Dagur - 13.08.1981, Síða 4

Dagur - 13.08.1981, Síða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamenn: Áskell Þórisson, Gyifi Kristjánsson Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Bæjarfulltrúar ræða um bæjarstjórn Fyrir skömmu hóf göngu sína nýr þáttur í blaðinu, sem nefnist Bæj- ar- og sveitarstjórnarmál og hafa þrfr bæjarstjórnarfulitrúar nú þeg- ar látið frá sér heyra. Sigurður Óli Brynjólfsson sagði m.a. í sinni grein: „Menn bregðast mjög mis- jafnlega við þegar stefna og störf bæjarstjórnar koma til umræðu. Sumir tala um málin af þekkingu og virðast hafa skilning á fjöl- þættum sjónarmiðum, sem taka verður tillit til. Aðrir láta sem best sé að vera í sem minnstri snert- ingu við það, sem þar er að unnið og þá menn sem að þeim málum vinna. Þeir, sem svo mæla bregða því einnig fyrir sig að þar starfi menn sem hafi það að atvinnu að svíkja gefin loforð. Þó erfitt sé að vera dómari í eigin máii verð ég þó að láta í ijósi það álit mitt að það eru þeir sem minnst þekkja til og minnst kynna sér málin sem svo tala.“ Efiaust er það oft erfitt fyrir hinn almenna borgara að fylgjast með störfum kjörinna fulltrúa í bæjar- stjórn, en til eru ýmsar leiðir til þess. Fundargerðir nefnda og bæjarstjórnar getur hver maður fengið og Sigurður bendir rétti- lega á að menn þurfa ekki að vera flokksbundnir til að fá inngöngu á umræðufundi, sem flokkarnir halda. Það er staðreynd að al- menningur hefur ekki sýnt starfi flokkanna áhuga — það sýna best tóm sæti á fundum. Til þess að stjórn bæjarins verði sem lýð- ræðislegust þarf hinn almenni borgari að sýna henni jákvæðan áhuga og síðast en ekki síst að fylgjast með starfi flokkanna. Of margir tala um þá í niðrandi tóni og af lítilli þekkingu, af hvaða ástæðu það kann svo að stafa. Soffía Guðmundsdóttir ræddi m.a. um vinnuskilyrði s.s. fundar- tíma og launakjör þeirra sem í bæjarstjórn sitja. Það kom fram hjá Soffíu að fundir í nefndum og bæjarstjórn eru flestir síðdegis og launakjör á þann veg að greini- lega er gert ráð fyrir að þessi störf séu unnin í hjáverkum. „Nú er rétt að fram komi, að ekki bera að launa svo störf að stjórn- málum að þau verði eftirsóknar- verð þess vegna. Hins vegar er varhugavert að haga málum á þann veg að einungis þeir, sem eru vel iaunaðir fyrir og hafa svig- rúm til þess að hafa fleira í takinu geti yfirleitt stundað þessi störf,“ segir Soffía. Þessi tvö sjónarmið sem fram koma hjá bæjarfulltrúunum eru athyglisverð. í fyrsta lagi verður auðsjáanlega að kynna betur bæjarstjórn og störf hennar fyrir almenningi — hvetja fólk til virkari þátttöku í stjórn bæjarins á hvaða vettvangi það kann að vera. Þá fullyrðingu Soffíu um að ytri skil- yrði ráði miklu hvort fólk geti tekið þátt í starfi bæjarstjórnar og nefnda verður einnig að taka til alvarlegrar íhugunar. — á.þ. „Ég var drepinn tvívegis í ánni“ „Jú, ég var höggvinn í bakið i miðri á. Ég var á harðahlaupum og eftir mér kom maður sem sveiflaði öxi með þessum afleiðingum“, sagði Gestur E. Jónasson, leikari, en hann er nýkominn til Akureyr- ar eftir að hafa leikið í myndinni Útlaginn, sem fjallar um Gísla Súrsson. Gestur virtist ekki kippa sér upp við það að hafa verið drepinn fyrir skömmu og ekki var annað hægt að sjá en hann væri við góða heilsu. „Annars urðu þeir að drepa mig tvisvar því í fyrra skiptið vildi öxin ekki standa i bakinu á mér“. Og Gestur brosti með sjálfum sér er hann rifjaði upp