Dagur - 07.07.1981, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsingaog afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
„Ræktun lands
og lýðs“
17. Landsmót Ungmennafélags
fslands verður haldið á Akureyri
dagana 10.-12. júlí n.k. Þá koma
saman hátt í 1500 keppendur í
hinum ýmsu greinum íþrótta, víðs
vegar að af landinu. Búast má við
að aðstandendur keppenda, sem
margir eru á unga aldri, fjöl-
menni einnig til Akureyrar í þessu
tilefni, auk annarra gesta. Ef allt
gengur að óskum má því búast við
að fólksfjöldi á Akureyri allt að því
tvöfaldist dagana sem Landsmót-
ið stendur yfir.
Mót sem þetta er geysilega
þýðingarmikill viðburður, ekki að-
eins fyrir heimamenn á Akureyri,
heldur ekki síður fyrir alla þá sem
þangað koma og flykkjast undir
fána ungmennahreyfingarinnar.
Sú hreyfing stendur á gömlum
grunni og hefur frá því laust eftir
aldamót unnið mikið og merkt
mannbótastarf. Hún er ekki að-
eins íþróttahreyfing, heldur hefur
hún um áratuga skeið verið eins
konar félagsmálaskóli þjóðarinn-
ar. Reyndin hefur sýnt, einkum í
dreifðari byggðum landsins, að
þeir sem haft hafa afskipti af og
tekið þátt í félagsstarfi ung-
mennafélaganna, hafa valist til
forystu í sveitarstjórnarmálum í
ríkara mæli en þeir sem utan við
hafa staðið og reynst hæfari til að
takast á við vandamálin á félags-
legan og lýðræðislegan hátt.
Einkunnarorð ungmennahreyf-
ingarinnar í landinu eru frá upp-
hafi: „íslandi allt“ og „Ræktun
lands og lýðs“. Fyrsta ungmenna-
félagið var stofnað á Akureyri árið
1906 og með tilkomu þessarar
hreyfingar hófst allsherjar vakn-
ing og barátta fyrir hvers kyns
framfara- og menningarmálum.
Dugði hreyfingin vel í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Ungmenna-
félögin hafa lagt hönd á plóginn í
margvíslegum greinum, sem til
heilla mega horfa, og má auk
íþróttastarfsins nefna bindindis-
starf, skógrækt, leiklist og hvers
konar menningarstarfsemi aðra.
Ekki verður annað séð en ung-
mennahreyfingin sé í mikilli sókn,
og starfi hún í svipuðum anda í
framtíðinni og hún hefur gert til
þessa, eru það gleðileg tíðindi. Á
síðustu 10 árum hefur fjölgað í
hreyfingunni um 15 þúsund
manns og eru félagar nú orðnir 24
þúsund talsins. Félögin innan
hreyfingarinnar eru 196, sem eiga
aðild að 18 héraðssamböndum og
auk þess eru 9 félög með beina
aðild að U.M.F.Í. Það starf sem
aliir þessir aðilar vinna getur orðið
ómetanlegt á tímum aukins rót-
leysis. Því á þessi hreyfing ekki
minna erindi til okkar f dag, heldur
en fyrir áratugum.
SIGURÐUR EINARSSON
F. 20. 3.1893 - D. 6. 6.1981
Hinn 16. júní s.l. var til moldar
borinn á Akureyri öldungurinn
Sigurður Einarsson, kominn hátt á
níræðisaldur, vistmaður síðustu
misserin á elliheimilinu í Skjaldar-
vík.
Hann fæddist á Grenjaðarstað
20. mars 1893. Foreldrar hans voru
vinnuhjú prestsins þar á staðhum,
séra Benedikts Kristjánssonar, þau
Einar Sigurðsson, ættaður úr
Laxárdal, náfrændi hinna kunnu
bræðra Páls og Magnúsar Þórar-
inssona á Halldórsstöðum og Sig-
urrós Bjarnadóttir, sem kenndi sig
við Meðalheim á Svalbarðsströnd.
Drengurinn ólst upp hjá móður
sinni frá aldamótum, því þá
drukknaði faðir hans af fiskiskip-
inu Geysi, er það strandaði við
ísafjarðardjúp.
Ómagahálsinn varð þó ekki
mjög langur því Sigurður var að-
eins fimmtán ára gamall þegar
hann réði sig á handfæraskipið
Samson frá Akureyri. Skipið var í
eigu Ásgeirs Péturssonar og fiskaði
út af Vestfjörðum sem venja var.
