Dagur - 28.07.1981, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚT6AFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstraeti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðsfu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Landsmót
skáta
Um þessar mundir s|endur yfir
fjöimennt iandsmót skáta í Kjarna.
Þar hafa rúmlega 1000 ungmenni
hreiðrað um sig og næstu dagar
munu líða við leiki og störf. Gildi
skátahreyfingarinnar fyrir æsku
landsins þarf ekki að draga í efa.
Hún hefur reynst ungu fólki mikil-
vægur hlekkur, sem hefur átt
drjúgan þátt í að móta æskuna og
beina henni inn á farsælar brautir.
í starfi skáta er m.a. lögð áhersla á
mikilvægi samvinnu á sem flest-
um sviðum um leið og brýnt er fyrir
þeim að iæra að treysta á sjálfa
sig.
Skátahreyfingin á Akureyri
stendur á gömlum merg og það er
bæjarfélaginu mikill heiður að
skátum hér hefur verið treyst fyrir
því vandaverki að standa fyrir
landsmóti. Það hefur komið fram í
fréttum að undirbúningur hefur
tekið u.þ.b. tvö ár. Þegar svipast er
um á athafnasvæði skátanna í
Kjarna er ijóst að aðstandendur
mótsins hafa notað undir-
búningstímann vel og eflaust eiga
gestir mótsins eftir að njóta dval-
arinnar á Akureyri.
Aðgerðir
nauðsyn-
legar
Fyrir skömmu fjallaði blaðið um
samskipti kaupenda og seljenda
(verktaka) nýs íbúðarhúsnæðis.
Bent var á að þeir verktakar sem
byggja íbúðir og selja á frjálsum
markaði þurfa ekki að leggja fram
neina tryggingu um leið og kaup-
samningur er gerður. Slíkt hefur
tíðkast þegar verktakar byggja
fyrir bæjarfélagið og hefur öllum
þótt sjálfsagt. En ef verktaki verð-
ur gjaldþrota á byggingatímanum
getur sá sem keypti af honum íbúð
orðið fyrir mikiu fjárhagstjóni.
Nýlegt dæmi á Akureyri ætti að
nægja — óþarft er að bíða eftir
fleirum. Skiptar skoðanir munu
vera uppi um ágæti þess að taka
upp tryggingar í samskiptum
kaupenda og verktaka, en enn
hefur ekki verið bent á aðra leið
sem getur tryggt kaupandann
gagnvart þeim sem byggir.
Bæjarfélög geta eflaust ekki
krafist trygginga af verktökum
sem byggja og selja íbúðir. Slíkar
reglur þurfa að vera gerðar fyrir
landið aiit.
„Það vantar mjög mikið
þegar sjónin hverfur
66
- segir Kristján Tryggvason, sem missti sjónina 14 ára en hefur starfað við
bólstrun og smíðar í tæplega 40 ár
Kristján Tryggvason var 14
ára gamall er hann var að leika
sér með dynamithvellhettu og
hún sprakk í höndum hans.
Þetta var árið 1934, og þessi
atburður átti eftir að hafa
meiri áhrif á líf hans en nokkur
annar. Þessi 14 ára unglingur
stóð uppi blindur á báðum
augum, og til viðbótar því
missti hann framan af tveimur
fingrum vinstri handar.
Kristján, sem er fæddur og
uppalinn á Meyjarhóli á Sval-
barðsströnd, og átti þar heima
þegar slysið átti sér stað, varð
að taka því að verða blindur til
æfiloka. Það hefur verið þung-
ur kross að bera fyrir 14 ára
óharðnaðan ungting, en
Kristján lét ekki bugast eins og
sjá má af öllu lífshiaupi hans.
„Nei, framtíðin var ekki allt of
björt á þeirn tíma, en þó var búið
að stofna Blindravinafélag fs-
lands í Reykjavík árið áður og
þangað lá leið mín um haustið til
þess að læra eitthvað starf og
einnig til að læra blindraletur. Þá
voru þeir með burstagerð sem
mun hafa verið það fyrsta af iðn-
aðarstöfum sem blindir fengust
við, og kynntist ég þeirri vinnu
ásamt fleiri störfum.“
„Lærði dálítið í
bólstrun“
„Ég var þarna viðloðandi í ein
10 ár og kynntist auk burstagerð-
arinnar ýmsum léttum iðnaði svo
sem körfugerð smávegis, og í lok
veru minnar fyrir sunnan var mér
kennt dálítið í bólstrun. Það hefur
síðan verið uppistaðan í því sem
ég hef fengist við. Ég fór ekki í
annað nám, enda var því ekki til
að dreifa á þeim tíma.“
Svefnbekkurinn sem Kristján situr hér á er mikil völundarsmfð. Skúffur eru á bekknum þar sem rúmfötin skulu gcymast.
