Dagur


Dagur - 11.08.1981, Qupperneq 4

Dagur - 11.08.1981, Qupperneq 4
DAGUE Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamenn: Askell Þórisson, Gylfi Kristjánsson Augl, og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prenfun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Verslunarmenntun og hlutur G.A. Að undanförnu hefur átt sér stað nokkur umræða um stofnun sér- staks verslunarskóla á Akureyri. Ýmis sjónarmið hafa kom ið fram en í hita umræðunnar virðist hafa gleymst það frumkvæði sem for- ráðamenn Gagnfræðaskóla Akur- eyrar hafa sýnt. I' grein í blaðinu í dag segir Sverrir Pálsson skóla- stjóri m.a. „Mér finnst tæpast hægt að ræða jafn mikilvægt mál og stofnun verslunarskóla ■— sér- skóla— á Akureyri án þess að minnast á það í leiðinni, að undanfarin 5 ár hefir verið haldið uppi hér í bæ nákvæmlega sams konar námi og þar hefði farið fram, aðeins undir öðru nafni og í stofnun, sem hefir fleiri hlutverk- um að sinna. Það er varla unnt að láta sem þessi starfsemi sé ekki til, þó að til séu menn sem vilja sem minnst af henni vita. Ef til vill er hún ekki nógu mikið kynnt og auglýst. En Gagnfræðaskóli Ak- ureyrar hefir að sínu leyti og af fremsta megni reynt að bæta úr brýnni þörf Akureyringa fyrir verslunarmenntun, meðan annars betra var ekki kostur. Þó að það sé ef til vill sálfræðilegt atriði, hvað ein skólastofnun heitir, er það að öðru jöfnu varla sáluhjálparat- riði“. Það kemur fram í grein Sverris Pálssonar að fjórir hópar hafa lokið almennu verslunarprófi til þessa, þrír hópar sérhæfðu versl- unarprófi og tveir stúdentahópar sem voru þrjú ár í GA og eitt ár í MA hafa brautskráðst frá Mennta- skólanum á Akureyri. Gagnfræðaskólinn á Akureyri er virt menntastofnun, sem hefur sýnt það og sannað að vera vel fær um að koma nemendum sínum til aukins þroska. Um árangur þarf ekki að fjölyrða og í því sambandi er ánægjulegt að minnast þess, að nemendur skólans, sem luku grunnskólaprófi í vor, voru voru langt yfir landsmeðaltali. Haustið 1976 tók fyrsta verslun- ardeiidin í Gagnfræðaskólanum til starfa. Með henni var ísinn brotinn og starf deildarinnar hefur gengið vel, enda hefur jafnan val- ist hæft starfslið til skólans. Sá grunnur sem hefur verið lagður að verslunarskóla með starfsemi verslunardeiid Gagn- fræðaskólans er ómetanlegur. En eins og Sverrir kemst að orði er eins og einstakir menn vilji sem minnst af deildinni vita. Það er rétt eins og þeir hinir sömu telji að verslunarnám sé ekki nægjanlega mikils virði nema námið sé stund- að í sérstakri stofnun, með sér stöku kennaraliði og í sérstöku húsnæði. Blaðið ætlar ekki að leggja neinn dóm á það hvað sé heppi- legasta formið þegar um verslun- arnám framtíðarinnar er að ræða. En blaðið vill að það komi skýrt fram nú og síðar í umræðunni um tilhögun verslunarmenntunar á Akureyri að það var Gagnfræða- skólinn á Akureyri sem lagði hornsteininn að umræddri mennt- un. - á.þ. 4 - DAGUR -11. ágúst 1981 „SKEMMTILEGRIFERD EN ÉG HAFÐIREIKNAÐ MEГ Vinningshafinn í getraun Dags og Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar á ferðalagi f Búlgaríu Zlatni Piassatzi baðströndin þar sem þau Jón og Ester sóluðu sig. kvöld eftir 16 klukkustunda ferða- lag, og eftir tveggja nátta stopp þar í borg var haldið í fimm daga öku- ferð þvert í gegn um Bulgaríu til baðstrandar sem heitir Zlatni Piassatzi. Á leiðinni var margt að sjá enda náttúrufegurð geysileg og gist var á mjög góðum hótelum." „Á Zlatni Piassatzi baðströnd- inni vorum við síðan í eina viku á sérstaklega glæsilegu hóteli sem heitir Varna Grand Hotel, sem er eitt það glæsilegasta er ég hef séð. Það væri kallað 5 stjörnu hótel hér heima er ég viss um.