Dagur - 07.05.1981, Side 5
msoR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsfmar: 24166 og 23207
Sfmi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JOHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Kaupmátturinn og
atvinnuástandið
í nýútkomnu riti Þjóðhagsstofnunar,
„Úr þjóðarbúskapnum," þar sem rætt
er um framvindu efnahagsmálanna á
síðasta ári og horfurnar á þessu ári, er
að finna athyglisverða hluti, sem
ótvírætt benda til þess að ríkisstjórnin
sé á réttri leið og að niðurtaininga-
stefnan geti borið þann ávöxt, sem til
var ætlast og án þess að leggja
þungar byrðar á almenning í landinu.
Samkvæmt því sem fram kemur í riti
Þjóðhagsstofnunar er verðbólgan í
rénun og kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna minnkar ekki og virðist heldur
ætla að aukast á þessu ári frá því í
fyrra.
Það er einkar athyglisvert, að þrátt
fyrir óhagstæð ytri skilyrði skuli hafa
reynst unnt að viðhalda kaupmætti
ráðstöfunarteknanna. Þjóðhags-
stofnun telur að þótt spáð sé 16-17%
lakari viðskiptakjörum í utanríkis-
verslun á þessu ári heldur en var árið
1978, þá verði kaupmáttur teknanna
ekki nema 1,5% lakari. Þetta sýnir
glögglega, að reynt hefur verið af
fremsta megni að láta hvorki þá erf-
iðleika sem við er að etja í verð-
bólgumálum innanlands, né lakari
viðskiptakjör, koma niður á alþýðu.
Þetta gerist þrátt fyrir það, að í raun
réttri ættu lakari viðskiptakjör að
sjálfsögðu að bitna á öllum lands-
mönnum, einstaklingum, sem félög-
um og fyrirtækjum.
Það skal ekkí dregið í efa, að at-
vinnurekstur landsmanna eigi við
nokkra erfiðleika að etja um sinn, en
það er fróðlegt að sjá hvaða skýringar
Þjóðhagsstofnun gefur á erfiðu at-
vinnuástandi, sem margir telja að
megi rekja að verulegu leyti til erfið-
leika í rekstri fyrirtækjanna. í riti
stofnunarinnar segir að erfitt tíðarfar
og veiðitakmarkanir hafi valdið sam-
drætti í atvinnu upp á síðkastið, eink-
um hjá iðnaðarmönnum og fisk-
vinnslufólki. Hvað fiskvinnsiu áhræri
sé mest um tímabundna erfiðleika að
ræða, en jafnframt megi nefna að
aukning á saltfisk- og skreiðarvinnslu
á kostnað frystingar hafi í för með sér
nokkurn samdrátt í fiskvinnslu.
Þá segir, að þótt atvinnuástand í
byggingariðnaði sé að jafnaði fremur
siakt á þessum árstíma, virðist at-
vinnuleysistölur gefa til kynna að at-
vinnuhorfur séu óvenju ótryggar í
þessari grein. Þetta stafi m.a. af fyrir-
sjáaniegum verkefnaskorti og sam-
drætti framkvæmda á ákveðnum
stöðum, t.d. á Akureyri, sem komi í
kjölfar afar mikillar byggingarstarf-
semi undanfarin ár.
Það sem kemur atvinnurekstrinum
best um þessar mundir er að draga úr
verðbólguhækkunum sem frekast er
kostur. Þegar þetta er haft í huga er
grátbroslegt að heyra gengdarlausar
ásakanir sumra atvinnurekstrarfor-
kólfa á þá ríkisstjórn sem djarflegast
hefur gengið fram f að draga úr verð-
bólguþróuninni.
Kveðjuorð
Jóhannes Kristjánsson
forstjóri
F. 8. mars 1926 — D. 29. apríl 1981
tln memorian
í dag, fimmtudaginn 7. maí 1981, er
til moldar borinn Jóhannes
Kristjánsson, forstjóri Vélsmiðjunn-
ar Odda á Akureyri. Hann andaðist
hér í bœ þann 29. apríl s.l. eftir ör-
skamma sjúkdómslegu, en hafði
reyndar ekki gengið heill til skógar
nokkra hríð. Hann fœddist 8. mars
1926 og var því aðeins 55 ára að
aldri, þegar hann lést. Foreldrar
Jóhannesar voru þau Kristján E.
