Dagur - 02.04.1981, Blaðsíða 5
BAGUR
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Mismunun
á símagjöldum
Fyrir nokkru skrifaði Bergur Sigur-
björnsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga f Austurlands-
kjördæmi, grein í lesendadálk eins
dagblaðanna í Reykjavík, þar sem
hann fjallaði um skrefatalningamálið
svonefnda. í greininni segir Bergur
m.a.:
„í dálkum þínum hefur kunnur leik-
fangaprófessor æst nokkurn hóp
manna til meinlegrar andstöðu við
heilbrigða skynsemi og sanngirni ...
Þetta gerist í þjóðfélagi, sem þó telur
sig vilja búa við og ástunda bærileg
mannleg samskipti, þar sem forrétt-
indahópar fái ekki að þurrka af fótum
sér á öllum almenningi, í krafti for-
réttinda sinna ...
Gjaldtaka símans byggðist upphaf-
iega á, og byggist enn á því í höfuð-
dráttum, að menn skyldu EKKI greiða
fyrir veitta þjónustu þessa þjónustu-
fyrirtækis, heldur eftir vegalengdinni,
sem var á milli þeirra, sem töluðu
saman í það og það skiptið. Þetta
merkir m.a. að aðstaða landsmanna
til að notfæra sér og njóta sameigin-
legrar þjónustu allra í höfuðborg allra
landsmanna er harla misjöfn eftir því,
hvort þjónustan er þægilega nálægt
þeim, eða óhæfilega fjarlæg og óað-
gengileg."
Bergur tekur síðan tvö dæmi af
handahófi, „sem geta verið samnefn-
ari fyrir það ranglæti og þá ósann-
girni, sem ríkt hefur í þessu efni, þrátt
fyrir tæknibyltingu síðustu áratuga,"
eins og hann orðar það. I dæmunum
miðar hann við gjaldskrá eins og hún
var þegar síðasta símaskrá kom út, en
ef notaðar eru gjaldskrár sem gilda í
dag líta dæmin þannig út:
Tveir kaupmenn þurfa að gera jafn-
stóra pöntun hjá sama heildsalanum í
Reykjavík. Annar er við Laugaveg, en
hinn í Neskaupstað, eða á Akureyri,
svo dæmið sé útvíkkað örlítið. Það
tekur hálftíma hjá báðum aðilum að
panta vörurnar. Kaupmaðurinn í
Reykjavík greiðir fyrir símtalið 43
aura, en landsbyggðakaupmaðurinn
greiðir 97 krónur og 50 aura, eða
tæplega 230 sinnum hærra verð fyrir
jafn langt símtai.
Hitt dæmið er á þann veg, að
sjúklingur í Efra-Breiðholti þarf að ná
í heimilislækni sinn á Seltjarnarnesi
og sjúklingur á Reyðarfirði í sinn
heimilislækni, sem er á Eskifirði.
Vegalengdin er í báðum tilvikum 15
km og bæði símtölin taka 10 mínútur.
Reykvíkingurinn greiðir 43 aura fyrir
símtalið við lækninn sinn, en Aust-
firðingurinn 4 krónur og 30 aura, eða
10 sinnum hærri upphæð.
Fleiri dæmi mætti iaka víðar að af
landinu og í stað heildsalans mætti
taka dæmi um þingmann, starfsmann
stjórnarráðs eða annarra opinberra
stofnana. Þessi dæmi sýna á aug-
Ijósan hátt þá mismunun sem verið
hefur í símagjaldamálum lands-
manna.
Hvar eru málverkin spyrja greinarhöfundar. IVIörg eru m.a. hér innan veggja
Mynd: si.þ.
Sumar gjafir eru
hefndargjafir!
Einn liður í sjónmenntanámi eins
og það fer fram í myndlistaskól-
um hérlendis er að skoða söfn.
Því var það að nemendur Mynd-
listaskólans á Akureyri tóku þá
örlagaríku ákvörðun einn sól-
skinsdag að skoða Listasafn Ak-
ureyrarbæjar. Áður höfðum við
frétt að Barbara og Magnús
Árnason, hin virtu myndlistahjón
hefðu gefið Akureyrarbæ lista-
verk 1948 sem vísi að listasafni
Akureyrarbæjar. Listasafn? Jú,
það er til og nú eru á þriðja
hundrað verk í eigu Akureyrar-
bæjar.
