Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 5

Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 5
IMOL® Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180 Simi auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamenn: Áskell Þórisson, Gylfi Kristjánsson Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Hvað er f ramundan á sviði innlendra stjórnmála? Þó enn sé ekki upp runninn rétti tíminn til að koma fram með spádóma hvernig lík- legast sé að mál munu þróast á sviðí inn- lendra stjórnmála á næstu misserum get- ur ekki hjá því farið að menn velti þessum málum fyrir sér og hver og einn reyni að spá í spilin. Stjórnmálaástandið í landinu er með svo afbrigðilegum hætti að slík staða hefur aldrei áður upp komið. Forsætis- ráðherrann er varaformaður stærri stjórnarandstöðuflokksins á Alþingi. Ef formaður Sjálfstæðisflokksins forfallaðist og gæti ekki sinnt formennsku lengri eða skemmri tíma þá myndi forsætisráðherra sjálfkrafa verða aðal talsmaður stjórnar- andstöðunnar á Alþingi þar sem hann mundi þá gegna formennsku í Sjálfstæð- isflokknum! Flmm þingmenn Sjálfstæðisflokksins af 22 lýstu yfir stuðningi við ríkisstjórnina þegar hún var mynduð. Þrír þeirra tóku að sér ráðherraembætti. Albert Guðmunds- son sagði að stuðningur sinn við ríkis- stjórn Gunnars Thoroddssen væri í því fólginn að hann myndi verja stjórnina falli á meðan önnur ríkisstjórn væri ekki í sjónmáli sem hann hefði meiri trú á til góðra verka. Hinsvegar hefur Albert að jafnaði greltt atkvæði með Sjálfstæðis- flokknum í stjórnarandstöðu um frumvörp og þingsályktunartillögur á Alþingi. Eggert Haukdal hefur aftur á móti staðið með ríkisstjórninni í atkvæðisgreiðslum um mál þegar á því hefur þurft að halda. Stundum hefur ríkt nokkur óvissa um stuðning Eggerts við sum stjórnarfrum- vörpin en niðurstaðan hefur alltaf orðið sú að hann hefur staðið með ríkisstjórninni en þó með hangandi hendi að manni hefur virst. Eftir því sem fregnir herma frá Suð- urlandi hefur Eggert mætt á fundum þar í sumar með þingmönnum Sjáifstæðis- flokksins í stjórnarandstöðu og á þessum fundum hefur hann ekki verið minni stjórnarandstæðingur en hinir, hvaða ályktanir sem menn vilja draga af því. f aðal stjórnarandstöðublaðinu, Morg- unblaðinu, er því haldið fram að öll innrl vandræði Sjálfstæðisflokksins muni leysast sjálfkrafa þegar ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsen er farin frá. Væri þessi ályktun rétt, hefðu engin vandamál átt að vera fyrir hendi innan Sjálfstæðisflokks- ins fyrir daga þessarar ríkisstjórnar. Er ekki réttara að segja að ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsen hefði aldrei verið mynduð ef allt hefði verið með skaplegum hætti innan Sjálfstæðisflokksins? Og þeir halda því fram í alvöru að mál þar muni leysast sjálfkrafa þegar þessi ríkisstjórn er farin frá lifa einvörðungu í drauma- heimi. Hitt efa ég ekki að flokksstarfið Innan Sjálfstæðisflokksins snúist nú fyrst og fremst um Gunnar Thoroddsen og rík- isstjórn hans. Á ytra borði er óvenjulega rólegt á stjórnmálasviðinu. Stjórnarandstöðu- flokkarnlr hafa öðru að sinna en gegna hlutverki stjórnarandstöðu. Innan flokk- anna beggja virðist allt vera í upplausn þó moðreykurinn sem er umhverfis Alþýðu- flokkinn sé raunar svo dökkur að ekki sést þar handa skil. Hitt ætti að vera nokkuð Ijóst að siðferðisvottorðin sem berast frá hinum strfðandi hópum innan Alþýðuflokksins geta ekki leitt til annars en flokkurinn sem slíkur verði rúinn öllu trausti. Það væri ekki fýsilegt fyrir stjórn- arandstöðuna í haust ef