Kristjánsson hreppsljóri og bóndi á
Hellu á Árskógsströnd og kona hans
Sigurbjörg Jóhannesdóttir og er
Jóhannes þvi afkomandi þekkts
dugnaðar- og atorkufólks við utan-
verðan Eyjafjörð.
Það var örugglega mikið gceftt-
spor i lífi Jóhannesar Kristjánsson-
ar, þegar hann þann 1. október 1950
kvœntist eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ingunni Kristjánsdóttur, Kristjáns
Jóhannessonar hreppstjóra á Dalvík
og konu hans Önnu A rngrimsdóttur.
ÉR. sem þessar línur rita, átti þess
kost að kynnast þeim Jóhannesi og
Ingunni í leik og starfi og var einkar
ánœgjulegt að finna þá gagnkvœmu
ást, hlýju og vináttu, sem rikti milli
þeirra hjónanna. Þau áttu sér
smekklegt og hlýlegt heimili að
Kringlumýri 22 hér i bœ og var þar
gjarnan gestkvœmt, því vinsœldir
þeirra Itjóna hafa verið miklar. Börn
þeirra eru 4, Anna gift dr. Stefáni
Sigurðssyni, Kristján giftur Helgu
Jóhannsdóttur, Hrönn gift Pétri
Guðmundssyni og Jóhannes nemi i
Samvinnuskólanum. Auk þess átti
langa hrið athvarf hjá þeim sent
sonur vœri Jón Friðriksson plötu-
smiður, sem nú er búsettur í Noregi.
Öll eru börnin Itin mannvcenlegustu
Minning
Miðvikudaginn 29. apríl s.l. and-
aðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri vinur okkar Jóhannes
Kristjánsson frá Hellu á Árskógs-
strönd, forstjóri Vélsm. Odda h.f.,
Akureyri.
Það er ætíð erfitt að fá skilið,
þegar menn á besta aldri eru
kallaðir á brott úr þessum heimi og
seint verður hægt að fá svar við
slíku. En þótt eigi þýði að deila við
hinn æðsta dómara, þá er oft á tíð-
um erfitt að sætta sig við hans
dóma.
Það fór þó ekki fram hjá neinum
sem til þekkti, að Jóhannes gekk
ekki heill til skógar á síðustu mán-
uðum, en fáa grunaði að hönd
dauðans væri svo skammt undan.
Við sem áttum þess kost að fá að
kynnast Jóhannesi megum vera
þakklát fyrir þau góðu og einlægu
kynni. Eftir lifir minningin um
góðan dreng og félaga, sem við
munum geyma með okkur uns yfir
lýkur.
og hafa sýnt dugnað í námi og störf-
um.
Jóhannes stundaði nám að Laug-
arvatni og við Samvinnuskólann á
árttnum frá 1944 til 1947. Eftir að
þau hjónin höfðu stundað bútskap á
Hellu á ártiniim frá 1951 til 1960 hóf
Jóhannes störf hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga þann 1. september 1960
og þá sem útibússtjóri í Hrisey. Þau
Itjónin fluttust til Akureyrar í árs-
byrjun 1966 og tók Jóhannes við
starfi skrifstofustjóra Vélsmiðjunnar
Odda þann 22. febrúar það ár. Þann
30. desember 1966 var hann síðan
ráðinn forstjóri Vélsmiðjunnar
Odda, en því starfi gengdi hann með
miklum ágcetum til dauðadags. Vél-
smiðjan Oddi hafði, eins og fleiri
vélsmiðjur, átt við vissa rekstursörð-
ugleika að stríða og fjárhagur fyrir-
tœkisins var ekki svo traustur, sem
Það mun hafa verið fyrir um 15
árum síðan að kynni okkar hófust
fyrir alvöru, er við fimm félagar
fórum að hittast vikulega og spila
saman heima hjá hveröðrum. Þessi
félagsskapur hefur haldist óslitið
síðan og sá háttur hafður á ár hvert
að spila meðan „r“ væri í mánað-
arheitinu.
