Dagur - 09.07.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Akureyri, fimmtudagur 9. júli 1981 52. tölublað
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
FJÓLDIUMSÆKJENDA
FÆR EKKI SKÓLAVIST
Varúðarráðstafanir (búanna til varnar
flugunum. Ljósm.: g.k.
Ibúar í Lyngholti:
HÓTA
MÁLS-
SÓKN
„Við undirritaðir fbúar við[
Lyngholt mótmælum harðiega
staðsetningu hjalla Útgerða-
félags Akureyringa h/f á bökk-
um norðan Glerár. Hjallar
þessir eru í ólöglegri fjarlægð
frá íbúðarhúsum við Lyngholt,
og er óþolandi með öllu að búa
við þann óþef og flugnamergð er
leggur frá hjöllunum. Krefjumst
við þess að hjallarnir verði fjar-
lægðir tafarlaust, ella verði
gripið til viðeigandi ráðstaf-
ana.“
Orðsendingin hér að framan er
frá íbúum við Lyngholt, og hefur
verið afhent bæjarstjóra og forseta
bæjarstjórnar. Þengill Jónsson,
einn íbúanna sem leit við á ritsjórn
Dags sagði að íbúarnir hefðu ekki
reynt þessa leið áður þrátt fyrir
áralanga veru við hjallana. Við
spurðum hann hvað væri átt við
með síðustu málsgrein samþykktar
íbúanna.
„Við erum auðvitað að hóta
málssókn, það er það eina sem við
getum gert. Við gætum auðvitað
farið að stunda einhverja skemmd-
arstarfssemi en það er ekki ætlun-
in.“
Þengill sagði að langflestir íbúa
við Lyngholt hafi ritað undir bréfið
til bæjaryfirvalda, og einhver úr
hverju íbúðarhúsi hefði ritað nafn
sitt á áskorunarblaðið. Alls undir-
rita 69 íbúar bréfið.
Dagur hefur áður sagt frá stríði
íbúanna við Lyngholt við Útgerða-
félagið og yfirvöld út af þessu máli.
íbúarnir eru búnir að fá sig full-
sadda á nærveru hjallanna og því
sem þeim fylgir, flugum og ólykt,
og sagði Þengill að þeir væru
margir sem ekki hefðu byggt við
þessa götu á sínum tíma ef þeir
hefðu vitað að þeir þyrftu að búa
við þetta ástand.
Nýjustu fréttir
Bæjarráð tók þetta mál fyrir á fundi
í fyrradag. Þar var gerð bókun þess
eðlis að Útgerðarfélaginu sé
óheimilt að hengja upp meiri fisk á
hjöllunum næst Lyngholtinu, og
benti bæjarráð á framtíðarsvæði
fyrir hjalla ÚA norðan Þórsness
sem er norðan Krossaness. Var
bæjarstjóra falið að ræða við eig-
endur jarðarinnar sem er ríkið og
ábúendur.
„Við höfum orðið að neita um
65 nemendum um skólavist í
Menntaskólanum á Akureyri
næsta vetur“ sagði Tryggvi
Gíslason skólameistari í viðtali
við Dag nú í vikunni. Tryggvi
sagði að alls hefðu borist um
240 nýjar umsóknir um nám á 1.
ári, en af þeim yrði aðeins hægt
að verða við 175 umsóknum.
Þegar við spurðum Tryggva á
hvern hátt umsóknir væru metnar
í tilefni opinberrar heimsóknar
Vigdísar Finnbogadóttur, for-
seta íslands, til Akureyrar n.k.
miðvikudag, verður öllum þeim
sem það vilja boðið til móttöku-
athafnar í Lystigarðinum. Þar
verður forseti og fylgdarlið
hennar boðið velkomið og öllum
viðstöddum boðnar veitingar.
Þetta verður trúlega stærsta
borðhald sem haldið hefur verið
„Það má sennilega slá því föstu
að i allt sumar fylgi norðanátt
talsvert miklir kuldar á Norður-
landi, og ástæðan fyrir því er
einfaldlega sú að sjórinn út af
Norðurlandi er mjög kaldur,
óvenjulega kaldur má segja, þótt
erfiðara sé að segja til um
ástæður þess,“ sagði Magnús
Jónsson veðurfræðingur á Veð-
og hverjir hefðu forgang, sagði
hann: „Reglan er sú að þeir sem
geta sótt frá lögheimili sínu annan
framhaldsskóla, er neitað fyrst, og á
það til dæmis við um nemendur frá
Reykjavík. Síðan er farið eftir
einkunnum umsækjenda."
Tryggvi sagði að það væri ekki
nýlunda að neita þyrfti umsóknum
um skólavist við MA. Það hefði
þurft að gera s.l. tvö ár.
Nýir umsækjendur um nám á 2.
á Akureyri til þessa. Borðin
verða stæðileg, en þau eru gerð
úr sundursöguðum loftbitum
úr íþróttahöllinni, sem komu
gallaðir til landsins.