skemmtilegar minningar en spyrillinn ók sér af hryllingi. Afrakstur dagsins: 2 mínútur! Áður en lengra var haldið vildi spyrillinn fullvissa sig um að þetta væri með óhugnarlegustu atriðunum en Gestur minnti á að Gestur er hagvanur á leiksviði og Akureyr- ingum að góðu kunnur á þeim vettvangi. Hér er hann kominn úr hópi fornmanna og á fjalirnar í Samkomuhúsinu. Myndin var tekin s.l. vetur. raunveruleikinn á dögum Gísla hefði verið nokkuð svæsinn og blóðbað og óþokkaháttur daglegt fyrirbæri. — Hvernig gekk að kvik- mynda? Gestur hugsaði sig um andar- tak og sagði síðan: „Ég held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir því hve mikil vinna liggur að baki myndar eins og þessarar. Sem dæmi get ég nefnt að á ellefu klukkustunda vinnudegi þykir gott ef hægt er að nota tvær mínútur af filmu. Sé það haft í huga að venjuleg kvikmynd er um 180 mínútur sjá menn að það er ekki hrist fram úr erminni að gera kvikmynd“. Auðvitað gekk kvikmyndunin vel enda engir viðvaningar sem standa að henni. Ágúst Guð- mundsson er leikstjóri, en fram- kvæmdastjóri Jón Hermannsson. Þarna voru frábærir handverks- menn, sem Gestur minntist með hrifningu. „Þeir gátu nánast allt. Sem dæmi get ég nefnt þér að þeir smíðuðu vefstól og hauskúpur eins og það er nú skilt. Hins vegar var vinnan oft erfið og Gestur sagði frá því þegar leikarar og starfsfólk stóð I hörkugaddi í I.Ikfvlgd. Fólkið cr I „giimlum" klæðum og cinn bcr spjól scr við ðxl. I hægra horni má sjá kvikmyndavél. Þcgar var kvikmyndað í Gcirþjófsdal ætlaði mývargurinn alla lifandi að drcpa. Eina ráðið var að'sveipa höfuðið með lítt gagnsæum dúk. Gestur er lengst til vinstri. Hítardal. Allir höfðu steypt yfir sig svörtum ruslapokum til að vernda búninga og stöppuðu og börðu sig til hita. Nei - mjólkin súrnaði ekki Nú hlýtur það að vera að ýnisu leyti ólíkt að leika í kvikmynd eða á sviði. Gestur var spurður um þetta atriði. „Þarna eru vinnu- brögð allt önnur. Ef atriði mis- tekst í kvikmyndinni er alltaf hægt að taka það aftur - öfugt við það sem gerist á sviði. Hugsaðu þér annað. í vetur var ég mynd- aður þar sem ég var að hlaupa milli húsa með mjólkurfötu. En í sumar tóku þeir atriðið þar sem ég kem inn í bæinn með fötuna. Fyrra atriðið var tekið upp í Hítardal, en það seinna í stúdíói í Reykjavík. Nei, nei, mjólkin var ekkert farin að súrna. Þegar inni- senan var tekin þurfti ég auðvitað að vera alveg eins klæddur, skeggið varð að vera eins og fyrir nokkrum mánuðum. í stuttu máli - maður varð að muna nákvæm- lega hvernig útlitið var mörgum mánuðum fyrr í brunagaddi í Hítardal. Annars var þetta atriði ekkert einstakt að þessu leyti því mörg eru tekin á mismunandi tíma“. Á myndum sem Gestur dregur út pússi sínu (hann var nefnilega vopnaður myndavél frá'Degi) má sjá ýmis kunntgleg andlit íklædd búningum fornmanna. Á einni var sjálfur Gísli Súrsson - Arnar Jónsson -. Gísli sat á kistu og var hinn vígalegasti og át-af 20. aldar plastbakka. Gestur sagði okkur að nútíminn hefði stundum sett strik í reikninginn. Það kom nefnilega fyrir að endurtaka varð atriði þegar flugvél kom nálægt eða þegar trukkur skók nágrenn- ið. Doddi djarfi og Keli smart — Hvað var þitt hlutverk í myndinni og hvenær ertu drep- inn? „Ég leik Þórð huglausa. Við gáfum hvort öðru nútímanöfn og meðal leikaranna hét ég Doddi djarfi. Gísli hét Gilli grjótkastari og Þráinn Karlsson, sem leikur Þorkel Súrsson var kallaður