Dagur - 24.03.1981, Page 6

Dagur - 24.03.1981, Page 6
20 börn teppt á lllugastöðum Á mánudag í síöustu viku fóru rösklega 20 börn í 6. bekk í Lundarskóla austur á Illuga- Alfa-nefnd á Króknum í tilefni af alþjóðlegu ári fatl- aðra, ALFA 81, var í janúar s.l. skipuð svokölluð ALFA nefnd á Sauðárkróki eins og í fjölmörg- um öðrum kaupstöðum. Verkefni nefndarinnar er m.a. að vinna að upplýsingamiðlun í hér- aðinu í samráði við ALFA nefnd Félagsmálaráðuneytis. Þar að auki mun nefndin vinna ýmiss smærri verkefni í sambandi við aðbúnað- armál fatlaðra í Sauðárkróksbæ. í ALFA nefnd Sauðárkróks eiga eftirtalin sæti: Sigurlína Árnadóttir og Flelga Hannesdóttir frá félags- málaráði, Lára Angantýsdóttir frá Sjálfsbjörg, Aðalheiður Arnórs- dóttir frá félagsstarfi aldraðra, sem jafnframt er ritari nefndarinnar. Formaður ALFA nefndar Sauð- árkróks er Friðrik Á. Brekkan, félagsmálastjóri. staði, þar sem þau áttu að dvelja í tvo daga. Dvölin lengdist um tvær nætur, þar sem ófærð kom í veg fyrir að tækist að ná í þau s.l. miðvikudag, en þann dag átti annar hópur barna úr sama skóla að fara austur. Hörður Ólafsson, skólastjóri sagði, að á föstudag hefði verið farið austur á fjallabíl, með drifi á öllum hjólum og náð í börnin. Þau voru hin ánægðustu með þessa óvæntu framlengingu, en Hörður sagði að það hefði farið um suma, þegar á horfðist að dvölin lengdist fram yfir helgi. „Fannst þá ferða- lagið ætla að verða dálítið langt.“ „Við fórum austur í fyrsta skipti I fyrra og þá var dvalið í eina nótt með sjötta bekk. Kennararnir voru mjög ánægðir með ferðina og töldu að börnin hefðu fengið mikið út úr henni, en þau þurfa t.d. að skipu- leggja ferðina sjálf, sjá um matar- æði og annað sem nauðsynlegt er í tvær nætur. Þetta var fyrsti hópur- inn af fjórum, sem á að fara austur að Illugastöðum," sagði Hörður. Þess má geta að á fimmtudag fór snjóbíll austur og náði í þrjá stráka. Bíllinn var á vegum Þórs, en strák- arnir eru lykilmenn í liði, sem fór suður í keppnisferð. Forráðamenn Lundarskóla notuðu tækifærið og sendu matvæli með bílunum austur svo enginn leið skort á Illugastöð- um. Þvottasnúrur að húsabaki. Mynd: á.þ. Greiðari flutningar á ströndina Skipndeild Sambandsins er nú farin að notfæra sér í stór- auknum mæli strandsiglinga- þjónustu Skipaútgerðar ríkisins til að tryggja fljóta og greiða flutninga á vörum frá útlöndum til hinna ýmsu hafna á strönd- inni. Hafa þessir flutningar rnargfaldast á einu saman árinu 1980 frá því sem áður var. Deildin býður nú reglubundna Flóamarkaður N.L.F.A. á III hæð í Amaró er opin alla mánudaga frá kl. 14-18. Hlutir á markaðinn þegnir með þökkum. Stjórnin. Kaffisala í Lundarskóla. KFUM og KFUK efna til kaffisölu í Lundarskóla n.k. sunnudag 29. marz frá kl. 15-18 e.h. Allur ágóði renn- ur til félagsheimilis KFUM og K að Sunnuhlíð 12. Einnig verða á sama stað til sölu ýmsir munir til tæki- færis-, og fermingargjafa. Komið og drekkið síðdegis- kaffið í Lundarskóla þann 29. mars n.k. Húsbygginga- nefnd. Árshátíð Sjálfsbjargar og í- þróttafélags fatlaðra verður haldin í Bugðusíðu 1, (ný- bygging Sjálfsbjargar) laugar daginn 