Þegar upp á bæjarskrifstofur
koni hittum við Harald Sigur-
geirsson að máli, sem hefur um-
sjón með safninu.og brást hann
vel við óskum okkar og tjáði
okkur að Listasafn Akureyrar
væri hér og þar í hinum ýmsu
stofnunum bæjarins. Bauðst
hann til að gefa okkur skrá um
tilveru og staðsetningu verkanna
þegar tími gæfist.
Á leið okkar út hittum við
Helga Bergs og inntum hann
frétta af Listasafninu. Lét hann
lítið yfir því og kvaðst ekki geta
leyft „svona“ hópum að vaða inn
á skrifstofur einstakra starfs-
manna. vegna ónæðis er af því
hlytist. Sárnaði nú flestum við-
staddra yfir því reginhneyksli að
Listasafn menningarbæjarins
Akureyrar væri ekki ætlað augurn
almennings. Inntum við hann þá
eftir gjöf Magnúsar Á. og Bar-
böru Árnason til bæjarins. Vissi
hann ekki um tilveru þessara
ágætu hjóna og því síður um gjöf
þeirra. Fræddum við Helga þá á
því að þau hjón hefðu gefið
bænum listaverk eftir Magnús
með þeirri ósk að þetta verk yrði
vísir að listasafni. Svar Helga var
á þá leið, að sumar gjafir væru
hefndargjafir. Viljum við nú í
framhaldi af samtali okkar beina
nokkrum spurningum til háttvirts
bæjarstjóra:
1. Er viðeigandi að taka við gjöf-
um sem gefnar eru með
ákveðnum óskum, án þess að
uppfylla þaér?
2. Er það stefna bæjaryfirvalda
að hafa listaverk í eigu bæjar-
ins uppi í hinum ýmsu stofn-
unum?
3. Ef svo er, hvers vegna er al-
menningi þá nær ógerlegt að
nálgast þessi verk og njóta
þeirra? Listaverkin eru keypt
fyrir almannafé.
4. Hver er stefna bæjaryfirvalda í
sambandi við listaverkakaup?
5. Hvererstefna bæjaryfirvalda í
sambandi við húsnæði yfir
listasafn sitt?
6. Gera bæjaryfirvöld sér ekki
grein fyrir nauðsyn sjón-
mennta t.d. vegna þáttar
þeirra í atvinnulífi bæjarbúa?
A ðalbjörg Ólafsdóttir,
Arni Svavarsson,
A srún A ðalsteinsdóttir,
Guðnntnditr Björnsson,
Inga Björk Harðátdóttir,
Jónína S. Guðmundsdóttir og
Ragnhildur Blöndal.
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri:
Er á meðan er
eftir Kaufman og Hart
Leikstjóri: Guðrún Alfreðsdóttir
„Leiklistarlíf hefur um árabil
sett svip sinn á skólalíf M.A.
og raunar tryggt sér fastan
sess í menningarlífi bæjarbúa.
Á síðustu árum hefur L.M.A.
einkum fengist við að sýna ný-
leg íslensk leikrit og þótti nú
tími til kominn að breyta ögn
til og auka á fjölbreytni í
verkefnavali. Það sem réði vali
á þessu verki var fyrst og
fremst það, að stykkið er
mannmargt, en það hefur
löngum verið aðalmarkmið
Leikfélags M.A. að fá sem
flesta til starfa. Mörgum hefur
reynst það góður skóli að
vinna við uppfærslu á leikriti
og öllum þótt það skemmti-
legt, enda ríkir alltaf leikgleði
og áhugi hjá menntskælingum.
Við vonum að þið, kæru leik-
húsgestir, njótið sýningarinnar
á sama hátt og við höfum notið
þess að setja hana á svið.“
Þannig segir í formála leikskrár
að sýningu Leikfélags M.A. á „Er
á meðan er“ og er raunar litlu við
að bæta, því formálinn segir nær
allt sem segja þarf um sýninguna.
Tilgangurinn er ljós og tilgangin-
um var náð, því ekki var annað
heyrt en frumsýningargestir á
sunnudagskvöld skemmtu sér hið
besta. Vafalaust hafa leikendurn-
Afmælistónleikar
— til heiðurs Áskeli Jónssyni, söngkennara
Kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar.
Félagar úr Strengjasveit
Tónlistarskólans á Akureyri.
Inga Rós Ingólfsdóttir, selló.
Hörður Áskelsson, orgel.
Einsöngvarar:
Helga Alfreðsdóttir, sópran.
Þórariiin Halldórsson, tenór.