Skipstjóri var Tryggvi Jóhannsson
frá Ósi. Næsta sumar var pilturinn
á fiskiskipinu Óla, sem fiskaði á
sömu slóðum. Eigandi var Karl
Thuliníus og skipstjóri Sigurður
Sumarliðason.
Eftir að hafa stundað sjóinn
þessar tvær vertíðir réði Sigurður
sig vinnumann tii Jóhanns
Stefánssonar á Skálum á Langa-
nesi, sem greiddi þessum seytján
ára pilti tvöfalt kaup við það sem
boðið var við Eyjafjörð. Var hann
þá þegar orðinn hinn vaskasti
maður til allra starfa á sjó og landi,
enda leið ekki á löngu þar til hann
var orðinn formaður á bát hús-
bóndans og jafnframt gekk hann að
eiga Þórdísi, systur bónda. Þau
byggðu sér lítinn torfbæ á Skálum,
eignuðust börn og lifðu athafnalífi í
hinni norðlægu verstöð. Hún var
þar upp alin en hann dvaldi á
Skálum í átján ár, löngum formað-
ur og kunnur að harðfengi og hin-
um bestu sjómannshæfileikum.
En á þessum tíma urðu þau stór-
tíðindi á Skálum á Langanesi, sem
erfitt er að skýra. En þar jókst á
fáum árum byggð svo að á annað
hundrað manns áttu þar fasta bú-
setu og tvöfalt fleira fólk var þar á
sumrin og urðu Skálar mikill út-
gerðarstaður þótt hafnlaus væri
með öllu og hvorki menn né nátt-
úran byggju þar bátum skjól. Þarna
voru gerðir út tugir áraskipa við
opið haf og sú útgerð var ótrúlega
farsæl og slysalítil.
Einhver samverkandi öfl drógu
að sér fólk á þessum stað og auk
þess voru tugir, eða hundruð er-
lendra skipa, einkum færeyskra,
sem þar höfðu viðskipti og fiskuðu
bæði við Sléttu og Langanes.
Stundum voru ljós hinna erlendu
veiðiskipa eins og borg yfir að líta á
síðkvöldum er líða tók á sumarið.
En íbúar Skála og aðkomumenn
sem þangað komu sumar eftir
sumar með báta sína til að gera út
frá Skálum, gerðu eingöngu út
litla báta, einkum sexæringa og
Sigurður Einarsson.
ýmist réru þeim eða sigldu á miðin
og af þeim og bátana varð að setja
með handafli undan sjó. Stutt var
á fiskimiðin og oft ágætur afli og
mokafli, en lendingin var jafnan
áhyggjuefni mannanna á sjónum
þegar eitthvað var að veðri.
En þrátt fyrir ágætan afla og að
hver fiskur væri seldur, var afkom-
an ekki að sama skapi góð og má
marka það af sjö til átta aura verði
fyrir kílóið af fiski, slægðum og
hausuðum. Allur fiskur var saltað-
ur en síðan fluttur suður á firði og
þurrkaður þar.
Við Sigurður sátum nokkrum
sinnum tveir á tali á dvalarheimili
aldraðra í Skjaldarvík og hann
sagði mér margt af veru sinni á
Skálurn, þar sem hann var mörg
manndómsár sín og tók fullan þátt í
uppbyggingu staðarins, sjósókn-
inni og hinu athafnasama og auð-
uga mannlífi, sem þar var, og hann
tók einnig fullan þátt í þeirri miklu
keppni formanna, sem oft tíðkast í
verstöðvum og lét þá ekki sinn hlut
eftir liggja því hann varð víkings-
maður að þreki og harðfengi. Lífs-
baráttan varð hörð og ekki aukvis-
um auðveld, en hún var þroskandi
og skemmtileg hraustum og vak-
andi mönnum. Allir höfðu til hnífs
og skeiðar en fáir mikið meira.
I mannraunir komst Sigurður í
svaðilförum á landi því til hans var
oft leitað þegar sækja þurfti lækni
eða ljósmóður og ekki var heiglum
hent. Verður það ekki nánar rakið.
En tvisvar lenti hann í sjávarháska.
