Dagur - 01.10.1981, Side 6
BRIDGE
Akureyrarprestakall: Veitið þvi
athygli að vetrarstarfið er að
hefjast. Næsta sunnudag hefst
sunnudagaskólinn í Akureyrar-
kirkju kl. 11 f.h. Öll börn eru
hjartanlega velkomin og finna
vonandi margt sem verður holt
veganesti í lífinu. Kvenfélag
Akureyrarkirkju mun einnig
n.k. sunnudag byrja með sitt
mánaðarlega kirkjukaffi í
kirkjukapellunni. Hafa þær
samverustundir notið mikilla
vinsælda. Æskulýðsfélag Akur-
eyrarkirkju, Kvenfélag Akur-
eyrarkirkju og Bræðrafélag Ak-
ureyrarkirkju bjóða nýja félaga
velkomna til starfa og verða
fundir auglýstir síðar. En sér-
staklega er bent á guðsþjónust-
urnar í sóknunum. Tökum öll
höndum saman um þróttmikið
safnaðarstarf. Sóknarnefndir og
sóknarprestur.
Skrifstofan er opin þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 16-18 að
Eiðsvallagötu 6, sími 22506.
Neytendasamtökin.
Almanakshappdrætti Þroska-
hjálpar. Ósóttir vinningar 1981.
Janúar 1216 8. febrúar 28410,
mars 32491, maí 58305, júlí
71481, ágúst 81798, sept .
96202. Ósóttir vinningar 1980
okt. 7775.
Treystu á sigur Guðs. Opinber
fyrirlestur í Hvammi, Hafnar-
stræti 49 sunnudaginn 1. okt. kl.
14.00. Allir velkomnir. Vottar
Jehóva.
Sigdór Hallsson, bóndi að
Grænuhlíð í Fnjóskadal, verður
75 ára laugardaginn 3. október.
Hann verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Vetrarstörf K.F.U.M. og K á
Akureyri hefst laugardaginn 3.
október með fundum fyrir börn.
K.F.U.M. er með fund fyrir
drengi 7-12 ára alla laugar-
dagsmorgna kl. 10.30 á þrem
stöðum: í kristniboðshúsinu
Síon í Lundarskóla og í Glerár-
skóla þar sem allir drengir á
þessum aldri eru velkomnir.
K.F.U.K. er með fund fyrir
telpur 7-12 ára kl. 10.30 alla
laugardagsmorgna í Lundar-
skóla og Glerárskóla og í
Kristniboðshúsinu Zíon sömu
daga kl. 1.30 e.h. þar eru allar
stúlkur á þessum aldri
velkomnar. Unglingastarf
félaganna hefst svo strax eftir
helgi í Kristniboðshúsinu Zíon
ásamt öðru félagsstarfi.
I.O.O.F. 2 — 1622108 Vi
St. Georgsgildið fundur verður
mánudaginn 5. október kl.
20.30. Hjálparsveitin kemur í
heimsókn. Stjórnin.
Krakkar! Munið að sunnudaga-
skólinn byrjar 4. október kl. 11
f.h. Verið með frá byrjun. Fíla-
delfía.
Nýja bíó Akureyri sýnir í kvöld og
næstu kvöld „Inferno“, óhugnan-
lega hryllingsmynd með Irene
Miracle og Leight McCloskey í að-
alhlutverkum. Ef þú heldur þú
hræðist ekki neitt, þá er gott tæki-
færi að sanna með því að sjá þessa
mynd. Kl. 3 á sunnudag sýnir Nýja
bíó bandarísku gamanmyndina
„Slunginn Bílasali“ og er hinn
óborganlegi Kurt Russel þar í að-
alhlutverki.