Til þess að krydda spila-
mennskuna var ákveðið að leggja
fyrir smáfjárhæð hverju sinni er
spilað var og skyldi sú fjárhæð
renna í ferðasjóð.
Sumarið 1976 var sjóðurinn orð-
inn það öflugur að ráðist var í sól-
arlandaferð til Spánar ásamt eigin-
konum. Ferð þessi tókst í alla staði
með ágætum, enda var hópurinn
sérstaklega samhentur eftir ára-
langan félagsskap. Voru allir á einu
máli um að fara aðra slíka ferð
síðar og var þegar hafið að leggja
drög að henni. En þessi fyrirhugaða
ferð með okkar ágæta félaga og
vini verður eigi farin í þessu lífi, en
við erum þess fullviss að hitta hann
síðar á hinni eilífu sólarströnd.
Þessi fátæklegu orð sem hér eru
skrifuð eiga ekki að vera neitt ævi-
ágrip, heldur til að draga fram einn
af þeim fjölmörgu þáttum, sem líf
okkar er spunnið úr og í þessu til-
felli gefið svo margt í gegnum tíð-
ina.
Að lokum viljum vér þakka þér
Jóhannes fyrir allar þær yndislegu
samverustundir, sem við höfum átt
með ykkur hjónunum, bæði á
heimili ykkar, ferðalögum og ann-
arsstaðar, þar sem við höfum átt
þess kost að skemmta okkur saman.
œskilegt þótti. Með miklum dugnaði
og einstakri lagni, ásamt traustri
fjármálastjórn, tókst Jóhannesi í
góðu samstarfi við stjórn fyrirtœkis-
ins og starfsmenn að leiða það til
vaxandi gengis og aukinna umsvifa.
Vélsmiðjan Oddi er þannig i dag
stórt og traust fyrirtceki með fjöl-
breytta þjónustu ogframleiðslu, sem
seld er bceði innanlands og á erlend-
um mörkuðum. Með störfum sínum
hefur Jóhannes áunnið sér virðingu
og vináttu samstarfsmanna sinna og
þakklceti og virðingu eigenda fyrir-
tœkisins, sem ég vil leggja áherslu á
við þetta tœkifceri.
Við, sem hylltum Jóhannes
Kristjánsson á 55 ára afmœli hans,
þegar Vélsmiðjan Oddi hélt árshátið
sína fyrir 2 mánuðum, áttum þess
síst von að hann yrði horfinn yfir
móðuna miklu eftir svo skamma
hríð. Hann var þá glaðastur í glöð-
um hópi, lét hvergi á sjá að hann ekki
gengi heill til skógar. Skjótt hefur
sól brugðið sumri að hann skuli nú
allur, en ekki tjóir að deila við dóm-
arann og enginn má sköpum renna.
Við, sem eftir lifum hérna megin
móðunnar miklu, getum aðeins
hugsað til gengins vinar og hugleitt
rök tilverunnar, jafnframt því sem
við hugsum til fjölskyldu Jóhannes-
ar, sem svo skyndilega hefur fengið
sorgina i heimsókn. Aðeins tíminn
og traust á Guði getur linað þá sorg
og ég vil biðja frú Ingunni og fjöl-
skyldunni allri Guðs blessunar ttm
leið og ég sendi þeim mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Við vottum þér Ingunn, börnun-
um og öllum ástvinum dýpstu
samúð í þungbærri sorg og biðjum
algóðan Guð að vernda ykkur og
styrkja.
Blessuð sé minning hins hjálp-
sama og ógleymanlega vinar.
Leikfélag Akureyrar sýnir nú síð-
ara verkefni sitt á þessu Ieikári,
„Við gerum verkfall“, sem er gam-
anleikur eftir Duncan Greenwood í
þýðingu Torfeyjar Steinsdóttur og
leikstjórn Svanhildar Jóhannes-
dóttur.
