Dagur - 07.05.1981, Síða 6
Bridge-
fréttir
Nú stendur yfir hjá Bridgefélagi
Akureyrar minningarmót um
Halldór Helgason. Þetta er sveita-
keppni með Bard-o-max fyrir-
komulagi. Alls spila 14 sveitir og er
búið að spila 9 umferðir af 13.
Röð efstu sveita er þessi: stig
1. Sv. Páls Pálssonar ........ 147
2. sv. Magnúsar Aðalbjörnss. . 141
3. sv. Gissurar Jónassonar .. 137
4. sv. Ferðaskrifst. Akureyrar 132
5. sv. Alfreðs Pálssonar..... 128
6. sv. Stefáns Vilhjálmssonar 124
Síðasta lota verður spiluð nk.
þriðjudagskvöld 12. maí kl. 8 að
Félagsborg.
Frá fundinum i gær. Mynd: á.þ.
Rösklega 21 milljön lítra
»Leggjum
öryrkjum
lið“
í tilefni af alþjóðaári fatlaðra og
kjörorði J.C. hreyfingarinnar á Is-
landi „Leggjum öryrkjum lið“ þá
mun J.C. Akureyri gangast fyrir
sýningu á tómstundavinnu fatlaðra
á Akureyri og víðar. Sýningin mun
verða dagana 28.-31. maí 1981 í
húsi Sjálfsbjargar við Bugðusíðu l.
Við hvetjum ykkur öll til að vera
með í þessari sýningu og koma eða
leita upplýsinga í síma 21557 hjá
Sjálfsbjörg milli kl. I og 5 fyrir
föstudaginn 22. maí.
— Minningargreín ...
Héðan frá Akureyri fóru þrjú pör
á íslandsmótið í tvímenning sem
spilað var í Reykjavík I-3. maí. Af
64 pörum komust 24 í úrslit meðal
þeirra voru Magnús Aðalbjörnsson
og Gunnlaugur Guðmundsson,
Jón Stefánsson og Hörður Stein-
bergsson. og í 25. sæti voru Ævar
Karlesson og Soffía Guðmunds-
dóttir.
Þetta er frábær árangur hjá okk-
ar fólki. því þarna voru allir sterk-
ustu spilamenn á Reykjavíkur-
svæðinu saman komnir og margir
þeirra komust ekki í lokabaráttuna.
Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9 og næstu
kvöld myndina Matargat með
Dom DeLuise í aðalhlutverki. Allir
eiga við eitthvað að stríða, sem þeir
geta ekki ráðið við til lengdar.
Hvað Dominik DiNapoli áhrærir,
er matur og matarlyst hans mikla
böl. Hann er ekkert ofboðslega
feitur, en hann hefur óskaplega
góða lyst, og getur eiginlega ekki að
sér gert, þegar góður matur er ann-
ars vegar þá verður hann að eta og
eta og eta. Hann er það, sem menn
kalla stundum með kaldhæðni —
matargat.
Borgarbíó sýnir í kvöld og næstu
kvöld íslensku myndina Púnktur
púnktur komma strik er sýnd hefur
verið undanfarið við mikla aðsókn
í bíóinu, en sýningum fer nú að
ljúka.
Aðalfundur Mjólkursamlags
K.E.A. var haldinn í gær. f
rekstursreikningi sem lagður var
fram á fundinum kom fram að
innlögð mjólk á sl. ári var rösk-
lega 21 milljón lítra, sem er
10,19% minna en 1979. Meðal-
fita mjólkurinnar var 4.086%, í
Tónleikar
á laugardag
Douglas Cummings —
sellóleikari og Philip Jenkins —
píanóleikari, eru á tónleikaferð
um landið í byrjun maí. Þeir
leika á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar í Borgarbíói n.k.
laugardag 9. maí og hefjast
tónleikarnir kl. 17.
