Dagur - 20.10.1981, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
■■■■■■^■■BBBSBEBBBranBBHBi
BMg!tSMtas3mjs™Baw,ll4yWfMWfflli
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 20. október 1981
....................................
81. töiublað
HBBHBBMjlIlfcMMHHWaMWB
Varaformaður Félags bókagerðarmanna um samningamálin:
Mikil átök framundan‘
„Nú stendur yfir atkvæða-
greiðsia innan Félags bóka-
gerðarmanna um það hvort
lögð verði höfuðáhersla á
það í samningum okkar við
atvinnurekendur að væntan-
legir kjarasamningar verði
látnir gilda frá 1. nóvember.
Verði það samþykkt, sem ég
reikna fastiega með, þá eru
mikil átök fyrirsjáanleg og
ekki útiit fyrir að úr þeim
leysist án þess að til vinnu-
stöðvunar komi. Það er ljóst
að ekki er hægt að halda
þessari kröfu tii streitu eftir að
samningar hafa dregist á iang-
inn“ sagði Ársæii Ellertsson
varaformaður Félags bóka-
gerðarmanna í samtali við
DAG.
„Þegar Bókbindarafélag ís-
lands, Hið íslenska prentarafélag
og Grafiska sveinafélagið sam-
einuðust í eitt félag, Félag bóka-
gerðarmanná, fór fljótlega fram
atkvæðagreiðsla um það hvort fé-
lagið skyldi sækja um aðild að
ASÍ. Því var hafnað, og var meg-
inástæðan óánægja með vinnu-
brögð ASÍ í kjarasamning-
um,sem leiddu til þess að kjara-
samningar höfðu dregist úr
hömlu, t.d. í 11 mánuði hjá bóka-
gerðarfólki í síðustu kjarasamn-
ingum. Það hljóta allir að sjá að
við höfum ekki hug á því að taka
upp þessi vinnubrögð, og því sé
ég ekki annað en að til átaka
muni koma í næsta mánuði“
sagði Ársæll.
Ársæll tjáði DEGI að kröfur
Félags bókagerðarmanna væru í
12 liðum. Þeirra á meðal er krafa
um að samið verði um sama
kaupmátt launa og samið var um
í samningum 1977, sem nemur
13-16%. Þá verður lögð áhersla á
meiri kauphækkun þeirra lægst
launuðu í félaginu. Lögð mun
verða á það áhersla að kjara-
samningar félaganna þriggja sem
nú mynda Félag bókagerðar-
manna, verði sameinaðir, og þá
upp á við. Krafa er um að félags-
menn geti notað veikindadaga
sína í veikindum annarra heimil-
ismanna, krafa er um lengingu
orlofs, þannig að laugardagar
verði ekki taldir með, og um
ákveðna orlofsuppbót svo eitt-
hvaðsénefnt.
Ársæll gat þess að samninga-
málinu hefði verið vísað til sátta-
semjara sem myndi halda fund
með aðilum í vikunni. Þá kæmi
afstaða vinnuveitenda í ljós, ,,en
Ijóst er“ sagði Ársæll, ,,að mcnn
eru tilbúnir í harða baráttu; það
erekki ofsagt."
Fundu fjölda
kinda I Fjörðum
Á föstudaginn fóru þrír menn
úr Grýtubakkahreppi út í
Fjörður á vélsleðum. Þeir
fundu 125 kindur. Næsta dag
fóru fleiri af stað á snjóbíl og
vélsleðum. Þegar þeir voru
búnir að leita höfðu alls komið
í leitirnar um 140 kindur. Ekki
tókst að reka þetta safn heim í
einum áfanga, en kindurnar og
leitarmenn komu tii byggða á
sunnudag. Um helgina var einn-
ig farið á Flateyjardal og fund-
ust þar 9 kindur og 13 fundust
á Látraströnd. í Fjörðum
fannst eitt dautt lamb og annað
var lifandi en ilia farið enda
hafði hrafn komist í það.
Pétur Axelsson, fréttaritari
Dags á Grenivík, sagði að enn væri
vitað um 3 kindur í Fjörðum og bú-
ist væri við að þær væru fleiri, þar
sem ekki tókst að leita eins vel og
menn hefðu kosið. „Kindurnar
voru orðnar svangar og á það sér-
staklega við um þær sem voru inn-
arlega. Út við sjóinn var nokkuð
snjólétt. Þeir töídu ólíklegt að fé
hefði fennt þarna. Féð rakst sæmi-
lega í sleðaslóðirnar, en ferðin
gekk hægt.“
Sveinn Jóhannesson, fjallskila-
stjóri frá Hóli hafði veg og vanda af
ferðinni útíFjörður.