sú staða kæmi upp að gengið yrði tll kosninga. S.V. Merkur áfangi í sögu Golfklúbbs Akureyrar 18 holu völlur vígður að Jaðri um næstu helgi þegar „lngimundarmótiðc< fer þar fram „Það má segja að það hafi staðið til allt frá upphafi að völlurinn að Jaðri yrði 18 holu völlur. Þegar við skiptum á landi við bæinn og fengum iandið að Jaðri, var um það samið að við fengjum land undir 18 holu völl,“ sagði Gunnar Þórðarson, formaður vallarnefndar Golfklúbbs Ak- ureyrar, í samtali við DAG. með að taka undir völlinn í upp- hafi“ sagði Gunnar. „Það má segja að fyrstu hugmyndir að legu þessa vallar, eins og hann er í dag, hafi komið frá Magnúsi Guð- mundssyni.“ — Hvenær fékk klúbburinn upphaflega landið að Jaðri? „Það var 1970 sem byrjað var að spila að Jaðri, en ætli það hafi ekki verið tveimur árum áður sem við fengum þarna skika til þess að undirbyggja flatir og fleira þess það sumar. Það var ekki fyrr en í fyrra að verulegur skriður komst á framkvæmdirnar og þá var lok- ið vinnu við fjórar flatir til við- bótar. í vor fengum við svo meginhluta landsins til umráða og gátum þá farið að setja fram- kvæmdir á fulla ferð.“ — Hvernig finnst þér að til hafi tekist? „Ég veit það ekki. Ég reikna með að einhverju verði breytt. Ég játa það hreinskilnislega að þegar . Félagar f golfklúbbnum hafa vcrið duglegir við að taka til hendi f sjálfboðavinnu. Hér sjást nokkrir þeirra f heyskap á vellinum upp á gamla nióðinn. Um næstu helgi fer fram vígsla 18 holu vallarins er minning- armótið um Ingimund Arnason fer fram. Það er 36 holu opið mót og er vitað um að margir kylfingar víðs vegar af landinu ætla að taka þátt í mótinu. En við höfðum samband við Gunnar Þórðarson til þess að fá hjá honum upplýsingar um hinn nýja völl, sem er annar tveggja 18 holu golfvalla á landinu. „Við minnkuðum það land talsvert sem reiknað hafði verið háttar. Það var síðan ekki fyrr en 1977 sem Magnús kom fram með núverandi hugmynd að 18 holu vellinum sem við erum nú að taka í notkun. Hann rissaði þetta upp lauslega og síðan var þeim hug- myndum örlítið breytt. En í öllum meginatriðum eru það hans hug- myndir sem þarna eru að komast í gagnið.“ „Segja má að framkvæmdir við stækkun vallarins hafi hafist 1978 en þá var byrjað að vinna við uppbyggingu nýrra flata. Árið 1979 var íslandsmótið haldið að Jaðri og það eiginlega gerði það að verkum að þetta gekk ekkert ég hóf að hafa umsjón með þessu. þá vissi ég ekki nákvæmlega hvað ég var að gera. Flötin við 17. holu er t.d. allt of iítil og ég reikna með að við byggjum upp aðra flöt við þá braut. Að öðru leiti er ég nokkuð ánægður, en maður sér ekki nákvæmlega hvernig þetta kemur út fyrir en farið verður að spila á vellinum." — Gunnar sagðist reikna með að eftir tvö ár yrði framkvæmd- um við völlinn nær lokið og að völlurinn yrði þá kominn í nokk- uð fastar skorður og yrði lítið breytt eftir það. Við spurðum Þeir Frímann Gunnlaugsson formaður Golfklúbbs Akureyrár og Gunnar Þórð- arson formaður vallarnefndar hafa haft um ýmislegt að ræða að undanförnu endá ver<ð í mörg horn að lita vegna stækkunar vallarins. vallarins. Þegar 18 holu völlur hann hvort tilkoma vallarins yrði ekki til þess að breyta miklu varðandi aðstöðu kylfinga á Ak- ureyri. „Jú þetta breytir miklu og ég hef þá trú að kylfingar hér bæti sig verulega með tilkomu 18 holu verður til staðar held ég að verði til þess að menn fari í auknum mæli að leika þær 18 holur í einu í stað 9 áður og þeir leika þar af leiðandi meira golf við fjöl- breyttari aðstæður.