Keli smart. Þórður þessi huglausi var þræll Gísla og er drepinn nokkru eftir miðja mynd“. Og Gestur sýndi á sér fararsnið. Hann var varla fyrr búinn að ná öxinni úr bakinu á sér þegar hann fór að vinna í malbikinu hjá Akureyrar- bæ og þar líðst mönnum ekki (hvort svo sem þeir eru kvik- myndastjörnur eður ei) að slóra. — En að lokum Gestur. Nú hefur þú leikið í þinni fyrstu kvikmynd og ekki annað að, heyra en þér hafi líkað vel, en næsta vetur verður þú hjá Leikfélagi Akureyrar eins og undanfarin ár. Hefur þú í hyggju að reyna að komast oftar á hvíta tjaldið? „Sú reynsla sem ég fékk í kvik- myndinni er ómetanleg og ég kynntist mörgu góðu fólki. Það verður ekki af mér tekið hvað svo sem ég geri síðar. Það er víst nðgu erfitt að spá urn næsta dag svo maður fari ekki að rýna lengra fram í tímann“. Stjórnmálaflokkarnir starfa á lýðræðislegum grundvelli Að starfa í bæjarstjórn, er að taka þátt í iðandi mannlífi sveitar- félagsins. Þar kynnist bæjarfulltrú- inn störfum hinna fjölmörgu áhugamanna, sem drífa áfram hina margbreytilegustu starfsemi I bæn- um. í raun hafa bæjarbúar litla yfirsýn yfir þessa starfsemi, þeir sjá íþróttasvæði, golfvelli, útivistar- svæði og fl. og fl. og þeim þykir þetta harla gott ef vel er gert, en lengra nær þekking fjöldans vart. Hin eiginlega starfsemi hinna mörgu áhugafélaga er almenningi hulin að verulegu leyti. Bæjar- stjórnarmenn reyna að gera sér eins glögga grein fyrir mikilvægi þess- ara starfa og unnt er, þar sem kröf- ur áhugafólksins eru miklar á hendur bæjarsjóði, en takmarkaðir tekjustofnar setja ráðamönnum stólinn fyrir dyrnar að verulegu marki. Bæjarstjcrnarmenn reyna þó að verða við óskum sem flestra um fjárframlög, þótt sumum um- sækjendum þyki eflaust smátt skorið þegar fjárhagsáætlun liggur fyrir. Að framansögðu eru störf við afgreiðslu þessara mála aðallega fjárhagslegs eðlis og bundin við fjárhagsáætlun hvers árs. Þau eru fremur smá í sniðum miðað við heildartekjur bæjarsjóðs, en við af- greiðslu stærri mála og þeirra fjár- frekustu eru hendur bæjarfulltrúa að verulegu leyti bundnar. Annars vegar af fastákveðnum greiðslum, sem starfa af sameiginlegum kostnaði ríkis og sveitarfélaga og hins vegar af þeim stefnuskrám, sem barist er fyrir um kosningar og síðan samningi, sem gerður er um stjórn bæjarins milli fulltrúa þess meiri hluta sem myndaður er í bæjarstjórn. Sá meirihluti, sem nú situr í bæjarstjórn verður varla sakaður um framkvæmdaleysi í bænum, þótt alltaf megi deila um forgang framkvæmda og skiptingu fjár- magns til einstakra verka. Meiri hlutinn hefur lagt áherslu á að ljúka stórverkefnum á sem skemmstum tíma, svo að fjármagn nýtist sem best og hefur minni hlutinn stutt þessa stefnu. Má í þessu tilviki geta gatnafram- Bæjar- og sveitar- ®Étjórnarmá|fP kvæmda í bænum, sem kosta mikið fé, en eru taldar af flestum bæjar- fulltrúum undirstaða undir stækk- un bæjarins og vellíðan íbúa. Bregður þá svo við að hörð gagnrýni kemur fram í blaðagrein á þessa stefnu bæjarstjórnar og bæj- arfulltrúar nefndir „steinsteypu- menn“ í niðrandi merkingu. Sem betur fer eru fáir formælendur þess að hverfa til fortíðar á moldargötu og í torfhús. Almenningur vill lifa í fögru og hreinu umhverfi og að þeir geti farið ferða sinna um gott umferðakerfi, þar sem steinsteypa og gróður fari vel saman og setji svip sinn á bæinn. Þetta er aðeins smá sýnishorn af mati einstakra manna á stórframkvæmdum sem