Dagur - 11.08.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 11.08.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI 64. árgangur Akureyri, þriðjudagur 11. ágúst 1981 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 60. tölublað HHlHHHHHHHHHHÉBHíHflBBHBHDBHHHHHHHHHHIi Meira af samningum heim í hérað? Verður tekið til umræðu innan AN Hitaveita Akureyrar og Hrafnagilsreppur: „Einungis samninga- viðræður á frumstigi“ „Um þessi mál hefur ekki verið fjallað og ég get því ekki gefið neinar yfirlýsingar um það hvernig verkalýðsféiög i Alþýðusambandi Norðurlands koma til með að ráða sinni samningagerð. Ég geri hins vegar ráð fyrir að við komum til' með að halda áfram að reka enda- hnútinn á samninga einstakra starfshópa,“ sagði Hákon Hákon- arson, formaður Alþýðusambands Norðurlands I samtali við Dag. Á kjaramálaráðstefnu Alþýðusam- bands Vestfjarða, sem haldin var í fyrradag, var samþykkt að næstu kjarasamningar verkalýðsfélaga og atvinnurekenda á Vestfjörðum færu fram heima í héraði. Þá var sam- þykkt að stefnt yrði að því að ná sama kaupmætti og i sólstöðu- samningunum 1977. Þar var enn- fremur samþykkt að ná fram 10% kauphækkun til handa fólki í fisk- vinnslu. Hákon sagði að þó Vestfirðingar hefðu tekið þessa ákvörðun væri það á engan hátt bein vantrausts- yfirlýsing á ASI. Hann sagði jafn- framt að það yrði eflaust tekið til umfræðu innan AN hvort stefna bæri að því taka heim meira af samningum félaga. „Ég held að menn þurfi að hafa Veiði í vopnfirskum ám hefur verið mjög dræm í sumar. Til að fá nánari fréttir af Selá, sem er mörgum Norðlendingum að góðu kunn, leitaði blaðið til Þorsteins Þorgeirssonar, Ytri- Nípum, og var hann í upphafi spurður um heildarveiðina í sumar. „Það eru komnir á land rétt um 100 laxar. Þetta hefur ekki verið nærri því svona lélegt undanfarin ár. Skýringar á þessu ástandi eru engar, en getgátur nokkrar. Það er staðreynd að það vantar laxinn, sem átti að ganga í sjó 1979. Sá árgangur hefur nálega horfið. En þetta skýrir ekki alla söguna — fleira verður að koma til. Það sem menn óttast einna mest er það að Færeyingar séu búnir að veiða þennan fisk,“ sagði Þorsteinn. „Einhversstaðar er þessi fiskur kominn sem Færeyingar veiða. Hann er ekki úr færeyskum ám svo mikið er víst.“ Þorgeir sagði að nokkrir 17 punda laxar hefðu komið upp úr ánni í sumar. Ekki hafði hann haft spurnir af þyngri fiskum. það í huga að Alþýðusamband Vestfjarða er öðru vísi saman sett en AN. I því fyrrnefnda er aðallega fólk í sjómanna- eða verkamanna- sambandinu, en innan AN er all stór hópur iðnaðarmanna, Iðjufólk og félagar í F.V.S.A. Fyrir all löngu síðan tóku félögin þá ákvörðun að ráða sínum málum til lykta ineð sínum landssamböndum.“ — Má þá gera ráð fyrir að þau sambönd, sem eru innan AN, muni halda áfram að standa með sínum landssamböndum? „Það er ekkert sem bendir til þess að t.d. iðnaðarmannafélögin, verslunarmannafélagið og Iðja breyti því.“ í síðustu viku fengu Ólafsfirð- ingar nýtt malbik á þrjár götur. Aðalgata var malbikuð í báða enda, malbik var Iagt á Hrann- arbyggð og á Ægisgötu að hluta. „Við viljum að það sé tekið tillit til þess hvernig þetta var hér áður en þessar boranir hófust. Okkur finnst það ekki óeðlilegt að slíkt sé gert,“ sagði Haraldur Hannesson, oddviti í Hrafnagilshreppi, er DAGUR ræddi við hann um mál sem upp er komið á milli hreppsins og Hitaveitu Akur- eyrar. Eftir því sem næst verður komist snýst málið um það að heitar laugar i Hrafnagilshreppi „duttu út“ þegar Hitaveita Akur- eyrar hóf boranir að Laugalandi í Öngulsstaðahreppi. Nokkur hús í Hrafnagilshreppi voru hituð upp Samtals voru malbikaðir u.