Dagur - 26.03.1981, Side 4

Dagur - 26.03.1981, Side 4
DAGUR Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Samstaða er nauð- synleg Nú er mjög um það rætt að breyta kosninga- og kjördæmaskipan landsins, þannig að hlutur íbúa suðvestanlands verði réttur nokk- uð frá því sem nú er. Um þetta er ekki nema gott eitt að segja, svo framarlega sem þess verði jafn- framt gætt, að rétta hlut íbúa strjálbýlisins, en þeir standa mjög hölium fæti á fjölmörgum sviðum. Það er viðbúið að strjálbýlið muni ávallt eiga nokkuð undir högg að sækja, þar sem allar helstu stjórnsýslustofnanir og önnur þjónustufyrirtæki eru staðsett á Reykjavíkursvæðinu. Því væri al- gjör jöfnun kosningaréttar mikill ójöfnuður gagnvart íbúum dreif- býlisins. Sem betur fer hafa flestir skilning á þessu atriði málsins. Jöfnun kosningaréttarins þýðir hins vegar ekki sjálfkrafa jöfnun aðstöðu á öðrum sviðum. Það er viðbúið að fyrir réttindamálum dreifbýlisins þurfi að berjast með oddi og egg og mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því, að sú bar- átta getur orðið erfiðari eftir að hlutföllum milli landsbyggða- og höfuðborgarþingmanna hefur verið raskað frá því sem verið hef- ur. Ef vel ætti að vera þyrfti að rétta hag strjálbýlisins áður en kosningaréttur verður jafnaður. Þar sem viðbúið er að róðurinn verði þyngri fyrir landsbyggðina, þegar annaðhvort verður búið að fjölga þingmönnum á Reykjavík- ursvæðinu eða fækka þingmönn- um á landsbyggðinni, er nauð- synlegt að efla samstarf og sam- vinnu milli byggðarlaga og héraða úti um land. Mynda þarf stórar og sterkar heildir því að öðrum kosti er við því að búast að valdið safn- ist meira en góðu hófi gegnir á einn stað á landinu. Megingalli litlu kjördæmanna var sá, að þau gátu aldrei treyst á meiri liðsstyrk á Alþingi en þau höfðu sjálf yfir að ráða. Kostur stórra kjördæma er hins vegar sá, að miklar líkur eru til að í hópi þingmanna þess séu menn úr öll- um flokkum og kjördæmið eigi fulltrúa í öllum helstu nefndum þingsins. Þegar slíkur hópur þingmanna beitir sér í málum eru góðar horfur á að þau nái fram að ganga. Atvinnumál Norður-Þing- eyinga eru gott dæmi um það, hvernig hægt er að virkja stóran hóp þingmanna til hagsbóta fyrir smæstu byggðarlögin. Afskekkt og lítil byggðarlög njóta þannig stóru kjördæmanna, en gjalda þeirra ekki. Þannig er um alla íbúa kjördæmanna, ef rétt er að málum staðið. Sjöfugur Skúli Magnússon Á morgun, 27. mars, er vinur minn, Skúli Magnússon, kenn- ari, sjötugur. Skúli er Hörgdælingur, fæddur í Hátúni þar sem fqr- eldrar hans, Magnús bóndi Friðfinnsson og kona hans Friðbjörg Jónsdóttir, bjuggu. Þau fluttu er hann var ungling: ur að Skriðu í Hörgárdal, sem er gamalt ættaróðal Skúla í móð- urætt. Eftir að hafa lokið stúdents- prófi frá M.A. 1935 fór Skúli til Kaupmannahafnar til náms í sálarfræði. Þarkvæntist hann 1938, heit- konu sinni og fyrrverandi skölasystur Þorbjörgu Pálsdótt- ur, dóttir Þorsteinsínu Brynjólfsdóttur og Páls Gísla- sonar, stórbónda að Víðidalsá í Steingrímsfriði. Vegna stríðsins 