bæjarstjórn ákveður. Þessi gagn- rýni er oft sett fram að lítt athuguðu máli, eða að viðkomandi hefur orðið fyrir vonbrigðum með fram- gang sinna áhugamála í bænum. Sá áróður er nú rekinn í sumum fjölmiðlum að heillavænlegast sé að leggja alla stjórnmálaflokka niður í sveitarstjórnum og pólitískt skoðanalausir einstaklingar eigi að stjórna bæjarfélögum. Þetta myndi eflaust vera ágæt hugmynd, ef við byggjum ekki lýðfrjálsum hluta heims, þar sem mismunandi stjórnmálaskoðanir eru taldar nauðsynlegar og pólitískir stjórn- endur jafn nauðsynlegir og fæði og klæði almennings, enda hafa stjórnendur þjóðarinnar og sveit- arfélaganna talið það styrk sinn að hafa á bak við sig öfluga pólitíska hreyfingu, þar sem ýms sjónarmið á framkvæmd mála koma til um- ræðu og afgreiðslu. Stjórnmálaflokkar hér starfa á lýðræðislegum grunni og eru opnir fyrir hinum fjölbreytilegustu lífskoðunum fólks og óvíða er auð- veldara að koma þeim á framfæri og hafa áhrif á gang áhugamála sinna. Það yrði því spor afturábak ef engin stjórnmálaumræða færi fram í bæjarstjórn Akureyrar, og vandséð hvernig sú stjórn yrði á bæjarfélaginu, sem ekki hefði hinn fjölbreytta svip pólitískra skoðana. Þorvaldur Jónsson. Urslit í 4. og 5. fl. f dag, fimmtudag, hefst úrslita- keppni í 4. og 5. flokki í knatt- spyrnu. 4. flokkur leikur í Vest- mannaeyjum. Þar eiga Þórsarar í höggi við sjö önnur lið um meist- aratitilinn. Þjálfari Þórs er Þröst- ur Guðjónsson. I 5. flokki fara úrslit fram í Kópavogi. K.A. leikur til úrslita i þeim flokki. Þjálfari KA er Einar Pálmi Árnason. Keppni lýkur í báðum flokkum á sunnudag. Við óskum hinum ungu knatt- spyrnumönnum góðs gengis í leikjum sínum. Setti tvö íslandsmet Fyrir stuttu fór hópur ungra íþróttanianna á vinabæjamót í Svíþjóð, þar sem mættir voru unglingar frá vinabæjum Akur- eyrar á hinum norðurlöndunum. Þar vakti mikla athygli frammi- staða Arnars Kristinssonar sem setti tvö fslandsmet í sinum ald- ursflokki, í 100 og 200 m hlaupi og sigraði i báðum hlaupunum. Arnar hóf að æfa frjálsar íþróttir nú í sumar og hafa fram- farir hans verið örar og greinilega mikið efni á fcrðinni. Kristín Halldórsdóttir stóð sig einnig mjög vel á mótinu og sigraði í 400 in hlaup í 16 ára flokki, en hún er aðeins 14 ára gömul. Þessir krakkar og margir fleiri efnilegir æfa með KA undir stjórn fyrrum hlaupadrottningar Ingunnar Einarsdóttur. Einnig var keppt í knattspyrnu og fór lið undir stjórn Þrastar Guðjónssonar til keppni. Liðið tapaði öllum sinum leikjum, en Þröstur sagði að liðið hefði haft áberandi heztu boltameðferðina en gengið illa að skora niörk, en á þeim veltur víst allt í knattspyrn- unni. Tekst KA að stöðva Víkinga? Á sunnudagskvöld kl. 19.00 fer fram á Akureyri leikur KA og Víkings í 15. umf. íslandsmótsins í knattspyrnu. Víkingur er nú i efsta sæti I-deildar með 19 stig, en KA hefur hlotið 16 stig. KA verður þvi að sigra í þessum leik til að hafa raunverulegan möguleika á íslandsmeistaratitlinum í ár. Það verða því örugglega margir sem leggja leið sína á völlinn á sunnu- dagskvöldið, enda þarf liðið nú góðan stuðning áhorfenda, og með sigri í leiknum er stórt skref stigið í átt að ísiandsmeistaratitli. Videomót == ■ ^ ^ feia-_^^Þorle8fur Ananiasson Umsjón.Kristíán Arngrímsson Tony Hcnry „hleypir af“. Jónas Róbertsson fylgist nteó. (Mvnd: KGA). i----------------------- „Generalprufan“ á nýja 18 holu golfvellinum að Jaðri á Akureyri fer fram