Dagur - 26.03.1981, Blaðsíða 6
Akureyrardelld S.H.A.:
Stefna heilbrigðrar skynsemi
Hefur stýrt
kórnum í 35 ár
Kirkjukór Lögmannshlfðarkirkju
heidur tónleika f Akureyrarkirkju
sunnudagskvöldið 29. mars klukkan
20.30. Stjórnandi er Áskell Jóns-
son, sem hefur stýrt kómum f 35 ár
og verið organisti Lögmannshliðar-
kirkju jafnlengi. Þess má geta að á
tónleikunum mun sonur Áskels,
Hörður, og kona hans Inga Rós
Ingólfsdóttir, leika samleik á selló
og orgel. Á efnisskrá kórsins er
ýmisleg erlend og innlend kirkju-
tónlist. Aðalviðfangsefnið verður
Messa nr. 2 í G-dúr eftir Franz
Schubert.
Áskell Jónsson.
Borgarbió sýnir í kvöld kl. 9
myndina Xanadu með
Olivia Newton-John, Gene
Kelly og Michael Beck í að-
alhlutverkum. Sonni Mal-
one er prýðilegur málari og
að sögn einhver fljótvirkasti
* maður, sem til er í þeirri
grein. Hann hefur verið í
þjónustu auglýsingastofu
Simpsons, unað þar illa og
farið úr vistinni. Hann
kynnist Danna McGuire
sem lék áður í hljómsveit
með Glenn Miller og Sonni
fagurri stúlku sem segist
heita Kíra. Kl. 11 sýnir bíóið
myndina Ljúf leyndarmál.
Bráðskemmtileg djörf mynd
í léttum dúr.
JudO (Framhald af bls. 5).
íþróttinni og var þetta jafnframt
hans fyrsta mót. Andstæðingar
hans 5 talsins voru allir hærra
gráðaðir en hann, en þrátt fyrir
það þá lét hann sér ekki muna
um að vinna fjóra þeirra á
„ippon“ (10 stig, fullnaðarsigur)
og einn á „wasaari" (7 stig), og
hreppti þar með íslandsmeist-
aratitilinn. Baldur er greinilega
mjög efnilegur judomaður,
glímur hans einkenndust af
mjög mikilli ákveðni og rósemi,
sem er sjaldgæft að sjá jafnt hjá
byrjendum sem lengra komn-
um. g.b.a.
Herstöðvaandstæðingar hafa löngum átt þungan róður og
raðir þeirra sem af alefli hafa tekið þátt í baráttunni verið
þunnskipaðar. Þetta á ekki síst rætur sínar að rekja til þess að
margir virðast álíta að Herstöðvaandstæðingar séu einhver
vinstri öfgahópur eða útibú frá Alþýðubandalaginu. En þetta
er rangt. Herstöðvaandstæðingar eru allra flokka fólk sem á
sér það sameiginlega markmið að aflétta setu erlends herliðs
á íslensku landi. Og það er öðru nær en að hér sé um öfga-
stefnu að ræða. Stefnan gegn hernum er stefna mannúðar,
friðar og þjóðfrelsis. Hún er umfram allt stefna heilbrigðrar
skynsemi.
Afstaða almennings til hersins á
Miðnesheiði virðist nokkuð breyti-
leg. Þegar friðvænlegt er í heimin-
um og varnarmál og vígbúnaður
lítt til umræðu er að sjá sem mörg-
um íslendingum standi á sama um
herinn og segja eitthvað á þessa
leið: „mega þeir ekki vera greyin,
þeir eru þó alltént skárri en árans
Rússarnir.“ En þegar íslendingar
sjálfir eiga í erjum, eins og t.d. í
síðasta landhelgisstríði bregður svo
við að herinn verður hinn óvinsæl-
asti og á sér fáa formælendur. Þetta
4 4
•54
t.Vf
».4«
Uli'
stafar af því að mönnum verður
ljóst, þegar á reynir að herinn er
ekki hér okkur til hjálpar, rökin
sem eiga að réttlæta hersetuna
reynast rista ansi grunnt.