1938 kom Skúli heim og settist í Kennaraskólann og lauk þaðan prófi 1940. Eftir það kenndi hann eitt ár í Vestmannaeyjum en flyst 1941 til Akureyrar og kenndi í 37 ár við Gagnfræðaskóla Akureyrar, einnig við Iðnskólann og Tækniskólann seinni árin. Auk þess var hann prófdómari í sögu við Menntaskólann á Akureyri. Með prúðmannlegri og alúð- legri framkomu sinni aflaði Skúli sér virðingar samkennara sinna og nemenda. Nemendur hans hafa sagt mér að hann hafi haft aðal góðs kennara, agavandamál þekkt- ust ekki í tímum hjá honum og hann hélt athygli nemendanna óskiptri. Eftir samkennara hans hef ég að víðtækur skilningur Skúla á íslensku máli og islenskum kveðskap, þekking hans á sögu, bókmenntum og humaniskum fræðum og síðast en ekki síst skilningur hans á getu nemenda sinna hafi gert hann að afburða kennara. Gamla ættaróðalið, Skriða, átti alltaf mikil ítök í Skúla. Á honum sannaðist að „Römm er sú taug er rekka dregur föður- túna til.“ í Skriðu dvaldi hann löngum á sumrin með fjöl- skyldu sinni við heyskap og önnur bústörf og átti lengi hálfa jörðina á móti Finni bróður sínum. Öll ræktun er honum mjög að skapi og rík í eðli hans. Hann hefur komið sér upp reit í gamla fjölskyldulandinu og fet- að þar í fótspor langalangafa síns, Þorláks Hallgrímssonar, sem fyrstur manna gróðursetti tré á íslandi og var einnig með þeim fyrstu að rækta kartöflur hér á landi. I reitnum sínum hafa þau hjónin, Þorbjörg og Skúli, átt margar góðar stundir við gróð- ursetningu runna og trjá- plantna, sem eru nú óðum að vaxa úr grasi. Skúli er, eins og áður er sagt, ágætur íslenskumaður, talar og ritar mjög vandað mál. Það er því eðlilegt að tómstundirnar hafi farið í lestur góðra bóka. Nú síðustu árin hefur hann fengist við þýðingar. Fyrir síð- ustu jól kom út bókin Ríki mannsins, drög að geðheilsu- fræði eftir Vibeke Engelstad, sem Skúli þýddi úr norsku, frá- bærlega vel, að dómi gagnrýn- enda. Við Skúli kynntumst fljótlega eftir að ég kom til Akureyrar fyrir nær 30 árum. Voru það skyldleikar konu minnar og hans, sem þar lágu áð baki. Það leyndi sér ekki hvern mann Skúli hafði að geyma. Prúð- mennskan og góðvildin eru honum svo eðlislægar að manni líður ávalt vel í návist hans. Skúli er hamingjumaður í einkalífi sínu og hefur lagt sömu alúð við heimilið og allt annað sem hann hefur lagt hönd á. Þau hjónin, Þorbjörg og Skúli, hafa verið einstaklega samhent í lífinu, staðið saman í blíðu og stríðu og skapað sér menningarlegt heimili, sem enst hefur með sama blæ alla tíð. Börnin fimm, sem öll eru stúd- entar frá M.A., bera foreldrun- um ótvírætt vitni um góðar erfðir og gott fordæmi í upp- vextinum. Magnús læknir á Húsavík, Margrét kennari í Reykjavík, Páll prófessor við Háskóla íslands, Þórgunnur er að ljúka námi í bókmenntum við Háskólann í Árósum, Skúli nemur líffræði við Háskóla Is- lands. Barnabörnin eru tíu. Þorbjörg og Skúli fluttust til Reykjavikur fyrir tveim árum í nágrenni barna sinna, sem flest eru búsett þar. Þau hafa komið sér vel fyrir að Meistaravöllum 13. Á heimili