í annað skiptið á Skálum er ára-
bátur sem hann var á en ungur
Færeyingur stjórnaði, var að brjót-
ast fram í skip en hvolfdi. Formað-
urinn drukknaði, Sigurður flaut á
ár og rak til lands og þriðji maður á
bátnum rak einnig upp og raknaði
við. Eftir litla stund var Sigurður
kominn í þurr föt og í uppskipun-
arvinnu.
í síðara skipti var hann staddur
á bátnum Brúna frá Siglufirði út af
Eyjafjarðarálnum. Var bátur þessi
á reknetum, sex menn á honum og
formaðurinn var Einar Bjarnason á
Siglufirði. Stýrið á bátnum hafði
brotnað og kominn hinn versti
norðangaður. Togari og gufuskip,
sem nærstödd voru, komu á vettv-
ang, en svo slysalega vildi til að
annað skipið sigldi á Brúna miðjan
og tók hann sundur. Sukku báðir
partarnir samstundis, tveir menn
drukknuðu en fjórum var bjargað
og þeirra á meðal var Sigurður.
Marga vetrarvertíðina var Sig-
urður á Suðvesturlandi, átti heima
á Siglufirði um skeið, fluttist að
Eyjafirði 1928 og átti heima á
Svalbarðseyri en á Akureyri frá
1939. Um þriggja áratuga skeið
vann hann í verksmiðjum sam-
vinnumanna og hætti ekki störfum
fyrr en hann var 85 ára að aldri.
Konu sína missti hann fyrir fáum
árum en tveir synir þeirra, Einar og
Bjarni eru búsettir á Akureyri og
þriðji bróðirinn, Hermann', býr í
Keflavík. Rósa, elsta barnið þeirra,
er látin.
(Framhald á bls. 6).
Undanfarnar vikur hafa staðið
umræður um hugsanlegt kvenna-
framboð á Akureyri við næstu
sveitarstjórnarkosningar. Engan
þarf að undra þó að slík hugmynd
skjóti upp kollinum, og það af ær-
inni alvöru. Hvert mannsbarn veit
að þátttaka kvenna í pólitískri
ákvarðanatöku er afar lítil, og áhrif
þeirra á stjórnmál ekki í neinu
samræmi við fjölda þeirra eða
þekkingu á þjóðmálum. Á alþingi
íslendinga sitja einungis þrjár kon-
ur og er mér nær að halda að svo
lágt hlutfall þekkist ekki á þjóð-
þingum Norðurlandanna a.m.k. í
bæjarstjórn Akureyrar situr nú ein
kona af ellefu bæjarfulltrúum. Svo
undarlega hefur brugðið við að til-
raunir með nýjar aðferðir við
ákvörðun framboðs hjá stjórn-
málaflokkunum hafa alls ekki
megnað að breyta þeirri staðreynd,
að karlar sitji í öllum áhrifamestu
sætunum.
Á þessu er þó sú undantekning
hér á Akureyri að í sex efstu sæt-
unum á framboðslista Alþýðu-
bandalagsins við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar, voru skiptin
milli kynjanna jöfn og kona í efsta
sæti, eina sætinu sem þá mátti telj-
ast öruggt. Fuli ástæða er til að
vekja á þessu sérstaka athygli nú,
þar sem Jón Björnsson félagsmála-
stjóri Akureyrar gerir enga undan-
tekningu á stjórnmálaflokkunum í
þessu efni, í grein sinni „Herhvöt"
sem birtist í Degi í maí sl.
í Herhvöt til kvenna segir Jón
m.a.:
„Ég skrifa þetta af því að ég í
einlægni trúi konum betur til þess
en körlum að gera bæinn, sem ég
bý í að góðum bæ, bæ eins og ég vil
búa í. Ég held að viðhorf þeirra
væru mannlífi hér hollari, virðing
þeirra fyrir fólki og þörfum þess
meiri en viðhorf núverandi bæjar-
stjórnar og næstu bæjarstjórnar af
sömu gerð og næstu og þarnæstu."
Þessi skoðun Jóns er að mínu viti
verð fyllstu athygli og hér er rétt að
spyrja. Er það nægileg trygging
fyrir virðingu stjórnmálamanns
fyrir fólki og þörfum þess að við-
komandi sé kona? Reynslan á
Bretlandseyjum held ég að staðfesti
alveg ótvírætt að svo sé ekki og
fjölda annara dæma má að sjálf-
sögðu nefna. Konur eru rétt eins og
karlar róttækar eða íhaldssamar,
frjálslyndar eða afturhaldssamar.