Það sem helst gerir hernum kleift
að sitja hér er að fólk sættir sig við
ríkjandi ástand, ef það ekki bein-
línis kemur við pyngju þess eða
hagsmuni, nennir ekki að karpa um
hermálið, beinir orku sinni að
málum sem virðast meira brenn-
andi í augnablikinu eins og launa-
og kjaramálum eða togarakaupum
afskekktra byggðarlaga.
Þær raddir heyrast nú æ oftar að
herinn fari héðan aldrei, nema
meirihluti þjóðarinnar krefjist þess.
Það hefur sýnt sig á undanförrium
áratugum að engu máli skiptir
hvort hægri eða vinstri stjórn situr í
landinu, herinn er jafnfastur í sessi
hvort sem er. Sést það best á því að
Alþýðubandalagið sem hefur
flokka helst hampað andstöðu við
herinn þegar það er í stjórnarand-
stöðu hefur átt sæti í þremur ríkis-
stjórnum síðasta áratug og enn situr
herinn sem fastast.
Herstöð vaandstœöingar hafrta þvi
forsjá stjórnmálaflokka en leggja
áherslu á að þjóðaratkvœðagreiðsla
um hermálið eitt og sér sé það eina
sem sýnt geti vilja þjóðarinnar. Við
getum alclrei haft annað en gott af
því að vita hvar við stöndum í þessu
máli.
í þjóðaratkvæðagreiðslu fá kjós-
endur tækifæri til þess að greiða
atkvæði um það hvort þeir vilja að
fslendingar haldi áfram að vera
þátttakendur í því vitfirrta víg-
búnaðarkapphlaupi sem nú fer æ
harðnandi og stefnir öllu lífi í voða.
í heimi þar sem hundruð
milljóna manna svelta heilu hungri
og eru algerlega sviptir því sem við
Kvenfélagið Framtfðin heldur
kvöldverðarfund í Smiðj-
unni mánudaginn 30. mars
klukkan 7.30. Þátttaka til-
kynnist í síma 22606, 23527
og 22764 fyrir laugardag.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin. —Athugið: í Aug-
lýsingu í síðasta blaði mis-
ritaðist nafn félagsins og
stóð „Kvenfélagið Baldurs-
brá“ í stað „Kvenfélagið
Framtíðin". Eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á
mistökunum.
IOOF 2— 1623278‘/2 — 9 = III
fþróttafélagið Eik. Heldur að-
alfund sinn mánudaginn 30.
mars kl. 20.30 að Sólborg.
Stjórnin.
Kökubasar. N.L.F.A. heldur
kökubasar að Hótel K.E.A.
sunnudaginn 29. mars n.k.
kl. 15.00. Allur ágóði rennur
í byggingasjóð.
OLD „
sovfftknD/
Nýjabíó sýnir í kvöld kl. 9 mynd-
ina Alien. Næsta mynd
verður Gömlu kærastarnir
með Richard Jordan og
Talia Shire í aðalhlutverk-
um. Dianne félagsfræðingur
að mennt og með ástlaust og
misheppnað hjónaband að
baki, er vonsvikin og ráða-
laus. í leit að skýringú á
mistökum sínum er henni
hugsað til fortíðarinnar — til
gömlu kærastanna. Og hún
ákveður að leita þá uppi. Kl.
3 á sunnudag verður sýnd
myndin Köngulóarmaður-
inn britist á ný.
íslendingar teljum sjálfsögð lífs-
gæði kostar byssubófaleikur stríðs-
herranna fjárhæðir sem á nokkrum
árum gætu komið öllu þessu fólki
til mannsæmandi lífs ef þeim væri
til þess verið.