“ „Ef maður á að gera samanburð á því að dvelja þarna og á Spáni t.d. þá er sá samanburður að mínu mati Búlgaríu mjög í hag. Þarna er miklu rólegra, næturlífið ekki yfir- þyrmandi og allt verðlag mun skaplegra. Var t.d. hægt að fá mjög góða máltíð fyrir upphæð sem svarar til 20 íslenskra króna. Fólkið er ákaflega rólegt og elskulegt og ekki yfir neinu að kvarta í sam- skiptum við það nema þá helst að tungumálaerfiðleikar gerðu dálítið vart við sig.“ „Þessi ferð var mun skemmti- legri en ég hafði reiknað með fyrirfram. Allt hjálpaðist þar að, gott veður, góðir ferðafélagar, mikil náttúrufegurð og ekki síst frábær fararstjórn. Ég vil sérstak- lega þakka fararstjórunum Þor- björgu Bragadóttuí, Önnu Fenger og Margréti Sigurþórsdóttur frá- bæra umönnun og Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar og Degi þakka ég kærlega þeirra hlut sem varð til þess að ég átti kost á því að fara þessa ferð.“ „Ferðin var í alla staði afar ánægjuleg og ég gæti svo sannarlega hugsað mér að fara í aðra slíka“ sagði Jón Sigurðs- son, frá Garði í Kelduhverfi, i samtali við DAG, en Jón vann einmitt ferð fyrir tvo til Búlgaríu á vegum Ferðaskrifstofu Kjart- ans Helgasonar og DAGS í getraun sem birtist í DEGI í vetur. Þar voru lagðar fyrir les- endur ýmsar spurningar varð- andi Búlgaríu, og þegar dregið var úr réttum lausnum kom nafn Jóns upp. „Ester Tryggvadóttir, frá Hóli í Kelduhverfi var ferðafélagi minn í ferðinni sem hófst 8. júní“ sagði Jón. „Fyrst var flogið frá Keflavík, millilent í Glasgow og þaðan hald- ið til Kaupmannahafnar og skipt þar um flugvél. Þegar við komum svo um borð í flugvélina sem átti að flytja okkur til Búlgaríu brá okkur talsvert þegar áætlaður flugtími til Budapest í Ungverjalandi var til- kynntur. Kom reyndar upp úr kaf- inu að þar átti einungis að milli- lenda.“ „Við komum síðan til Sofia, höfuðborgar Búlgaríu seint um Á þessu glæsilega hóteli bjuggu þau Ester og Jón, en það hótel segir Jón að sé það glæsilegasta sem hann hefur dvalið á. Sverrir Pálsson: Verslunarmenntun á Akureyri Fjögurra síðna kálfur fylgdi 58. tbl. Dags, sem út kom 30. júlí, og er rækilega tekið fram, að þar fari auglýsing. Hins vegar er margt óljóst um kálf þennan, og hvergi kemur fram, hverjir að auglýsing- unni standa, ef frá er talið nafn umsjónar- og ábyrgðarmanns. Á sama hátt virðist margt óljóst í hugum og fyrir augum auglýsenda að því er tekur til orða, er falla um verslunarmenntun á Akureyri. Einnig er í margnefndri auglýsingu víða ónákvæmt og villandi orðalag um sumt, en hrópandi þögn um annað, svo að ég get ekki orða bundist. Nú vil ég þegar taka skýrt fram, að síst af öllu er ég mótfallinn verslunarskóla á Akureyri, þ.e. sér- skóla með því heiti og hlutverki, enda hefi ég reynt að vinna að því máli nokkuð og það fyrir all löngu, en það er önnur saga og kemur þessu máli ekki við. Nokkur skrið- ur komst á málið fyrir áratug og náði svo langt, að bæjarstjóm Ak- ureyrar samþykkti ályktun, þar sem skorað var á ríkisvaldið að stofnsetja verslunarskóla á Akur- eyri þá þegar. Málið hlaut nokkra athugun í Menntamálaráðuneyt- inu, en niðurstaðan varð s, að sam- in voru „Lög um viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi", sem sam- þykkt voru árið 1976, eins og rétti- lega kemur fram í auglýsingunni. Þegar hér var komið sögu, hafði námi á verslunarkjörsviði verið haldið uppi í framhaldsdeildum Gagnfræðaskóla Akureyrar frá hausti 1969, en nú gripu Akureyr- ingar tækifærið, þegar áðurnefnd lög tóku gildi. Bæjarstjórn kaus nefnd valinna manna til þess að undirbúa málið, og hið endur- skipulagða nám á viðskiptasviði hófst við Gagnfræðaskólann þá um haustið. Viðskiptafræðingur var ráðinn brautarstjóri, og þar hafa kennt margir ágætir kennarar, þ.