þeirra þar ræður sama gestrisnin ríkjum og var á heimili þeirra hér á Akureyri. Til þeirra er alltaf gott að koma og okkur hjónum tekið með opnum örmum. Við sendum hlýjar afmælis- kveðjur suður yfir heiðar til Skúla og fjölskyldu hans. Hjörtur Eiriksson. ■UM HELGINA' Leikfélag M.A.: Frumsýning á sunnudagskvöldið Næstkomandi sunnudagskvöld kl. 20.30 frumsýnir Leikféíag Menntaskóians á Akureyri bandaríska gamanleikritið „Er á meðan er“ eftir Kaufman og Hart. n. snwiiiiÉMt« Leikstjóri að þessu sinni er Guð- rún Alfreðsdóttir, en hún hefur leikstýrt vfðsvegar um land. Margir nemendur M.A. hafa starfað við uppfærslu leikritsins, eða um 40 manns, þar af eru leikendur 19. „Er á meðan er“ hefur áður verið sett upp hjá L.M.A. en það var árið 1964, þá við mikla að- sókn og góðar undirtektir. Leikrit þetta er mjög þekkt fyrir kímni og gamansemi bæði hér á landi sem annarsstaðar. I verkinu draga höfundar fram mynd af bandarísku þjóðfélagi á kreppuárunum. Þó að gaman- semin skipi öndvegi í leikritinu er óhætt að segja að á bak við hverja setningu búi djúp alvara. „Er á meðan er“ er 34. verkefni L.M.A. og annað leikritið sem leikfélagið sýnir eftir Kaufman og Hart. Hitt var „Gestur til mið- degisverðar“ sem sýnt var 1958. Næstu sýningar verða í Sam- komuhúsinu á mánudags- og þriðjudagskvöld og hefjast kl. 20.30. Sýningarfjöldi er óákveð- inn. Rauða húsið: Magnús Tómasson sýnir Laugardaginn 28. mars verður opnuð sýning á verkum Magnúsar Tómassonar í Rauðahúsinu hér á Akureyri. Sýningin mun standa tii 5. apríl og verður opið alla daga frá 16.-22. Boðskort verða ekki send út, en öllum er boðið að koma. Magnús mun sýna verk, sem voru á sýningu Vetrarmyndar á Kjarvaisstöðum fýrir nokkru, auk þess mun hann sýna áður óbirt verk. Magnús hefur lengi fengist við myndlist og er af fróðum talinn í hópi þeirra er fremstir fara á því sviði í landinu. Reykjavíkurborg hefur heiðrað hann með því að hafa hann á launum við listiðkun sína og er hann fyrsti myndlista- maðurinn sem nýtur þeirrar ný- breytni borgarinnar. Magnús Tómasson, sem var einn af stofnendum SUM, sem starfaði fyrir allnokkrum árum, hefur haldið fjölmargar sýningar bæði hér á landi svó og í útlönd- um. Hann hefur einnig unnið nokkuð við leikhús og þá sem leikmyndateiknari og er skemmst að minnast leikmyndar hans við Beðið eftir Godot sem Leikfélag Akureyrar setti upp hér í fyrra. Sýningar í Rauða húsinu, sem þegar eru orðnar þrjár, hafa allar gengið mjög vel. Fjölmargir hafa komið að skoða og lítillega hefur verið selt af verkum. Á næstunni munu enn um sinn verða sýningar en í bígerð er kvikmyndavika pn nákvæm dag- setning hefur enn ekki verið fundin. Þá er og ætlunin að upplestur verði innan tíðar. Allar uppákomur, hverju nafni sem þær kallast verða tilkynntar op- inberlega þegar nær þeim dregur. Sjálfstœðishúsið: Gítartónleikar á laugardaginn Á laugardaginn kl. 14 mun Pétur Jónasson halda gítartónleika í Sjálfstæðishúsinu. Pétur hóf gít- arnám við Tónlistarskólann í Garðabæ 9 ára gamall og var kennari hans Eyþór