Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 8

Dagur - 18.08.1981, Blaðsíða 8
Dalvík HAFIN BYGGING VERKA- MANNA- BÚSTAÐA Nýlega hófust á Dalvík bygging verkamannabústaða. Er hér um að ræða byggingu raðhúss sem í verða 6 íbúðir og er áætlað að þær verði tiibúnar til afhending- ar í ágúst á næsta ári. Þá hefur verið unnið að bygg- ingu skólahúsnæðis við grunnskól- ann, og bætast tvær nýjar kennslu- stofur við í haust. Nú er unnið við byggingu 72 metra langs viðlegukants í höfn- inni. Við þennan kant eru 60 metr- ar með dýpi fyrir togara. Stefnt er að því að taka þennan viðlegukant í notkun í haust þannig að togarar geti landað þar þótt hann verði ekki fullbúinn. Nýlokið er á Dalvík malbikun nokkurra gatna. Keypt voru um 1200 tonn af malbiki frá Akureyri, en það magn nægði á 700-800 fermetra. Þá hefur verið unnið við undirbyggingu fleiri gatna fyrir malbikun. Laugar: MIKIÐ UM FERÐA- MENN Laugum 10. ágúst. Geysilegur straumur ferða- manna hefur verið að Laugum í sumar. Hefur hótelið verið meira og minna fullt af ferða- mönnum. Heyskapur hófst fremur seint, og sumir bændur eiga enn talsvert eftir að slá og hirða. Spretta var seint á ferðinni en tók vel við sér í júlí og heyfengur verður sæmilegur nema þar sem tún voru mjög illa kalin. Tveir nýir skólastjórar taka við störfum að Laugum í haust, Hauk- ur Ágústsson tekur við stjórn Hér- aðsskólans af Sigurði Kristjánssyni og Jón Jónasson úr Hafnarfirði tekur við skólastjórn barnaskólans af Jóhanni Ólafssyni sem fer í árs- leyfi. H.V. Tommi leitar að húsnæði á Akureyri. Munu loðdýrabændur selja undir einu frægasta vörumerki heims? Á föstudagskvöldið verður aðal- fundur Sambands íslenskra loð- dýraræktenda haldinn á Akureyri á Varðborg. Á fundinum verður m.a. fjallað um hugsanlega aðild SIL að samvinnufyrirtæki Norr- ænu loðdýrasambandanna, en i þvi eru Danir, Norðmenn, Svíar og Finnar. Ef SIL yrði þátttakandi i þessu fyrirtæki myndu félagar innan SIL fá sin skinn flokkuð með skinnum danskra framleið- enda, sem eru þekktir fyrir mjög vandaða vöru. Skandinaviska fyr- irtækið selur bestu skinnin undir vörumerkinu SAGA FURS, sem er heimsþekkt gæðavara. Fyrir skömmu voru staddir hér á landi fulltrúar danska loðdýra- ræktunarsambandsins og áttu fulltrúar íslenskra loðdýrarækt- enda fund með þeim. Þar var m.a. rætt um möguleika á sölu ís- lenskra skinna á aðaluppboðinu í Glostrup. Danirnir voru fremur jákvæðir í garð íslendinganna og ef fundurinn á föstudagskvöldið ákveður að æskja inngöngu í fyr- irtækið, eða að gera við það um- boðssamning, verður annar við- ræðufundur í september. „Upp- ^boðið í Glostrup er stærsta sinnar tegundar í heiminum. Þar er seldur um helmingur af öllum minnkaskinnum og 75% af þeim refaskinnum sem framleidd eru í heiminum í dag,“ sagði Haukur Halldórsson, formaður SIL í samtali við DAG. „Fram til þessa hafa íslendingar ekki selt í Glostrup. íslensk skinn hafa verið seld hjá Hudson Bay í London og lítillega í Oslo og hjá einkafyrir- tæki í Kaupmannahöfn.“ Skinn, sem seld eru undir navíu. Þau hafa náð bestu verð- vörumerkinu SAGA FURS eru um, sem hafa verið greidd á upp- eingöngu framleidd í Skandi- Framhald á bls. 6. Mynd þessi var tekin þegar Danirnir ræddu við fulltrúa (slensku loðdýrabænd- anna. F. v. Helge Olsen, framkvæmdastjóri, Reynir Barkdal, varafdrm. SIL, Andres Kirkegaard form. Sambands danskra loðdýrabænda, Haukur Halldórs- son, form. SIL og Peter Krag, Markaðsfulltrúi. Mynd: KGA. Snorri bóndi virðir fyrir sér hluta gæsahópsins f túninu að Skipalóni. „VILLIKARL GIFTUR HVÍTRI“ „Ég byrjaði með tvær gæsir, önnur var villt en hina keypti ég og þetta var byrjunin,“ sagði Snorri Pétursson, bóndi á Skipalóni Glæsibæjarhreppi, er við heimsóttum hann í þeim til- gangi að fá að líta á gæsirnar sem hann elur upp í túninu hjá sér. Snorri byrjaði með tvær gæsir eins og hann sagði hér að framan, en nú eru þær á milli 40 og 50 tals- ins. Hann sagði að villtar gæsir hefðu blandast hópnunraf og til og hefðu engin vandamál