Sé hið breska dæmi skoðað nánar
kemur í ljós að undir forsæti
Margaretar Tatchers hefur fjöl-
mörgum minnihlutahópum og
fátæklingum vegnað verr en
nokkru sinni á eftirstríðsárunum,
nema ef vera skyldi allra fyrstu árin
eftir stríðið. Ekkert bendir til þess
að Tatcher hafi verið gerð að for-
manni breska íhaldsflokksins upp á
punt. Þvert á móti hefur hún reynst
harðsækinn foringi fyrir þann aft-
urhaldssama hóp sem um sinn hef-
ur farið með öll völd í flokki henn-
ar.
Nú er auðvita augljóst mál, að
ekki verður þátttaka kvenna í
stjórnmálum á íslandi afgreidd
með því að vísa til þess, að frú
Tatcher sé hin versti pólitíkus á
Bretlandseyjum, og þar með hljóti
hérlendar konur einnig að vera
það. Það sem sker úr um pólitíksa
starfsemi stjórnmálamanns er ekki
kynferði hans heldur lífsskoðunin,
hinar pólitísku skoðanir að við-
bættri félagslegri og stéttarlegri
reynslu og hagsmunum.
Kvennaframboð
eða samfylking
jafnréttissinna
4.DAGUR
SUMARREVIAN
TÓKSTVEL
Sumairevía Sjálfstæðishússins var
frumsýnd á föstudag í síðustu viku
fyrir fullu húsi. Undirtektir áhorf-
enda voru með ágætum, enda sýn-
ingin létt og skemmtileg og virðist
ekki baga hanna neitt að nýgræð-
ingar í leiklistinni eiga í hlut.
Þetta framtak Sigurðar Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðishússins, og höfunda reví-
unnar, Þorvalds Þorsteinssonar og
Hermanns Arasonar, er mjög lofs-
vert í fremur fábreyttu og einhæfu
skemmtanalífi bæjarins. Þarna
gefst fólki kostur á að borða góðan
mat, skemmta sér yfir góðlátlegu
gríni um ferðaskrifstofu- „brans-
ann“ og stíga svo dans á eftir. Efni
revíunnar er á engan hátt stað-
bundið, þannig að ekki þarf neina
sérþekkingu á málefnum Akureyr-
inga til að skilja glensið. Þannig
mun þetta raunar hafa verið hugs-
að frá upphafi, svo að ferðamenn í
bænum gætu haft gaman af, auk
bæjarbúa.
Ég er meðal þeirra sem undirrit-
að hafa áskorun til Akureyringa
um að mæta til fundar nú í vikunni
til að ræða möguleikana á fram-
boði sem byggist á nýjum viðhorf-
um til bæjarmála svo og því að
slíkur listi „verði aðallega eða ein-
göngu skipaður konurn," eins og
segir í fundarboði. Augljóst er að
fundarboðendurnir. sem munu
vera um 50 talsins, eru úr öllum
hinum pólitísku áttum; Vinstri
sinnar, hægri menn og miðjumenn.
Jafn ljóst er að skoðanir þeirra á
bæjarmálum og stjórnmálum yfir-
leitt eru svo ólikar að ótrúlegt má
kallast ef þeir geta sameinast um
annað en að boða til þessa fundar.
Næsta líklegt er einnig að þær
konur úr jafnréttishreyfingunni
sem frumkvæði hafa átt að fundar-
boðuninni séu ekki á einu máli um
hvernig að hugsanlegu framboði
skuli staðið, né heldur hver skuli
vera megin markmið slíks fram-
boðs. Fyrsta spurningin sem
brennur á flestum er væntanlegasú
hvort listinn eigi að vera eingöngu
skipaður konum, blandaður til
jafns eða að meirihluta konur. Ég
hlýt að reikna með að þeim konum
úr jafnréttishreyfingunni sem haft
hafa forystu í málinu sé ekki ein-
asta akkur í að koma konum í for-
ystusveit í bæjarmálum. Miklu
hlýtur að skipta, um hvaða mál-
efnagrundvöll verður sameinast og
síðast en ekki síst að sýna fram á að
Vonandi er að þessi revíu-sýning
hljóti góðar undirtektir, því þá er
aldrei að vita nema framhald geti
orðið á slíkum sýningum í Sjálf-
stæðishúsinu. Kabarett L.A. í vetur
tókst með ágætum og revían lofar
góðu. Ef til vill á Akureyri eftir að
skapa sér einhverja sérstöðu í þess-
um efnum og væri það vel.