Verkið er ekki dæmigert fyrir þá
farsa sem mesta lukku virðast gera
meðal íslenskra leikhússgesta, því
það er blessunarlegalaust við mis-
skilning á misskilning ofan með
tilheyrandi ruglingslegum sögu-
þræði. Þetta gerir leikritið betra en
flesta þá gamanleiki eða farsa sem
ég hef séð og má þetta að verulegu
leyti þakka leikstjóra og leikurum,
sem styttu verkið verulega og
einfölduðu, auk þess sem bætt var
um sums staðar. Einkum er áber-
Hann Jói á Hellu er dáinn.íHvílík
voðafregn okkur öllum vinum hans
og skyldmennum.
Jóhannes Reykjalín Kristjánsson
var fæddur 8. mars 1926 að Hdllu á
Árskógsströnd í Eyjafirði. Foreldr-
ar hans voru Kristján E. Krjstjáns-
son og Sigurbjörg Jóhannésdóttir
búendur á Hellu.
„Snemma beygist krókurinn til
þess, sem verða vill“ segir máltæk-
ið. Jóhannes var strax á bamsaldri
fljótur að tileinka sér það, sem gott
heimili og sveitasamfélag hafði
upp á að bjóða, sem í þessu tilfelli
var hreint ekki svo lítið, en foreldr-
ar hans voru bæði vel greind og í
besta lagi upplýst á þeirra tíma vísu.
Heimanmundur slíkra barna er
ærinn, enda naut Jóhannes þess í
ríkum mæli, ásamt og/með góðum
gáfum þegar hann kom í skóla, en
hann lauk prófi frá Héraðsskólan-
um á Laugarvatni og Samvinnu-
skólanum í Rvík.
TT3 Minning
Þegar æðri máttarvöld gera sínar
ráðstafanir verða mannanna börn
að beygja sig fyrir hinum mikla
mætti.
En það er stundum erfitt að skilja
og sætta sig við þegar snögglega og
að okkur finnst allt of snemma er
tekinn frá okkur góður vinur.
Ég minnist hans sem hins lífs-
glaða manns, alltaf hressilegur með
græskulaust glens á vörum. Hans
sem brá við snarlega ef til hans var
leitað, boðinn og búinn til að að-
stoða og hjálpa. Hann var úrræða-
góður og alltaf skjótur til ákvarð-
ana og fylgdi þeim eftir. Ég minnist
hans sem sérlega góðs frænda sem
alltaf sýndi manni áhuga og lét sig
varða málefni fjölskyldunnar,
hvort heldur það var á alvöru eða
gleðistundu. Sérstaklega er minn-
isstætt hvernig hann á einstæðan
hátt brást við þegar alvarlegt slys
henti nákominn ættingja fyrir fáum
árum. Þá kom fram hans mikla trú
á æðri mátt, og það skeði raun-
verulegt kraftaverk.
Jóhannes var fæddur á Hellu á
Árskógsströnd sonur hjónanna
andi ýmiss konar látbragð til
fyllingar textanum og það eru e.t.v.
þessi atriði sem gera stykkið veru-
lega fyndið í meðförum L.A. Það er
sem sagt fyrst og fremst leikstjóra
og leikurum að þakka að sýningin
er skemmtilg, auk þess sem
búningar, leikmunir og leikmynd
undirstrika skemmtilegheitin.
Karlmennirnir klæðast eingöngu
bláleitum fötum í ýmsum tilbrigð-
um og konurnar rauðum og bleik-
um, enda er þarna ekki verið að
fela hlutverkaskipti karla og
kvenna, heldur eru þau undirstrik-
uð með þessu litavali, sbr. nýfæddir
drengir klæðast ljósbláu og stúlkur
bleiku, eins og tíðkaðist a.m.k. til
skamms tíma. Húsmóðirin á heim-
ilinu, sem er að vakna til vitundar
Jóhannes, sem var yngstur fjög-
urra systkina, vann eins og þau á
búi foreldra sinna öll uppvaxtarár-
in, þar til hann tók við jörðinni er
foreldrar hans hættu búskap, en
móðir hans Sigurbjörg missti heils-
una nokkuð fyrir aldur fram og
andaðist litlu síðar.
