Dagur - 25.11.1981, Blaðsíða 6
mm
Laugalandsprestakall. Messað
að Munkaþverá 29. nóv. kl.
13.00 í Kaupangi kl. 15.00 sama
dag. (Nýtt kirkjuár.) Sóknar-
prestur.
Svalbaróskirkja. Sunniidaga-
skóli á sunnudag 29. nóv. kl.
1.30 e.h. (ath. tímann). Ferm-
ingarbörn beðin að mæta.
Sóknarprestur.
I UNDIk —
I.O.O.F. — 16211278 Vi — T.E.
Sjúkraliðar og nemar. Föndur-
kvöld verður að Strandgötu 7,
miðvikudaginn 2. des. kl. 20.00.
Svana Jósepsdóttir verður með
föndur og jólastemmingu.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjómin.
Frá Sáiarrannsóknarféiagi Ak-
ureyrar. Fundur verður föstu-
daginn 27. nóv. klukkan 21 að
Hótel Varðborg, litla sal. Úlfur
Ragnarsson læknir talar. Allir
velkomnir. Stjórnin.
SAMKOMUR
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudag 26. biblíulestur kl.
8.30. Sunnudagur 29. nóv.
sunnudagaskóli kl. 11 f.h. öll
börn velkomin. Almenn sam-
koma kl. 17. Allir velkomnir.
I.O.G.T. Bingo föstudagskvöld
kl. 20.30 í Varðborg. Glæsilegir
vinningar. I.O.G.T. bingo.
^THUOID —
Munið minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar. Allur ágóði
rennur til barnadeildar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Spjöldin fást í bókabúðinni
Huld, símaafgreiðslu sjúkra-
hússins og hjá Laufeyju Sigurð-
ardóttur Hlíðargötu 3.
Samsöngur
barnakóra
Barnakór Akraness heimsækir
kór Lundarskóla um helgina.
Kórarnir syngja i Akureyrar-
kirkju kl. 17 á laugardag.
Á efnisskrá eru m.a. aðventu- og
jólalög og syngja kórarnir bæði
saman og sitt í hvoru lagi. Barnakór
Akraness hefur starfað í um 5 ár og
oft komið fram í heimabæ sínum
og víðar. Stjórnandi hans er Jón
Karl Einarsson. Kór Lundarskóla
var stofnaður haustið 1978 og
stjómandi hans er Elínborg Lofts-
dóttir.
Björn Th. með
fyrirlestra
á Akureyri
Á fimmtudagskvöld klukkan 21
heldur Bjöm Th. Bjömsson, list-
fræðingur, fyrirlestur um skoðun
listaverka á vegum BSRB og
Myndlistarskólans á Akureyri í
sýningarsal skólans. Á föstudags-
morgun kl. 10.15 ræðir Björn síðan
um íslenska myndlist frá 1930 til
okkar daga og verður sá-fyrirlestur
einnig á sama stað.
Hagvangurhf.
ÓSKUM EFTIR AÐ RÁÐA:
FRAMKVÆMDA-
STJÓRA
Fyrirtækíð er stórt þjónustufyrirtæki á Akureyri.
f boði er staða framkvæmdastjóra, sem á að sjá um
daglegan rekstur, fjármál, markaðsmál, starfs-
mannahald og stjórnun.
Við leitum að manni með haldgóða þekkingu á
viðskiptaheiminum og markaðsmálum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu í
stjórnun.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöðum, sem
liggja frammi á skrifstofu okkar.
Athugið — það er sjálfsagt að senda eyðublöð, sé
þess óskað.
Gagnkvæmur trúnaður.
Hagvangur hf.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
GRENSÁSVEG113, R.
Haukur Haraldsson,
Þórir Þorvarðarson,
SÍMAR 83472 & 83483
REKSTRAR- OG
TÆKNIÞJÓNUSTA,
MARKAÐS- OG
SÖLURÁÐGJÖF,
ÞJÓDHAGSFRÆÐI-
ÞJÓNUSTA,
TÖLVUÞJÓNUSTA,
SKOÐANA- OG
MARKAÐSKANNANIR,
NÁMSKEIÐAHALD.
Borgarbfó sýnir kl. 9. myndina
Valdatafl með Peter OToole og
David Hemmings í aðalhlutverk-
um. Það er skálmöld mikil í ríki því,
þar sem myndin gerist, og óalda-
flokkar vaða uppi, án þess að
stjómin geri ráðstafanir til að
kveða þá niður. Loks er einn ráð-
herranna í ríkisstjóminni ráðinn af
dögum með villimannlegum hætti,
og þá er ýmsum nóg boðið. Spenn-
an ríkir frá upphafi til enda og
Peter O. Toole fer á kostum í
myndinni. Reynir Leósson sýnir
kvikmyndina Sterkasti maður
heims í Borgarbíói n.k. laugardag
kl. 15.