Um frammistöðu einstakra leik-
enda má segja, að hún er almennt
góð, en þó er hlutur Þorvalds Þor-
steinssonar stærstur og má eigin-
lega segja, að hann beri sýninguna
að nokkru leyti uppi. Hermann
Arason er ísmeygilega skemmti-
legur í hlutverki spanjólans. Þeir
ásamt hinum leikendunum, Gunn-
ari Þorsteinssyni, Ingu Einarsdótt-
ur, Ingu Láru Bachman, Jóhanni
Haukssyni og Kristínu Helgadótt-
ur, að ógleymdum undirleikaran-
um Ingimari Eydal, eiga þakkir
skilið fyrir frammistöðuna og
framtakið.
H.Sv.
jafnréttissinnar af báðum kynjum
geti farsællega unnið saman undir
fotystu kvenna. Ég tel þetta grund-
vallaratriði, í framlagi til jafnréttis-
. baráttu.ogfirnalega mikilvægt fyrir
konurnar, þar sem þær þurfa að
vinna traust karla til trúnaðarstarfa
ekki síður en kvenna. Yrði ákveðið
nú í upphafi að bjóða fram lista
sem eingöngu væri skipaður kon-
um, væri strax í byrjun reistur full-
komlega ónauðsynlegur ágreining-
ur um framboðslistann, sem skapa
myndi andstæðingum þeirra sjón-
armiða, sem listanum væri ætlað að
berjast fyrir, ágæta baráttuaðstöðu.
Verið getur að jarðvegur sé fyrir
nýjum samfylkingarlista í næstu
bæjarstjórnarkosningum, sem kon-
ur hefðu forystu fyrir. Til þess að
svo geti orðið þarf slíkur fram-
boðslisti að byggja á traustum
málefnagrunni sem spannar allt
svið bæjarmála. Sé aðstandendum
listans mikið niðri fyrir í jafnréttis-
málum ættu þeir að byggja starf sitt
á þeirri grundvallarskoðun að
jafnréttissinnar af báðum kynjum
vinni saman að bæjarmálum, og
framboði til baájarstjórnar, þar sem
enginn verði útilokaður frá fram-
boði vegna kynferðis síns. Það
verður ekki jafnréttisbaráttu til
framdráttar að skipta á sökudólg-
um og fórnarlömbum.
Helgi Guðmundsson.
bœjarfulltrúi.
Nú slapp Þór fyrir horn
! gærkveldi léku KA og þór
fyrsta leikinn í síðari umferð
fyrstu deildar keppninnar. f
öfugu gengi við fyrri leikinn
voru KA menn nú betri aðilinn
í leiknum, en heppnir Þórsarar
kræktu í annað stigið, en leik-
urinn endaði með jafntefli eitt
mark gegn einu.
Árni Stefánsson fyrirliði Þórs
var sammála blaðamanni, er
hann sagði að KA hefði verið
betri aðilinn í þessum leik, „en
við áttum hins vegar hörmulegan
leik,“ sagði Árni.
Fyrsta skotið á mark í þessum
leik átti Gunnar Blöndal, en
þrumufleygur hans fór rétt fram-
hjá...
Bæði liðin áttu góðar sóknar-
lotur í fyrri hálfleik, en KA þó
mun fleiri. Þeir skutu marg sinnis
á markið af löngu færi, en annað
Völsungur
- Fylkir
1:0
Á laugardaginn léku Völsung-
ar sinn fyrsta heimaleik á grasi
í sumar, og þá við Fylki. Hvort
sem það hefur verið grasið sem
gerði gæfumuninn, eða bar-
áttugleði Völsunga — nema
hvorttveggja væri, þá fóru
Völsungar með sanngjarnan
sigur af hólmi, skoruðu eitt
mark gegn engu marki Fylkis.
Þetta var mikill baráttuleikur,
bæði liðin sýndu ágæta takta.
