bera þar af gerfi Vatnsberanna.
Þetta mun vera eina barnaleik-
ritið, sem sett er á svið hér norðan
heiða á þessum vetri. Hafa hópar
skólabarna úr nærliggjandi sveit-
um heimsótt Grenivík og notið
þessarar sérstæðu sýningar.
Bolli Gústavsson í Laufási.
Leikfélagið Vaka
í Grýtubakkahreppi:
VATNSBERARNIR
eftir Herdísi Egilsdóttur
og þættir úr ÓVITUM
eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Leikstjóri:
Guðrún Alfreðsdóttir.
Sem endranær hefur verið allmikil
gróska í starfi ýmissa áhugaleik-
félaga á Norðurlandi á þessum
vetri.
í Grýtubakkahreppi starfar
Leikfélagið Vaka. Sýnir það um
þessar mundir 6. verkefni sitt, sem
er allfrábrugðið þeim, er áður hafa
verið á fjölunum í Samkomuhús-
inu á Grenivík. Sýningin er fyrst og
fremst ætluð börnum, þótt þeir,
sem eldri eru, geti ekki síður haft af
henni nokkurt gaman. Hér eru á
ferðinni Vatnsberarnir eftir Herdísi
Úr leikritinu Vatnsberamir.
Að vera öðru-
vísi en aðrir
Samvinnuferðir-Landsýn:
Boðið upp á fjöl-
þætta ferðaáætlun
„Samvinnuferðir-Landsýn hefur nú
lagt fram ferðaáætlun sína til helstu
áfangastaða á komandi sumri, m.a.
til Portoroz, Rimini, Danmerkur og
Möltu.
Er óhætt að fullyrða að sumar-
áætlunin hafi aldrei veríð fjöl-
breyttari og er enn á ný bryddað upp
á nýjungum og áður óþckktum
hópferðamöguleikum. Ýmsar aðrar
nýjungar í rekstri Samvinnuferða-
Landsýnar hafa verið kynntar, s.s.
ný greiðslukjör sem verðtryggja
sumarferðirnar, aukinn aðildarfé-
lagaafsláttur o.fl.“ segir í fréttatil-
kynningu frá
Samvinnuferðum-Landsýn.
Auk áðurnefndra ferða til sólar-
stranda eða sumarhúsa í Dan-
mörku, skipuleggur Samvinnu-
ferðir—Landsýn í sumar fyrsta
reglubundna leiguflugið vestur um
haf, og verður flogið til Toronto í
Kanada á þriggja vikna fresti. Þá
verður farið í ódýru leiguflugi m.a:
til Irlands, London, Norður-
landanna og víðar, auk þess sem að
venju verður flogið á Islendinga-
slóðir í Kanada. Ötaldar eru ýmsar
smærri ferðir, s.s. rútuferðir o.m.fl.
Skoðunarferða verður ekki getið
sérstaklega nema hvað minnt er á
Jónas frá Brekknakoti:
2ja daga eða vikulangar skoðunar-
ferðir fyrir Riminifarþega til Róm-
ar. Rómarferðir áttu einstökum
vinsældum að fagna sl. sumar og
verður nú í fyrsta sinn efnt til viku-
ferða þangað.
Aukin tengsl við
aðildarfélögin
Sem kunnugt er standa fjölmörg
samtök launafólks að baki rekstri
Samvinnuferða-Landsýnar. Má
þar nefna ASl, BSRB, Stéttarsam-
band bænda, Landssamband ís-
lenskra samvinnustarfsmanna,
Samband íslenskra bankamanna
o.fl.
Samfara auknu og nánara sam-
bandi við aðildarfélög og félags-
menn þeirra hefur vegur Sam-
vinnuferða-Landsýnar vaxið.
