Dagur - 20.10.1981, Blaðsíða 6
AKUREYRI
Gróska í bókaútgáfu
Bókaforlögin tvö á Akureyri,
Skjaldborg og Bókáforlag Odds
Björnssonar, gefa út alls 29 bækur
á árinu 1981. Fæstar þeirra eru enn
komnar á markaðinn, en á næstu
dögum fara þær að sjást í hillum
bókaverslana og hámarki nær út-
gáfan þegar líður nær jólum. Við
skulum nú líta á bókatitla þeirra
bóka sem forlögin á Akureyri gefa
út.
Skjaldborg
Alls koma 20 bækur út hjá
Skjaldborg á þessu ári. Það vekur
mesta athygli að Erlingur Davíðs-
son er höfundur fjögurra þessara
bóka en þær cru skáldverkið
,,Undir fjögur augu“, — ,,Gaman
að lifa“, æviminningar Jóhanns
Ogmundssonar, sem Erlingur hef-
ur skráð, — 10. bindið af ,,Aldnir
hafa orðið“ og hestabókin ,,Með
reistan makka“, sögur um hesta
með fjölda mynda og eru það 17
mannssem þarsegjafrá.
Af öðrum bókum má nefna
,,Minningarbók íslenskra her-
manna" sem er komin út, —
,,Mannlíf í Mótun", síðara bindi
æviminninga Sæmundar G. Jó-
hannssonar, — ,,Lengi vœntir von-
in“ sem er 3. bindi æviminninga
Einars Kritjánssonar, — ,,Daufir
heyra“ sögur úr þjónustu sem er
skáldverk eftir Jón Bjarman, —
,,Fornar rœtur“ skáldsaga eftir
Aðalheiði Karlsdóttur, —,, Ast og
dagar, “ skáldsaga eftir Guðbjörgu
Hermannsdóttur.
Haraldur Sigurðsson hefur skráð
bókina ,,Skíðakappar fyrr og nú“
en þar segja yfir 20 skíðakappar frá
og er bókin prýdd fjölda mynda.
,,Meðal gamalla granna“ er minn-
ingarbók éftir Braga Sigurjónsson.
Þá eru tvær þýddar bækur,
,, Geimskipsmáninn dularfulli“
eftir Don Wilson í þýðingu Gissurar
Ó. Erlingssonar og ,,Hans
hágöfgi“ spennuskáldsaga eftir
David Beaty sem Gissur þýddi
einnig.
Barna og unglingabækur Skjald-
borgar eru fimm talsins. ,,Geiri
glerhaus“ heitir ný bók Indriða
Úlfssonar, — ,,Káta á hœttuslóð-
um“ er 11. bókin í flokknum um
Kátu litlu eftir Hildegard Diessel í
þýðingu Magnúsar Kristinssonar
en þetta er saga fyrir yngstu les-
endurna. ,,Systurnar í Sunnuhlíð“
Tveir varamenn á Alþingi
I gær tóku tveir varaþingmenn
Framsóknarflokksins sæti á
Alþingi.
Hákon Hákonarson tók sæti á
þingi fyrir Ingvar Gíslason,
menntamálaráðhcrra, sem er er-
lendis, og Níels Á. Lund tekur sæti
á þingi fyrir Guðmund Bjarnason,
sem nú situr þing Sameinuðu þjóð-
annaíNew York.
Hákon Hákonarson.
=|J=I MINNING
11 Magnús Sigurðsson
fyrrv. bóndi Björgum, Hörgárdal
Fæddur 4. maí 1896
Dáinn 23. ágúst 1981
Er haust fór að og húmið styrkti völdin
var heimanför þín gjörð
þá hefur þú séð rofna rökkurtjöldin
og risa græna jörð.
Þér vöxtur gróðrar veitti jafnan gleði,
er vorið auðlegð gaf
og vaka og starf æ var að þínu geði
— þar var ei slegið af.
Þú bjóst með dug og býli þínu unnir
— þig brast ei viljastyrk.
Þú hlutverk bóndans raunhæft rækja kunnir
— það rökin sýndu virk.
Þú ræktir vel þinn garð með bjartri brúði,
— sem bar þér yl og ljós.
Með dætrum þrem af dyggð að arni hlúði,
svo dýrust gréri rós.
En þegar kul og rökkur vex í ranni
— og rósir hníga ótt,
er þeim sem þreyttur bíður sælt með sanni
að sofna mega — rótt.