“ HEILSUHÆLIÐ I KJARNALANDI: Okkur barst í hendur fréttabréf frá Kópavogi, er gefið er út á vegum þeirra 9 félaga, er standa að bygg- ingu hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi. Þar fer fram fjáröflum um allan kaupstaðinn, mun fullvíst að hvert heimili taki þátt í fjáröflun þeirri, er þar fer fram til uppbygg- ingar hjúkrunarheimilisins. Fyrirsagnir í fréttablaðinu eru svo lifandi að líkja má við æsi- spennandi skáldsögu. Dæmi eins og: „Yfir 300 sjálfboðaliðar í vinnu á laugareaginn, Framkvæmt fyrir 250 milljónir á þessu ári. I kappi við verðbólgu. Örlagadísirnar ganga í lið með hjúkrunarheimilinu. Enn fjölgar sjálfboðaliðum úr skólum. Aldrei meiri kraftur í baukasöfn- uninni, og áfram skal haldið til síðasta nagla. Sjálfboðaliðavinna við hjúkrun- arheimilið 6000 klst. eða rúml. þriggja ára starf eins manns. Söfn- unarfé almennings um 60 þúsund G-Kr á hverja fimm manna fjöl- skyldu, og þannig mætti áfram telja.“ Þegar á þetta er litið hefur vakn- að sú spurning, hvort Akureyringar og norðlendingar nær og fjær, gætu hugsað sér að koma á svipaðan hátt til samstarfs við NLFA. Til þess að gera hressingarheimilið í Kjarna- landi fokhelt sem fyrst. Framlag almennings er þegar orðið mikið, en við óskum eftir að hafa alla með, reyndar vitum við að þið verðið með. Við höfum sett okkur það markmið að reisa I. hæðina af þremur á næsta sumri, til þess að svo megi verða þurfum við að ná saman nokkru fjármagni til viðbótar. í Akureyrarbæ eru hópar af byggingarmönnum í öllum grein- um, trésmiðir, múrarar, rafvirkjar, pípulagningamenn, málararo.fl. ef allir þessir hópar vildu nú samein- ast um að leggja sitt af mörkum, tiess að stuðla að því, að öll bygging NLFA. í Kjarnalandi yrði gerð Bygging og fram- tíðarverkefni Laufey Tryggvadóttir. fokheld sem fyrst, brjóta allar viðj- ar af sér, og sameinast í formi gjafavinnu, gjarnan um helgar. Við þurfum öll á þessu húsi að halda einhverntíma á æfiferli okkar, hvaða atvinnugrein, sem við stundum, verum öll samtaka, stíg- um skrefið til fullnaðarsigurs í þessu máli norðlendingar nær og fjær. Við félagar liggjum ekki á liði okkar. Innan NLFA hefur allt starf verið unnið launalaust á Undan- förnum árum, og mun svo verða áfram. Við reiknum ekki störf okkar í krónum, en til gamans höfum við slegið á töluna 250-300 millj. G.Kr. og mun ekki ofreiknað. Áfram mun haldið, við öflum fjár með ýmsu móti og ekki er slakað á. Árið 1982 er alþjóðaár aldraðra, samkvæmt reynslu undangenginna ára hefur heilsuhælið í Hveragerði tekið til stuttrar dvalar margt aldr- að fólk og lasburða, og þannig bæði létt af heimilum og endurhæft þetta fullorðna fólk, og þannig stuðlað að því að það á auðveldara með að annast um sig sjálft er heim kemur. Margt af þessu fólki hefur látið í ljós að það búi að dvölinni langan tíma, jafnvel svo mánuðum skipti. Af þessu má draga þá ályktun, að slík endurhæfing sé nauðsynleg. Að vísu ber ekki að skilja það svo, að hressingarheimilið verði öldrunar- heimili, því fer víðs fjarri, þar er gert ráð fyrir að taka inn fólk til endurhæfingar og eftirmeðferðar frá sjúkrahúsum, er læknar telja nauðsyn bera til. Ef tekið er tillit til fjölgunar í efri aldursflokkum, er koma til með að þurfa á hressing- ardvöl að halda, teljum við að aðrir staðir muni ekki hagkvæmari til að viðhalda líkamlegu og andlegu þreki fólks, en einmitt nokkurra vikna dvöl á slíkum hressingar- heimilum. Verkefni félagsins á þessu sumri er að steypa upp innisundlaug, og fylla að kjallaranum. Ef fjármagn liggur fyrir að vori, mun fyrsta hæðin verða steypt upp næsta sumar, og að _því er stemmt nú. Með hugann