Markið kom um miðjan síðari
hálfleik, þar var Magni Hreiðars-
son að verki. Markvörður Fylkis
hafði hendur á boltanum. en
missti hann inn, eftir skot Magna.
hvort var Eiríkur vel á verði, eða
skotið fór framhjá. Á 28. mín.
endaði góð sókn KA með því að
Gunnar Gíslason komst einn inn
fyrir í dauðafæri. Hann ætlaði
aðeins að laga fyrir sig boltann,
en þá voru varnarmenn Þórs
komnir og bægðu hættunni frá. Á
35. mín átti Ásbjörn góðan skalla
en hann lenti í bakinu á öðrum
bakverði Þórs sem stóð á mark-
línu og þaðan barst boltinn í fang
markmanns.
í öfugu hlutfalli við gang leiks-
Þriðju deildar lið Árroðans
tapaði sínum fyrsta leik í
deildinni í sumar á laugardag-
inn þegar þeir fengu lið HSÞ b
í heimsókn. Sigruðu Mývetn-
ingarnir 2:1.
Strax í upphafi leiksins náðu
Mývetningarnir góðum tökum á
leiknum og áttu mýmörg tæki-
ins voru það Þórsarar sem
skoruðu fyrsta markið. Guð-
mundur Skarphéðinsson tók
hornspyrnu, og þar kom Óskar
Gunnarsson á fullri ferð, tók
boltann á hnéð, og stýrði honum í
markið. Einni mín. síðar eða á 39.
mín. máttu Þórsarar hirða bolt-
ann úrsínu marki. Elmarsendi þá
sakleysislegan bolta inn í þvög-
una framan við Þórsmarkið, og
Gunnar Gíslason skallaði laglega
að markinu, og fór boltinn í lærið
á bakverði hjá Þór og breytti um
færi á upphafsmínútuunum sem
þeir náðu ekki að nýta. En á 8.
mín. leiksins virtist frekar lítil
hætta vera á ferð þegar mark-
vörður Ároðans hafði náð að
handsama knöttinn eftir eina
sókn gestana. Þegar hann síðan
ætlaði að spyrna knettinum frá
missteig hann sig hrikalega á
stefnu framhjá Eiríki og í netið.
Fleiri urðu mörkin ekki í þessum
leik og síðari hálfleikur jafnari en
sá fyrri. KA menn spiluðu mun
betur í þessum leik, en hjá Þór bar
mikið á löngum spörkum sem
ekki báru árangur sem skyldi.
Þegar á báða leikina er litið eru
þessi úrslit beggja leikjanna
sanngjörn. Þór átti að vinna fyrri
leikinn en KA þann seinni. Þrátt
fyrir þetta eru bæði liðin í fall-
hættu ásamt KR og FH sem eru
þó neðar í stigatöflunni.
ósléttum vellinum og í örvænt-
ingu sinni kastaði hann frá sér
knettinum fyrir fætur Þorláks
Jónssonar sem þakkaði fyrir sig
og skoraði 1:0 fyrir HSÞ. Eftir
þetta atvik náðu Árroðamenn
heldur að rétta úr kútnum og
skiptust liðin á að sækja. Tveirn
mín. fyrir hálfleik fengu Mývetn-
ingarnir síðan aukaspyrnu sem
þeim tókst að nýta og Jónas
Skúlason skoraði annað mark
þeirra.
Strax í síðari hálfleik var sýnt
að heimanienn ætluðu ekki að
láta við svo búið sitja og sóttu stíft
að niarki HSÞ. Uni miðjan hálf-
leikinn uppskáru þeir árangur
erfiði síns þegar Örn Tryggvason
skoraði mark fyrir Ároðann. Eftir
þetta rnark færðist heldur betur
fjör í leikinn og sóttu liðin á víxl
en náðu ekki að nýta sér mörg
gullin t;ekifæri. Lauk leiknum því
með sanngjörnum sigri HSÞ.
Stórsigrar
Magna og
Reynis
íslandsmótið þriðja deild í
knattspyrnu hélt áfram um
helgina. Á laugardaginn léku
Reynir og USAH, Magni og
Dagsbrún og Árroðinn og
HSÞ b."
KA-menn heppnir
„Spútnikarnir“ töpuðu
Á föstudagskvöldið léku KA
og Þór í fyrstu deildinni í
knattspyrnu, en þessi leikur
átti að vera í vor en var frestað
þar til nú. Sextán hundruð
manns mættu á völlinn.