Eiríkur Stefánsson, bassi.
Konsertmeistari:
Michael Clarke.
Stjórnandi:
Áskell Jónsson.
Það var ánægjuleg stund í Akur-
eyrarkirkju s.l. sunnudagskvöld, er
ofangreindir flytjendur efndu þar
til tónleika og höfðu sett saman
vandaða efnisskrá, með kórverkum
eftir ýmsa höfunda þar sem Messa í
G-dúr nr. 2 eftir Fr.Schubert var
þungamiðjan.
Þá léku þau Inga Rós og Hörður
saman verk fyrir selló og orgel eftir
A. Vivaldi og Cesar Franck. Var
það sérlega áheyrilegur flutningur,
og það verð ég að segja, að mikil
prýði þótti mér að orgelleik Harð-
ar. Nægir þar til að nefna einstak-
lega fallegar registreringar. Það er
ærið átak að ráðast í flutning á
verki á borð við Messu Schuberts,
og er ástæða til að óska kór,
einsöngvurum og stjórnanda til
hamingju með það framtak, sem
þau komust öll frá með sóma.
Mér flaug nú í hug, að gaman
væri, ef þau viðhorf réðu ferðum
með kórum hér á staðnum, að ekki
þyrfti merkisafmæli ágætra forvíg-
ismanna tónlistarmála til þess að
söngfólk hefði sig upp í það að
takast á við meiri háttar viðfangs-
efni tónbókmennta. Passíukórinn
hefur þar verið einn um hituna um
nokkurt skeið.
Strengjasveit Tónlistarskólans
undir leiðsögn Michael Clarke átti
þarna góðan hlut að máli' og var
kórnum örugg kjölfesta.
Samkennara mínum um árabil
Áskeli Jónssyni vil ég færa þakkir
fyrir þessa elskulegu tónleika, og
má með sanni segja, að hann og
fjölskylda hans hafi þarna verið
mikilvirk.
í tilefni 70 ára afmælisins árna ég
Ásketi Jónssyni allra heilla, bið
hann vel að lifa og lengi.
Soffía Guðmundsdóttir.
99
KIRKJAN ÓMAR ÖLL
n
Þau orð sönnuðust á tónleikum í
Akureyrarkirkju. sunnudaginn 29.
f. m.
Flytjendur voru: Kirkjukór
Lögmannshlíðarkirkju, félagar úr
strengjasveit tónlistarskólans á Ak-
ureyri, Inga Rós Ingólfsdóttir, selló,
og Hörður Áskelsson orgel. Stjórn-
andi var Áskell Jónsson, en hann
hefur stýrt kórnum í 35 ár og verið
organisti Lögmannshlíðárkirkju
jafn lengi.
Einsöngvarar með kórnum á
nefndum tónleikum vöru! Helga
Alfreðsdóttir sópran, I Þórarinn
Halldórsson tenór og Eiríkur
Stefánsson bassi. Konsertmeistar.i
var Michael Glarke.
Hjónin Inga Rós Ingólfsdóttir og
Hörður Áskelsson (sonur söng-
stjórans), sem stundað hafa tón-
Áskell Jónsson.
Kirkjukór Lögmannshliðarsóknar.
ir og aðrir sem unnu að sýning-
unni einnig haft ómælda ánægju
af starfinu, auk þeirrar margvís-
legu reynslu sem slík uppfærsla
veitir.
Verkið sem L.M.A. hefur tekið
fyrir að þessu sinni er gamanleik-
ur eða farsi. Fyndnin ristir sjald-
an djúpt í slíkum leikverkum, en
þau hafa jafnan hlotið góðar
undirtektir leikhúsgesta hér á
landi. Þetta verk ætti ekki að vera
nein undantekning að því leyti.
Það er reyndar örlítið betra en
mörg önnur, því í því er svolítill
undirtónn og gamansöm gagn-
rýni á bandarískt þjóðfélag
millistríðsáranna, þó ekki hafi
verið lögð mikil áhersla á þá hlið
verksins í sýningu L.M.A.
Svolítill viðvaningsbragur var á
leiknum á köflum og reyndar
ekki við öðru að búast af
byrjendum á leiksviði. Leikurinn
var svolítið hömlulaus eða með
öðrum orðum, leikgleðin var
mikil, og tæpast er hægt að kaila
það löst, þegar meginmarkmiðið
með sýningunni er að fá.sem
flesta til starfa og að hafa
skemmtan af.
