Dagur - 27.08.1981, Blaðsíða 8
HAMARS-
STÍGUR
ORÐINN
AÐAL-
BRAUT
- Merki vantar -
í Stjórnartíðindum, sem komu
út fyrir nokkru, er auglýsing frá
bæjarfógetanum á Akureyri um
umferð í bænum. í 3ju grein
segir að Hamarsstígur skuli
njóta aðalbrautarréttar gagn-
vart Byggðavegi og Ásvegi.
Þetta fyrirkomulag mun hafa
tekið gildi um síðustu mánaða-
mót, en í gærmorgun var ekki
enn búið að setja upp umferðar-
merki á umrædd gatnamót. Það
hafa því verið varla aðrir en les-
endur stjórnartíðinda sem hafa
vitað um þessa breytingu.
Elías I. Elíasson, bæjarfógeti,
sagði að merkin hefði átt að vera
komin upp fyrir löngu og ætlaði
hann að gera ráðstafanir til þess að
verkið yrði framkvæmt nú þegar.
Ekki hefur blaðið haft spurnir af
alvarlegum árekstri á gatnamótun-
um en eflaust hefði það vafist fyrir
lögfróðum mönnum að dæma
hann, því tæplega er hægt að ætlast
til þess af fólki að það viti um að-
albraut sé hún ekki merkt.
„EKKI I ALFARALEIГ
FYRSTU KARTÖFLURNAR
í VERSLUN Á AKUREYRI
- SPRETTA 2-3 VIKUM SEINNA EN l' MEÐALÁRI
Nýjar kartöflur komu í verslun-
ina Akur s.l. þriðjudag, en ekki
er gert ráð fyrir að almennt
komi nýjar kartöflur í verslanir
á Akureyri fyrr en viku til 10
daga af september. Akureyring-
ar munu ekki fá nýtt kjöt í
verslanir fyrr en um miðjan
næsta^mánuð.
Eiður Eiðsson, hjá Kaupfélagi
Svalabarðseyrar, sagði að fyrstu
kartöflurnar á þessu ári hefðu kom-
ið frá Grenivík. Þær voru pakkaðar
hjá KS og sendar til sumra við-
skiptavina kaupfélagsins. Eiður
sagði að þetta hefðu verið um 2
tonn.
Það kom fram hjá Karli Gunn-
laugssyni, kaupfélagsstjóra hjá KS,
að tæplega væri að vænta nýrra
kartaflna í einhverjum mæli fyrren
um miðjan september. Hjá KS ertil
töluvert af uppskeru s.l. árs ogsagði
Karl að hér væri um góða vöru að
ræða sem þyrfti að selja áður en
nýju kartöflurnar kæmu á markað.
Kristinn Sigmundsson, Arnar-
hóli, sagði að það borgaði sig vart
að fara að taka upp á næstunni enda
væru kartöflurnar smáar. Grös uxu
hægt eftir að búið var að setja niður
og frost í s.l. viku tefurfyrir þroska.
Kristinn sagði að kartöfluupp-
skeran væri u.þ.b. 2 til 3 vikum
seinna á ferðinni en í meðalári.
Karl og Þórarinn Halldórsson,
sláturhússtjóri KEA, sögðu að nýtt
kjöt kæmi ekki á markaðinn fyrren
um miðjan næsta ntánuð. Þórarinn
sagði að enn væri til töluvert af kjöti
síðan i fyrra.
- En eigendur Steinhólaskála vona að betri vegur
upp á hálendið auki viðskiptin
Að undanförnu hefur mátt sjá afar litla flugvél á flugi yfir Akureyri. Þessi litla vél ber einkennisstafina TF-KEA, og er eigandi
hennar Húnn Snædal flugumferðarstjóri. En hann er ekki einungis eigandi vélarinnar, heldur hefur hann cinnig að langmestu
leyti smíðað vélina sjálfur. Flugvélin tekur einn mann í sæti og er hún knúin Volkswagenmótor. Ljósmynd KGA.
sagði Helga þegar við ræddum um
skálann hennar og eiginmannsins,
Kristjáns Óskarssonar. „En við
vonum að þetta glæðist þegar
fólksbílar komast upp úr Eyja-
fjarðardalnum upp á hálendið. Nú
er verið að vinna fremra við að
malbera veginn og eftir það er sagt
að vegurinn verði ágætur fyrir
fólksbíla.“
— Álitu margir það óðs manns
æði að opna veitingastað á þessunt
slóðum fyrir 6 árum síðan?
„Já, það töldu margir,“ og Helga
hlær „en maður lifir ekki af þessu
eingöngu.“ Þau hjón hafa í hyggju
að auka enn þjónustuna við ferða-
menn. Næsta sumar er gert ráð
fyrir að fólk geti tjaldað hjá
Steinhólaskála og þá verði búið að
koma upp hreinlætistækjum.
„Ég er ekki með mat, en býð upp
á kaffi, samlokur og pylsur. Ég
reikna ekki með að leggja út í mat-
arsölu í bráð, en það er aldrei að
vita hvað framtíðin ber í skauti
sér.“
Að lokum sagði Helga að við-
skipti hefðu verið fjörug seinni
partinn í sumar, en fyrri hlutann
var kalt og fáir á ferð.
Fyrir framan Steinhólaskála. F.v. Kristján Óskarsson, Ólöf B. Garðarsdóttir innan-
búðardama og Helga Hermannsdóttir. Á niyndina vantar Kristjönu, dóttur þeirra
hjóna, en hún annast skálann með þeim.