á.m. sérfræðingar í ýmsum greinum viðskiptafræða. Námið leiðir til almenns versl- unarprófs (samsvarandi prófi úr Verslunarskóla íslands) eftir tvö ár, og auk þess geta nemendur haldið áfram þriðja árið og lokið sérhæfðu verslunarprófi. Að því loknu eiga þeir að geta lokið stúdentsprófi að viðbættum tveimurönnum (l ári) í menntaskóla. Þó að ýmislegri hagnýtri kennslu í viðskiptagreinum hafi verið hald- iðuppiviðGA 1969-1976, telég, að haustið 1976 hafi eiginlegur versl- unarskóli tekið til starfa hér í bœn- uni og hafi starfað hér síðan með vaxandi aðsókn. 4 hópar hafa lokið almennu verslunarprófi til þessa, 3 hópar sérhœfðu verslunarprófi (verslunarprófi hinu meira) og 2 stúdentahópar, sem voru 3 ár i GA og 1 ár í MA, hafa brautskráðst frá Sverrir Pálsson. Menntaskólanum á Akureyri. Fjölgun ársbekkja úr 1 í 3 vil ég kalla stækkun, þó að sumir vilji ekki orða það svo. Kunnugleika auglýsenda má nokkuð marka af orðunum „versl- unardeild innan gagnfræðadeild- ar“. í fyrsla lagi hefði höfundur þessara orða mátt vita, ef hann hefir haft einhverjar spurnir af ís- lensku þjóðlífi síðústu árin. að gagnfræðapróf (og þar með gagn- fræðadeildir) hvarf úrsögunni árið 1977, og í öðru lagi, að viðskipta- námið við GA er á framhalds- skólastigi, en hvorki á gamla gagn- fræðastiginu né núverandi grunn- skólastigi, eins og höfundur virðist reyna að læða að lesendum. Það er og tæplega sannleikanum samkvæmt, „verslunardeild“ hafi verið sett á stofn við Gagn- fræðaskólann „á sínum tíma“ (hvaða tíma?) „í miklu hasti“. Ef átt er við stofnun viðskiptakjör- sviðs framhaldsdeilda árið 1969, er því að svara, að þar var að vísu erfitt um öflun námsbóka og námsgagna í fáeinum námsgrein- um fyrsta árið og í sumum tilvikum fyrstu árin, en slíkt er löngu liðin tíð, og ætti ekki að nota slíkt sem vopn gegn þeirri kennslu á við- skiptasviði, sem nú fer fram. — Hraðinn í undirbúningi núverandi kennsluforms, sem gekk í gildi árið 1976, var hófsamlegur og á engan hátt á kostnað vöndunar verksins eða gæða námsins. Þó unnið væri af röskleika, var þar hvorki fum né flaustur. Mér finnst tæpast hægt að ræða jafn-mikilvægt mál og stofnun verslunarskóla — sérskóla — á Akureyri án þess að minnast á það í leiðinni, að undanfarin 5 ár hefir verið haldið uppi hér í bæ nákvœm- lega sams konar námi og þar hefði farið fram, aðeins undir öðru nafni og í stofnun, sem hefir fleiri hlut- verkum að Sinna. Það er varla unnt að láta sem þessi starfsemi sé ekki til, þó að til séu menn, sem vilja sem minnst af henni vita. Ef til vill er hún ekki nógu mikið kynnt og auglýst. En Gagnfræðaskóli Akur- eyrar hefir að sínu leyti og af fremsta megni reynt að bæta úr brýnni þörf Akureyringa fyrir verslunarmenntun, meðan annars betra var ekki kostur. Þó að það sé ef til vill sálfræðilegt atriði, hvað ein skólastofnun heitir, er það að öðru jöfnu varla sáluhjálparatriði. Að lokum óska ég þeim rhönn- um og konum, sem vilja koma á fót sérskóla fyrir verslunarmenntun á Akureyri — Verslunarskóla Akur- eyrar — alls góðs og vona, að að- stæður og yfirvöld leyfi slíkt sem fyrst. Þetta mæli ég sem gamall baráttumaður og áhugamaður málsins. En, góðir drengir, viður- kennið staðreyndir og leyfið öðrum að njóta sannmælis. Beitið aðeins drengilegum vopnum. Annað sæmir ekki góðum málstað. Sverrir Pálsson. Þorleifur Ananíasson Kristján Arngrímsson KA með í baráttunni um fslandsmeistaratitilinn „Ég er hóflega bjartsýnn. Við eigum eftir að leika gegn Vfk- ingi hér heima þannig að möguleikar okkar eru ekki minni en annarra takist okkur vel upp í þeim leikjum sem eftir eru.