Þorláksson, gítarleikari. Vorið 1976 lauk Pét- ur einleikaraprófi frá skólanum og burtfararprófi ári síðar. Haustið 1978 hóf Pétur fram- haldsnám við hinn þekkta gítar- skóla Estudio de Árte Guitar- ristico í Mexikó og var einka- kennari hans argentíski gítarleik- arinn Manuel Lopez Ramos. Burtfararprófi lauk Pétur í ágúst á síðasta ári. Pétur hefur haldið einleikstónleika í Mexxxíkóborg, Reykjavík, ísafirði, Akranesi og Höfn í Hornafirði og hlotið lof- samleg ummæli gagnrýnenda. Auk þess hefur hann gert út- varpsþætti fyrir Radio Educación í Mexíkóborg og svo íslenska rík- isútvarpið. Á efnisskránni eru verk eftir: Luysde Narváez, Manuel Ponce, J. S. Bach, William Walton, H. Villa-Lobos og Isaac Albeniz. Tónleikarnir hefjast klukkan 14 eins og fyrr sagði. Rósmundur G. Ingvarsson: Hagsmunir hinna fáu eru miklir Hóli 16. mars ’81. Hr. ritstjóri! í morgun heyrði ég í hljóðvarpi lesið úr forystugrein blaðs þíns um Blönduvirkjun. Sumt af því sem þar var sagt, er að mínum dómi villandi og sumt beinlinis rangt. Einnig hefi ég einu sinni áður heyrt ranga túlkun þessa máls í forystu- grein blaðsins. Ég sé blaðið sjaldan og hefi ekki fylgst með skrifum ykkar um Blönduvirkjunarmálið en heyri stöku sinnum lesið úr for- ystugreinum. I greininni, sem lesið var úr í morgun, var (ef ég man rétt) sagt eitthvað á þá leið, að andstaðan gegn Blönduvirkjun sé fámennur hópur, en mun hávaðasamari en þeir sem mæla með virkjuninni. Varðandi hávaðasemina er stað- reyndum hér algerlega snúið við. Talsmenn virkjunarinnar hér í Norðurlandskjördæmi vestra, hafa talað og skrifað hálfu meira um málið eða jafnvel margfalt meira en hinir sem hafa verið í andófi. Þeir hafa skrifað fjölmargar greinar í Tímann og fleiri blöð virkjuninni til framdráttar. Þeir hafa haldið fjölmenna áróðursfundi. Þeir hafa talað í útvarp. Þeir hafa sent frá sér fjölmargar fundasamþykktir frá bæjar- og sveitarstjórnum, félögum o.s.frv., margfalt fleiri en andstæð- ingamir. Og síðast en ekki síst hafa þeir safnað undirskriftum og farið í „kröfugöngu" til Reykjavíkur og truflað störf alþingis. Það sem bændur og náttúruverndarmenn hafa látið frá sér fara til mótvægis, hefur í öllum tilfellum verið minna og í sumum tilfellum margfalt minna. Rétt er að taka fram að við sem í andófinu stöndum, erum ekki að vinna gegn því að Blanda verði virkjuð, heldur gegn eyðingu þess gífurlega landsvæðis sem ráðgert hefur verið að færi undir virkjun- arlón, en það er a.m. 56 ferkm. úr- vals graslendi sem engin leið er að bæta fyrir. Varðandi undirskriftasöfnun sem „Blöndungar“ gengust fyrir og framkvæmd var í rafmagnsleysi og ófærð að þeirra sögn, er það að segja m.a., að orðalag yfirskriftar- innar var þannig að næstum allir gátu skrifað undir með sæmilega góðri samvisku (sérdeilis í raf- magnsleysi). Söfnun virðist aðal- lega hafa farið fram í kaupstöðum, kauptúnum og þorpum í kjördæm- inu og þeim sveitum sem ekki eiga aðild að viðkomandi afréttum. Að langmestu leiti er þetta fólk sem kemur málið harla lítið við fremur en