„Það eru ein 6 ár síðan við
byrjuðum á þessu. Þá voru hér 4
borð, en nú getum við tekið á
móti 60 manns í einu,“ sagði
Helga Hermannsdóttir í Stein-
hólaskála, sem fram til þessa
hefur verið einn afskekktasti
veitingastaður landsins, en
Steinhólaskóli er innarlega í
Eyjafirði. „Hér hafa menn
haldið fundi, en gestir okkar eru
aðailega Akureyringar á sunnu-
dagsferðum. Aðra daga en
sunnudaga er þetta mjög rólegt
— alltof rólegt.“
„Nei, við erum ekki í alfaraleið,"
(qj T /j\T irp rr H) oí
11 m tóa.i Uij u
• Skjaldborg
hleypur
undir bagga
Vegna bilunar i tölvubúnaði
P.O.B. er hluti þess efnis, sem
birtist i blaðinu f dag, settur í
prentsmiðjunni Skjaldborg.
• Varnarliðið
á æfingu
Það vakti athygli bæjarbúa á
Akureyri s.l. mánudag að
Phantom þota frá varnarliðlnu
var á æfingaflugi í Eyjafirði, og
sjálfsagt víðar á Norðurlandi.
Kom vélin inn Eyjafjörð
snemma morguns með drun-
um miklum og flaug mjög lágt
yfir Akureyrarflugvöll. Hún
kom svo til baka skömmu síðar
og síðdegis þennan sama dag
kom hún aftur í lágflugi inn
fjörðinn. Sjálfsagt hafa margir
velt erindinu fyrir sér, en að
sögn mun hér einungis hafa
verið um æfingaflug að ræða,
hvað svo sem það er sem flug-
menn vélanna hafa verið að
æfa sig í.
• Að fara í röð
Sunnanblöðin gerðu sér tals-
verðan mat úr því sum hver
þegar Dagur skýrði frá því að
hér í bæ væri margt fólk sem
ekki kynni að notfæra sér sölu-
lúgur i matvöruverslunum á
kvöldin. Var þetta aldeilis eitt-
hvað fyrlr suma blaðamenn
syðra, sem gerðu sér mat úr
þessu og höfðu gaman að. Við
getum alveg unnt þeim það
að brosa að þessu, en gætum
bent á ýmislegt sem norðan-
menn kunna betur en þeir
syðra. Eitt er það að fara i bið-
röð. Við sölulúgurnar á Akur-
eyri bíða viðskiptavinir í röð-
um, en slíkt fyrirbæri þekkist
varla fyrir sunnan. Þar gildir að
vera nógu duglegur að stjaka
sér áfram á kostnað náungans.
„Biðraðamenning" sunnan-
manna er aldeilis sérstakt fyrir-
brigði sem þyrfti rannsóknar
við. Og það er ekki bara i Hafn-
arfirði sem ástandið í þessum
málum er slæmt sunnan
heiða ....
gMargir
kallaðir
Menn eru þegar farnir að ræða
hugsanlegan arftaka séra Pét-
urs Slgurgelrssonar I stöðu
sóknarprests á Akureyrl. Það
þarf ekki að efa að marglr
prestar renna hýru auga tll
brauðsins, sem talið er með
þeim betri á landinu. Smátt og
stórt heyrðl það á götu I gær að
Bolll Gústavsson, Laufási,
myndi sækja um svo og Pétur
Þórarinsson, Hálsl. Elnnig hafa
nöfn þelrra Hjálmars Jónsson-
ar Sauðárkrókl, Pálma Matt-
hfassonar Hvammstanga, Þór-
halls Höskuldssonar Möðru-
vöilum og Jóns A. Baldvins-
sonarStaðarfelliheyrst nefnd.
Vafalaust verða flelrl nefndlr
áður en IJóst er hverjir munu I
raunlnnl gefa kost á sér.
Aldrei jafn
margir
ferðamenn
Ég hef engar tölur í höndunum,
en svo mikið er víst, að fjöldi
erlendra ferðamanna í sumar
hefur aldrei verið jafn mikill
síðan ég hóf afskipti af þessum
málum“ sagði Gísli Jónsson,
framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofu Akureyrar í samtali við
Dag. „Sömu sögu er að heyra
frá öðrum ferðamannastöðum“.
Gísli sagði að Bretar og Skandi-
navar hefðu t.d. aldrei verið jafn
fjölmennir og í sumar og hann
sagði jafnframt að svo virtist vera
sem „pokafólki“ væri að fjölga. Á
vegum Ferðaskrifstofu Akureyrar
komu 9 skemmtiferðaskip í sumar.
Gera má ráð fyrir að með þeim hafi
komið u.þ.b. 2500 ferðamenn.
Flestir þeirra erlendu ferða-
manna sem Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar hafði afskipti af fóru til Mý-
vatnssveitar, en einnig skipulagði
ferðaskrifstofan ferðir fyrir þá um
Akureyri.
Fyrsta loðnan
til Þórshafnar
Á þriðjudag kom Vífill GK 54
með 450 tonn af loðnu til Þórs-
hafnar. Þetta var fyrsta loðnan
sem barst til Þórshafnar á ver-
tíðinni.
Eins og áður hefur verið greint
frá í Degi er gerð melta úr loðnunni
sem berst til Þórshafnar. Hjá öllum
öðrum verksmiðjum, nema einni
fyrir sunnan, er búið til mjöl. Melt-
an er notuð til skepnufóðurs og
þykir góð til þess. Bændur hér á
landi hafa ekki komist upp á lag
með að nota meltuna, en sam-
kvæmt heimildum Dags á Þórshöfn
verða gerðar tilraunir í haust fyrir
austan með hana.