Hafi einhverjir leikáigrar verið
unnir á sýningu L.M.A., þá var
það „veikara kynið“sem þá vann,
Yfirleitt komust stúlkúrnar betur
frá sínum hlut og má þar helst
nefna Kristjönu Björnsdóttur í
veigamiklu hlutverki, sem hún
gerði nánast fagmannleg : skiL
Arna Valsdóttir átti einnig mjög.
góðan leik, þótt ekki væri hún
lengi á sviðinu, og svipaða sögu er
að segja um Hrönn VilhelniST
dóttur. Arnheiður Ingimundar-
dóttir lék létt og óþvingað. Önnur
kvenhlutverk voru veigaminni,’
en yfirleit: tókst stelpunum
nokkuð vel upp og reyndar leik-
endum öllum. Halldór Björnsson
var eftirminnilegur í skoplegu
hlutverki sínu og Kristinn Guð-
jón Kristinsson kemst allvel frá
sinu hlutverki, sem er stórt og af-
gerandi í leiknum. Nokkuð skorti
þó á að hann væri nógu sannfær-
andi sem gamalmenni.
En sem sagt, áhorféndur
skemmtu sér flestir vel og von-
andi hefur svo einnig verið um
aðstandendur sýningarinnar. Þá
er tilganginum náð. H. Sv.
listarnám erlendis og eru að Ijúka
því, léku samleik á selló og orgel í
tónverkum eftir Vivaldi og Cesor
Frank, af listfengi, sem er ein-
kennandi fyrir þá sem hlotið hafa
náðargáfuna í vöggugjöf.
Á söngskrá kórsins var innlend
og erlend kirkjutónlist, þar á meðal
gullfallegt lag eftir söngstjórann,
Áskel Jónsson — „Stjarna enn í
austri.“ (Texti: Sverrir Pálsson), en
aðalviðfangsefnið var Messa nr. 2 í
Gdúr eftir Franz Schubert. f því
verki lék Hörður Áskelsson á orgel
með kórnum ásamt strengjasveit-
inni. Var það fögur samstilling.
Tónleikarnir voru prýðisvel sótt-
ir, kirkjan þéttsetin og stemningin
einkargóð. Áheyrendur tóku fagn-
andi við þeim gjöfum sem hér voru
veittar. Var það verðugt, því að
virðingarvert og ómælt er starfið
sem liggur á bak við tónleika sem
þessa. Söngfólkið hefur í ríkunt
mæli fórnað af hvorutveggja: tíma
og orku. Þreytt af önn og erfiði
skyldustarfa hefur það horfið til
þjónustu við sönggyðjuna, til þess
síðan að geta boðið öðrum gjafir og
geisla. Víst mun, að það hefur
sungið sig frá hversdeginum inn í
hátíðarstemningu, og kostað miklu
til að geta gefið öðrum hana með
sér, glatt og yljað og hafið frá
harðræðum vetrar á hærri svið, þar
sem nálægð vorsins, tilfinning fyrir
töfrum þess, skapar snertingu við
fegurð lífsins.
Með góðri samvisku má óska
Áskeli Jónssyni til hamingju með
kórinn hans, og kórnum til ham-
ingju með Áskel. Eftir samstarfið í
öll þessi ár, hljóta taugar tryggð-
anna að vera orðnar mjög traustar,
brugðnar af heimsins bestu þáttum,
sem verða því dýrari sem lengur er
unnið og meira lagt af mörkum.
Nú, þann 5. apríl, verður Áskell
sjötugur. Á æfileið sinni hefur hann
marga nótuna snortið og margan
tóninn slegið og aldrei talið eftir
tíma sínn, né neina önn. Það er
jafnan líf og ljós og hlýja, þar sem
Áskell frá Mýri fer. Við guðargáfu
ættar sinnar hefur hann lagt ríka
rækt og orðið þeirrar gæfu aðnjót-
andi, að sjá virkan ávöxt þess — á
starfsvettvangi og einkalífi. Megi
þessi síungi sönglistarmaður eiga
sem lengst viljastyrk og andlegan
áhuga, og lyfta sínurn tónsprota til
þess að ljósin kvikni hvar hann fer,
og söngurinn ómi í sál og af vörum
sem flestra þeirra, sem með honum
eru á vegi.
Söngstjóri og kór Lögmanns-
hlíðarsóknar og þið öll sem fenguð
kirkjuna til að óma svo fagurlega
eitt sunnudagskvöld — hafið heitar
þakkir. Njótið, sem þið gefið.