komið upp vegna þess. „Ég hef hérna til dæmis villikarl sem hefur verið giftur hvítri í langan tíma og hef engin afskipti þurft að hafa af þeim bú- skap“ sagði Snorri. Snorri sagði að það væri gaman að fást við þennan búskap, en áleitni „skotóðra veiðimanna" eins og hann orðaði það væri þó ávallt óþolandi. „Þéir hafa jafnvel verið svo djarfir að skjóta á gæsirnar hér í túninu hjá mér og ég vil frábiðja mér slíkar heimsóknir“ sagði hann. Snorri sagði að það væri ákveð- inn hópur manna sem keypti gæsir hjá sér til matar. „Þeir sem einu sinni hafa fengið jólagæs vilja hana alltaf eftir það“ sagði Snorri Pétursson. Opnar Tommi á Akureyri? Ég hef mjög mikinn áhuga á því að opna „hamborgarastað“ á Akureyri, og er núna að leita mér að húsnæði“ sagði Tommi í „Tommaborgurum“ er við hitt- um hann hér í bænum um helg- ina. Tommi hefur svo sannarlega slegið í gegn með hamborgarana sína I Reykjavík síðan hann opnaði þar fyrst. Hann sagði í samtali við DAG að hann teldi að framleiðsla sín ætti fullt erindi til Akureyringa, en hann hefði þó ekki áhuga á því að opna sinn stað í miðbænum í samkeppni við Bautann og Súlna- berg. „Ég er með ákveðið húsnæði í huga sem hentar alveg fyrir mig og opna þar áður en langt um líður ef ég fæ það húsnæði" ságði Tommi. Byggt við f isk- vinnslustöð KEA Vinna er hafin af fullum krafti við viðbyggingu fiskvinnslustöðvar KEA. Þar er um að ræða stækkun á frystihúsi og er viðbyggingin vestan við húsið. Nýja húsið er á 2 hæðum og er hvor hæð 400 fermetrar. Á neðri hæð verður fiskmóttaka og hráefniskælir. Á þeirri efri verður starfsmannaaðstaða og skrifstofur. Verktaki er Björk í Hrísey. Reiknað er með að húsinu verði skilað full- frágengnu að utan og sömuleiðis með frágenginni neðri hæð þann 22. desember. - Fréttaritari. § Eyrin víða Ijót „Ferðin hófst við Stefni, þar er enn drasl á planinu, f hjarta bæjarins, jafnvel skúrnefna. Eyrln er víða Ijót, skúrar mis- munandi afdankaðir hanga víða uppl og rusl er of áber- andi t.d. neðan við díselstöð- ina og á yfirráðasvæði Skipaafgreiðslu ríkisins. Sunnan við Útgerðarfélagið er komið port, er það vel, vonandi rísa mörg slík. Draslið sunnan við Útgerðar- félagið stingur óþægilega í stúf við velhirta lóðina norð- ar. Enn stækkar brotajárns- haugurinn norðan Slipp- stöðvarinnar og flæðir nú víðar en áður, segir í bókun Náttúruverndarnefndar, en nefndarmenn fóru í skoðun- arferð um bæjarlandið fyrir skömmu. Smátt og stórt hef- ur í hyggju að gefa nefndar- mönnum orðið í dag og það sem fer hér á eftlr er tekið beint upp úr bókuninni. 0 Vírdræsur frá hernáms- árunum Farvegur Glerár, — perlu Ak- ureyrar — er varðaður drasli. Vírdræsur allt frá hernámsár- unum líggja upp í gllinu en neðar ægir öllu saman, sér- lega virðist ástandið slæmt norðan við ósinn. Eftir- stöðvar brunans í vor eru enn óþarflega áberandi. Umhverfi verkstæðanna þarna, eins og víðar, er nöturlegt varla sést þakið svæði eða gengið frá lóð og ruslið haugast upp. Athafnasvæði Krossanes- bræðslunnar er í örum breyt- ingum, vonandi takast þær vel þannig að öllum skiljist að umhverfi slíkra vinnu- staða getur orðið snyrtilegt. Forsvarsmenn sementstank- ans mættu taka sér nágrann- ann norðan við til fyrfrmynd- ar. Á hæstu klöppunum upp af Krossanesi — sennilega svo allir geti vel séð — er ruslahaugur í örri stækkun, byrjunarfrágangur virðist gjörsamlega mislukkaður, héðan gæti í hvassri norðan- átt borist bárujárnsplötur yfir bæinn. # Tilfyrir- myndar Malar- og steypustöðin er nú að mestu ruslfrí og byrjað er að keyra mold í bakkann við ána, þetta er til fyrirmyndar. Möl og sandur þyrfti að fjar- lægja tiltölulega lítið járna- drasl til að gera árbakkann frían. Að lokum mætti minn- ast á jarðvegshauga sem eru víða um bæinn, þeir gleðja hvorkl áuga ferðamanna né heimamanna, úr þeim þarf að slétta strax og í að sá. Megi Akureyri aftur verða fegursti bær landsins. Ákveðið var að halda ann- an fund sem fyrst og ræða þessi mál frekar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.