Dagur - 30.07.1981, Síða 8
MONROE
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
IFLESTA BÍLA
Krossanesverksmiðjan:
Flest hreinsi-
tækin komin
til landsins
„Meirihluti hreinsiútbúnaðar-
ins sem ákveðið hefur verið að
setja upp í verksmiðjunni kom
tii landsins sl. föstudag, og af-
gangurinn er væntanlegur innan
tíðar“ sagði Pétur Antonsson
framkvæmdastjóri Krossanes-
verksmiðjunnar í samtaii við
DAG.
Pétur sagði að nú stæði yfir
undirbúningsvinna fyrir niðursetn-
ingu vélanna, verið væri að steypa
undir vélarnar. Hann sagðist von-
ast til þess að um miðjan ágúst yrði
hægt að hefjast handa um að koma
vélunum fyrir, og yrðu þær teknar í
notkun í haust.
Það kom fram í samtali okkar við
Pétur að jafnframt því að setja upp
þennan hreinsitækjaútbúnað er
unnið að stækkun verksmiðjunnar.
Afköstin munu aukast úr 350
tonnum á sólarhring í 550.
Heyskaparhorfur
eru mjög góðar
99
£í
„Útlit í heyskaparmálum er
mjög gott. Að vísu er það lélegur
gróður sem sprettur í kalskell-
um, en þeir sem hafa aðstöðu til
að nýta sér slíkan gróður gera
það að sjálfsögðu. Margir eru
búnir að hirða verulegt magn af
heyi, en fáir hafa lokið heyskap.
í innfirðinum eru margir komnir
vel á veg en heyskapur gengur
hægar utar og inn í dölum“,
sagði Ólafur Vagnsson, ráðu-
nautur í samtali við DAG.
Ólafur sagði að spretta hefði
verið ótrúlega mikil síðustu viku og
bændur við Eyjafjörð þyrftu ekki
Grenivík:
Kantur á
nýja þilið
Fyrir nokkru hófst á Grenivík
vinna við gerð hafnarkants, sem
kemur á stálþilið, en það var
rekið niður í fyrra. Gert er ráð
fyrir að verkið taki um tvo mán-
uði.
Að sögn Stefáns Þórðarsonar,
sveitarstjóra, verður dekkið ekki
steypt í sumar, en vonir standa til
að það geti orðið næsta ár.
Netabátar hafa ekki róið vegna
netaveiðibanns, en færabátar hafa
fengið ágætan afla þegar þeir hafa
farið t.d. út undir Flatey. Súlan
landar reglulega á Grenivík og
sagði Stefán að atvinna væri næg.
að örvænta ef tíð héldist óbreytt
eða svipuð.
„Kartöflur hafa verið sérstaklega
seint á ferðinni og ég held að sé
óhætt að fullyrða það að ástandið
hafi ekki verið betra fyrir viku en
var á sama tíma í hittifyrra þegar
uppskeruleysið var sem mest. En
það er svo með kartöflurnar að það
er tíðarfarið í ágúst sem skiptir
sköpum fyrir kartöfluuppskeruna“,
sagði Ólafur Vagnsson að lokum.
Akvörðun innan fárra vikna
Eitt af mörgum fjölbýlishúsum f Lundarhverfi. Mynd: á.þ.
í fyrrakvöld var haldinn fundur
um lokað sjónvarpskerfi í
Lundarhverfi. Til fundarins var
boðað af áhugamönnum, sem vilja
að kannað verði vandlega hvort
íbúar í hverfinu geti komið sér upp
„einkasjónvarpsstöð“ með allt að
tveimur rásum. Fundinn sóttu
hátt i eitthundrað manns og var
áhuginn mikili.
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði var hugmynd manna sú að
video-stöðin næði til tólf blokka,
sem standa á Lundartúninu. Þeg-
ar til kom höfðu íbúar við Furu-
lund ekki síður áhuga og komu
nokkrir þeirra á fundinn. Eitt
raðhús við Furulund er nú þegar
komið með lokað kerfi. Fundar-
menn höfðu einnig veður af því
að íbúar við Heiðarlund hefðu
áhuga á að fylgjast með þróun
mála.
Á fundinum var ákveðið að
skipa fimm manna nefnd og var
Pétur Pétursson, Furulundi, kos-
inn formaður hennar. Nefndinni
er ætlað að kanna kostnaðarhlið
málsins og hvort á því séu nokkrir
tæknilegir agnúar. Síðan mun
hún beita sér fyrir því að fundir
verði haldnir í öllum húsfélögum
í þeim húsum sem gætu tengst
kerfinu. Síðast en ekki síst verður
kannað hvað það er sem íbúarnir
vilja sjá og á hvaða tíma. Ef
ákveðið verður að ráðast í fram-
kvæmdir er ljóst að íbúarnir
verða að skipa nokkurskonar
sjónvarpsráð.
Nefndinni er ætlað að vera bú-
in að safna saman öllum nauð-
synlegum upplýsingum innan 3ja
vikna. Að því búnu verður líklega
boðað til almenns kynningar-
fundar og að honum loknum
tekin endanleg ákvörðun í hverju
húsfélagi fyrir sig.
Soffía Guðmundsdóttir:
,Ekkert heyrt frá
JafnréttisráðP
„Jú, mig er farið að lengja eftir
því að heyra eitthvað frá Jafn-
réttisráði um erindi mitt til
ráðsins“ sagði Soffía Guð-
mundsdóttir, bæjarfulltrúi á Ak-
ureyri, í samtali við DAG. Soffía
sendi sem kunnugt er á dögun-
um bréf til Jafnréttisráðs þar
sem hún óskaði eftir umfjöllun
ráðsins á veitingu í embætti
tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins.
