Dagur - 22.10.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 22.10.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR. HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIDIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR 1 AKUREYRl 64. árgangur Akureyri, fimmtudagur 22. október 1981 82. tölublað TÆP 90% ÖKUMANNA NOTA EKKI BILBELTI Kjarni er afgirtur svo það ætti ekki að vefjast fyrir mönnum að ekki er ætlast til að þeir klofist yfir girðinguna með haglabyssu. Hall- grímur sagði að veiðimenn ættu að hafa það í huga að Kjarni er úti- vistarsvæði Akureyringa og skot- hríð í því eða í nágrenni við það getur valdið óbætanlegum slysum. Hallgrímur sagði að starfsmenn skógræktarinnar myndu halda við troðnum skíðagöngubrautum í Kjarna í vetur. Aðalbrautin er upplýst. „Hestamenn mega frá áramótum og fram til vors ríða á akbrautum innan svæðisins, en þeir eru vinsamlega áminntir að ríða ekki í skíðabrautunum. Á því bar mikið í fyrra og ef slíkt kemur fyrir í vetur, verður það tekið til endur- skoðunar hvort hægt sé að leyfa hestamönnum að vera á svæðinu“. í vetur verður reynt að halda opinni leið upp í Kjarna frá Eyja- fjarðarbraut, en ekki ruddur vegur sem liggur á svæðið hjá Hömrum. Hafnarmannvirkin á miðhæjarsvæði Akureyrar setja óneitan- lega svip sinn á bæinn, og það er alltaf eitthvað um að vera í miðbænum. Nú er unnið að heildarskipulagningu hafnarmála á Akureyri og fyrsta hluta þeirrar skipulagsvinnu er nú að verða lokið. Það er yfirlýst stefna bæjaryfirvalda að höfn vcrði áfram á ntiðbæjarsvæðinu og er það vel. Mynd: á.þ. Verður ekkert úr söl- unni á „Flakkaranum“? Skipulagsnefnd hefur samþykkt að fela skipulagsstjóra að láta gera tillögur að skipulagi ein- býlishúsalóða á svæði sunnan Suðurbyggðar að væntanlegri götu norðan verkmenntaskóla. Stefnt er að því að úthluta þess- um lóðum eigi síðar en í janúar á næsta ári. Samkvæmt upplýs- ingum Dags munu ntargir hafa áhuga á að fá lóð á þessum slóðum. Nefndin samþykkti einnig að fela skipulagsdeild að hefja undir- búning að deiliskipulagi í Gilja- hverfi, sem er vestan Hlíðarbrautar og sunnan Síðuhverfis. Kanna á möguleika á að stækka hverfið, m.a. upp fyrir 80 m. hæðarlínu, svo það nái eðlilegri stærð sem skóla- og þjónustuhverfi. Óskað hefur verið eftir því við skipulagsdeild að tillögur að deiliskipulagi við Háu- hlíð verði lagðar fyrir nefndina hið fyrsta, þannig að úthluta megi lóð- um þar eigi síðar en í janúar á næsta ári. Skipulagsnefnd hefur einnig ítrekað fyrri samþykkt sína frá 1. desember 1978. um að raflina sem hindrar úthlutun nokkurra lóða í norðvestur horni Síðuhverfis. verði fjarlægð hið fyrsta þannig að út- hluta megi lóðum á næsta árj. Skíðamenn fagna vetri „Skíðamaður talaði við mig sl. sunnudag og hann sagði mér að menn hefðu skotið á rjúpu í Kjarna. Þetta athæfi er ólöglegt, svæðið er friðlýst og innan bæjarmarka“, sagði Hallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Þetta eru fyrstu skotmennirnir sem ég heyri getið um í vetur, en í fyrra var ekki óalgengt að við fréttum af veiðimönnum í Kjarna. Enn hefur ekki tekist að ná neinum þeirra“. Samkvæmd skyndikönnun sem Dagur gerði á bílbeltanotkun yfir háannatímann í umferðinni í miðbæ Akureyrar nota aðeins tæp 12% ökumanna á Akureyri bílbelti. Sem kunnugt er var bíl- beltanotkun lögleidd hér á landi frá og með 1. október. Könnunin fór fram í hádeginu þriðjudaginn 20. október, nánar tiltekið á tímabilinu frá kl. 12.45 til kl. 13.05, eða í tuttugu mínútur. Talið var í bílum sem óku upp og niður Kaupvangsgilið, auk nokk- urra sem komu úr Hafnarstræti. Samtals var talið í 293 bílum á þessum tuttugu mínútum og reyndust ökumenn aðeins þrjátíu og eins þeirra nota bílbelti. 