Jóhannes var þá kvæntur eftir-
lifandi konu sinni Ingunni
Kristjánsdóttur frá Dalvík. Á Hellu
hófu þau lífsbaráttuna sameigin-
lega fyrir u.þ.b. þrem tugum ára,
með þeim góða árangri, sem allir
kunnugir mega bera vitni. Er ekki
að efa að þau stigu bæði gæfuspor
er þau ákváðu að axla birgðar lífs-
ins sameiginlega, svo einhuga sem
þau sýndust jafnan vera um flesta
hluti.
Jóhannesi Kristjánssyni léku
flest störf í hendi og var búskapur
þar ekki undanskilinn. En sú at-
vinnugrein krefst mikilla vinnu-
fórna ekki síst hjá einyrkjanum.
Sigurbjargar Jóhannesdóttur og
Kristjáns E. Kristjánssonar bónda
og hreppstjóra. Hann kvæntist
Ingunni Kristjánsdóttur frá Dalvík
árið 1950 og tóku þau við búi á
Hellu.
Þau eignuðust 4 börn: Anna
Sigurbjörg f. 1951 Kristján Eldjárn
f. 1954, Hrönn f. 1958 og Jóhannes
Márf. 1962.
Árið 1960 fluttist hann með fjöl-
skyldu sína til Hríseyjar þar sem
hann starfaði sem útibússtjóri fyrir
Kaupfélag Eyfirðinga til ársins
1965. Þá flytja þau til Akureyrar
þar sem hann tók við forstjórastarfi
fyrir Vélsmiðjuna Odda h/f.
Hvarvetna bera störf hans vitni
um hans mikla dugnað, skerpu og
óvenjumiklu framsýni.
Það er mikill missir fyrir fyrir-
tækið að njóta ekki lengur starfs-
krafta atorkumannsins.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég kæran frænda, hann er
horfinn yfir móðuna miklu og
kannar nú ókunna landið.
Ég treysti því að sá er sendir
okkur í þetta undarlega ferðalag
leiði okkur til æðri þroska og
skilnings.
Ég þakka samfylgdina og óska
honum fararheilla á þeim leiðum
sem hann er lagður út á.
um hlutskipti sitt í karlaheiminum,
klæðist að sjálfsögðu byltingar-
rauðum kjól. Þannig hefur að-
standendum sýningarinnar tekist á
margvíslegan máta að gæða verkið
ýmsum meiningum og tvíræðni
umfram það sem textinn býður upp
á.
Enn á ný kemur það glöggt í ljós,
hvílíka yfirburði sviðsvant fólk
hefur fram yfir þá sem vinna að
uppsetningu leikverka í tómstund-
um sínum. Þetta kemur að sjálf-
sögðu best fram í alvarlegri leik-
verkum sem reyna á skapgerðar-
leikhæfileika, en einnig í þessu
léttmeti. Þetta er alls ekki sagt þeim
til hnjóðs, sem vinna að leiklist i
áhugamennsku, enda er ekki rétt-
mætt að leggja sama mat á áhuga-
og atvinnuleikhús. Það sem skiptir
ekki minnstu máli hjá áhugaleik-
urum er leikgleðin og það mikla og
jákvæða félagslega starf sem þar er
að baki. Þetta er ekki heldur sagt
leikurum L.A. til hnjóðs, því leik-
gieðina vantaði ekki í „Við gerum
verkfall“. Málið er raunar ósköp
Það gat aldrei hent Jóhannes að
taka til hálfs á nokkru starfi og
þegar hann fann að búskapur
hentaði ekki heilsu hans kaus hann
að hverfa til annarra verka.
Leið þeirra hjóna lá nú út í Hrís-
ey, þar sem Jóhannes veitti útibúi
KEA forstöðu um nokkurra ára
skeið. Þar lagði hann hönd sína
vinnusama á plóg eins og annars-
staðar, sem hann kom nær. Hér vil
ég minnast þess, sem skrifað er:
„Vertu trúr yfir litlu yfir meira mun
ég setja þig.“ Einmitt þetta skeði
þegar hann lét af störfum við úti-
búið í Hrísey, þá var hann yfir
meira settur hjá sama aðila er hann
var ráðinn forstjóri Vélsmiðjunnar
Odda á Akureyri. Þvi starfi gegndi
hann æ síðan óslitið til dauðadags.