BORGARBÍÓ hefur í kvöld
sýningar á íslenskú kvikmyndinni
„Morðsögu" og er hér um endur-
sýningu að ræða. Þessi mynd var
gerð árið 1975 og má því segja að
hún hafi verið einskonar „undan-
fari“ í þeirri miklu byltingu sem átt
hefur sér stað í íslenskri kvik-
myndagerð hin síðari ár. Reynir
Oddsson er höfundur handrits og
leikstjóri, en með helstu hlutverk
fara Guðrún Ásmundsdóttir,
Steindór Hjörleifsson og Þóra Sig-
urþórsdóttir.
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir
SIGRÍÐUR KRISTfN ELÍASDÓTTIR
Kambsmýrl 8, Akureyri,
er andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 26. sept. verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn 3. október kl.
13.30.
Friðfinnur Árnason, dætur og tengdasynir.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför elginmanns míns, föður, tengdaföður og afa
HALLGRÍMS VILHJÁLMSSONAR,
tryggingafulltrúa, Akureyri.
Ásgerður Guðmundsdóttir,
Erla J. Hallgrímsdóttlr, Jóhann Karl Sigurðsson,
Eifsabet Hallgrfmsdóttir, Óskar Þór Árnason,
Sigurður J. Hallgrímsson, Ásta J. Gunnlaugsdóttir,
Hallgrfmur Asgeir Hallgrfmsson, Anna Hallgrfmsdóttir,
Jónas Hallgrímsson, Dríta Þorgrímsdóttir
og barnabörn.
Kári sýnir í
Sjafnar-
húsinu
á Húsavík
Kári Sigurðsson listmálari opnar í
kvöld kl. 20 málverkasýningu í
Sjafnarhúsinu á Húsavík.
Á sýningunni eru um 60 verk,
unnin með olíukrít, pastel og
svartkrít. Sýningin stendur yfir til
sunnudagsins 4. október, og er opin
daglega frá kl. 14-22. Þetta er 6.
sýning Kára.
Mánudaginn 5. október n.k. er
væntanleg til Akureyrar danski
blaðamaðurinn og rithöfundur-
inn Grethe Holmen.
Hún mun halda fyrirlestur með
litskyggnum í sal Amtbókasafnsins
og hefst hann kl. 21. Að fyrir-
lestrinum loknum verða umræður
um stöðu kvenna í Danmörku á
okkar tímum og situr Grethe fyrir
svörum. Það eru Norræna félagið
og Jafnréttishreyfingin á Akureyri
sem standa fyrir komu hennar
hingað.
Fyrirlesturinn er byggður á einni
bóka hennar, sem fjallar um konur
í listamannastétt.
Fyrsta keppni
er Thule-
tvímenningur
Aðalfundur Bridgefélags Akur-
eyrar var haldinn í Félagsborg
29. september s.l. og hófst þar
með vetrarstarf félagsins. Úr
stjórn gengu Þórarinn B. Jóns-
son og Páll Jónsson, en stjórnin
er nú þannig skipuð: Ólafur
Ágústsson, formaður, Júlíus
Thorarensen, varaformaður,
Soffía Guðmundsdóttir, gjald-
keri, Sveinbjörn Jónsson, ritari
og Jón Friðriksson, áhalda-
vörður.
Fyrsta keppni félagsins verður
Thule-tvímenningskeppni, en þar
er keppt um vegleg verðlaun frá
Sana h.f. Spilaðar verða 3 umferð-
ir. Væntanlegir keppendur eru
beðnir að skrá sig fyrir sunnudags-
kvöldið 4. október hjá Sveinbirni
Jónssyni í síma 22727 eða hjá
Soffíu Guðmundsdóttur í síma
23721. Með því að tilkynna sig
tryggja menn sér þátttökurétt í
keppninni. Spilað verður sem fyrr í
Félagsborg á þriðjudagskvöldum
kl. 20 stundvíslega. Öllum er heim-
ilt að taka þátt í keppnum Bridge-
félags Akureyrar.
Fyrirlestur um
stöðu kvenna
6 - DAGUR ■ 1. október 1981