Nýja bfó sýnir kl. 9 myndina Loka-
átökin með Sam Neill og Rossanao
Brazzi í aðalhlutverkum. Hver man
ekki eftir Fox-myndunum Omen I
1978 og Damien Omen II 1979.
Mynd þessi er sú þriðja í röðinni og
í framhaldi af hinum tveim um
drenginn Damien, nú komin á
fullorðins árin og til áhrifa í æðstu
valdastöðu. Kl. 3 á sunnudag verð-
ur sýnd myndin Katlar í krapinu
sem er fjörug gamanmynd með
Tim Conway og Don Knotts.
AUGLÝSH) í DEGI
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
FRIÐRIKS GUÐLAUGSSONAR
Hlfðargötu 6, Akureyrl.
Þökkum starfsfólki handlæknisdeildar Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri frábæra umönnun í veikindum hans.
Vandamenn.
Móöir okkar og stjúpmóöir
GUNNLAUG GESTSDÓTTIR
Bjarkarstfg 5, Akureyri
sem andaðist 19. þ.m. verður jarösungin frá Akureyrarkirkju
laugardaginn 28. þ.m. kl. 13.30.
Börn og tengdabörn
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 31., 34. og 36. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á
fasteigninni Brúnalaug II, Öngulstaðahreppi, þinglesin eign
Hólmfríðar Jóhannsdóttur, fer fram eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri mánudag-
inn 30. 11. 1981 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn f Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 8. og 15. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á
fasteigninni Grænugötu 4, Akureyri, þinglesin eign Friðriks
Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka fslands, veödeild-
ar, innheimtumanns ríkissjóðs, Ragnars Steinbergssonar, hrl.,
Friðriks Magnússonar hrl. og Benedikts Sigurðssonar, hdl. á
eigninni sjálfri mánudaginn 30.11. 1981. kl. 15.00.
Bæjarfógetlnn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 108. og 113. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 og
3. tbl. 1981 á fasteigninni Hafnarstræti 94, hl. Akureyri, þinglesin
eign Cesar h.f., fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akureyri
og innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 30.
11. 1981 kl. 10.30.
Bæjarfógetlnn á Akureyri
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 5. desember n.k. kl. 14.00 verður
selt á nauðungaruppboði ýmiskonar lausafé s.s.
bifreiðarnar: A-7365, A-6745, A-5064, A-5891,
A-1139, A-4096, Þ-1693, A-7113, A-587, A-5309,
A-4044, A-7783, A-6862, A-7767, R-68778, A-1865,
A-3820, A-6610, A-4413, Saab árg. 1973, Skoda
Pardus árg. 1974, Marsey Ferguson árg. 1968, ál-
suðutrans, klárhesturinn Gáski, 2 stk. leðurstólar
ásamt sófaborði, Grundig hljómflutningstæki,
Philco Bendix og Lava Lux þvottavélar, 3 sófasett,
borðstofuborð, 6 stólar, Kennwood hljóm-
flutningstæki, Rösler pianó, borð, 4 stólar og
skenkur, talva IBM system 32, auk þess ýmis konar
ótollafgr. varningur. s.s. Pílar, bílavarahlutir, út-
gerðarvörur, sauna, hljóðkútar, vefnaðarvara,
hálsbindi o.fl.
f.h. Bæjarfógetans á Akureyri,
Erllngur Óskarsson.
Haustfundur
Ungmennafélagið Framtíðin heldur haustfund
sunnudaginn 29. nóvember kl. 1 e.h.
Til sölu
Ford Pintó árg. '75, station með V6 vél og sjálf-
skiptingu.
Plymouth árg. '71 6cyl.
Skipti koma til greina á snjósleðum.
Upplýsingar í síma 33112.
NOTIÐ GAFLANA
Þorvaldur Nikulásson hringdi
og vildi koma eftirfarandi á
framfæri:
„Ég vil eindregið mælast til
þess við bæjaryfirvöld að þau sjái
til þess að gaflar verði settir á alla
vörubíla bæjarins sem flytja möl
og grjót um götur bæjarins.
Ástæðan fyrir því að ég kem
þessari ósk á framfæri núna er sú
að s.l. fimmtudagsmorgun ók ég
upp Þingvallastræti og beygði
suður Þórunnarstræti. Þá sá ég
stóran grjóthnullung á miðri göt-
unni, og í þeirri hálku sem var á
götunni hefði ég hæglega getað
ekið á hann. Mér tókst þó að
stöðva bílinn og fór út til þess að
fjarlægja hnullunginn. Þá var ég
nærri dottinn á bakið 1 götuna
vegna hálkunnar.
Mér finnst það lágmarkskrafa
til bæjaryfirvalda að þau sjái til
þess að þeirra eigin bílar séu
þannig útbúnir að þeir skapi ekki
hættu sem þessa.
Ég vil koma þessu á framfæri í
vinsemd með von um að yfirvöld
bregðist við á réttan hátt.“
6 - DAGUR - 26. nóvember 1981