28. mars og hefst kl. 20 stundvíslega. Veislumatur, kalt borð. Mörg skemmti- atriði og íjögurra manna hljómsveit sjá um að allir verði I ofsa stuði. Allar nánari upplýsingar og miða- pantanir í síma 21557 fyrir kl. 17 fimmtudaginn 26. mars. Verið velkomin á hátíð ársins. Félagsmálanefnd. I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr. 275 fundur fimmtudaginn 26. þ. m. kl. 20.30 í félags- heimili templara Varðborg. Fundarefni: Venjuleg fund- arstörf. Mætið vel. Æ. t. Lionsklúbbur Akureyrar fundur n.k. fimmtudag kl. 12.15 í Sjálfstæðishúsinu. n Huld 59813257 — VI — 2 I.O.O.F. Rb 2 = 1303258 Vi = 9.0. KvenfélagiA Baldursbrá heldur kvöldverðarfund í Smiðj- unni mánudaginn 30. mars kl. 7.30. Þátttaka tilkynnist í síma 22764, 22606 eða 23527 fyrir föstudag. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. MCSSUR Akureyrarkirkja messað sunnu- daginn 29. þ. m. kl. 2 e.h. Guðmundur Magnússon deildarstjóri predikar. Ein- söng syngur Sigurður Svan- bergsson. Sálmar nr. 6, 353, 292, 74, 531. P.S. Akureyrarkirkja föstumessa kl. 20.30 á miðvikudag. Passíu- sálmar 15. sálmur v. 12-17, 17. sálmur v. 21-27 og 19. sálmur v. 7-11. P.S. Minningarspjöld kvenfélagsins Hlífar fást í bókabúðinni Huld, í símaafgreiðslu sjúkrahússins og hjá Lauf- eyju Sigurðardóttur Hlíðar- götu 3, Allur ágóði rennur til bamadeildar F.S.A. AUGLÝSIÐ í DEGI Fíladelfía Lundargötu 12, Bibliulestur fimmtudaginn 26. kl. 8.30. Allir velkomnir. Sunnudagur 29. sunnudaga- skóli kl. 11 f.h. Öll börn vel- komin. Almenn samkoma kl. 17. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Föstudaginn 27. mars kl. 17.00 opið hús fyrir börn í Strandgötu 21. Sunnudag kl. 13.30 sunnu- dagaskóli kl. 17.00 almenn samkoma. Mánudag kl. 16.00 heimilissambandið og kl. 20.30 hjálparflokkur. Allir velkomnir. Sjónarhæð. Almenn samkoma n.k. sunnudag kl. 17.00. Drengjafundur á laugardag kl. 13.30. Sunnudagaskóli í Glerárskóla kl. 13.15 og 1 Lundarskóla kl. 13.30. Verið hjartanlega velkomin. Kristniboðshúsið Zfon: Sunnu- daginn 29. marz Sunnu- dagaskóli kl. 11 Öll börn velkomin. Samkoma kl. 20.30 ræðumaður Reynir Valdimarsson. Allir hjartan- lega velkomnir. Gjafir og áheit í Minningasjóð íþróttafélags fatlaðra Akur- eyri 1980. Jóninna Pálsdóttir 2000. Lilja og Hallgrímur 1000. Haukur og Hlíf 2000. Fjölskyldurnar Hjarðarhaga 5000. Þorsteinn Svanlaugs. 2000. Hansína Jónsdóttir 5000. Garðar Ingjaldsson 4000. GIG 3000. Tryggvi Gunnarsson 1000. Hekla og Hörður 1000. Bára Stefáns- dóttir 5000. Aðalbjörg og Ingvar 10.000. Sigríður Jónasdóttir 5000. Bestu þakkir, íþróttafélag fatlaðra. Minningarspjöld fást í Bókabúðinni Bókval og í Eiðsvallagötu 13, Akureyri. Stjórnin. þjónustu við landsbyggðina 1 tengsl um við stykkjavöruflutninga sína frá útlöndum til Reykjavíkur, bæði á lausum vörum og í gámum. Unnið hefur verið að því undanfarið að samræma reglubundnar siglingar Skipadeildar til Reykjavíkur og ferðir Skipaútgerðarinnar áströnd- ina, og með því móti eru möguleik- arnir á greiðum flutningi stórauknir frá því sem væri ef deildin flytti eingöngu vörur á ströndina með núverandi skipakosti sínum. Samkomulag