„Síðan kom ég norður 1944 og
settist þá að á Akureyri. Ég byrj-
aði strax með smá vinnustofu og
fékkst aðallega við bólstrun og
framleiddi legubekki. Fyrst var
ég með verkstæði í kjallaranum í
Brekkugötu 15, en 1955 lét ég
reisa þetta hús Oddeyrargötu 4b
sem ég hef verið í síðan með
verkstæðið. Mig minnir að það
hafi kostað 150 þúsund krónur að
byggja húsið. Nú framleiði ég
aðallega fjaðurdýnur og svefn-
bekki sem ég sel í almennri sölu
og dálítið í húsgagnaverslanir.“
„ Hefur pú ekki purft að yfir-
Kristján Tryggvason fyrir framan verkstæði sitt.
stiga mikla erfiðleika til að ná
tökum á pessari vinnu. Nú ert pú
blindur, áuk pess sem pú ert ekki
með báðar hendur heilar?
„Auðvitað tekur það langan
tíma að ná tökum á þessum verk-
um fyrir blindan mann, en ég hef
verið heppinn að ná tökum á því
sem ég hef fengist við. Þó efast ég
um að ég afkasti á við fullfríska
menn nema á sumum sviðum. Ég
hef einnig smiðað grindurnar í
þessa svefnbekki sem ég fram-
leiði og hef dálítið trésmíðaverk-
stæði hér til þeirra hluta í hús-
inu“.
„Getað lifað eðlilegu
fjölskyldulífi“
— Kristján giftist árið 1952
Þórdísi Ellertsdóttur frá Akureyri
og eiga þau 18 ára dóttur. Næsta
spurning okkar til hans var sú,
hvernig það væri að vera blindur
þegn í því þjóðfélagi sem við lif-
um í.
„Já, það er nú það, maður er
oft spurður þessarar spurningar.
Því er auðvitað ekki að neita að
það vantar mjög mikið þegar
sjónin hverfur, en eins og ég sagði
áðan þá hef ég verið heppinn.
Fyrst framan af bjó ég með for-
eldrum mínum og systkinum, og
eftir að konan kom til sögunnar
hefur hún aðstoðað mig og svo
dóttir mín sem er nú orðin full-
orðin. Ég hef verið svo heppinn
að geta lifað eðlilegu fjölskyldu-
lífi“.
„Almennt talað, þá hefur í
seinni tíð komið heilmikill skrið-
ur á málefni blindra og annarra
fatlaðra, og á ári fatlaðra hefur átt
sér stað heilmikil umræða um
þessi mál. En frá mínum bæjar-
dyrum séð er það aðalatriðið að
okkur sé sköpuð aðstaða til þess
að geta starfað. Við erum þannig
sett að við komumst mjög lítið
um. Ég fer að vísu frá heimili
mínu á vinnustað, en annað er
það ekki sem ég fer um bæinn
einn. Blint fólk hefur þó hvíta
stafinn og hefur hann hjálpað
mörgum til að komast eitthvað
um nánasta umhverfi sitt“.
„Hvað fœst pú aðallega við i
pínum frístundum, lest pú t.d. með
hjálp blindralelursins?"
„Ég lærði blindraletur á sínum
tíma, en hélt því ekki nægilega vel
við þannig að ég tapaði því niður
að geta lesið það. Hinsvegar er
farið í seinni tíð að lesa inn á
snældur, sögur og fleira fyrir blint
fólk, og ég hef fengið lánaðar
snældur hjá Borgarbókasafninu í
Reykjavík. Þetta er ágætis þjón-
usta“.
„Annars hefur líf mitt gengið
mjög mikið út á það að vinna. Ég
hef unnið langan vinnudag og
fundið mig í starfinu. Það má
segja að vinnan hafi komið í stað
margs sem fólk hefur almennt
fyrir stafni í sínum frístundum s.s.
bókalestur og fleira sem blindir
geta ekki gert“.
„Sáttur við lífið“
— Telur pú að fólk almennt
geri sér grein fyrir pví hvernig er að
vera blindur eða fatlaður á annan
hátt; gerisérgrein fyrirpvi hvernig
ykkur liður?
. „Ég hef tekið eftir því að margt
fólk er dálítið óöruggt með sig í
návist okkar, það veit ekki
hvernig það á að umgangast okk-
ur í fyrstu. Það breytist hinsvegar
þegar kynni takast. Að sjálfsögðu
er það ekki gott að fólk líti öðru-
vísi á okkur en annað fólk þótt við
séum blind eða fötluð á annan
hátt, en ég get skilið það að vissu
leyti að svo sé“.