Áhangendur Þórs máttu vera
ánægðir með lið sitt, en stuðn-
ingsmenn KA voru hins vegar
mjög óánægðir og var það mál
manna að svona illa hefði liðið
ekki leikið á þessu sumri, og
jafnvel þótt lengra væri leitað.
Hvort lið skoraði eitt mark í
leiknum, en Þórsarar voru
mun betri aðilinn.
Þór kaus að leika undan
norðan strekkingnum í fyrri
hálfleik, og náði fljótlega góð-
um sóknarlotum.
Fyrsta skot á markið átti Ás-
björn fyrir KA á 3. mín. en skot
hans fór framhjá. Jón Lár. átti
fyrsta skotið fyrir Þór á 10. mín.
en Aðalsteinn varði auðveld-
lega.
Besta trpkifærið í fyrri hálf-
leik átti Óskar Gunnarsson.
Guðjón Þórsari hafði þá leikið
’ óáreittur upp allan völlinn, og
sendi síðan góðan bolta á Óskar
sem var í góðu færi en hann
skaut framhjá.
Á 7 mín. síðari hálfleiks kom
fyrsta markið.
LANDS
MÓT
U.M.F.I.
Á föstudagskvöldið verður sett
17. Landsmót UMFÍ hér á
Akureyri. Setningaratöfnin fer
fram á aðalleikvanginum hér á
Akureyri á föstudagskvöldið
kl. 20.00. Áður munu þátttak-
endur og fararstjórar ganga
fylktu liði frá nýja íþróttahús-
inu og að iþróttavellinum, og
verða 2-3000 manns í þeirri
skrúðgöngu. Forseti Íslands
Vigdís Finnbogadóttir mun
flytja ávarp við setningarat-
höfnina.
Kcppnir munu síðan fara
fram á öllum iþróttavöllum og
íþróttahúsum bæjarins allt frá
föstudagsmorgni til sunnu-
dagskvölds.
Þá var brotið á Sigurbirni
Viðarssyni rétt utan vítateigs
vinstra megin. Arni Stefánsson
sendi góðan bolta upp að
markinu, og Jónas Róbertsson
sem komið hafði inná fyrir Jón
Lár. skallaði laglega yfir mark-
mann KA og í netið.
Bæði liðin skiptustu nú á að
sækja en þó virtust sóknarlotur
Þórs yfirleitt vera þyngri.
Þremur mín. fyrir leikslok þegar
allir voru búnir að bóka Þór
sigur í leiknum braust Elmar
upp hægri kanntinn, lék á tvo
varnarmenn Þórs og sendi góð-
an bolta fyrir og Ásbjörn skall-
aði óverjandi yfir Eirík mark-
mann Þórs. Jafntefli urðu því
úrslit þessa leiks, og mega KA
menn þakka fyrir þetta stig.
Miðjumenn Þórs réðu lofum
og lögum á miðjunni og mötuðu
framherjana á góðum boltum.
Jónas Róbertsson var besti
maður Þórs, en Elmar og Aðal-
steinn markmaður bestu menn
KA. Jóhann Jakobsson lék ekki
með KA en hann á við meiðsl
að stríða. Eysteinn Guðmunds-
son dæmdi leikinn mjög vel,
sem annars var prúðmannlega
leikinn.
Leikir þessir voru allir
skemmtilegir og mikið af mörk-
um skorað. Reynismenn voru í
banastuði á heimávelli sínum á
Árskógsströnd og unnu stórsigur
á USAH. Reynismenn skoruðu
10 mörk en Húnvetningar ekkert.
í hálfleik var staðan sex mörk
gegn engu.
Björn Friðþjófsson var marka-
hæstur Reynismanna nteð fimm
mörk, Guðmundur Hermanns-
son gerði þrjú, og þeir Jens Sig-
urðsson og Garðar Níelsson eitt
hvor.
Magnamenn voru einnig á
skotskónuni á móti Dagsbrún en
þeir gerðu átta mörk gegn engu.
Akureyrar-
mót í golf i
Akureyrarmótið í golfi hefst á
morgun mióvikudag, og stendur
það yfir til laugardags. Leiknar
verða 18 holur á dag eða 72 holur
alls, og er hér um flokkakeppni að
ræða. Keppt verður í öllum flokk-
um karla og kvenna og i ungl-
ingaflokkum og drengjaflokkum.
DAGUR.5
íTTtiii111 ii 111 m 11 ■ i i