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðum.
heitir bók Jóhönnu Guðmunds-
dóttur frá Lómatjörn. Heiðdís
Norðfjörð hefur samið bókina
,,Bjössi og hvolpurinn hans“ og
Þóra Sigurðardóttir myndskreytir
og þá er aðeins ógetið um 3. bókina
um Dolla dropa en hún ber heitið
,,Dolli dropi í Kína“ og eru myndir
og texti eftir Jónu Axfjörð.
Bókaforlag
Odds Björnssonar
Bókaforlag Odds Björnssonar
gefur út 9 bækur á árinu. Ein þeirra
er þegar komin út, en það er ,,Ar-
bók Akureyrar“ sem Guðbrandur
Magnússon ritstýrði. Bókin segir
frá helstu tíðindum og málefnum á
Akureyri árið 1980 og eru í bókinni
fjölda mynda.
,,Líkaböng hringir“ eftir Gunn-
ar Bjarnason. Höfundur kemur
víða við og segir Gunnar af hispurs-
leysi frá því er hann var skólastjóri
Bændaskólans að Hólum m.a.
,,Lárus í Grímstungu,“ skráð af
Gylfa Ásmundssyni. Lárus er
þjóðkunnur maður sem býr yfir
góðri frásagnargáfu.
,,Vorið kemur bráðum“ heitir
nýjasta bók Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, en Ingibjörgu er óþarfi að
kynna.
,,Ættbók og saga íslenska hests-
ins á 20. öld“ eftir Gunnar Bjarna-
son, 3. bindi. I þessu bindi lýkur
skráningu hryssa og nær lýsingin
frá Eyjafirði, austur og suður um
allt til Borgarfjarðarsýslu.
,,Leyndarmál Rebekku“ eftir
Ken Follett er þriðja bók höfundar
sem út kemur á íslandi. —
,,Glaumbœingar“ eftir Guðjón
Sveinsson. Barna og unglingabók
sem segir frá sömu persónum og í
bókinni ,,GlatteríGlaumbæ“.
,,Salómon svarti og fíjartur“
eftir Hjört Gíslason. Bækurnar um
Salómon svarta hafa verið uppseld-
ar um árabil en tvær þeirra hafa nú
verið endurútgefnar.
,,Hvarer Depill?“ eftir Eric Hill.
Sérstæð bók fýrir þá sem eru að
byrja að lesa og er í raun og veru
bæði bók og leikfang.
Skátar
fagna vetri
Sú hefð er komin á hjá skátum
á Akureyri að hefja vetrarstarf-
ið á haustin með opnunarveislu
íFálkafeUi.
Eins verður nú, og verður
veislan haldin laugardagskvöldið
24. október og þá eru allir skátar 15
ára og eldri hvattir til að mæta við
Pásusteinkl. 20.30.
Margt verður gert til að fagna
vetrinum og verður m.a. kakó og
kökur á boðstólum. Einnig verður
varðeldur og flugeldasýning. Allir
skátar eru velkomnir og má búast
við að í Fálkafelli verði iðandi líf
og fjör á laugardagskvöldið.
Ullar- og
skinnaiðnaður
Frh. af bls. 5.
og orkufrekur iðnaður býr nú við.
Komi það í ljós að hann verði sam-
keppnisfær á crlendum mörkuðum
við slíka breytingu og hafi þá þró-
unarmöguleika sem ég hef talið að
hann hafi í þessu spjalli, þá verður
að þrýsta á það með öllum til-
tækum ráðum að þessi stóriðnaður
fái undanbragðalaust sambærilega
rekstraraðstöðu og orkufrekur iðn-
aður býr við og slík breyting verður
að komast til framkvæmda sem
fyrst, svo atvinnu þess fólks sem
hefur lífsframfærslu sína af þessum
iðnaði verði ekki stefnt í meiri
hættu en orðiðer."
Kristniboðshúsið Zíon.Sunnu-
daginn 25. okt. sunnudagaskóli
kl. 11. Öll börn velkomin.
Fundur í Kristniboðsfélagi
kvenna kl. 3 e.h. Allar konur
velkomnar. Samkoma kl.
20.30. Ræðumaður Jón Viðar
Guðlaugsson. Allirvelkomnir.
Hjálpræðisherinn Strandgötu
21. Fimmtudaginn kl. 17.00
föndurfundur fyrir börn.