fullan af bjartsýni og þakklæti fyrir það sem komið er, og vitundina um að þið eruð öll með, höldum við áfram til síðasta nagla. Umsjónsl Þorleifur Ananíasson Kristján Arngrímsson Víkingur slökkti meistaravonir Elmar Geirsson geysist fram völlinn með vikingana Helga Helgason og Ragnar Gislason á hælunum. (Mynd KGA) Mikil stemmning ríkti fyrir þcnnnn mikilvæga leik á Akur- eyri á sunnudagskvöldið. Dreift var ókeypis happ- drættismiðum, þar sem reið- hjól var í vinning, auk þess sem sælgæti var kastað yfir áhorf- endur úr flugvél sem flaug yfir völlinn áður en leikurinn hófst. Einhver spurði hvort sælgætið „Þetta var mjög opinn leikur og mikið um tækifæri í hávaða roki sem stóð á annað mark- ið,“ sagði Eiríkur Eiríksson hinn ágæti markvörður Þórs eftir að lið hans hafði tapað gegn Akurnesingum 3-1 á Akranesi á sunnudag. „Við lékum undan rokinu í fyrri hálfleik og strax í upphafi komst Guðmundur Skarphéð- insson inn fyrir vörn Skaga- manna en skot hans fór rétt fram hjá markinu. „En um miðjan fyrri hálfleik náðúm við forystunni, Örn Guðmundsson skoraði með góðu skoti eftir hornspyrnu. En þeir jöfnuðu nær strax og þannig var Á fimmtudagskvöldið kl. 19.00 fer fram á Akureyrarvelli leikur Þórs og K.R. í 16. umf. íslands- mótsins í knattspyrnu. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þessa leiks. Bæði liðin eru í bullandi fallhættu og að minnsta kosti annað þeirra mun falla í Il.-deild. Staða Þórs er öllu verri í deildinni og þeir verða að sigra í leiknum til hefði verið hugmynd Elmars tannlæknis Geirssonar, en svo mun ekki hafa verið. Leikurinn sjálfur olli þó hinum 1600 áhorfendum vonbrigðum, KA-menn náðu ekki að sýna sitt besta og töpuðu 2-1, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1-0 Víkingi í vil. Það kom fljótt í ljóst að Vík- staðan í leikhléi 1-1.“ Eiríkur sagði að þeir hefðu átt fleiri tækifæri í fyrri hálfleiknum, en eins og svo oft áður gengið illa að skora. Þegar um 15 niín. voru liðnar af síðari hálfleik tóku Ak- urnesingar síðan forystuna og bættu þriðja markinu við áður en yfir lauk. Eiríkur sagði að Akur- nesingar hefðu átt mun meira í leiknum í síðari hálfleiknum, með vindinn í bakið, og ekki hefði bætt úr skák að Þórsarar hefðu misst báða bakverði sína útaf í leiknum vegna meiðsla. Þeir verða þó vonandi orðnir heilir á fimmtudag fyrir leikinn mikilvæga gegn K.R. „Það verður hreinn úrslitaleikur," var það eina sem Eiríkur hafði að segja um þann leik. að hafa von um að halda sæti sínu í I.-deild. Það verður þvi ekkert gefið eftir og ekki veitir Þórsurum af góðum stuðningi áhorfenda í leiknum og eru þeir hér með hvattir til að fjölmenna og styðja við bakið á sínum mönnum. K.A. mun á sama tíma leika gegn I.B.V. í Vestmannaeyjum. ingar ætluðu að selja sig dýrt í leiknum. Þeir náðu fljótlega betri tökum á miðjunni og sóknarlotur þeirra voru mun ákveðnari og beitlari en sóknir heimamanna, sem virtust eiga erfitt með að fóta sig á rennblautum vellinum. Fyrsta markið kom strax á 10. mín. Víkingar sóttu upp hægri vænginn, boltinn var síðan gefinn fyrir markið þar sem Sverrir Herbertsson var einn og óvald- aður og skoraði auðveldlega. Strax á eftirskaut Gunnar Gísla- son yfir úr góðu færi við mark Víking. A 37. mín. átti Hinrik Þórhallsson skalla ofan á þverslá Víkingsmarksins, besta tækifæri KA í fyrri hálfleik. I síðari hálf- leiknum héldu Víkingar upp- teknum hætti, voru mun fljótari og ákveðnari á boltann. Á 12. mín. fá þeir dæmda aukaspyrnu rétt utan vitateigs KA. Varnar- menn KA mynda vegg til varnar, en eftir að boltinn hafði gengið milli