Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 6

Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 6
^AMKOMUR Fimmtudagur 20. ágúst kl. 20.30. Kveðjusamkoma fyrir Rannveigu Maríu Nielsdóttur og Erling Níelsson, sem fara í foringjaskólann í Osló. Veiting- ar — fórn verður tekin. Sunnu- dagurn.k. kl. 16.00 útisamkoma á torginu (ef veður leyfir) og kl. 20.30 almenn samkoma. Allir velkomnir. Ath. „Opið hús“ fyrir börn á fimmtudögum kl. 17.00 í Strandgötu 21. Öll börn velkomin. Hjálpræðishérinn. Akureyrarkirkja messað kl. 11 f.h. á sunnudag. Messuheim- sókn séra Bjartmar Kristjánsson Laugalandi, Kirkjukór Grund- arkirkju og organisti Gyða Halldórsdóttir flytja messuna. Allir velkomnir, Eyfirðingar Akureyringar og ferðagestir. P.S. Lögmannshlíðarkirkja messað kl. 2 e.h. á sunnudag. Séra Ingi- mar Ingimarsson prestur á Sauðanesi predikar. Bílferð frá Glerárhverfi hálftíma fyrir messuna. P.S. Imuuiu Kaffisala verður í sumarbúðum KFUM og K að Hólavatni sunnudaginn 23. ágúst frá kl. 14.30 til 18. Akureyringar, Eyfirðingar fjölmennið. 'TOALOO 00 Ferðafélag Akureyrar. 22. ágúst, dags grasatínsluferð. 22.-23. ágúst, Glerárdalur gönguferð. 29.-30. ágúst, Flateyjardalur berjatínsla. Systraselssöfnunin Áður birt kr. 119.045,70. Bergljót Pálsdóttir kr. 100,00, Jódís Jósefsdóttir kr. 500,00, Jónína og Svanfríður kr. 300,00, Gulda Guðnadóttir kr. 150,00, Einar S. Sigurðsson kr. 150,00, Sigrún og Ævar kr. 500,00, Guðmundur Bergsson kr. 500,00, Gunnar Sigtryggsson kr. 130,00, Arndís, Hulda, Jón Kristj. kr. 500,00, Árskógs- hreppur, kr. 2.000,00, S.S. kr. 2.000,00, Vistkonur Hlíð kr. 700,00, L.G. kr. 200,00, J. áheit kr. 100,00, G.S. kr. 1.000,00, M.J. kr. 500,00, Fatahreinsunin Hólabraut 11 kr. 1.000,00, Ljósgjafinn kr. 500,00, Verslun- in Skemman kr. 1.000,00, Minningargjöf um Hauk Sig- urðsson frá Jóhönnu Jónsdóttur kr. 10.000,00. Samtals komið 140.875,70. Minningargjöf. Systkinin Guðrún Símonardóttir Húsavík og Þorsteinn Símonarson Ak- ureyri hafa fært Miðgarða- kirkju í Grímsey gjöf að upp- hæð kr. 3000. Gjöfin er gefin til minningar um foreldra þeirra hjónin Símon Jónsson bg Jór- unni Magnúsdóttur. Þau hófu búskap í Svæði á Upsaströnd, en fluttu til Grímseyjar og bjuggu í Syðri Grenivík í 24 ár. Gjöfin barst kirkjunni 9. ágúst s.l., en þann dag hefði Jórunn Magnúsdóttir orðið 100 ára gömul. Minningin lifir um þessi sæmdarhjón. Símon Jóns- son lézt 14. júní 1963 og Jórunn Magnúsdóttir 29. des. 1969. Hvíla þau bæði í kirkjugarðin- um hér á Akureyri. Ég vil f.h. kirkjunnar þakka þessa ágætu gjöf, — og blessuð sé hlý og fögur minningin. Pétur Sigurgeirsson. Sendum innilegar þakkir og kveðjur til allra sem glöddu okkur með heimsóknum, skeytum og gjöf- um á guUbrúðkaupsdegi okkar þann 8. ágúst s.l. Guð blessi ykkur öll. SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR og SVAVAR PÉTURSSON, frá Laugabökkum, Skagafirði. .t: Þakka innilega auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar systur minnar SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Hóli. Sérstakar þakkir vil ég færa læknum og hjúkrunarliði Kristnes- hælis, sem önnuðust hana síðustu árin. Kristján Jónsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu VILHELMÍNU JÓNSDÓTTUR, frá Ási. Lárus Þorsteinsson, Sigurlaug Lárusdóttir, Jón Stefánsson, Guðrún Lárusdóttir, Jón Pétursson, Vilhjálmur Agnarsson, Margrét Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför RAGNHEIÐAR KRISTÍNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Norðurbyggð 23, Akureyri. Sigríður Matthíasdóttir, Haraldur M. Sigurðsson, Guðmundur Matthíasson, Ásta Hannesdóttir, Þórunn Matthíasdóttir, Pétur Valdimarsson, barnabörn, barnabarnabörn og systur. MINNING Sigurður Finnbogason Hæli, Hrísey F. 21.09. 1916. Hver á nú að vera á bryggjunni og taka á móti mér þegar ég fer út í Hrísey næst? Það er fyrsta spurn- ingin sem vaknar hjá lítilli afa- stelpu, Klöru Eiríku, þegar fréttin um andlát Sigurðar „Sigga afa“ berst. Og það eiga eftir að koma ýmsar spurningar og athugasemdir eins og tamt er hjá börnum, s.s.: Nú get ég aldrei séð hann afa minn, af- hverju gátu þeir ekki læknað hann? hvar á amma að fá peninga fyrir mat? (svona mætti lengi telja). Það verður erfitt að fylla þetta stóra skarð sem verður við fráfall Sigga afa sem alltaf var svo góður, hress og kátur. Alltaf var jafn gott og gaman að koma í heimsókn til þín afi minn, við þá tilhugsun rifjast upp margar skemmtilegar sögur, sem verður gott að eiga í endurminningunni. Og eins og móðirin huggaði barnið D. 14. 