Eða — á hinn bóginn — hvort
við notum tækifærið til þess að
leggja okkar litla lóð á vogarskálina
í baráttu þjóða heimsins gegn yfir-
gangi stórveldanna og stríðsvélum
þeirra. Akureyrardeild SHA.
Fimm
börn
Þau sitja i brekkunni saman
syngjandi lag
tvœr stúlkur, þr'tr drengir með bros
um brár,
sem blóma leita í dag.
Þau vita’ekki’að heimurinn hjarir
á heljarþröm.
— Þau elztu tvö eru aðeins fjögra,
og öllum er gleðin töm.
Því allt, sem frá manni til moldar
við morgni hlœr,
umhverfis þau í unaði vorsins
ilmar, syngur og grœr.
Hér syngja þau söngva lífsins,
sumarsins börn,
óhrœdd við daginn, sólgin i sólskin,
með sakleysið eitt að vörn.
Gegn öllu sem lífinu ógnar
um allan heim.
Ég heimta af þér veröld, lát vor
þeirra lifa
og vaxa í friði með þeim.
A göngu í miðbœnum. Mynd: á.þ.
Skipulagning lykilorðið
Feðgar frá Sauðárkróki sýna óvenju mikla útsjónarsemi
í byggingu tveggja einbýlishúsa í Mývatnssveit
Fyrr í mánuðinum voru afhentar
tvær leigu/söluíbúðir í Mývatns-
sveit. íbúðirnar, sem eru í einbýlis-
húsum, voru byggðar af feðgum frá
Sauðárkróki, en þeir afhentu þær
þremur mánuðum fyrr en áætlun
Húsnæðismálastjórnar gerði ráð
fyrir. Ástæðan fyrir því hve vel gekk
er m.a. sú að þeir feðgar skipulögðu
vinnu sína út í ýtrustu æsar og sagði
Mývetningur sem DAGUR ræddi
við, að byggingameistarar gætu
margt af þeim feðgum lært.
Tæknideild Húsnæðismálastofn-
unar barst beiðni frá Skútustaða-
hrepp á síðasta ári um að teikna
tvær leigu/söluíbúðir og var valin
teikning af rúmlega 100 fermetra
einbýlishúsi. Tilboð voruopnuð 19.
júní. Lægsta tilboðið kom frá
Friðriki og Ólafi frá Sauðárkróki,
en það nam 82,9% af áætlun
stofnunarinnar, næst lægsta til-
boðið hljóðaði upp á 94,3%.
Verksamningur við feðgana var
undirritaður þann 7. júlí og þess má
geta að þeir lækkuðu tilboð sitt
gegn því að klæða veggi með timbri
og gera létta milliveggi í stað þess að
hlaða þá. í verksamningi sagði að
skiladagur ætti að vera 31. maí í
vor, en feðgarnir luku báðum
húsunum um síðustu mánaðarmót
og eru þau nú fullbúin.
Ljóst er að sparnaður húskaup-
anda vegna vinnuhraða verktaka
skiptir þúsundum nýkróna, en
hagnaður verktakans er einkum
fólginn í tímasparnaði og minni
uppihaldskostnaði.
„Iðnaðarmannavinna er þarna
að öllu leyti til fyrirmyndar," sagði
starfsmaður Húsnæðismálastofn-
unar, sem DAGUR ræddi við.
„Það sem gerir það að verkum að
þeim tekst að skila verkinu svona
fljótt er einkum fólgið í undirbún-
ingunum áður en verkið er hafið.
Þeir tóku sér í byrjun rúma viku til
að skipuleggja vihnuna og kaupa
a.m.k. það efni sem þurfti að nota
fyrstu byggingarstigin. Efnið var
flutt í einni ferð frá Sauðárkróki
austur í Mývatnssveit. í stuttu máli
er skipulagning lykilorðið.“
Einbýlishúsin eru 113 m2 brúttó,
á einni hæð. í húsunum eru fimm
herbergi og eldhús.
fÓRO ÖflfiSlNS
fs/MI
6-DAGUR