n.k. laugardag. Leikinn vcrður einn hringur á vellinum að sjálfsögðu, og munu öll keppnis- gjöld renna í svo kallaðan „videó- sjóð“ en golfklúbbsmcnn hyggjast „videóvæðast“ áður en langt um líður. Skorað cr á alla félag klúbbsins að mæta. Bæði til þess að kynnast hinunt nýja glæsilega velli, og til þess að stuðla að videókaupunum. Tony Henry skorar þriðja mark Man. City. (Mynd: KGA). City lagði Þór Á að giska 3000 áhorfendur sáu stjörnur Man. City etja kappi við 1. deildarlið Þórs á Akureyri í gærkvöldi. Mikil eftirvænting og tilhlökkun var meðal bæjarbúa fyrir leiknum og um fátt meira rætt manna á tneðal. Áhugi fyrir ensku knattspyrnunni er mikill á ís- landi og eiga Þórsarar þakkir skyldar fyrir að gefa fólki tækifæri til að sjá átrúnaðar- goð sín með eigin augum. En fjarlægðin gerir fjöllin blá og Bretana góða og trúað gæti ég því að margir hafi búist við meiru af stjörnunum en því sem þær sýndu, þrátt fyrir 5-0 sigur þeirra í leiknum. Þór lék undan hægri norðan golu í fyrri hálfleik og það voru þeir sem áttu fyrsta tækifærið í leiknum, þegar Örn Guðmunds- son strax á 4. mín. átti skot að marki City sem Corrigan varði vel. Þórsarar reyndu stuttan og hraðan samleik sem oft tókst vel og gáfu þeir atvinnúmönnunum ekkert eftir. Leikmenn Man. City virkuðu þungir og allan baráttu- vilja vantaði í leik þeirra. Þeim tókst illa að skapa sér marktæki- færi og það sem á markið kom varði Eiríkur markvörður Þórs af öryggi. Þórsarar áttu því fyllilega skilið að halda jöfnu eftir fyrri hálfleik og höfðu raunar átt öllu meira í leiknum, sem af var. Þjálfari Þórs, Árni Njálsson, sem eflaust hefur viljað lofa sem flestum sinna manna að taka þátt í leiknum, gerði fjórar breytingar á liði sínu í hléinu. Meðal þeirra leikmanna sem skipt var útaf Ekkert mark skorað í fyrri hálfleik - en City gerði 5 í seinni hálf- leik! voru Eiríkur markvörður og Guðmundur Skarphéðinsson, en þeir höfðu báðir átt góðan leik. Þjálfari Man. City lét hins vegar nægja að hrista upp í sínum mönnum sem nú voru nær óþekkjanlegir frá fyrri hálfleikn- um. Kraftur og barátta einkenndi nú leik þeirra og áforfendur fengu nú loks að sjá skemmtileg tilþrif. Á 11. mín. kom fyrsta mark leiksins. Kristinn mark- vörður hálfvarði skot Tommy Caton og Phil Boyer fylgdi vel á eftir og skoraði. Tveim mín. síðar bætti David Bennett við öðru marki, eftir að vörn Þórs hafði verið illa leikin. Á 17. mín. skall- aði Tony Henry í mark eftir und- irbúning O’Neill. Á 36. mín. tók Corrigan útspark langt inn á vallarhelming Þórts, Kevin Re- eves skallaði áfram á Boyer sem slapp í gegn og skoraði örugglega. Fimmta og síðasta mark leiksins kom svo á 42. mín., bakvörðurinn Bobby McDonald skaut þá glæsilegu skoti rétt utan vítateigs efst í markhornið, algerlega óverjandi fyrir markvörð Þórs sem var of framarlega í markinu. Bez.ta tækifæri Þórs í leiknum kom síðan í lokin er bjargað var á marklinu frá Guðjóni. Það urðu því alger kaflaskipti í leiknuni í hálfleik. Þórsliðið náði ekki sam- an eftir allar innáskiptingarnarog leikmenn City tóku öll völd i sín- ar hendur. Beztur í liði Þórs var Magnús Helgason sem ekkert gaf eftir, einnig átti Guðjón. Árni og Örn ágætan leik. Kevin Reeves, Phil Boyer og Martin O’Neill voru áberandi hjá Manchester City. Góður dómari leiksins var Rafn Hjaltalín. 13. ágúst 1981 • DAGUR - 5 4 - DAGUR - 13. ágúst 1981

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.