06. 1981. forðum, „við verðum að eignast mynd af honum til að hafa hjá okkur, og þökkum fyrir að nú lítur honum vel, laus við alla verki.“ Við í Holtabrún 5 viljum þakka Sigga afa allt og biðjum góðan guð að vera með Ebbu ömmu. R.S. Bæjar- keppni Funa um helgina Hin árlega bæjarkeppni Hesta- mannafélagsins Funa fer fram á mótssvæðinu á Melgerðismelum laugardaginn 22. ágúst og hefst hún kl. 14. Þessi keppni er orðin fastur liður í starfi Funa og er þátttaka nokkuð almenn bæði af hálfu ábúenda jarða og frá einstökum stofnunum. Reglan er sú að hestur keppir fyrir hvert býli. Þarna koma fram föngulegir gæðingar og traustir gangnahestar, sem nú þarf að æfa fyrir göngurnar. En mest er um vert, segir í frétta- tilkynningu frá Funa, að vera með. Á eftir bæjarkeppninni fer fram unglingakeppni á hestum. Þeir sem eru með keppnishesta eiga að mæta við veitingaskálann á Melgerðis- melum kl. 13 á keppnisdaginn. Hef ur verið með umboðið í 15ár Nýlega var skýrt frá því í Degi að ferðaskrifstofan Útsýn hyggði á opnun söluskrifstofu á Akureyri, og mátti allt eins skilja það á umræddri frétt að fyrirtækið hafi fram til þessa ekki rekið slíka skrifstofu á Ak- ureyri. Eins og þeir fjölmörgu vita, sem hafa haft viðskipti við Aðalstein Jósepsson í versluninni Bókval — en hann er umboðsmaður Útsýnar á Akureyri — þá hefur Aðalsteinn séð um umboð fyrir Útsýn á Akur- eyri í ein 15 ár og gerir enn. Breyt- ingar eru fyrirhugaðar á fyrir- komulagi umboðsins á Akureyri, og mun það skýrast á næstu dögum hverjar þær verða. - Loðdýra- bændur... Framhald af bls. I. boðum. Umrætt fyrirtæki hefur söluskrifstofur í öllum helstu borgum heims og \% af sölu er varið til auglýsinga á SAGA FURS. Haukur situr í nefnd, á vegum landbúnaðarráðuneytisins, en hún hefur það verkefni að end- -urskoða lög og reglur um loð- dýrarækt og vinna að stefnu- mörkun í þeim efnum. Nefndin rýmkaði talsvert fyrri reglur sem gerir mun fleiri bændum en ella að hefja loðdýrarækt sem bú grein. Ljóst er að tugir bænda munu hefja loðdýrarækt á næstu árum, en nú eru í landinu um 5000 blá- refir og 25 til 27 þúsund minkar. Verð á skinnum’ blárefa hefur hækkað um helming síðan í des- ember, en verð á minkaskinnum er stöðugra. Danirnir töldu að ísland ætti mikla möguleika á að ná langt í ræktun loðdýra og höfðu þá m.a. i huga hve auðvelt er að nálgast gott fóður. Einnig virðist lofts- lagið eiga vel við dýrin — a.m.k. hefur frjósemi blárefsins verið mjög góð. „Það má e.t.v. segja að hann sé kominn til sinna heim- kynna“, sagði Haukur og gat þess að lokum að með aukinni loð- dýrarækt yrðu íslenskir loðdýra- bændur að styrkja samtök sín mikið á næstunni. Akureyrardeiid KEA Sláturfjárloforð Þeir Akureyringar sem ætla að fá slátrað sauðfé í sláturhúsi KEA í haust eru beðnir að tilkynna um tölu þess til mín fyrir 23. þessa mánaðar í síma 22522 eða 21727. F.h. stjórnar Akureyrardeildar KEA, ÞóroddurJóhannsson. SAMBANO ÍSIENZKRA SAMVINNUFÉLAGA lónaðardeild - Akureyri Húsnæðisskipti Hafnarfjörður — Akureyri Viljum taka á leigu raðhús eða rúmgóða 4ra -5 herbergja íbúð fyrir nýjan starfsmann strax. í boði er fyrirframgreiósla og ábyrgð tekin á góðri um- gengni. Eða skipti fyrir nýja 5 herbergja íbúð meó bílskúr í norðurbænum í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar gefur Jón Arnþórsson í síma 21900. Iðnaðardeild Sambandsins Akureyri. Glerárgata 28 • Pósthólf 606 Simi (96)21900 Kartöflugeymslur Þeir sem eiga kartöflur í geymslum bæjarins eru beðnir aó tæma hólf sín fyrir 28. ágúst. Þeir aðilar sem hafa hólf og ætla að halda þeim eru beðnir aó greiða af þeim á bæjarskrifstofunum á milli 31. ágúst til 4. september '81 eftir þann tíma verða ógreidd hólf leigð öðrum. Nýjar umsóknir um hólf verða teknar niður í síma 25600 alla virka daga milli kl. 10 og 12 f.h. Byrjað verður að taka á móti nýjum kartöflum 21. september. Garðyrkjustjóri 6 - DAGUR - 18. ágúst 1981

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.