262 ökumenn voru ekki með belti. Ekki voru taldir vöruflutningabílar né þeir fólksbílar sem augljóslega voru ekki útbúnir með bílbelti sök- um aldurs. Flestir voru ökumenn einir í bílum sínum. Könnuðir sáu aðeins einn bíl þar sem bæði öku- maður og farþegi í framsæti voru með spennt beltin og í einum var farþeginn með spennt belti en ekki ökumaðurinn. Þó að þessi skyndikönnun gefi ekki nákvæma mynd af bílbelta- notkun Akureyringa þegará heild- ina er litið, þar sem t.d. má búast við því að notkunin sé meiri þegar fólk er ekki að flýta sér eins mikið og í hádeginu. gefur hún góða vís- bendingu um það, að langstærstur hluti ökumanna á Akureyri hundsi nýju lögin um notkun bíibelta. í þessari tilgreindu talningu notuðu 11,8 af hundraði ökumanna beltin, en 88,2 af hundraði gerðu það ekki. RJÚPNA- VEIÐI- MENN SKJÓTA I KJARNA- SKÓGI Akureyri: Ný bygginga- svæði Ágúst Einarsson, L.I.Ú.: „. . . teljum það óeðlilegt að skipið fái loðnukvóta“ Skyndikönnun á bílbelfanotkun á Akureyri Enn mun vera óvíst hvort útgerðarfyrirtækið Njörður í Sandgerði kaupir „FIakkarann“ svokallaða af Slippstöðinni á Akureyri, eins og skýrt hefur verið frá í fréttum að til stæði. „Það er ekki búið að ryðja öllum hindrunum úr vegi svo úr þessu geti orðið“ sagði Gunnar Ragnars for- stjóri Slippstöðvarinnar í samtali við DAG. „Segja má að helming hindrananna hafi verið rutt úr veg- inum og ég er bjartsýnn, ég er það alltaf. Skipið er nú tilbúið til af- hendingar frá okkur, en auðvitað er ekkert öruggt fyrr en við sjáum á eftir skipinu út fjörðinn". Hjá Fiskveiðasjóði fengust þær upplýsingar að þar hefði verið fjallað um málin, og tekin jákvæð afstaða til kaupa Njarðar á skipinu. Hinsvegar sagði Ágúst Einarsson hjá Landssambandi íslenskra út- vegsmanna að mikil andstaða væri gegn því hjá útvegsmönnum að skipið fengi leyfi til loðnuveiða. „Við teljum það óeðlilegt að skipið fái loðnukvóta, það er einungis til þess að skerða enn frekar en orðið er aflamagn þeirra skipa sem þegar stunda loðnuveiðarnar“ sagði Ágúst. Þrátt fyrir ítrekarðar tilraunir tókst ekki að ná sambandi við Hafliða Þórsson forstjóra Njarðar I Sandgerði til þess að fá hann til þess að tjá sig um málið. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DAGUR hefur aflað sér. bendir ýmislegt til þess að ekkert verði úr þessum kaupum þótt auð- vitað sé engu hægt að slá föstu um það á þessu stigi. Einn viðmælandi blaðsins benti t.d. á, að söluverðið væri allt of hátt, auk þess sem það væri frumskilyrði að útgerðin fengi leyfi til loðnuveiða, ef rekstur skipsins ætti að geta bor'ið sig. Skíðaráð Akureyrar hvetur alla sem áhuga hafa á að taka þátt í „vetrarfagnaði“ n.k. laugardag. Fyrir 16 ára og yngri verður „húllumhæ" við Strýtu kl. 13.30 og kl. 16 flyst gleðskapurinn niður í Skíðahótelið. Þeir eldri ætla að fagna saman í Sjálfstæðishúsinu um kvöldið, og eru allir velkomnir. Skíðabrekkurnar í Hlíðarfjalli verða opnar fyrir almenning um helgina.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.