Aðildarfélagar skrifstofunnar
skipta tugum þúsunda og verður
þeim í fyrsta sinn næsta sumar
boðinn fullur aðildarafsláttur í all-
ar leiguflugsferðir Samvinnu-
ferða-Landsýnar til sólarstranda og
Danmerkur. Aðildarafsláttur gildir
fyrir félagsmenn, maka þeirra og
börn og nemur hann kr. 500 fyrir
hvern fullorðinn og kr. 250 fyrir
börn.
Áætlunarfarseðlar
Auk sjálfstæðs leiguflugs eða
skipulagðra hópferða með áætlun-
arflugi, hefur Samvinnuferðir-
Landsýn stóraukið sölu sína á al-
mennum áætlunarferðum. Nemur
hækkun á því sviði nálægt 200%
milli ára og sést þar best afrekstur
aukinna tengsla milli ferðaskrif-
stofunnar og aðildarfélaganna, sem
gera sér æ betur grein fyrir mikil-
vægi þess að skipta við eigin ferða-
skrifstofu. Samvinnuferðir-Land-
sýn útvegar ódýrustu fáanlegu far-
gjöld hjá öllum flugfélögum heims
og annast auk þess án þóknunar frá
viðskiptavinum sínum hótelpant-
anir, útvegun bilaleigubíla og
annars slíks.
,,SL-kjör“
Vetrarverð - sumarferð
Samvinnuferðir-Landsýn kynnir
nú í fyrsta sinn hérlendis ný
greiðslukjör á sólarlandaferðum,
sem miða að því að vernda farþeg-
ana gegn hvimleiðum verðhækk-
unum og auðvelda þeim um leið
gerð raunhæfrar fjárhagsáætlunar.
Stærstu kostnaðarliðirnir, s.s.
flugfargjald og gisting, eru háðir
Tvær flugur í einu höggi
Margumtalað „fjársvelti" Ríkisút-
varps, sjónvarpið, verður nú að
veita þjóðinni tveggja (afar ?)
kosta völ. Annars vegar margskon-
ar samdráttur dagskrár og útsend-
ingartíma sjónvarps, eða að „út-
sendingar sjónvarps verði aðeins 5
daga í viku í stað 6.“
Fyrr og oft hefur undirritaður o.
margir fl. rætt og bent á, að í sjón-
varpsmálum höfum við „reist okk-
ur hættulegan hurðarás um öxl“ —
þjóðin ráði ekki við verkefnið
sjónvarp 6 daga í viku, meö góðu
efni og skilað sœmilega til allra
landsmanna. Og á hinn bóginn
okkur flestum nauðsynlegt að hafa
2-3 kvöld vikunnar til „eigin nota“
til viðhalds fjölskyldulífi, fyrir
vinakynni, tómstundastörf og
félagslíf. — Sjónvarpið flytur okk-
ur vissulega margt gott éfni, en
óneitankga stundum eitri blandað.
Hver var að nefna „afbrotaskóla
þjóðarinnar“ í þessu sambandi? Og
fáum mun hollt að sitja auðum
höndum og láta mata sig á þeirri
blöndu til lengdar, þótt sumum
henti vel að sofna við þann spón í
munni! Yfirstjórn þessara mála
telur — að óbreyttu — þurfi nú „að
draga saman kostnað við dagskrár-
gerð í sjónv. og hljóðv. um 9%.“ —
Hér gefst okkur kostur (sá síðari) á,
— gott tækifæri — að draga úr
kostnaði, en um leið að minnka
skaðvœnleg áhrif sterkasta fjölmið-
ilsins, sem enn á eftir að sanna í
mörgu mátt sinn og gœði. Samstarf
hljóðv. og sjónv. þarf að batna, tillit
meira við fluttning áhugaverðs
efnis hjá hvoru. Enn frekar, ef
saman eru dregin seglin í þessu
efni. Góð byrjun — virtist okkur —-
að „hafa frí“ frá kyrrsetu við
„skjáinn“ á mánud. og fimmtud.
„Brekknakoti" 4. mars 1981
4•DAGUR
Danska húsið við Bakkasíðu.