HLIÐARFJALL
ALDREIOPNAÐ
SVO SNEMMA
Fjölmargir Akureyringar urðu
til þess að bregða sér á skíði um
helgina, en stólalyftan í Hiíðar-
fjalli var opin á laugardag og
sunnudag og hefur skíðalandið
í Hlíðarfjalli aldrei fyrr verið
opnað almenningi svo snemma.
Snjór er ekki mjög mikill í fjall-
inu, en skíðafæri um helgina var
ágætt. Ef snjór helst í fjallinu má
búast við að fleiri lyftur en stóla-
lyftan verði opnaðar um helgar. Ef
unnt verður að hafa skíðasvæðið
opið í allan vetur og reksturinn
gengur vel, er ekki ófyrirsynju að
ætla að únnt verði að fjölga lyftum
íHlíðarfjalli.
Akureyringar voru fljótir til að bregða sér á skíði um leiðog stólalyftan var opn-
uð.MyndH.Sv.
Æfingar standa nú yfir af fullum krafti hjá I.eikfélagi Akurcyrar á „Jómfrú Ragn-
hciði“ eftir Guðmund Kamban í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem jafnframt leik-
stýrir. Frumsýnt verður á föstudagskvöld, en inyndin var tekin á æfingu s.l. föstu-
dagskvöld. Ljósm. KGA.
HEPPINN
Li'\í I Kl
INGUR
- hlaut rúmlega
60 þúsund krónur
í vinning í
Getraunum
Magnús Guðmundsson, verk-
stjóri í frystihúsinu á Dalvík,
datt heldur betur í lukkupottinn
á dögunum. Magnús fékk rösk-
lega 60 þúsund krónur úr Get-
raunum.
Magnús var með 16 raða seðil,
ein röðin var með 12 réttum og
fjórar með 11 réttum. Eftir því sem
Dagur kemst næst hefur annar eins
vinningur úr Getraunum ekki áður
komið í hendur Dalvíkings.
„Auðvitað er Magnús alveg
himinlifandi," sagði fréttaritari
Dags á Dalvík, ,,og það rná segja
að þarna hafi vinningurinn komist
í réttar hendur. Magnús er hálf þrí-
tugur og stendur í húsakaupum og
ætli peningarnir renni ekki íþau.“
„Númer eitt hjá mér að
mismuna mönnum ekki“
segir Sigurður Gizurarson, sýslumaður
þingeyinga um hrossahaldið I Flatey
„Það hefur komið fyrir að það
hefur verið orðað við mig að
hafa afskipti af þessu máii og
það fóru eitt sinn fóðurgæslu-
menn út í eyjuna. Það eru mörg
ár síðan þetta var og mig minnir
að þeir hafi verið á vegum Háls-
hrepps“ sagði Sigurður Gizur-
arson, sýslumaður í Þingeyjar-
sýslu, er DAGUR hafði sam-
band við hann varðandi frétt
blaðsins s.I. fimmtudag um
ólöglegt skepnuhald í Flatey á
Skjálfanda.
„Eg hélt að búskapur væri ekki
lengur stundaður í eyjunni, en það
kann að vera að það séu þarna ein-
hver hross. Það hefur hinsvegar
ekkert skriflegt borist hingað til
embættisins síðustu árin um það.
Hinsvegar er vitað að á megin-
landinu er hrossaræktin þannig að
hrossin ganga úti allt árið um kring
og ég hef ekki treyst mér til þess að
gera mun á því hvort menn eru úti
í eyju eða uppi á meginlandinu.
Beit í Flatey er óvenjulcga góð;
þarna er einstök beit. Eg var þarna
á ferð einu sinni í marsmánuði og
þegar maður skoðaði niður í gras-
rótina voru grösin græn.“
. — Heldur þú ekki að þetta sé
komið undir árferði?
„Jú, það er það. Hitt er það að
Flatey er 30 km frá Húsavík og ég
býst við því að það sé ekki heimild
til þess að gera út leiðangur á
kostnað ríkisins til þess að fylgjast
með skepnuhaldi á einstökum
stöðum.“
— Þitt embætti mun þá ekkert
aðhafastímálinu?
„Ef það kemur fram formlcg
kæra þá verður sú kæra látin sæta
venjulegri meðferð. F.g vil hinsvcg-
ar ekki fara af stað af sjálfsdáðum
því ég veit að á mcginlandinu
er víða pottur brotinn varðandi
skepnuhald að þessu leiti, stóð
ganga víðast hvar úti allt árið um
kring og jafnvel ekkert gefið. Það
er númer eitt hjá mér að mismuna
mönnum ekki.“
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180