“ Þetta voru orð Elmars Geirssonar, fyrirliða KA, eftir að hann hafði leikið eitt aðal- hlutverkið í öruggum sigri liðsins gegn íslandsmeisturum Vals hér á Akureyri á föstu- dagskvöldið. 1450 áhorfendur urðu þá vitni að einum skemmtilegasta leik sem fram hefur farið á Akureyri í sumar, leik sem bauð upp á falleg mörk, mikla baráttu og oft ágætan samleik. Þegar heiðúrsgestum leiksins, Sæmundi Óskarssyni, formanni KA-klúbbsins í Reykjavík, og konu hans frú Ingu Óskarsdóttur höfðu verið færð blóm, ásamt Sævari Jónssyni Valsmanni sem lék þarna sinn 100 leik, hófst leikurinn og lék KA undan nokkurri suðaustan golu í fyrri hálfleik. Fátt markvert skeði framan af leiknum, Eyjólfur átti þó skot rétt framhjá strax á 4. mín., en þegar 15 mín. voru af leik missti KA Gunnar Blöndal út af vegna meiðsla sem hann hlaut eftir samstuð við markvörð Vals. í hans stað kom inná ungur leik- maður, Ormar Örlygsson. Leikmönnum KA virtist ganga illa að hemja boltann undan vindinum og mikið var um háar sendingar inn í vítateig Váls þar sem hinir hávöxnu varnarmenn þeirra réðu lögum og lofum. Á síðustu mín. fyrri hálfleiks fær KA hornspyrnu frá vinstri sem Elmar framkvæmir og eftir mikinn atgang við mark Vals er bjargað naumlega í horn. Aftur gefur Elmar vel fyrir markið og nú stekkur Ásbjörn Björnsson hæst allra og skallar í mark Vals. Eitt núll í leikhléi og leikmenn Vals höfðu ekki átt marktækifæri í leiknum. KA-menn komu mjög ákveðn- ir til leiks eftir hléið og gáfu fs- landsmeisturunum engan frið til að byggja upp sóknarleik sinn. Á 7. mín. varð Njáll Eiðsson besti maður Vals að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og smám saman Ásbjörn Björnsson bindnr endahnútinn á harða sókn KA, og skorar með góðum skalla. (Mynd KGA). náði KA betri tökum á leiknum. Á 12. mín. gefur Ásbjörn fallega sendingu á Elmar sem leikur auðveldlega á Dýra og er kominn á auðan sjó rétt utan vítateigs Vals þegar Grímur Sæmundsen fyrirliði skellir honum gróflega. Röggsamur dómari leiksins, Vil- hjálmur Þór, dró upp rauða spjaldið og vísaði Grími af leik- velli. Við þetta riðlaðist leikur Vals, og KA réði nú lögum og lofum á vellinum. Á 17. mín. er Ásbjörn enn með stórgóða send- ingu út á kantinn til Elmars sem leikur á varnarmann og gefur vel fyrir mark Vals þar sem Hinrik Þórhallsson kemur á fullri ferð og skallar knöttinn í markið. Glæsi- legt mark. Sex mín. fyrir leikslok gerði KA síðan endanlega út um leik- inn þegar Elmar fær enn eina stungusendinguna, nú frá Donna, inn fyrir hina þungu varnarmenn Vals sem hann hleypur auðveld- lega af sér og skorar örugglega fram hjá úthlaupandi markverð- inurn. Undir lokin fengu Vals- menn tvö góð tækifæri en Aðal- steinn markvörður bægði hætt- unni frá. Leiknum lauk því með verð- skulduðum sigri KA 3-0. KA- menn börðust mjög vel í leiknum og með slíkum leik geta þeir unnið hvaða lið sem er. Erfitt er að gera upp á milli leikmanna eftir leik sem þennan, allir gerðu sitt besta, en þó má nefna Éyjólf Ágústsson sem nú lék aftur sem tengiliður, hann lék mjög vel. Elmar Geirsson var maðurinn á bak við öll mörk liðsins og þegar hann fór að fá réttu sendingarnar í síðari hálfleiknum réðu Vals- menn ekkert við hann, en stjarna þessa leiks var þó hinn smávaxni bakvörður liðsins Guðjón Guð- jónsson. Hann virðist