t.d. Akureyringum. Hinir, sem eiga hagsmuna að gæta varðandi þessa fyrirhuguðu landeyðingu, eru sjaldan spurðir álits en verða samt fyrir skítkasti á opinberum vettvangi, og það að ósekju. Hagsmunir fara saman sagði blaðið í forystugreininni. Hags- munir hinna fáu eru miklir í þessu máli það er sótt á um að taka af okkur land sem er gild stóð undir okkar atvinnurekstri. Hagsmunir hinna mörgu er hinsveg- ar litlir, því þeim verður séð fyrir nægu rafmagni hvort sem Blöndu- virkjun verður næsta stórvirkjun eða ekki. En það er sjálfsagt klókt hjá „Blöndungum" að hafa orðalag undirskriftaplaggsins þannig að allir gætu skrifað undir það, en túlka síðan eins og þeim best hent- ar. í raun og veru hefur frekju- gangur „Blöndunga“ keyrt svo mjög úr hófi, að ekki er óeðlilegt að þeir, sem í þessu standa af hálfu þeirra sem hafa hagsmuna að gæta, hugsi sem svo að kröfuhópurinn eigi ekki skilið að látið sé að vilja hans í málinu. Aðalatriði þessa stórmáls, sem fyrirh. Blönduvirkjun hlýtur að teljast, er hvort réttlætanlegt er að eyða svo miklu graslendi á sama tíma og verið er að vinna að því fyrir stórfé frá almenningi, að auka og bæta gróður á landinu okkar. Hvort réttlætanlegt sé að eyðileggja eins mikið eða meira graslendi heldur en hægt er að græða upp. Þar að auki er ekki hægt að búa til jafngott graslendi eins og þama er áætlað að eyðileggja. Ég tel þessa landeyðingu alls ekki forsvaranlega. Hins vegar má segja að betri sé hálfur skaði en allur og því eru fulltrúar viðkom- andi sveitarfélaga nú á samninga- umleitana-fundum með fulltrúum ríkisins að kanna hvort samkomu- lags möguleikar eru á grundvelli tillagna um að þrengja að lóninu með stíflugörðum, sem jafnframt gera lónið hagkvæmara og án þess vatnsforði verði minni. Hr. ritstjóri. Vinsamlega bið ég þig að gera bragarbót í forystu- greinum blaðs þíns og — eða birta þessa aths. í blaðinu. Með kveðju, Rósmundur G. Ingvarsson. Hóli, Tungusveit, Skagafiröi. Gamla myndin Þessi mynd var tekin af flokki drengja 13-14 ára á febrúarmóti 1972. Hermannsmótið um helgina Um helgina verður haldið í Hlíöarfjalii Hermannsmótið svokallaða, en það er opið punktamót í stórsvigi og svigi, og verður allt besta skíðafólk landsins á meðal keppenda. Keppt er um glæsilegan bikar sem f.v. nemendur Hermanns Stefánssonar íþróttakennara gáfu á sínum tíma, og er nú keppt um þennan bikar í sext- ánda skipti. Árni Óðinsson frá Akureyri hefur oftast unnið bikarinn. Á laugardag verður keppt í stórsvigi og hefst keppnin kl. Snörp vióureign. Brynjar kastar andstæðingi sinum á móti, sem fór fram i síðasta mánuði. íslandsmótið í judo Sunnudaginn 8. mars var haldinn í Reykjavík fyrri hluti íslandsmótsins í judo. Keppendur voru allmargir eða um 40 talsins og var keppt í öllum þyngdarflokk- um karla. Aðeins einn keppandi frá J.R.A., tók þátt í þessu móti, Brynjar Aðalsteinsson, keppti hann í h- 65 kg, þyngdarflokki, en í þeim flokki voru 6 kepp- endur og því skipt í tvo riðla. Brynjari gekk vel framan af, vann sinn riðil, en náði ekki að vinna sigur á