Hátt á 2 þúsund manns
hafa komið og skoðað
Danskt einingahús sýnt almenningi
Fyrir rúmri viku var hafin sýning á
dönsku einingahúsi í Glerárhverfi.
Að sögn Þorkels J. Pálssonar, sem
hefur umboð fyrir hús af þessari
tegund hér á landi, er nú hátt á
gengi og eldsneytisverði og hafa sí-
felldar hækkanir oftsinnis riðlað
verulega þeim verðum sem kynnt
eru í verðlistum ferðaskrifstofanna.
Með hinu nýja greiðslufyrir-
komulagi tryggir Samvinnuferðir-
Landsýn hins vegar farþegum sín-
um fast verð, sem stendur óhaggað
þrátt fyrir gengisbreytingar og/eða
hækkun á eldsneytisverði.
Fyrirkomulag „SL-kjaranna“ er
þannig að unnt er að festa verð með
innborgun fyrir 1. maí nk, Með því
að greiða 1/2, 3/4 eða 1/1 hluta
ferðakostnaðar er verðið fest í sama
hlutvalli miðað við gengisskrán-
ingu innborgunardagsins.
Samvinnuferðir-Landsýn væntir
þess að í ótryggu efnahagslífi og sí-
breytilegri gengisskráningu verði
nýju greiðslukjörin sem flestum
farþegum til verulegra þæginda.
Hér hefur verið stigið framfaraspor
og bryddað upp á nýjung sem eyk-
ur öryggi og hag farþeganna enn
frekar.
Itarlegri upplýsingar
Sumarbæklingar Samvinnu-
ferða-Landsýnar birtast nú enn
einu sinni í nýjum og áður óþekkt-
um búningi. Enn hefur verið aukið
stórlega við hagnýtar og hlutlausar
upplýsingar um staðhætti, gistingu
og daglegt líf á hverjum stað, og er
þannig leitast við að miðla upplýs-
ingum, sem jafnt komá að gagni
hér heima og þegar út er komið.
Nú þegar eru fyrstu bæklingarnir
komnir út ásamt verðlistum. Eru
það annars vegar bæklingur um
sumarhúsin í Danmörku og á
Möltu og hins vegar bæklingur um
Rimini og Portoroz. Ástæða er til
þess að hvetja fólk til þess að kynna
sér efni bæklinganna af kostgæfni,
því upplýsingarnar eru á margan
hátt ítarlegri en áður hefur tíðkast.
Allt að kr. 4.250 í afslátt
Ásamt aðildarfélagsafslætti býð-
ur Samvinnuferðir-Landsýn öllum
farþegum sínum sérstakan afslátt
fyrir börn allt að 15 ára aldri og er
mesti afsláttur kr. 1.500. Þegar
aðildarfélags- og barnaafslættir
fara saman getur afsláttur fyrir
hvert barn orðið allt að kr. 1.750 og
fjögurra manna fjölskylda, þar sem
annað foreldrið á rétt á aðildaraf-
slætti, getur fengið allt að kr. 4.250 í
heildarafslátt.
annað þúsund manns búin að skoða
húsið, sem stendur við Bakkasíðu.
Þetta hús er framleitt hjá stærstu
húseiningaverksmiðju Danmerkur,
HOSBY HUSE, sem framleiðir á
annað þúsund hús á ári hverju.
— Eru þessi hús heppileg fyrir
íslenskar aðstæður?
„Já, ég tel að svo sé. Þau eru
mjög vönduð og standast alveg þær
kröfur sem gerðar eru um bygg-
ingar hér á landi. Húsin hafa raun-
ar ýmislegt fram yfir þau hús sem
við höfum byggt á undanförnum
árum — það er fyrst og fremst ein-
angrunin, sem er 8” í loftum og
gólfum og 6” í útveggjum. í glugg-
um er þrefalt gler. Einnig er í hús-
unum varmaskiptikerfi, sem loft-
ræstir húsið án þess að kæla það. Af
þessu leiðir að kyndingarkostnaður
er 30% minni en húsi sem hefur
verið byggt á hefðbundinn hátt.