Umsækjendur um þá stöðu voru
6, þeirra á meðal Soffía, og
veitti Hörður Vilhjálmsson,
settur útvarpsstjóri, Jóni Erni
Marinóssyni lögfræðingi stöð-
una.
„Ég sendi jafnréttisráði bréf
þann 14. júní þar sem ég óskaði
eftir þrennu“ sagði Soffía. „I fyrsta
lagi að ráðið kannaði hvort lög um
jafnrétti karla og kvenna hefðu
verið brotin við stöðuveitinguna. í
öðru lagi að ráðið óskaði eftir
greinargerð frá settum útvarps-
stjóra um hvað réði vali hans í
stöðuna. í þriðja lagi fór ég fram á
að jafnréttisráð legði sinn dóm á
stöðuveitinguna.“
„Það voru sex umsækjendur um
stöðuna“ sagði Soffía. „Þar af voru
fimm sérmenntaðir í tónlist, en sá
eini sem var það ekki fékk stöðuna.
I alvöru talað, samt var auglýst eftir
tónlistarstjóra. Ég tel að þetta hafi
verið rangt, ég hélt nefnilega að
það vantaði „tónlistarfagmann“ í
stöðuna og í auglýsingu var ekkert
annað gefið í skyn.“
Mývetningar setja saman
nýja trefjaplastsundlaug
Innan skamms munu Mývetn-
ingar fá nýja sundlaug til afnota.
Hér er um að ræða sundlaug úr
trefjaplasti og er hún framleidd
á Skagaströnd. Mikil þörf hefur
verið á sundlaug I Mývatnssveit
m.a. til kennslu og einnig fyrir
ferðamenn. Sfðan Grjótagjá
varð óhæf til baða hafa menn
lagt leið sína í Stórugjá, en hún
annar hvergi þörfinni. Lftil
sundlaug er hjá Skútustöðum
sem er ekki nægilega stór og
svarar ekki kröfum tfmans.
Nýja sundlaugin er 25x11 m á
stærð og hjá henni verður heitur
pottur. I gær var unnið við að setja
saman botn laugarinnar og gert er
ráð fyrir að verkinu ljúki um miðj-
an næsta mánuð. Hjá lauginni
stendur nýtt tvílyft hús og í því er
búningsaðstaða. Siðar verður
komið fyrir sánabaði í því. í sama
húsi verður búningsaðstaða fyrir
íþróttavöllinn og í framtíðinni
verður byggt íþróttahús við það.
-Z7-
fXl ÍRT TTr rr -jr ii °íiij
q) 11 fli < > Lb & s- Uii_
# Tillesenda
Þar sem næstkomandi
mánudagur er almennur frí-
dagur kemur Dagur ekki út á
þriðjudag eins og venja er.
Næsta blað er þvf ekki fyrr en
fimmtudaginn 6. ágúst. Aug-
lýsingar í það þurfa að hafa
borist fyrir kl. 19 miðviku-
daginn 5. ágúst.
# Reiöhjól
og reglur
Á undanförnum mánuðum
hafa reíðhjól öðlast miklar
vinsældir og liggur við að
enginn sé maður með mönn-
um nema hann aki á 10 gíra
reiðhjóli. Þessi skyndilegi
áhugi er góðra gjalda verður.
en fólki ber þó að hafa í huga
að það eitt að hjóla er ekkl
allra meina bót — fleira þarf
að koma til. Með auknum
fjölda reiðhjóla fjölgar slys-
um á ökumönnum þeirra og
því miður á þetta sérstaklega
við um börn og ungllnga.
Fullorðnir lenda sfður í slys-
um enda vanari í umferðinni.
Það hefur vakið athygli
margra að sumir reiðhjóla-
menn telja sig ekki bundna at
nelnum umferðarreglum —
a.m.k. má álykta sem svo
þegar þeir geysast á móti
umferð f einstefouaksturs-
götum eða þegar þeir virða
ekki umferðarljós. (stað þess
að stöðva við rautt Ijós hafa
þeir bíræfnustu litlð til hægri
og vinstri og haldið áfram sé
öllu óhætt. Það þarf víst ekkl
að fjölyrða um það að hjól-
reiðamönnum ber að fara
eftir umferðarreglum — ekki
síður en þeim sem aka
vélknúnum farartækjum.
# Allir vilja
væta kverkar
landsmanna
Nú virðlst vera eins konar
viðsklptastrfð milli gos-
drykkjaframleiðanda. Það
kom fram í Mbi. f gær að
Sanitas hefur gert samning
við þjóðhátíðarnefnd Týs í
Vestmannaeyjum um að þar
verði aðeins seldir drykkir frá
Sanitas. Framkvæmdastjórar
Vífilfells og ölgerðarinnar
kærðu þessa „einokun" til
samkeppnlsráðs, en Ragnar
Birgisson, framkvæmdastjóri
Sanitas segir að þessum
þremur framlelðendum hafl
verið boðið að gera tilboð
vegna sölu á gosdrykkjum á
hátíðlnni. ölgerðin sendi
ekki tilboð, en tllboð Vífilfells
barst mun síðar en tilboð
Sanitas.
# Nýr þáttur
Dagur hefur í hyggju að gera
tilraun með sérstakan þátt
um bæjar- og sveltarstjórn-
armál. Þess er að vænta að
þátturinn geti orðlð upplýs-
andi fyrir menn og að um-
ræðan verðl málefnaleg. Sig-
urður Óll Brynjólfsson rfður á
vaðið og er grein hans á
blaðsíðu 4.