Sunnudaginn n.k. kl. 13.30
sunnudagaskóli fyrir börn og
kl. 17.00 almenn samkoma.
Mánudag 26. okt. heimilasam-
band fyrir konur. Athugið að
nýji samkomusalur Hjálpræðis-
hersins að Hvannavöllum 10
verður vígður þriðjudaginn 27.
október kl. 20.00. Heimsókn
frá Osló, Reykjavík og Ísafirðí.
Samkomur verða einnig hald-
nar 28. og 29. okt. kl. 20.30.
Allirvelkomnir.
Fíladeifía Lundargötu 12.
Fimmtudagur 22. okt. Biblíu-
lestur kl. 20.30 allir velkomnir.
Sunnudagur 25. okt. sunn-
udagaskóli kl. 11 f.h. Öll börn
velkomin. Safnaðarsamkoma
kl. 4.30. Almenn samkoma kl.
5 allirvelkomnir.
Akureyrarprestakall. Messáð
verður í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 2.00 e.h. (vetr-
arkoma). Sálmar nr.: 482, 297,
483, 330, 484. Fundur verður í
bræðrafélagi kirkjunnar eftir
messu. B.S.
Svaibarðskirkja. Guðs-
þjónusta n.k. sunnudag kl. 2
e.h. Sóknarprestur.
Tannlæknastofa Kurt Sonnen-
feld verður lokuð til 2. nóvem-
ber.
Spilakvöld. Félagsvist verður
haldin í Alþýðuhúsinu fimmtu-
daginn 22. okt. kl. 20.30. Góð
verðlaun. N.L.F.A.
PRSSJ U.M.S.E. blaðabingó.
Númer þessararviku.
Basar. kökur og blóm verða
seld í Kristniboðshúsinu Zíon
laugardaginn 24. okt. kl. 4 e.h.
Gerið góð kaup og styðjið gott
málefni. Kristniboðsfélag
kvenna.
□HULD 598110217 VI2.
St:.St:. 598110237—VII
Munið minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar. Allur ágóði
rennur til barnadeildar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Spjöldin fást í bókabúðinni
Huld, símaafgreiðslu sjúkra-
hússins og hjá Laufeyju Sigurð-
ardóttur Hlíðargötu 3.
Frá Sáiarrannsóknarfélagi Ak-
ureyrar, fyrsti fundur vetrarins
verður föstudaginn 23. október
kl. 21.00 að hótel Varðborg,
litlasal. Erindi. Stjórnin.
Konur í styrktarfélagi vangef-
inna. Fundur á Sólborg mið-
vikudaginn 21. október kl.
20.30. Stjórnin.
Fundur um
umferðarfræðslu
Umferðarráð, menntamála-
ráðuneytið og Kennaraháskóli
íslands gangast fyrir fræðslu-
fundi á Akureyri fyrir fóstrur,
kennara og löggæslumenn á
fimmtudag, 22. október. Fjall-
að verður um umferðarfræðslu
barna og unglinga. Fundurinn
verður í Barnaskóla Akureyr-
ar.
Markmið fundarins er m.a. að
stuðla að samræmingu umferðar-
fræðslu, kynna nýjar reglur og við-
horf í umferðarmálum og nýtt
fræðsluefni og að styrkja samstarf
þeirra sem vinna að umferðarör-
yggismálum.
Meðal þeirra sem erindi flytja
verða Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs,
Margrét Sæmundsdóttir, forskóla-
fulltrúi hjá Umferðarráði, Guð-
mundur Þorsteinsson, námsstjóri í
umferðarfræðslu, Ólafur Ásgeirs-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn, og
Björn Mikhaelsson, lögreglu-
þjónn. Einnig flytur Sigrún
Sveinbjörnsdóttir erindi og síðan
verða hópumræður.
ÞORBERGUR ÓLAFSSON
rakarameistari,
andaðist í Kristneshæli 9. október.
Jarðarförin hetur fariS fram.
Bömin.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns, föður, tengdaföður, afaog langafaokkar,
GRÍMS SIGURÐSSONAR
frá Jökulsá á Flateyjardal.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Kristneshæli og
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Hulda T rygg vadóttir,
GunnarGrímsson,
Sigrún Grimsdóttir, Sigurður Freysteinsson,
Blængur Grímsson, Margrét Ingvarsdóttir,
Elsa Grimsdóttir, Sigfús Jónsson,
Ólafur Grímsson, Fanney Arthúrsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
6 - DAGUR - 20. október 1981