„Guð huggi þá, sem hryggðin
slær“ Nánasta fólk, fjölskylda
Jóhannesar Kristjánssonar hefir nú
orðið fyrir þungu höggi, svo sem
ástvinamissir ávallt er og því fremur
að hér var um að ræða svo einstak-
an heimilisföður að erfitt verður
lengra til að jafna.
Þau Ingunn og Jóhannes höfðu
ákveðið, nú um páskana, að heim-
sækja dætur sínar tvær, sem
búsettar eru í Svíþjóð. En þá gripu
þessi hörðu örlög í taumana. En
sagt er að sjaldan falli eplið langt
frá eikinni. Óðar en þær systur
fregnuðu hvernig komið var sneru
þær heim til Akureyrar að vaká hjá
föður sínum síðustu dægrin og þá
gat hann enn fengið að líta eitt sitt
afabarn og nú í síðasta sinn.
Allir mega gera sér í hugarlund,
hvað kringumstæður sem þessar,
reyna á aðstandendur. En systurnar
eiga eflaust eftir að finna, og þvi
betur sem lengra líður, að miklar
gæfumanneskjur eru þær að hafa
brugðið svo skjótt við að vera hjá
deyjandi föður sínum og veita hjálp
ástkæru æskuheimili, þar sem
móðir þeirra stóð í sporum, sem
enginn þekkir utan í að komast.
Jóhannes Már, yngstur systkin-
anna, sem nú stundar nám í Bifröst
sneri og heim að taka sinn hlut í
þeim þungu byrðum, sem heimilið
verður að axla þessa örlagaríku
daga.
Önefndur er eldri bróðirinn
Kristján, sem undanfarið hefir
stundað nám í Bandaríkjunum og
dvelst þar enn ásamt konu sinni.
Hann er sá eini af systkinunum,
sem ekki átti þess kost að snúa
þegar heim og tengjast náið sínum
á raunastund. Helfregnin hitti
hann í miðjum prófum. Vonandi
nær hann heim að fylgja föður sín-
um hinsta spölinn.
einfalt, því hvorugt leikhúsið má af
öðru sjá.
Ekki verður hér tíunduð
frammistaða einstakra leikara að
neinu ráði, en rétt að geta ágæts
leiks Marinós Þorsteinssonar í
hlutverki dæmigerðs karlagrobb-
ara. Gestur Jónasson er á góðri leið
með að verða eins konar Bessi hér
norðan heiða, sem honum tekst þó
vonandi að losa sig frá þegar við á
og alvaran er í fyrirrúmi. Allir
sýndu leikendurnir í verkinu góð
tilþrif og i heild má allur hópurinn
sem að sýningunni stendur vel við
una.
„Við gerum verkfall" er síður en
svo alvöruþrungið drama, sem
krefst þess af áhorfandanum að
hann líti í eigin barm og leiti sam-
svörunar í daglega lífinu, til að
skilja og njóta. Sýningin krefst
einskis af áhorfandanum annars en
jákvæðs viðhorfs. Góð frammi-
staða þeirra sem að sýningunni
standa, auk þeirrar staðreyndar, að
fólk vill sjá gamanleiki, réttlætir
fullkomlega þetta verkefnaval L.A.
Takk fyrir skemmtunina. H. Sv.
Valur A rnþórsson,
kaupfélagsstjóri.
Spilafélagar og eiginkonur.
(Framhald á bls. 6).
„Við gerum verkfall “ l.^”,*^“ur.yrar
Höfundur: Duncan Greenwood.
Þýðandi: Torfey Steinsdóttir.
Leikstjóri: Svanhildur Jóhannesdóttir.
Leikmynd og búningar: Halimundur Kristinsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Leikendur: Marinó Þorsteinsson, Gestur E. Jónasson,
Kristjana Jónsdóttir, Sunna Borg, Theódór Júlíusson,
Guðrún Alfreðsdóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir.