— Hafðir pú, sem 14 ára ungl-
ingur, einhver framtíðaráform
uppi pegar pú lentir i slysinu á
Svalbarðsströndfyrir 47 árum?
„Þetta var nú rétt í lok barna-
skólanáms eins og það var þá, og
framtiðin var ekkert skipulögð.
Hinsvegar tel ég að hugur minn
hafi að einhverju leyti hneigst til
smíða eða annarra iðnaðarstarfa,
þannig að segja má að ég hafi
fengið ósk mína uppfyllta“.
— Ert pú sáttur við tífið og til-
veruna?
„Já, ég er það. Það er óhætt að
segja“.
Meðal þcss sem Kristján fæst við á verkstæði sinu er framleiðsla á þvottakústum
fyrir bensínstöðvar. Hér sést hann handleika einn kústhausinn.
Umsjón: Ólafur Ásgeirsson
Kristján Arngrímsson
Dýrmætt stig til Þórs
Þór og Breiðablik léku í fyrstu
deild í knattspyrnu á laugar-
daginn. Fyrri leik þessara aðila
lauk með jafntefli, og það urðu
Þriðjudeildarlið HSÞ-b tryggði
sér á laugardaginn rétt til að leika
i úrslitum þriðju deildar, þegar
liðið gerði jafntefli við Magna á
þeirra heimavelli. Leikurinn var
leiðinlegur, eða rokleikur eins og
einn leikmanna sagði og ekki
einnig lokatölur þessa leiks en
hvort liðið um sig skoraði þrjú
mörk. Þetta voru sannarlega
kærkomin mörk fyrir Þór, því
hægt að leika góða knattspyrnu.
Hvorugu liðinu tókst að skora
mark, og jafntefli nægði Þingey-
ingum til að komast í úrslit. Þeir
eru vel að því komnir enda með
sprækasta liðið í riðlinum.
liðið hefur ekki hingað til í
sumar skorað fleiri mörk en
eitt í leik.
Þórsarar hófu leikinn á móti
vindi og rigningu, en þrátt fyrir
það tókst þeim að skapa sér
nokkur tækifæri til að byrja með.
Það voru hins vegar Blikarnir sem
gerðu fyrsta markið, en skömmu
síðar jafnar Nói fyrir Þór. Síðast í
fyrri hálfleik fá Blikarnir víta-
spyrnu og skora, þannig að stað-
an í hálfleik er tvö mörk gegn
einu.
Fljótlega í síðari hálfleik bæta
Blikarnir þriðja markinu við, og
var þá farið að fara um Þórsarana
á varamannabekknum. Þá tók
Guðmundur Skarphéðinsson
sig til og lagaði stöðuna lítið eitt,
með góðu skallamarki, og
skömmu fyrir leikslok fengu svo
Þórsarar vítaspyrnu og Guðjón
skoraði örugglega. Þrátt fyrir það
að Blikarnir reyndu allt hvað þeir
gátu að skora mörk síðustu mín.
leiksins tókst það ekki og Þórsar-
ar héldu heim með annað stigið.
Þetta var mikill baráttuleikur hjá
Þór í bullandi fallhættu, og upp-
skar liðið annað stigið eins og
áður segir.
HSÞ-b í úrsllt
Allt í járnum
hjá KAog KR
Á föstudagskvöldið léku á
Akureyrarvelli KA og KR í
fyrstu deild í knattspyrnu. í
fyrri viðureign þessara aðila
sigruðu KA menn með einu
marki gegn engu.
Lengi vel leit út fyrir að
þessi leikur færi á sömu leið en
á elleftu stundu jöfnuðu KR-
ingar og héldu suður með ann-
Knattspyrnufélag Akureyrar
hefur sent frá sér dreifibréf til
íbúa í Lundarhverfi vegna
býggingar íþróttavallarins.
Unnið var í vellinum alla helg-
ina og mátti þar sjá sveitta
skalla ýmissa góðborgara.
Byrjað verður að þekja í kvöld.
KA skorar á alla velunnara sína
að gefa sig fram i sjálfboðavinnu,
og þá sérstaklega foreldra þeirra
barna sem iðka hinar fjölmörgu
íþróttir sem á boðstólnum eru hjá
félaginu. Þeir sem vilja hjálpa til
vinsamlegast gefið gefi sig fram
við einhverja eftirtalinna og gefi
þá um leið upp þá daga eða kvöld
að stigið, en leiknum lauk með
jafntefli, eitt mark gegn einu.