geta hlaup- ið þindarlaust og kraftur hans og keppnisharka er með ólíkindum. Haraldur Haraldsson lék ekki með vegna veikinda og kom Steinþór Þórarinsson inn í liðið að nýju sem bakvörður, en Gunnar Gislason tók stöðu Har- aldar í sterkri vöm sem hvergi Iét undan í leiknum. Gunni Þórðar í nokkrum sérflokki Gunnar Þórðarson GA var ör- uggur sigurvegari í SAAB- TOYOTA golfmótinu sem fram fór hjá Golfklúbbi Akur- eyrar um helgina. Hér var um 36 holu keppni að ræða, opið mót, og tóku alls 45 kylfingar þátt. Gunnar lék mjög glæsilega í þessu móti. Sérstaklega var frammistaða hans fyrri daginn Falldraugurinn ásækir Þórsara „Við þurfum að vinna réttu leikina. Við eigum KR eftir hér heima og einnig eigum við eftir leik gegn FH í Hafnarfirði. Með sigri í þessum leikjum ættum við að halda sæti okkar í 1. deild.“ Þetta sagði hinn sprettharði miðherji Þórs, Jón Lárusson, þegar haft var sam- band við hann eftir leikinn gegn Víkingum um helgina. Jón sagði að Víkingar hefðu átt sigur skilið í leiknum, en sigur þeirra þó verið of stór. Fyrsta markið hefði komið úr vítaspyrnu í upphafi leiks. Skömrnu síðar hefðu Þórsarar átt tvö mjög góð marktækifæri, Guðjón átti skalla í þverslá og rétt á eftir björguðu Víkingará marklínu. Um miðjan síðari hálfleik gerðu Víkingar hins vegar út um leikinn með tveim mörkum á stuttum tíma og lauk því leiknum með sigri Vík- ings 3-0. Við þetta tap fcerðist Þór niður í næst neðsta sætið í I. deild, hefur liðið hlotið 8 stig, KR hefur 9 stig, en FH er neðst með 7 stig. Tvö neðstu liðin falla í 2. deild. Örn Guðmundsson lék ekki með Þór í þessum leik, hann var í leikbanni. athyglisverð, en þá lét hann sig hafa það að leika 18 holur á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Hann átti eftir þann dag fjögur högg í forskot á næsta mann sem var Héðinn Gunnarsson GA. Síðari daginn lék Gunnar einnig best allra, kom inn á 76 höggum sem er mjög gott og hann varð því hinn öruggi sigurvegari í kappninni. Annars varð árangur fimm efstu manna þessi: Högg Gunnar Þórðars. GA 71+76= 147 Jón Þór Gunnarss. GA 78 +78 = 156 Þórhallur Pálss. GA 81+80= 161 Héðinn Gunnarss. GA 75 + 89 = 164 Sverrir Þorvaldss. GA 84 + 83 = 167 í keppni með forgjöf sigraði Gunnar Þórðarson einnig, var á 139 höggum nettó. Héðinn varð í 2. sæti á 146 höggum en síðan komu þeir Sverrir og Þórhallur á 147. Stór verkefni eru framundan hjá Golfklúbbi Akureyrar. Hæst ber að sjálfsögðu vígsla 18 holu vallarins sem fram fer um aðra helgi. Þá verður haldið minning- armótið um Ingimund Árnason og er vitað að þátttaka verður geysileg. Fjöldi manns kemur í mótið frá Reykjavík ög nálægum stöðum þar syðra auk þess sem keppendur verða víðsvegar af Norðurlandi. Er áætlað að kepp- endur verði á bilinu 150-200 tals- ins. Við segjum nánar frá þessu móti síðar og þeim framkvæmd- um sem staðið hafa yfir á veilin- um. KA KOM HEIM MEÐ ÞRJÚ GULL Á nýafstöðnu Meistaramóti íslands í frjálsum íþróttum létu hlaupakonur frá KA mikið að sér kveða. Sigríður Kjartansdóttir varð íslands- meistari í 400 m hlaupi auk þess sem KA-stúlkurnar sigr- uðu í bæði 4x100 m og 4x400 m boðhlaupum, og settu í leiðinni nýtt íslandsmet í 4x400 m hlaupinu. Valdís Hallgrímsdóttir stóð sig einnig mjög vel og varð þriðja í 100 m spretthlaupi og grind, og önnur í 200 m hlaupi. Það er fámennur hópur sem leggur stund á frjálsar íþróttir á Akureyri, en efnilegir krakkar eru nú að skjóta upp kollinum sem mikils má af vænta ef þau fá góða þjálfun og uppörvun í íþrótt sinni. 11. ágúst 1981- DAGUR - 5

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.