Jóhannesi Har- aldssyni U.M.F.G. í úrslita- glímunni, sem var mjög jöfn, hvorugur skoraði stig, urðu því dómarar að skera úr um sigur og dæmdu þeir Jóhannesi sigur. Seinni hluti mótsins fór síðan fram sunnudaginn 15. mars, og var þá keppt í opnum flokki karla, þyngdarflokkum kvenna og þyngdarflokkum unglinga. Sem fyrr fór aðeins einn keppandi frá J.R.A., Baldur Baldursson, keppti hann í flokki pilta í -r 60 kg., þyngdarflokki, í þeim flokki voru 7 keppendur og var skipt í tvo riðla. Baldur er svo til nýbyrjaður í (Framhald á bls. 6). Hvað er að gerast? Þrátt fyrir ófarir KA í hand- boltanum um síðustu helgi, leynist ennþá vonarneisti um fyrstu deildar sæti á næsta keppnistímabili. Um helgina kemur Týr úr Vestmannaeyj- um og leikur við KA á föstu- dagskvöldið og Þór á laugar- daginn. Ef KA sigrar Tý hafa þessi lið tapað jafnmörgum stigum, en Týr á þá eftir að leika tvo leiki og verður að vinna þá báða til að fá jafn- mörg stig og KA. Ef bæði Akureyrarliðin, Þór og KA, vinna Tý, verða vonir Vestmannaeyinga að engu um fyrstu deildar sætið. Miðað við gengi KA á heimavelli í vetur verður að telja þá sigurstrang- legri, þar eð þeir hafa engum leik tapað á heimavellinum, en aðeins unnið einn á útivelli. Staðan á toppi annarrar deildar er mjög flókin og gæti þurft að leika „slatta“ af auka- leikjum til þess að fá úr því skorið hverjir leika í fyrstu deild á vetri komanda, en tvö efstu lið deildarinnar flytjast beint upp í fvrstu deild. 11.30 og á sama tíma á sunnu- dag ennþá verður keppt í svigi og að sjálfsögðu keppt bæði í karla og kvennaflokki. Þá er einnig fyrirhugað punktamót í stökki, og Akur- eyrarmót í göngu. Úrslit í Ak. móti Úrslit í Akureyrarmóti i svigi, sem haldið var 14. og 15. mars. 12 ára og yngri. 7 ára drengir. 1. Gunnlaugur Magnússon 72.68 2. Stefán Þór Jónsson 77.13 3. Gunnar Ellertsson 77.40 7 ára stúlkur. 1. Harpa Hauksdóttir 73.48 2. Linda Pálsdóttir 91.01 3. Sísí Malmquist 95.11 8 ára drengir 1. Sævar Guðmundsson 69.40 2. Magnús Karlsson 72.59 3. Birgir Öm Tómasson 78.57 8 ára stúlkur 1. María Malmquist 71.60 2. Mundina Kristinsdóttir 93.50 3. Harpa örlygsdóttir 102.04 9 ára drengir 1. Sigurbjörn Þorgeirsson 67.43 2. Vilhelm Már Þorsteinss. 69.54 3. Viðar Einarsson 71.48 9 ára stúikur 1. Rakel Reynisdóttir 72.45 2. Asa Þrastardóttir 73.19 3. Sigriður Harðardóttir 74.01 10 ára drengir 1. Jón Ingi Ámason 62.52 2. Jón Harðarson 67.12 3. Kristinn Svanbergsson 68.52 10 ára stúikur 1. Sólveig Gísladóttir 66.60 2. Þorgerður Magnúsdóttir 70.46 3. Jórunn Jóhannsdóttir 78.78 11-12 ára drengir 1. Hilmir Valsson 60.86 2. Gunnar Reynisson 63.68 3. Aðalsteinn Ámason 63.92 11-12 ára stúlkur 1. Gréta Björnsdóttir 69.20 2. Arna ívarsdóttir 69.84 3. Helga Sigurjónsdóttir 70.71 Mars mót í skióagöngu. 15-16 ára drengir. (5 km) 1. Björgvin Birgisson 24.04 2. Jón Einarsson 25.08 13-14 ára drengir, (5 km) 1. Jón Stefánsson 20.08 2. Gunnar Kristinsson 22.35 11 ára drengir. (2.5 km) I. ÁsgeirGuðmundsson 15.08 4•DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.