þ.b. 7 þúsund fermetrar eða rétt um 850 metrar. Jón Friðriksson, bæjarstjóri, sagði að þar með væri malbikun- arframkvæmdum lokið í ár. Ólafs- með vatni úr þessum laugum og eftir að þær urðu gagnslausar hefur hreppurinn fengið vatn úr borholu hitaveitunnar við Botn. „Við höldum því fram að ástæðan fyrir því að laugarnar hér í hreppnum „duttu út“ séu boranir hitaveitunnar hinu megin árinnar að Laugalandi," sagði Haraldur, „og við viljum að það verði tekið með í reikninginn þegar ákveðið verður hvernig þessum málum verður háttað í framtíðinni.“ „Þeir halda 'fram að ástæðan fyrir því að laugarnar í Hrafna- gilshreppi „duttu út“ séu djúp- boranir okkar á Laugalandi, en það er bara þeirra álit“ sagði firðingar steyptu eitt sinn sínar götur, en Jón sagði að það væri all- mikið dýrari aðferð en að fá starfs- menn Akureyrarbæjar á staðinn með sín tæki, sem var gert í þessu tilfelli. Wilhelm V. Steindórsson, hita- veitustjóri á Akureyri, er við ræddum við hann. „Aðilar héldu hins vegar með sér fund og ákváðu þar að fá Orkustofnun til þess að rannsaka málið. Orku- stofnun hefur rannsakað hversu mikið heitt vatn var fáanlegt í Hrafnagilshreppi áður en boranir hófust þar. Skýrsla þeirra er ný komin til okkar og við munum ræða málið í framhaldi af niður- stöðum hennar.“ Bæði Haraldur og Wilhelm lögðu á það nokkra áherslu að hér væri ekki um deilur að ræða. „Þetta eru einungis samningavið- ræður á frumstigi" sagði Wil- helm. Kristinn hættir með íslending Kristinn G. Jóhannsson ritstjóri fslendings mun innan skamms láta af því starfi, og hefur hann verið ráðinn sem kennari við Glerárskóla. Ekki er vitað hver tekur við starfi Kristins sem ritstjóri fs- lendings, en nýlega birtist í Morgunblaðinu auglýsing frá blaðstjórn, þar sem staðan er auglýst laus til umsóknar. SÓL- BAKUR SELDI IHULL Það heyrir til undantekninga ef Akureyrartogari selur afla sinn erlendis, en það gerðist í gær- morgun að Sólbakur seldi 134 tonn í Hull. Ástæðan fyrir söl- unni var einfaldlega sú að mikill afli hefur borist á land og tæp- lega hægt að vinna hann hjá Ú.A. Einar Óskarsson hjá Ú.A. sagði að salan hefði verið í meðallagi, en alls fengust tæp 73 þúsund pund fyrir aflann, sem er rétt um ein milljón króna. Meðalverð er 7.43 kr. fyrir hvert kíló. f fyrra fór Kaldbakur í söluferð til Þýskalands og var það eina söluferðin sem togari Ú.A. fór það árið. „Það er stefna félagsins að vinna úr afla togaranna hér heima,“ sagði Einar Óskarsson. Kettir drepnir með boga ,,Bogaalda“ í Lundarhverfinu „Um daginn var ég að passa kött fyrir fólk og týndist kött- urinn. Þegar ég fann hann s.l. föstudag var greinilegt af áverkum sem voru á kettinum að hann hafði verið skotinn með boga, enda sögðu krakk- ar, sem vísuðu mér á hann, að svo hefði verið. Þeir sögðu einnig að þetta væri þriðji kötturinn á 10 dögum sem væri drepinn á þennan hátt af krökkum í hverfinu,“ sagði Anna Hermannsdóttir, Heið- arlundi, þegar hún hafði sam- band við blaðið í gær. Anna taldi að hér væru að verki krakkar á aldrinum 7 til 12 ára. í fljótu bragði er ekki hægt að sjá hvað kemur börnunum til að fremja óhæfuverk sem þessi, en barnaskapur eða óvitaháttur eru líklegustu skýringarnar. „Bogaalda" mun hafa gengið yfir Lundarhverfið að undan- förnu, en það þarf ekki að hafa um það mörg orð hve hættuleg slík tæki geta verið í höndum þeirra sem ekki kunna með þau að fara. Það er því óhætt að beina þeirri áskorun til foreldra að þau láti börn sín ekki hafa boga undir höndum. Meöfylgjandi mynd var tekin á Ólafsfirði s.l. fimmtudag. Á henni má sjá útlagningarvél Akureyrarbæjar á Aðalgötu. Mynd: á.þ. Malbikað á Ólafsf irði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.