Jórunn Ólafsdóttir,
frá Sörlastöðum.
Tónleikarnir
endurteknir
Kirkjukór Lögmannshlíðarkirkju
hélt tónleika síðastliðinn sunnudag
við mjög góðar undirtektir áheyr-
enda. Vegna mikillar aðsóknar og
fjölda áskorana mun kórinn endur-
taka tónleikana í Akureyrarkirkju
n.k. laugardag 4. apríl kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna verður
eins og á fyrri tónleikunum, bæði
innlend og erlend kirkjutónlist, en
aðalviðfangsefnið er Messa nr. 2 í
G-dúr eftir Franz Schubert, en þar
koma fram 3 einsöngvarar og 15
manna strengjasveit Tónlistarskóla
Akureyrar.
Bridgefélag Akureyrar:
Soffía Guðmundsdóttir
einmenningsmeistari
Næsta keppni er Sveitahraðkeppni
Einmenningskeppni Bridgefélags
Akureyrar lauk sl. þriðjudagskvöld
(31. marz.) Að þessu sinni sigraði
Soffía Guðmundsdóttir eftir jafna
og skemmtilega keppni, en alls
voru spilaðar 3 umferðir. Soffía var
eini kvenmaðurinn sem tók þátt í
Einmenningskeppninni nú, en hún
hefur áður orðið Einmennings-
meistari Bridgefélags Akureyrar.
Röð efstu spilara varð þessi:
stig
1. Soffía Guðmundsdóttir .... 307
2. GissurJónasson ......... 306
3. Ólafur Ágústsson........ 305
4.-5. Gylfi Pálsson........... 295
4.-5. Sveinn Sigurgeirsson 295
6. Þórarinn B. Jónsson 287
7. Haraldur Oddsson 284
8. Ævar Ármannsson 281
9. Stefán Ragnarsson 280
10. Jón Stefánsson 277
11. Sigurður Víglundsson 276
12. Einar Sveinbjörnsson 274
13. Hörður Steinbergsson 273
14. Anton Haraldsson 271
15.-16. Frímann Frímannsson jr. 270
15.-16. Alfreð Pálsson 270
Soffía Guðmundsdóttir,
einmcnningsmcistari B.A.
Meðalárangur er 270 stig. —
Firmakeppni félagsins stendur enn
yfir.
Um síðustu helgi var spiluð í
Reykjavík svokölluð „Fjórvelda-
keppni,“ en í henni spiluðu,
Bridgefélag Akureyrar, Tafl- og
bridgeklúbbur Reykjavíkur,
Bridgefélagið Höfn Hornafirði og
Bridgefélag Austurlands. Reykvík-
ingar sigruðu, hlutu 271 stig en
Akureyringar 248. Austfirðingar
voru þriðju.
Næsta keppni Bridgefélags
Akureyrar verður Sveitahrað-
keppni. Spilaðar verða þrjár um-
ferðir og hefst keppnin þriðjudag-
inn 7. apríl. Undanfarin ár hefur
hraðkeppnisformið verið mjög
vinsælt.
Þátttöku þarf að tilkynna til
stjórnar fyrir helgi.
K.A. strákurnir sem fóru í 1. deild í handbolta. Mynd: Ó.Á.
Stjörnukeppni F.R.I.
Laugardaginn 4. apríl verður
haldið hér á Akureyri víða-
vangshlaup, sem er liður í
Stjörnukeppni FRÍ. Búast
Nú ekki alls fyrir löngu kom
hingað í boði Júdóráðs Akur-
eyrar maður að nafni Þóroddur
Sigurðsson. Hann er með svart
belti í júdó og að auki marg-
Akureyrarmót
í skíðagöngu
Um helgina var haldið í Hlíð-
-arfjalli Akureyrarmót í skíða-
göngu, en slíkt mót hefur ekki
verið haldið í a.m.k. tíu ár.
Keppni í skíðagöngu hefur
legið hér niðri en því meiri
áhugi verið á alpagreinunum
svokölluðu.
Áhugi á skíðagöngu er nú
að aukast, og nú er starfandi
finnskur skíðakennari við
skíðaskólann í Hlíðarfjalli og
kennir hann mönnum undir-
stöðuatriði skíðagöngunnar.
Úrslit í Akureyrarmótinu
urðu þessi:
l'lokkiir 20 ára og eldri 10 km.