tveggja manna er hann gef- inn til fyrirliðans, Magnúsar Þor- valdssonar sem rennir sér fram hjá varnarveggnum og skorar með góðu skoti. Þarna var vörnin illa á verði, þrátt fyrir að auka- spyrnan væri vel útfærð hjá Vík- ingunum. Stuttu síðar komst hinn eldfljóti miðherji Víkings, Lárus Guðmundsson einn í gegn um vörn KA, en Aðalsteinn mark- vörður bjargaði glæsilega. Vík- ingar réðu nú gangi leiksins. KA-menn áttu þó skyndisóknir af og til, en ekki var nógu mikill kraftur í þeim til að skapa veru- lega hættu. Á 35. mín. bjargaði Eyjólfur á marklínu hörkuskoti frá Heimi Karlssyni og áhorfendur fóru að tínast heim. En á 43. niín. sótti Gunnar Blöndal upp vinstri kantinn þar sem hann var hindraður, við endamörk á móts við vítateig Vikings. Elmar Geirsson tók aukaspyrnuna beint á kollinn á Jóhanni Jakobssyni sem skallaði í mark af stuttu færi. 2-1. Markið hleypti nýju blóði í KA-liðið og strax á sömu mín. á Gunnar Blöndal hörkuskot á Víkingsmarkið sem er naumlega K.A. varið í horn. Áhorfendur tóku nú loks við sér, en það vcr of seint, tíminn var útrunninn og góður dómari leiksins, Kjartan Ólafssom flautaði leikinn af. Lið KA náði sér aldreic strik í leiknum. Flestir leikmenn léku undir getu og virtust þjakaðir af taugaspennu. En þrátt fyrir þessi úrslit má liðið vel við una, það hefur staðið sig mun betur en nokkur þorði að vona í vor. Beztur leikmanna KA var bak- vörðurinn Eyjólfur Ágústsson, sendingar hans sköpuðu oft mikla hættu og hann reyndi ávallt að byggja upp samleik. Ásbjörn Björnsson og Gunnar Gíslason áttu góða spretti í leiknum. en Elmar Geirsson var allt of lítið notaður, fékk varla boltann í fyrri hálfleik en hraði hans skapar ávallt usla í vörn andstæðinganna og Víkingarnir óttuðust hann greinilega. Sigur Víkings var verðskuldaður. þeir voru einfald- lega betra liðið. Framherjar þeirra Heimir og Lárus eru mjög fljótir og ákveðnir leikmenn sem sköpuðu vörn KA oft mikil vandræði og varnarleikur Víkir.gs var einnig sterkur. Það má mikið vera ef liðið hreppir ekki Islands- meistaratitilinn í ár. „RIDDARAR (VÍGAHUG „Riddarar hringborðsins". hópur manna sem drekkur saman kaffi daglega á Súlnabergi fór létt með að vinna sigur gegn „Grjóna- punguni" úr Reykjavík um helg- ina. er hóparnir reyndu með sér í golfi að Jaðarsvelli. en „Grjóna- pungarnir" eru hópur manna sem drekka saman kaffi á veitinga- húsinu Torfan í Reykjavik. „Riddararnir" höfðu skorað á hina til keppni. og urðu Ivktir hennar að norðanmenn léku á 390 högguni en sunnanmenn á 418 höggum. „Grjónapungar" hafa hug á að koma fram hefnd- um og hafa skorað á „Riddarana" að mæta til keppni að ári liðnu. Urslitakeppni yngri flokka Um helgina léku 4. og 5. flokkur til úrslita í íslandsmótinu í knatt- spyrnu. í 4. flokki sem fram fór í Vestmannaeyjum léku Þórsarar. þeir töpuðu fyrir Fram 4-0 og Keflavík 3-1, en gerðu jafntefli við Víking l-l og léku síðan til úrslita urn 5.-6. sætið gegn Þrótti Neskaupsstað, þeim leik lauk með jafntefli 0-0. Liðið varð því 5.-6. sæti af 8 þátttökuliðum. Lið K.A. lék til úrslita í 5. fl. í Kópavogi. Liðið tapaði fyrir f.K. 3-2. K.R. 5-1 og fvrir Val 6-2. Síðan lék liðið gegn Sindra um 7.-8. sætið og gerði jafntefli í þeim leik 2.-2. FRJÁLSAR Á Reykjavikurleikunum i frjáls- um íþróttum seni fram fóru i sið- ustu viku. sigraði hin öfluga hlaupakona Sigríður Kjartans- dóttir úr K.A. í 400 m hlaupi. Óskum við henni til hamingju með sigurinn. Enn þrengir að Þór AÐ DUGA EÐA DREPAST 4 - DAGUR - 18. ágúst 1981 18. ágúst 1981 • DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.