Tónleikarnir á laugardaginn eru
aukatónleikar, en þeir sem hafa
verið félagar í vetur fá aðgöngu-
miða á niðursettu verði við
innganginn, og eiga allir félagar að
hafa fengið fréttabréf þar að lút-
andi. Listamennirnir leika einnig á
tónleikum í Reykjavík, Njarðvík og
á ísafirði í þessari ferð. Á efnisskrá
þeirra verða sónötur eftir Beet-
hoven, Britten, Debussy og
Shostakovitch.
Douglas Gummings hefur hlotið
margsháttar viðurkenningu, sem
sellóleikari og er í hópi fremstu
sellóleikara Bretlands.
Tvær listakonur
leika í Borgarbíói
Næstkomandi sunnudag 10. maí
leikur Guðrún Þórarinsdóttir á
lágfiðlu með pianóleikaranum
Paula Parker á tónleikum i
Borgarbíói, og hefjast tónleik-
arnir kl. 15 (ath. 3 e.h.) Guðrún
hefur á undanförnum árum
stundað nám við Tónlistarskól-
Sýning í
Rauða húsinu
Laugardaginn 9. maí kl. 15.00 mun
Guðjón Ketilsson opna sýningu á
eigin verkum í Rauða húsinu.
Guðjón stundaði nám í Myndlista-
og Handiðaskóla íslands auk þess
sem hann dvaldi erlendis um hríð.
Hann hefur tekið þátt í og haldið
margar sýningar vlðsvegar um
landið.
Engin boðskort verða send út en
allir eru velkomnir og hvattir til að
líta inn í Rauða húsið.
Sýningin mun standa til 17. maí
ogeropin frá 15-21 alla daga.
ann á Akureyri, og lauk á s.l.
voru 8. stigsprófi á lágfiðlu með
mjög góðum vitnisburði, jafn-
framt lauk hún stúdentsprófi á
tónlistarkjörsviði við Mennta-
skólann á Akureyri.
Guðrún hefur stundað fram-
haldsnám við Tónlistarskólann á
Akureyri á þessum vetri, jafnhliða
kennslu í fiðluleik við skólann.
Guðrún er nú á förum frá Akureyri
til framhaldsnáms, og verða þetta
því kveðjutónleikar hennar að
loknu árangursríku námi og starfi í
bænum.
Paula Parker, starfar sem píanó.
kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri, og hefur á þessum vetri
bæði haldið einleikstónleika, og
einnig tónleika með Oliver Kentish
sellókennara við sama skóla.
Á efnisskrá þeirra verður: Elegy
op. 44 eftir Glasunov, sólósvíta nr.
1 í G-dúr eftir Bach, Adagio eftir
Kodaly og sónata í f-moll eftir
Johannes Brahms.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Guðrún og Paula heimsækja
einnig Tónlistarskólann í Reykja-
vík og leika sömu efnisskrá fyrir
nemendur og kennara þar.
1. flokk fór 97,38%, í 2. flokk
1,52% og í 3. flokk 1,10%. Að
þessu sinni hefur mjólkin flokk-
ast betur en árið á undan.
Að sögn Magnúsar G. Gautb-
sonar, fulltrúa hjá K.E.A. tókst ekki
að greiða grundvallarverð að þessu
sinni — nánar tiltekið vantar kr. 31
eyrir á hvern lítra, eða rúmar 6,7
milljónir. Ástæðurnar sagði
Magnús að væru margar, en sú
I.O.O.F. 2 — 163588'/! — 9=0
Kvenfélag Akureyrarkirkju
heldur aðalfund sinn 1 kirkju-
kapellunni sunnudaginn 7. maí
kl. 15.00. Nýir félagar vel-
komnir. Stjórnin.
Kvenfélagið Baldursbrá heldur
fund í Glerárskóla sunnudag-
inn 10. maí kl. 2.00 e.h. Kristín
Sigfúsdóttir húsmæðrakennari,
kemur á fundinn. Stjórnin.
helst að samlaginu hefði borist
minni mjólk frá framleiðendum.
Einnig eru til miklar birgðir og
fjármagnskostnaður er mikill þar
sem nýlokið er við byggingu
stöðvarinnar. Það sem á vantar
grundvallarverðið verður reynt að
fá úr verðjöfnunarsjóði og verða
væntanlegar greiðslur færðar í
reikninga samlagsmanna þegar
þær berast.