Annað atriði skiptir ekki síður
miklu máli, en það er byggingar-
tíminn. Afgreiðslutími frá því að
pöntun er staðfest er 4 til 5 vikur.
Byggingartimi hússins, frá því að
grunnurinn er tilbúinn, og þar til að
húsinu er lokið, er um það bil 4
vikur á meðalstóru húsi“.
— Getur þú lýst gerð húsanna
svolítið nánar?
„Þessi hús, sem er hægt að fá af
25 mismunandi gerðum, eru frá 66
upp í 250 fermetrar að stærð. Þau
koma alveg tilbúin, en það þýðir í
stuttu máli að í þeim er t.d. eldhús-
innrétting, teppi og dúkar á gólf-
um, fataskápar og flísalagt bað svo
eitthvað sé nefnt. í verði hússins
eru innifaldar allar vatns- og hita-
lagnir svo og ofnar og hægt er að
velja um þrjá kyndingarmögu-
leika: hitaveitu, rafmagn og olíu-
kyndingu. Þessar 25 tegundir, sem
ég minntist á, kosta á bilinu 320 til
650 þúsund krónur. Ef við undan-
skiljum grunn hússins við Bakka-
síðu, sem er 138 fermetrar, þá
kostar slíkt hús í dag um 520 þús-
und fullfrágengið.
— Er tekið tillit til persónulegra
óska varðandi breytingar?
„Jú, það er hægt að gera ýmsar
smábreytingar á teikningu og
kaupandi getur t.d. valið um einar
100 tegundir af teppum, tugi flísa
og hægt er að velja um lit á inn-
réttingar o.fl. Og að sjálfsögðu get-
ur kaupandinn valið mismunandi
útlit á húsinu. Hægt er að hafa ystu
klæðningu úr múrsteini eða tré-
klæðningu. Það efni hússins, sem
skiptir máli er „vacuumimprægn-
eret“ en með þeirri fúavarnarað-
ferð er efnið fúavarið í gegn og því
engin hætta á fúa.
— Áttu von á að þessi tegund
húsa muni ná vinsældum hér á
landi?
„Ég á von á því. Kostirnir eru
m.a. þeir að byggingartíminn er
stuttur og það hentar vel í strjál-
býlinu. Áð auki vildi ég leggja á-.
herslu á að kyndingarkostnaðurinn
er í lágmarki vegna mikillar ein-
angrunar. Það hefur verið hald
manna til skamms tíma að ein-
ingahús væru síðri en þau hús, sem
eru byggð á hefðbundinn hátt. Það
er rangt að setja öll einingahús
undir sama hatt — í þessum iðnaði
eins og öðrum, er bæði til góð og
slæm vara. Hvað þessi hús varðar
þá tel ég að þau standist allar þær
kröfur sem við gerum til góðra
húsa.
I
Þorkell (t.v.) sýnir gestum aöra stofuna i húsinu. Mynd: á.þ.
Jón Hjalta judo-
maður Akureyrar
Fyrir skömmu fór fram kjör
Judomanns ársins 1980 hér á
Akureyri. Þessi sæmdartitill
er nú í fyrsta skiptið form-
lega veittur og féli hann í
skaut Jóni Hjaltasyni. Bróð-
ir hans Þorsteinn Hjaltason
reyndist honum skæður
keppinautur og var ákaflega
erfitt að gera upp á milii
þeirra bræðra.
Jón er íslandsmeistaTÍ í — 71
kg. fl. karla og að auki á hann
sæti í stjórn Judoráðs Akureyrar
en allt frá því það var stofnað
1978 hefur sami maður, Guð-
mundur Kr. Guðmundsson,
verið í forsvari þess og hefur
stjórn hans verið giftudrjúg.
