Dagur - 07.05.1981, Blaðsíða 1
Fermingar-i
gjafir
í MIKLU
ÚRVAU
GULLSM»IR
v SIGTRYGGUR ft
1 AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 7. maí 1981
■■■■■■■■
36. tölublað
ammmmmmmn
Slippstöðin h.f.:
Smíða togara
fyrir Þingeyri
„Með samþykkt Þingeyrartog-
arans og ýmsum viðgerðarverk-
efnum hefur útlitið gjörbreyst til
batnaðar og nú verður ekki
annað sagt, en við séum vel
tryggir með verkefni allt þetta
ár,“ sagði Stefán Reykjalín,
stjórnarformaður Slippstöðvar-
innar h.f. í viðtali við Dag, en í
fyrradag var samþykkt f Fisk-
veiðasjóði að veita lán til bygg-
ingar togara fyrir Þingeyringa
og verður skipið smíðað í Slipp-
stöðinni.
Stefán sagði að ástandið hafi
verið orðið mjög slæmt og til marks
um það hefði verið búið að segja
upp allri yfirvinnu í stöðinni og tók
sú uppsögn gildi síðasta mánudag.
Nú verður farið að vinna af fullum
krafti á nýjan leik.
„Þetta var mjög hörð barátta að
fá þessa smíði samþykkta í kerfinu,
enda nánast bannorð að tala um
nýjan togara. Ég tel raunar krafta-
verk að fá þetta í gegn, en við
fengum góðan stuðning ýmissa
mætra manna,“ sagði Stefán
ennfremur.
Togarinn sem smíðaður verður
fyrir Þingeyringa er sams konar og
Kolbeinsey þeirra Húsvíkinga.
Skipið verður að vísu aðeins lengra,
en að öðru leyti er um sömu hönn-
un að ræða, þannig að hægt verður
að hefjast handa við smíðina strax.
Formaður Alþýðusambands Norðurlands:
BLIKUR Á LOFTI
„Vissulega eru ýmsar blikur á
lofti í atvinnumálum Akureyr-
inga. Ég get tekið sem dæmi að
yfirvinnu hefur verið svo gott
sem hætt í Slippstöðinni, en sem
betur fer heyrast fréttir um að
stöðinni hafi verið tryggð verk-
efni, sem endast i nokkurn tíma.
Ef tekin verður ákvörðun um að
auka framkvæmdahraða við ný-
byggingu sjúkrahússins, hafist
handa af fullum krafti við verk-
menntaskóia og ráðist í viðbót-
arbyggingu fyrir Póst og síma
tel ég að þá muni verkefni í
byggingariðnaði og fleiri at-
vinnugreinum — tengdum þeim
iðnaði — verða borgið enn um
sinn,“ sagði Hákon Hákonar-
son formaður Alþýðusambands
Norðurlands í samtali við Dag
er hann var spurður um horf-
urnar í atvinnumálum Akureyr-
ar.
Hákon minnti á að örlög
skóverksmiðjunnar Iðunnar væru
enn óráðin, en þar er í húfi atvinna
50 til 100 manns. Hann vildi í því
sambandi benda á að líklegt er að
fjárfesting á hvern starfsmann —
svo rekstur Iðunnar geti gengið
eðlilega — væri ekki nema brot af
því fé sem þyrfti að verja á hvern
starfsmann í nýiðnaði.
„Atvinnuástand ætti að geta
verið viðunandi í þeim atvinnu-
greinum sem ég ræddi um í upp-
hafi, ef ákvarðanir verða teknar um
að veita til þeirra verulegu fjár-
magni í framkvæmdir. Engu að
síður er það alveg ljóst að hefjast
verður handa nú þegar um mótun
atvinnustefnu fyrir Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðið. Þessi atvinnu-
stefna verður að tryggja íbúðum
byggðarlaganna við Eyjafjörð
næga atvinnu næstu árin,“ sagði
Hákon að lokum.
Það gerist æ algengara að bæjarbúar kaupi sér bát og stundi sjóróðra f frístundum
eða sem aðalatvinnu. Þeir og aðrir eru vfst sammála um að aðstöðu smábátacigcnda
verði að stórbæta næstu árin. Mynd: H.Sv.
HITAVEITAN:
FARNIR
AÐLOKA
„Það er rétt að við höfum átt í
erfiðleikum með að fá greidda
hitaveitureikninga. Því erum við
með mjög róttækar aðgerðir í
gangi þessa dagana — þ.e. við
lokum hjá þeim sem hafa ekki
greitt sínar skuldir,“ sagði Ingi
Þór Jóhannsson, skrifstofu-
stjóri Hitaveitu Akureyrar
En er lokað án viðvarana? Nei.
Ingi Þór sagði að lólk hefði verið
aðvarað hvað eftir annað og ef
menn lofuðu að greiða væri venjan
að gefa 2ja eða 3ja daga greiðslu-
frest til viðbótar. Ingi Þór vildi ekki
staðfesta að þess væru dæmi að
fólk skuldaði allt upp í eitt ár, en
sagði að skuldahali sumra væri
orðinn æði langur. „Við höfum
e.t.v. verið of linir í innheimtuað-
gerðum,“ sagði Ingi Þór.