(Framhald af bls. 5).
Kristjánsson, þó af litlum efnum sé,
verður eigi gengið svo um garð að
ekki sé minnst þess eðlisþáttar, sem
einkenndi hann öðru meir og vinir
og vandamenn nutu oft í ríkum
mæli, en það var hin mikla hjálp-
semi hans og greiðvikni við alla
sem hann umgekkst. Þá var ekki
tvístigið og velt vöngum, fremur en
venjulega. Málin voru afgreidd
með snöggum og öruggum ákvörð-
unum. Skipti þá engu um kostnað
og fyrirhöfn. Þessara góðu eigin-
leika hans naut systursonur minn
Jón Friðriksson svo sköpum skipti í
lífi hans. Hann kom fyrst sem barn
til sumardvalar að Hellu, en þau
sumur urðu mörg. Og þegar Jó-
hannes hætti búskap fékk hann
Nonna vist hjá bróður sínum
Snorra. Síðar þegar Nonni á ung-
lingsárum missti móður sína tók
Jóhannes hann alfarið undir sinn
verndarvæng og skildi ekki við
hann fyr en hann var útskrifaður
járnsmiður frá Vélsmiðjunni Odda.
Það má því segja að þau Ingunn
hafi gengið Jóni í foreldrastað og
systkinin litið hann sem bróður.
Því er þetta nefnt að vel lýsir
hugarþeli og mannkostum
Jóhannesar og ber heimili hans gott
vitni, því samtaka voru þau Ingunn
í þessu sem öðru.
Ég læt hér lokið fátæklegum
orðum um fjölhæfan mann. Við
fjölskyldan þökkum þessum mági
mínum samfylgdina á liðnum ár-
um, þökkum hjartahlýju hans og
hjálpsemi, sem aldrei þraut. Síðast
á liðnu sumri stóð okkur hús þeirra
hjóna opið ásamt þremur erlendum
gestum okkar.
Hver, sem þekkti Jóhannes
Reykjalín Kristjánsson veit og
finnur nú þegar hann er allur, að
opið stendur skarð, sem ekki verð-
ur fyllt og er því stærra, sem sam-
skiptin við hinn látna voru nánari.
Við færum eftirlifandi konu,
börnum og fjölskyldum þeirra
samúð okkar djúpa og innilega og
biðjum þeim Guðsblessunar.
fíergsleinn Jónsson.
Móðir okkar
HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Þúfnavöllum,
verður jarðsett n.k. laugardag 9. maí. Minningarathöfn verður í
Akureyrarkirkju kl. 10.30 en jarösett verður frá Bakkakirkju
öxnadal kl. 14.00. Bilferð verður frá Ráðhústorgi kl. 13.15.
Berghlldur Bernharðsdóttir,
Stelngrímur Bernharðsson.
Þakka af hellum hug samúð og góða hjálp, mér veitta viö andlát
og jarðarför fósturmóður minnar
HELGU PÉTURSDÓTTUR,
frá Bergl.
Guð blessi ykkuröll.
Guðrún Þ. Hörgdal.
Dansleikur
Félag harmonikkuunnenda við Eyjafjörð heldur
dansleik fyrir félagsmenn og gesti þeirra í Alþýðu-
húsinu laugardaginn 9. maí. Miðasala frá kl. 19-20
og við innganginn.
Húsió opnað kl. 21.00.
Skemmtinefndin
UIR
AÐALFUNDUR
ÚTGERÐARFÉLAGS
AKUREYRINGA HF.
verður haldinn á kaffistofu frystihúss félagsins
mánudaginn 18. maí n.k. kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÓRNIN.
Ibúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu fyrir væntanlegan
starfsmann fjögurra herbergja íbúð eða stærri.
Einbýlishús og raðhús koma til greina.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uþþlýsingar í síma 24167 á skrifstofutíma.
Blaðið Dagur
Tryggvabraut 12, Akureyri.
6.DAGUR