hefur tekist við Skipaútgerðina um hagkvæm flutn- ingsgjöld. Með því móti hefur Skipadeild tekist að stuðla að lækkuðum flutningskostnaði frá erlendum höfnum til hinna ýmsu staða vítt um landið. TEIKN T STOFAN STILL AUGLÝSINGAR-SKILTAGERÐ TEIKNINGAR-SILKIPRENT SÍMi: 2 Eining: Urðu að fresta hjónaballi Mývatnssveit 18. mars. Félags- og skemmtanalíf hef- ur verið fremur líflegt í Mývatnssveit í vetur. þrátt fyrir að tíðarfarið hafí verið einstaklega óstöðugt og oft sett strik í reikninginn. Um fyrri helgi varð t.d. að fresta hjónaballi vegna veðurs, en ballið var svo haldið s.l. föstudagskvöld í Skjólbrekku. Skemmtiskrá var öll heima- fengin og þótti takast vel. Var svo dansað af miklu fjöri við undirleik ágætrar hljómsveitar Finns Eydals og Helenu. J. I. Ályktun um efnahagsmál Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar haldinn 15. mars 1981 lýsir yfir stuðningi sínum við ályktun Alþýðusambands fslands frá 8. jan. s.l. vegna efnahagsráðstafana ríkis- stjómarinnar. Fundurinn mótmælir harðlega sífelldum íhlutunum stjórnvalda í þá átt að skerða gerða kjara- samninga. Jafnframt harmar fundurinn að ríkisstjórnin skyldi ekki á síðasta ári, velja þann kostinn er Verka- mannasambandið benti á þ.e.a.s. skattalækkanir til að mæta hluta af kjaraskerðingu lægstlaunaða fólks- ins, 1 stað verðlausra króna, sem hurfu eins og dögg fyrir sólu í gengisfellingu og óðaverðbólgu. Því fagnar fundurinn að nú hefur ríkisstjórnin breytt um skoðun hvað þetta varðar, öll viðleitni stjórnvalda sem verða til þess að varðveita kaupmátt lægstu launa með skattalækkunum og afnámi skatta á allra lægstu laun, stuðla einnig að meira atvinnuöryggi. Fundurinn skorar á A.S.Í. að fylgjast vel með framvindu mála í sambandi við efnahags- og kjara- mál, og einnig að sjá til þess að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit. Jafnframt telur fundurinn nauðsynlegt að finna nýjar leiðir til að tryggja kaupmátt launa, því sé nauðsynlegt að boða til ráðstefnu á vegum heildarsamtakanna þar sem málin séu skoðuð í nýju ljósi. Starfsmiðstöð KFUM og K Eins og flestum mun kunnugt eru KFUM og KFUK að koma sér upp félagsheimili eða starfs- miðstöð í stórhýsi, sem verið er að byggja að Sunnuhlíð 12. Umfangsmikil starfssemi félag- anna fer nú fram í láns- og leiguhúsnæði á þremur stöðum í bænum. Háir það starfinu mjög, að eiga engan samastað. Eins og vænta má er bygging félagsheimilis mikið og fjárfrekt fyrirtæki fyrir tiltölulega fámennan hóp. Það hefur þó sýnt sig að félögin eiga stóran hóp vel- unnara, sem ætíð hafa lagt málefn- um þeirra lið ef eftir því hefur verið leitað. Nú gefst enn eitt tækifæri til þess að styrkja starf KFUM og KFUK á Akureyri, því næstkom- andi sunnudag hafa félögin kaffi- sölu í Lundarskóla frá kl. 3-6 e.h. Verður þar á boðstólum kaffi, mjólk eða gos ásamt góðu brauði. Einnig verða á sama stað seldir ýmsir smámunir, m.a. frá verslun- inni Kirkjufelli í Reykjavík, sem hentugir eru t.d. til fermingargjafa. Akureyringar, fjölmennum og leggjum góðu máli lið. Byggingarnefnd KFUM og KFUK. 6•DAGUR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.