Það kom fram í samtalinu við
Inga Þór að útistandandi skuldir
Hitaveitu Akureyrar nema mjög
hárri upphæð og hann tók það
fram að það skipti fyrirtækið mjög
miklu máli að fá inn sem mest á
næstu dögum, því greiðslustaða
Hitaveitu Akureyrar væri með erf-
iðara móti.
Skuldunautar Hitaveitunnar
geta greitt reikningana í bönkum,
sparisjóðum og á pósthúsinu, en
þeir sem hafa týnt reikningunum
verða að fara á bæjarskrifstofurnar
við Geislagötu.
Gera úttekt á atvinnumálum í bænum:
Spurningar sendar til
300 atvinnurekenda
Tveir starfsmenn Akureyrarbæjar,
þeir Haukur Sigurðsson og Úlfar
Hauksson, hafa fengið það verkefni
að gera úttekt á atvinnumálum í
bænum. Þeir hafa sent um 300 at-
vinnurekendum spurningalista og
beðið er um svör fyrir 11. mai.
Dagur festir kaup á húsi
— auglýst eftir starfsmönnum á skrif-
stofu og í prentsmiöju
Samningar hafa verið gerðir
milli Útgáfufélags Dags og
eigenda Strandgötu 31, þar
sem Smjörlikisgerð Akureyrar
var til húsa, um makaskipti á
þeirri eign og Tryggvabraut 12,
þar sem Dagur er nú.
Stefnt er að því að flytja skrif-
stofur blaðsins í hið nýja húsnæði
fyrir haustið, þegar lokið verður
innréttingum á því. Frá miðjum
maí og til þess tíma verða skrif-
stofur blaðsins í Hafnarstræti 90,
þar sem Dagur var áður en hann
flutti að Tryggvabraut.
Strandgata 31,
Frá og með áramótum er ætl-
unin að hefja rekstur prentsmiðju
í húsinu við Strandgötu, sem er
samtals rösklega 600 fermetrar að
gólfflatarmáli. Verður prentvél
Dags flutt þangað úr POB og
keypt nauðsynleg viðbótartæki.
Þessar fjárfestingar tengjast
fyrirhugaðri útgáfuaukningu
blaðsins og af sömu ástæðu hefur
verið ráðinn nýr blaðamaður,
sem tekur til starfa í sumar. Hann
heitir Gylfi Kristjánsson og kem-
ur af Vísi. Þá er í blaðinu í dag
auglýst eftir fjórum starfsmönn-
um í prentsmiðjuna og auglýs-
ingasljóra. Einnig er í ráði að við
blaðið muni starfa sérstakur
dreifingarstjóri.
Ástæðan fyrir því að þeir Haukur og
Úlfar gera þessa könnun er ákvörð-
un bæjarstjórnar þann 11. apríl sl.
þar sem samþykkt var tillaga um að
gerð yrði úttekt á atvinnumálum i
bænum, með það í huga að fá
gleggri mynd af stöðu og þróun at-
vinnu f bænum og safna sem bestum
upplýsingum um atvinnuástand til
þess að auðvelda ákvarðanatöku
varðandi stefnumótun í atvinnu-
uppbyggingu-
Atvinnurekendur eru m.a. beðn-
ir um upplýsingar um það hvenær
atvinnureksturinn hófst, eða hætti,
hvort fyrirtækið sé í eigin húsnæði,
spurt er um rekstrarform, helstu
viðfangsefni, um starfsmanna-
fjölda I. apríl s.l. og hvort fjöldi
starfsmanna sé breytilegur. Spurt
er um framtíðaráfrom, s.s. samdrátt
eða fækkun starfsmanna og síðasta
spumingin er sú hvort einhverjar
umtalsverðar breytingar hafi orðið
á stærð eða starfsemi fyrirtækisins
á s.l. 2 árum. Sé svo er viðkomandi
beðinn um að gera grein fyrir því í
hverju þær eru fólgnar.
Haukur sagði að það væri mjög
mikilvægt fyrir Akureyrarbæ að fá
sem flest svör, enda lægi það í aug-
um uppi að öðru vísi næði könn-
unin ekki tilætluðum árangri.
Breyttur
opnunartími
Með sumarkomunni breytist
opnunartími Amtsbókasafnsins
að venju. Verður safnið þá lokað
á laugardögum.
Síðastliðið sumar var reynd sú
nýbreytni að hafa safnið opið á
miðvikudögum til kl. 21. Gafst sú
tilraun svo vel, að ákveðið er að
hafa sama hátpnn á í sumar.
„Verkfallið" gerir víðreist
Leikfélag Akureyrar hefur af-
ráðið að fara í leikferð með „Við
gerum verkfall“. Leikritið hefur
nú verið sýnt 9 sinnum á Akur-
eyri við góðar undirtektir og
verða næstu sýningar í kvöld, á
föstudagskvöld og sunnudags-
kvöld.
í næstu viku verður svo farið í
leikferð um Norðurland vestra og
fyrsta sýning verður í Bifröst á
mánudagskvöld. Á þriðjudags-
kvöld verður sýnt í Nýja Bíói á
Siglufirði og á Hofsósi á miðviku-
dagskvöldið. Fyrirhugað er að fara
í sýningarferð um Norðaustur-
landið síðar.
OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 23207