Dagur - 05.03.1981, Síða 7
Bílstjórafélag Akureyrar:
Af gefnu tilefni
Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Strandlíf með
Glynnis O’Connor og Sey-
mor Cassel í aðalhlutverk-
um. Sagan gerist á strönd-
inni meðal unga fólksins,
sem þar heldur sig. Það
dansar, spilar, leikur sér í
sjónum og elskast. Kl. 11
sýnir bíóið myndina Svarta
beltið sem er spennandi
karatemynd með Jim Kelly í
aðalhlutverki.
Nýja bfó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Bragðarefirnir
með Bud Spencer og Ter-
ence Hill í aðalhlutverkum.
Charlie (Bud Spencer) á
flutningabíl, sem hann elsk-
ar öllu ofar. Hann sefur og
starfar í vagninum. Ekki er
langt síðan Charlie fór að
stunda heiðarlega atvinnu.
Árum saman starfaði hann í
spilavítum Paragulis hins
gríska, frægasta fjárglæpa-
manns Bandaríkjanna.
Charlie er öllum hnútum
fjárhættuspilamennskunnar
kunnugur. Þegar leyniþjón-
ustuarmur bandaríska sjó-
hersins ákveður að láta til
skara skríða gegn hinum al-
ræmda Paragulis, er Charlie
sá aðili, sem álitið er að hafi
ráð undir hverju rifi, Ungur
liðsforingi (Terence Hill) í
sjóhernum er valinn sam-
starfsmaður Charlies. Sá er
fullur af klækjum, og fyrr en
varir er Charlie flæktur í
margslunginn köngulóarvef.
Erfitt reynist þó að hafa
hendur í hári Paragulis og
félaga hans. Grikkinn al-
ræmdi hefur fast aðsetur um
borð í lystisnekkju nokkurri
og rekur þar spilavíti við
góðar undirtektir.
Af gefnu til efni og vegna ríkjandi
misskilnings um atvinnuréttindi og
atvinnuvernd, vill Bílstjórafélag
Akureyrar upplýsa eftirfarandi:
Þann 21. nóvember 1979 var
gefin út reglugerð af Samgöngu-
ráðuneyti íslands um hámarks-
fjölda íeigubifreiða til sendiferða-
aksturs á félagssvæði Bílstjóra-
félags Akureyrar.
Önnur grein reglugerðarinnar
hljóðar svo:
Fjöldi leigubifreiða til sendi-
ferðaaksturs takmarkast við töluna
10 sbr. þó 8. gr. laga nr. 36 frá 9.
maí 1970.
Tölu þessa má endurskoða á 2ja
ára fresti. Áður en ákvörðun er
tekin um nýja hámarkstölu, skal
leita umsagnar Bílstjórafélags Ak-
ureyrar og bæjarstjórnar
Akureyrar.
Þegar árið 1978 var þessari
hámarkstölu náð og jafnframt
fékkst reynsla á hámarksþörf
sendibíla í bænum.
Á svipuðum tíma fjölgaði alls-
konar kerrum og aftanívögnum,
sem sumir hverjir hafa verið not-
aðir við ýmis þau verkefni, sem við
höfðum atvinnu af áður.
Vegna þessa viljum við benda á 3.
gr. áðurnefndrar reglugerðar
svohljóðandi:
Leiguakstur telst, þegar sendi-
bifreið er seld á leigu ásamt öku-
manni til flutninga á vörum fyrir
tiltekið gjald, þar sem ökumaður
eða eigandi bifreiðarinnar er
Margrét Bóasdóttir, sópran-
söngkona og Ulrich Eisenlohr
píanóleikari halda tónleika í
Borgarbíói á Akureyri laugar-
daginn 7. mars, og hefjast tón-
leikarnir kl. 17. Á efnisskránni,
sem er mjög fjölbreytt, verða lög
eftir Purcell, Brahms, Sibelius,
Kaldalóns, Mussorgsky,
Puccini og Cilea.
hvorki eigandi, seljandi né kaup-
andi vörunnar, sem flutt er.
/ lögum nr. 36 frá 9. maí 1970
segir svo í lok 3. gr.:
I þeim kaupstöðum, þar sem
viðurkenndar sendibifreiðastöðvar
eru starfandi, skal öllum óheimilt
að stunda leiguakstur (eða taka
gjald fyrir akstur, hvort sem er á
tengivagni eða farangursrými bif-
reiðar) utan stöðvar eða frá stöð,
sem ekki er viðurkennd.
/ sömu lögum segir svo í 8. gr.:
Þegar heimild til takmörkunar er
veitt sbr. 2. gr. 4. gr. og 6. gr. er
óheimilt að skerða atvinnuréttindi
þeirra manna, sem á lögmætan hátt
stunda leigubifreiðaakstur og eru
fullgildir félagar í hlutaðeigandi
stéttarfélagi, þá er takmörkun
hefst.
Að lokum segir i 11. gr.:
Brot gegn lögum þessum og
reglugerðum, sem samkvæmt þeim
verða settar, varða sektum frá
500-20.000 krónum, nema þyngri
refsing liggi við eftir öðrum lögum
og skal farið með mál út af brotum
á lögum þessum að hætti opinberra
mála.
Akureyri, 20. febrúar 1981.
F. h. Bílstjórafélags Akureyrar,
Gústaf R. Oddsson,
Eggert Jónsson,
Kristján Grant,
Þóroddur Gunnþórsson,
Bjarni Jónsson,
Örlygur Axelsson,
Steinar Baldursson.
Margrét, sem nú er búsett í
Þýskalandi, hefur lagt sund á
söngnám við háskólann í Heidel-
berg og Stuttgart. Hún hefur komið
fram á fjölmörgum tónleikum í
Þýskalandi, og haldið sjálfstæða
tónleika hér heima og sungið fyrir
útvarpið.
Aðgöngumiðasala fer fram í
Borgarbíói 1 klst. fyrir auglýstan
tónleikatíma.
Tónleikar á laugardag
Húsavík
Netagerðarmaður óskast
Áformaö er að setja upp netagerðarverkstæði,
veióarfæragerð á Húsavík. Óskað er eftir neta-
gerðarmanni til að taka að sér eða starfa við slíkt
fyrirtæki á Húsavík.
Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni
sími 96-41222.
Bæjarstjórinn Húsavík.
Húsnæði óskast
Fjórðungssjúkrahúsið óskar eftir að taka á leigu
•íbúðir eða raðhús, til afnota fyrir starfsfólk
sjúkrahússins.
Upplýsingar gefur Friðrik Friðjónsson í síma 22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
BILARAFMAGN
ÖLL ÞJONUSTA
VARÐANDI RAF-
KERFIBIFREIÐA
LALTKltXATOltUl J
norðurljós sf.
RAFLAGNAVERKSTÆÐI
FURUVÖLLUM 13 SiMI 21669
DAGUR.7