Kristjan Baldursson. Þegar mælt er eftir Jóhannes
Svipmyndir
frá H.S.Þ.
Vilhjálmur Pálsson íþróttakennari, Húsavík í pontu. Þormóður Ásvaldsson,
formaður H.S.Þ. og Tryggvi Óskarsson, Þverá.
Vormótið
Þór -
Á laugardaginn kl. 14 leika
Þór og KA á Sanavellinum.
Þetta er þriðji og síðasti
leikur liðanna í vormótinu.
Hinum tveimur lauk báðum
með jafntefli.
Eflaust verður hart barist á
vellinum á laugardaginn, enda
mikilvægt fyrir bæði liðin að
sigra í mótinu.
Fyrsta deildin byrjar um
helgina og samkvæmt leikskrá
KA
áttu Þór og KA þá að leika
saman. Deildarleiknum hefur
verið frestað þar til grasvöllur-
inn verður kominn i nothæft
ástand. Akureyrarliðin leika
sína fyrstu deildarleiki laugar-
daginn 16. þ.m„ KA fær Akur-
nesinga í heimsókn, en Þór fer
til Vestmannaeyja og leikur við
heimamenn. Bæði Þór og KA
hafa átt ágæta leiki í vor, og er
góðs að vænta af þeirra hálfu í
sumar.
Öldungablak:
Eik fékk
meistara
Ragna Erlingsdóttir Þverá Fnjóska-
dal, en hún var kjörinn iþróttamaöur
H.S.Þ. 1980.
Guðný Gestsdóttir, Múla Aðaldal, Kári Karlsson, Nfpá, Hlöðver Hlöðversson,
Björgum, Marteinn Sigurðsson, Kviabóli, Hcrmann Herbertsson, Sigríðarstöð-
um.
•
UMSJÓN:
Ólafur Ásgeirsson
Kristján G. Arngrímsson
titil
Dagana 1. og 2. maí var hald-
ið í fþróttahúsi Kennara-
háskólans fslandsmót öld-
unga í blaki, og var keppt í
karla og kvennaflokkum. f
karlaflokki voru tvö lið frá
Akureyri, Skautafélagið og
Sundfélagið Óðinn, af átta
liðum sem kepptu. í kvenna-
flokki kepptu fjögur lið, eitt
frá Akureyri, Eik.
í karlaflokki Varð HK frá
Kópavogi íslandsmeistari, í
öðru sæti varð Óðinn og í þriðja
Skautafélagið. Eik varð ís-
landsmeistari í kvennaflokki, i
öðru sæti Víkingur Reykjavík.
Efstu liðin í karlaflokki voru
mjög jöfn, og keppnin
skemmtileg. Leikuf Akureyrar-
liðanna var gifurlega spenn-
andi, Óðinn sigraði fyrstu hrin-
una, Skautafélagið þá næstu, og
í mjög jafnri þriðju hrinu tókst
Óðni að tryggja sér sigur.
Keppnin var og nokkuð jöfn
hjá kvenfólkinu, og eins og áður
sagði kræktu þær akureyrsku í
Eik í fslandsmeistaratitilinn.
Að ári verður fslandsmótið í
öldungablaki haldið á Akur-
eyri.
í apríl s.l. var ársþing H.S.Þ.
haldið í Bárðardal, en DAG-
UR greindi frá þessu þingi á
sínum tima. Þá voru ekki til
myndir af öllum þeim sem
minnst var á og skal nú úr því
bætt.
Þess má geta að H.S.Þ.
hefur ráðið Höskuld Goða
Karlsson, sem þjálfara í
frjálsum íþróttum. Einnig
mun Höskuldur sinna dag-
legunt rekstri sambandsins
þann sama tíma. Hann mun
hafa aðsetur að Laugum.
Myndirnar tók Gunnlaug-
ur Árnason.
Anna Guðmundsdóttir, Itúsavik, sundmaður H.S.Þ. 1980 Á myndinni með henni
er Þórður Jónsson Laufahlfð, en hann gaf bikar þann sem veittur er.
4.DAGUR
DAGUR.5