1. Ingþór Eiríksson 50.10
Flokkur 15-16 ára 7,5 kin
1. Haukur Eiríksson 36.18
Flokkur 13-14 ára 5 km.
1. Jón Stefánsson 23.34
2. Pétur Þorsteinsson 28.39
3. Gunnar Kristjánsson 29.20
Flokkur 11-12 ára 2,5 km.
1. Ásgeir Guðmundsson 18.30
2. Aðalsteinn Þorsteinsson 20.14
Flokkur 8 ára.
1. Jóhann Þorsteinsson 8.06
Gömlu
kempurnar
keppa á ný
Um næstu helgi verður haldið í
Hlíðarf jalli nokkuð sérstakt
skíöamót. Þá verður keppt í
flokkum 35 til 44 ára og 45 ára
og eldri. Þeir sem munu keppa í
þessu móti gerðu garðinn
frægan fyrir 15-20 árum, og eru
sumir ennþá mjög vel liðtækir
skíðamenn.
Á laugardaginn kl. 13.00
verður keppt í stórsvigi og kl.
12.00 á sunnudag verður keppt í
svigi, og fer keppnin fram við
Strýtu. Búist er við keppendum
allsstaðar að af landinu.
má við að þátttakendur verði
margir allsstaðar að af land-
inu, en þessar keppnir hafa
verið haldnar af og til í vetur,
reyndur bæði sem keppnismaður
og dómari í íþróttinni.
Eitt verka hans hér á Akur-
eyri var m.a. að „gráða“ júdó-
menn. Þeir Broddi Magnússon
og Brynjar Aðalsteinsson
reyndu báðir við gráðuna 3. kyu
og átti hvorugur þeirra í erfið-
leikum við að ná því marki.
Þá reyndi Þorsteinn Hjalta-
son við gráðuna 2. kyu og gekk
sú tilraun með öllu þrautalaust
fyrir sig.
Þetta er í fyrsta skiptið sem
akureyskir júdómenn taka
þessar gráður hér á Akureyri, en
mörgum þeirra hefur reynst æði
tafsamt að vinna sér rétt til að
gangast undir „gráðun“ þ.e. að
afla sér nægilega margra
punkta en fram til þessa hefur
aðeins verið hægt að vinna til
þeirra á mótum I Reykjavík
Um helgina var haldið íslands-
meistaramót i fimleikum í
Reykjavík. Frá Akureyri fóru
Haraldur Pálsson, Aðalgeir
Sigurðsson og Herbert
Halldórsson. Þjálfari Akureyr-
inganna er Ragnar Einarsson.
Herbert varð íslandsmeistari
fyrir 10 árurn og má því segja að
hann hafi farið suður m.a. til að
halda upp á afmælið. Hann
keppti í hringjum og tvíslá og
og ávallt með þátttöku bestu
hlaupara landsins. Keppt
verður í fullorðinsflokki,
unglingaflokki og kvenna-
flokki.
Það er frjálsíþróttaráð Akur-
eyrar sem gengst fyrir þessari
keppni og er meiningin að
hlaupa á götum bæjarins og á
hlaupið að hefjast við aðalhlið
íþróttavallarins. Hlaupið verður
suður Hólabraut, vestur
Gránufélagsgötu. norður
Brekkugötu. austur Þórunnar-
strætið. suður Glerárgötu og
síðan vestur Smáragötu og að
aðalhliði íþróttavallarins.
Kvennaflokkur og yngri flokk-
ur karla fer einn hring en full-
orðnir karlnienn hlaupa fjóra
hringi.
Hver hringur I þessu hlaupi
er um 1400 metra.
Væntanlegir þátttakendur
tilkynni þátttöku sína til Ing-
unnar Einarsdóttur í síma
heima 21859 eða á daginn í
síma 21900.
í hringjum. Haraldur náði
fjórða sæti í gólfæfinguni og
Aðalgeir hafnaði í fjórða sæti í
stökki yfir hest.
Heimir Gunnarsson, Glímu-
félaginu Ármanni, varð fs-
landsmeistari að þessu sinni.
Akureyringum gefst kostur á
að sjá fimleikasýningu n.k.
föstudagskvöld klukkan 20.
Sýningin verður í íþróttahúsi
Glerárskóla.
*
Herbert f hringjum fvrir rúmum 10 árum.
Loks„gráðun“ á Akureyri
Fóru á islandsmeistaramót
náði öðru sæti á slánni og þriðja
4■DAGUR
DAGUR.5