Að öðru leyti verður heimsókn
Vigdísar til Akureyrar þannig hag-
að, að tekið verður á móti henni á
bæjarmörkum Akureyrar og Eyja-
fjarðarsýslu, þar sem hún verður í
opinberri heimsókn fyrr um daginn
og dagana á undan, eins og áður
urstofu íslands í stuttu spjalli
við Dag um helgina.
— Magnús sagði að ýmsar get-
gátur væru þó uppi um ástæður
sjávarkuldans, en hann hailaðist
helst að því sjálfur að ástæðan væri
sú að Golfstraumsins sem fer
norður með Vesturlandi og austur
með Norðurlandi hafi gætt minna í
sjónum út af Norðurlandi en áður.
Hvers vegna það hefði átt sér stað
skólaári eru um 40 talsins. Eru það
m.a. nemendur sem hafa hætt námi
við MA, en aðallega er um að ræða
fólk sem kemur úr framhalds-
deildum skóla á Norðurlandi, s.s.
frá Húsavík og Siglufirði, svo dæmi
séu nefnd. Flestir þessir um-
sækjendur fá skólavist. Nýir um-
sækjendur um nám á 3. ári.eru 10
talsins og á 4. ári 8 og verða þeir
allir teknir í skólann. Má því segja
að nýir nemendur við Menntaskól-
ann á Akureyri næsta vetur verði
hefur komið frant í Degi. Eftir
móttökuna á bæjarmörkunum
verður hádegisverður á Hótel
KEA og síðan verður farið í skpð-
unarferð um bæinn, m.a. í Elli-
heimilið Hlíð, stofnanir og söfn.
Móttakan í Lystigarðinum hefst kl.
18.00 og kl. 20 verður kvöldverður i
boði bæjarstjórnar Akureyrar.
Hermann Sigtryggsson skipuleggur
móttökuathöfnina fyrir hönd bæj-
arins.
vekti hins vegar aðra spurningu, og
svarið við henni enn aðra og svo
koll af kolli. Sagði Magnús sem
dæmi um getgátur manna varðandi
veðurfar að menn hefðu sett úr-
komu í Chile í samband við hafís
við ísland.
Þótt norðlendingar hafi að von-
um kvartað undan köldu vori og
köldu sumri það sem af er, þá hefur
sólar gætt talsvert. Þannig voru
liðlega 230 talsins, að sögn
Tryggva.
Tryggvi sagði að þrátt fyrir að
ákveðnum fjölda umsókna um
skólavist yrði að hafna, byggi skól-
inn við mjög þröngan húsakost og
drepið væri í hverja smugu. „Við
vonum að nýja íþróttahöllin komist
í gagnið í haust að einhverju leyti.
það myndi leysa talsverðan vanda
fyrir okkur“ sagði Tryggvi að lok-
um.
Lands-
liðið á
Húsa-
vík
„Við erum að leita að kjarna í
leikina gegn Manehester City
og landsliöi Nigeríu, og þessi
leikur á Húsavík á fimmtudags-
kvöldið er fyrsti liðurinn í und-
irbúningi fyrir þá leiki“ sagði
Helgi Daníelsson formaður
Landsliðsnefndar Knattspyrnu-
sambandsins í samtali við Dag í
gær.
Helgi sagði að það yrði eingöngu
notaðir leikmenn sem leika hér
heima í þessa leiki, það yrði ekki
fyrr en í fyrsta lagi í landsleiknum
gegn dönum í lok ágúst sem at-
vinnumennirnir kæmu hugsanlega
inn í liðið.
Leikur landsliðsins og Völsungs
frá Húsavík hefst á Húsavíkurvelli
kl. 20 í kvöld og mæta heimamenn
með lið styrkt tveimur burtfluttuni
húsvíkingum til leiks. Það eru þeir
Kristján Olgeirsson (Akranes) og
Helgi Helgason (Víkingur) sem
leika með liði Völsungs, og að sögn
Jóns Gunnlaugssonar þjálfara
Völsungs eru þeir óhræddir að
mæta landsliðinu þegar þeir hafa
nengið þennan liðsauka.
sólarstundir á Akureyri i júní 146
talsins eða 26 undir meðalári. en í
Reykjavík þar sem veðrið hefur
leikið við íbúana voru sólarstundir
156 eða 33 undir meðaltali.
Magnús sagði að enn lægju tölur
ekki fyrir varðandi hitastig á þess-
um stöðum í júní. en hann reiknaði
þó með að hitastig i Reykjavík væri
tæplega einu stigi undir meðalári.
en á Akureyri 1,5 til 2 stigum undir
meðalári í júní. •
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167- RITSTJÓRN: 24166 OG 21180
Stærsta borðhaldið
- sem haldið hefur verið á Akureyri til þessa
NORÐANÁTTIN KÖLDISUMAR
- því veldur óvenjukaldur sjór við Norðurlandið