KR lék undan norðan golu í
fyrri hálfleik og fyrstu fimmtán
mín. leiksins sóttu þeir heldur
meira, en sköpuðu sér aldrei
marktækifæri. Smám saman fóru
KA menn að verða atkvæðameiri
í sókninni, og áttu nokkur mark-
skot. Fyrra markið kom á 25. mín.
Þá fékk Hinrik boltann á miðjum
sem þeir geta unnið. Haukur
Torfason, sími 24737, Stefán
Gunnlaugsson, slmi 21717 eða
21818, og Jón Arnþórsson í síma
24549. Einnig geta menn haft
samband við KA miðstöðina alla
daga og fyrir hádegi á sunnudög-
um í síma 23482.
vellinum og sendi stungu á Elmar
sem brunaði fram völlinn með
KR vörnina á hælunum. Mark-
maður KR reyndi að verja með
úthlaupi, en Elmar skaut laglega
yfir hann og í netið.
Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri
hálfleik, en bæði lið fengu margar
homspyrnur. KA byrjaði síðari
hálfleikinn með mikilli sókn, og
strax á annarri mín. átti Donni
hörkuskot af löngu færi en góður
markmaður KR varði í horn.
Á næstu mín. átti Ásbjörn góð-
an skalla að markinu, en varið.
Einnig kom gott skot frá Hinrik
en líka varið.
Á 30. mín. síðari hálfleiks kom
fyrsta skotið frá KR ingum á KA
markið, en það fór rétt framhjá.
Á 40. mín. áttu KR-ingar sitt
annað markskot, en það var varið
í horn. Þeir jöfnuðu síðan á 41.
mín. en þá hafði Aðalsteinn
markmaður KA varið en misst
boltann frá sér, og Elías Guð-
mundsson skoraði af stuttu færi.
Þegar líða tók á leikinn fór að
rigna og varð völlurinn háll. og
erfitt fyrir leikmenn að fóta sig.
Eyjólfur Ágústsson lék nú aftur
með liðinu og nú sem hægri bak-
vörður. Þeirri stöðu skilaði
Eyjólfur með prýði. Áhorfendur
voru 1200. Góður dómari var
Rafn Hjaltalín og línuverðir Þór-
oddur Hjaltalín og Kjartan
Tómasson.
Blómaleikur
hjá Donna
Fyrir leikinn á föstudagskvöldið
var Jóhann Jakobsson heiðraður
fyrir sinn 150 leik fyrir KA í
deildarkeppni. Fékk hann styttu
af knattspyrnumanni frá stjórn
Knattspyrnudeildar og blóm-
vönd. Hermann Stefánsson
f.v. íþróttakennari, heiðursfélagi
KA og heiðursgestur leiksins af-
henti Jóhanni styttuna og blómin.
Hvað gera
Þórsarar
gegn Fram?
Á miðvikudagskvöldið leika á
Akureyrarvelli Þór og Frani. Eftir
lcikinn við Breiðablik eru Þórsar-
ar til alls vísir, og eru því áhorf-
endur hvattir til að fjölmenna á
völlinn og láta í sér heyra.
Jón Þór
bestur á
Húsavík
Jón Þór Gunnarsson GA og
Þórhallur Hólmgeirsson GH
háðu æsispennandi keppni í
opna Húsavíkurmótinu í golfi
sem fram fór um heigina. Jón
Þór átti eitt högg í forskot
þegar kom að síðustu holunni,
og svo virtist sem Þórhallur
niyndi vinna það högg og
krækja í aukakeppni um sigur-
inn.
Hárnákvæmt högg Jóns Þórs úr
„bönker“ og eitt „pútt“ tryggðu
honum þó holuna jafna og sigur-
inn í mótinu var því hans. Hann
lék 36 holur á 154 höggum. Þór-
hallurá 155 og þriðji varð Héðinn
Gunnarsson GA sem hafði haft
forustuna eftir fyrri daginn, lék á
163 höggum. Með forgjöf sigraði
Ásmundur Bjarnason GH á 144
höggum nettó, annar Héðinn
Gunnarsson á 145 og Þórhallur
Hólmgeirsson þriðji einnig á 145
höggum.
Jónína Pálsdóttir. móðir þeirra
Jóns Þórs og Héðins hafði yfir-
burði í kvennaflokki. Hún lék 36
holurnar á 201 höggi, Sigríður B.
Ólafsdóttir GH varð önnur á 221
höggi og Erla Adolfsdóttir GA
þriðja á 225 höggum. Jónína
sigraði einnig með forgjöf, Sig-
ríður varð önnur og Erla þriðja.
Allir á völlinn
ekkert hik
4.DAGUR
DAGUR.5