Jóh er í Judodeild Skautafé-
lags Akureyrar og er hann í
stjórn deildarinnar. En þess má
geta að innan vébanda KA og
Þórs eru einnig starfandi Judo-
deildir en flest er viðkemur
Jón er til hægri á myndinni.
lýtur
Judoíþróttinni hér í bæ
stjórn og umsjá Judoráðs
Jafnframt því að leggja stund
á æfingar hefur Jón í umboði
ráðsins séð um þjálfun akur-
eyrskra Judomanna og hefur
hann til þessa starfa notið
dyggilegs stuðnings þeirra fé-
Af Dalvíkingum
Síðastliðið haust byggði Skíða-
félag Dalvíkur hús við efri lyft-
una í Böggvisstaðafjalli. Þarna á
að vera aðstaða fyrir tímatöku-
tæki sem Lionsklúbbur Dalvík-
ur Dalvíkur gaf félaginu á síð-
astliðnu ári. Húsið verður
einnig notað fyrir aðstöðu til
viðgerða og viðhalds á diska-
lyftunni. Þá voru einnig lagðir
kaplar um fjallið út frá húsinu
sem tímatökutækin verða tengd
við. Allt var þetta unnið í sjálf-
boðavinnu.
Áhugi á „trimm“ skíðagöngu
hefur farið vaxandi á Dalvík
eins og víða annarsstaðar á
landinu og hefur Skíðafélagið
haldið opinni merktri göngu-
braut fyrir þá sem vilja ganga á
skíðum í hólunum ofan við bæ-
inn. Einnig er fyrirhuguð
kennsla í meðferð gönguáburð-
ar í samvinnu við Ferðafélag
Svarfdæla.
Skíðalyftumar hafa verið vel
sóttar síðustu helgar, en þær eru
opnar laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 13,00 til 16,30,
mánudaga og miðvikudaga frá
kl. 20,00 til 22,00, þriðjudaga frá
kl. 16,00 til 22,00 og fimmtu-
daga frá kl. 16,00 til 19,00.
Opnunartíminn verður lengdur
með hækkandi sól
Helgina 7.—8. febr. var
haldið svonefnd KIWANIS-
MÓT á vegum félagsins. Úrslit
urðu sem hér segir:
STÓRSVIG:
Stúlkur 14 ára og eldri: Samt.
1. Kristín Símonardóttir, 102,19
2. Ingigerður Júlíusdóttir, 105,17
3. Hermína Gunnþórsdóttir, 108,56
Drengir 13—15 ára:
1. Þorsteinn Guðbjörnsson, 102,26
2. Jón B. Bragason, 103,70
3. Kristján Vigfússon, 106,78
16 ára og eldri:
1. Daniel Hilmarsson, 98,46
2. Björgvin Hjörleifsson, 100,68
16 ára og eldri:
1. Daníel Hilmarsson, 100,53
2. Ingi Brynjarsson, 105,66
3. Þorsteinn Skaftason, 109,45
Helgina 14.—15. febr. var haldið
svonefnt KIWANISMÓT á vegum
félagsins. Úrslit urðu sem hér segir:
SVIG:
Drengirll—12 ára: Samt.
1. Einar Hjörleifsson, 71,41
2. Stefán Gunnarsson, 72,65
3. Haraldur Sigurðsson, 72,88
STÓRSVIG:
Drengir 10 ára og yngri:
1. Jón Áki Bjarnason, 72,52
2. Bjarni Jóhannsson, 75,72
3. Sverrir Björgvinsson, 82,71
SVIG:
Drengir 10 ára og yngri:
1. Tryggvi Kristjánsson, 84,17
2. Jón Áki Bjamason, 85,22
3. Bjarni Jóhannsson, 86,16
STÓRSVIG:
Stúlkur 10 ára og yngri:
1. Hjördís Hjörleifsdóttir, 93,62
2. Hólmfríður Stefánsdóttir, 108,28
3. Linda Jóhannsdóttir, 110,29
SVIG:
Stúlkur 10 ára og yngri:
1. Hjördis Hjörleifsdóttir. 91,53
2. Linda Jóhannsdóttir, 127,10
3. Hætti.
STÓRSVIG:
Stúlkur 11—12—13 ára:
1. Guðrún Þorsteinsdóttir, 79,21
2. Þórgunnur Vigfúsdóttir, 79,35
3. Kristín Gunnþórsdóttir, 80,57
SVIG:
Stúlkur 11—12—13ára:
1. Guðrún Þorsteinsdóttir, 80,07
2. Þórgunnur Vigfúsdóttir, 80,29
3. Anna Karlsdóttir, 81,40
STÓRSVIG:
Drengir 11—12 ára:
1. Einar Hjörleifsson, 71,84
2. Stefán Gunnarsson, 73,01
3. Haraldur Sigurðsson, 74,58
Svo vonum við að sem flestir gefi
sér tíma til að bregða sér á skíði það
sem cftir cr vetrar og hressi þannig
app á líkamann og sálina.
laga sinna er lengst hafa verið
komnir á framabraut íþróttar-
innar. En þjálfaraekla hefur
ávallt verið dragbítur á frekari
framgang Judos hér í bæ og er
því grátlegt til þess að hugsa
hvernig hollenski íþróttakenn-
arinn Cees svo að segja rann
fram úr greip okkar Akureyr-
inga snemma í vetur.
Á árinu 1980 veitti JSl Jóni
Hjaltasyni afreksgráðun. Hann
hafði áður verið 4 kyu en fékk
nú leyfi til að bera gráðuna 2
kyu án undanfarandi prófs. En
þess má geta að slíkar gráðu-
veitingar eru fremur fátíðar.
Á kyu móti sem JSl hélt varð
Jón í öðru sæti í 70-80 kg. fl. og
síðar á árinu bar hann sigur úr
býtum í Ýlismóti JRA og fékk
hann þá einnig Ýlisbikarinn til
varðveislu um tveggja missera
skeið. Þá var Jón annar tveggja
Akureyringa er sæti áttu í
landsliði íslands í Judo síðast-
liðið ár hinn var bróðir hans
Þorsteinn Hjaltason.
Stökkmót í
Hlíðarfjalli
Á laugardaginn kemur verður
haldið stökkmót í stökk-
brautinni við Ásgarð í Hlíð-
arfjalli. Þetta er punktamót í
stökki og verða allir bestu
stökkvarar landsins þar
mættir. Sama dag verður
einnig Akureyrarmót í stór-
svigi 12 ára og yngri.
Á sunnudag verður keppt í
skíðagöngu og mæta þá allir
bestu göngumenn landsins.
Handbolti
Um næstu helgi fer meistara-
flokkur KA í handknattleik til
Reykjavíkur og leikur þar tvo
mjög þýðingarmikla leiki við
HK og Tý í Vestmannaeyjum.
Öll þessi lið eru í toppbaráttu
annarrar deildar, þannig að bú-
ast má við hörkuleikjum. Ef KA
nær ekki í stig í þessari ferð, má
ætla að fyrstu deildar draumur-
inn sé úti. Vonandi tekst þeim
þó vel upp og sigra þessi lið.
3. Ingi Brynjarsson,
SVIG:
Stúlkur 14 ára og eldri:
1. Kristín Símonardóttir,
2. Ingigerður Júlíusdóttir,
3. Þórey Jónsdóttir,
Drengir 13—15 ára:
1. Þorsteinn Guðbjörnsson,
2. Jón B. Bragason,
3. Guðmundur Kristjánss.,
100,96
Samt.
96,76
102,26
213,63
Firmakeppni í innan-
hússknattspyrnu
Um næstu helgi gengst knattspyrnudeild Þórs fyrir firmakeppni í
114,00 innanhúsknattspyrnu. Það eru tuttugu lið skráð í mótið, sem hefst á
117,65 laugardaginn í íþróttaskemmunni. Keppt er i fjórum riðlum og eru
135,81 fimm lið í hverjum riðli. Tvö fyrstu komast síðan í úrslitakeppni.
DAGUR.5