Dagur - 05.01.1982, Page 2
Kveðjuorð
Helgi Rafn Traustason
kaupfélagsstjóri
Fæddur 18. apríl 1937 Dáinn 21. desember 1981
í dag, þriðjudaginn 5. janúar
1982, er til moldar borinn á Sauð-
árkróki Helgi Rafn Traustason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga. Hann varð bráð-
kvaddur þar í bæ mánudaginn 21.
desember 1981, en hann fæddist
þann 18. apríl 1937 og var því að-
eins 44 ára gamall, þegar hann
lést. Foreldrar Helga Rafns voru
þau Trausti Jóelsson vélstjóri á
Patreksfirði og kona hans Rann-
veig Lilja Jónsdóttir. Trausti var
fæddur 19. maí 1909, dáinn 6. maí
1951, en Rannveig var fædd 17.
janúar 1910 og dó 17. desember
1950. Helgi Rafn missti því for-
eldra sína báða með 6 mánaða
millibili, þegar hann var aðeins
13-14 ára gamall. Þetta var mikið
áfall fyrir viðkvæma sál unglings-
ins, sem var í mótun. En skapfesta
og viljastyrkur Helga Rafns var
þá þegar kominn í ljós, þannig að
áfallið braut hann ekki niður,
heldur efldi hann til átaka að afla
sér menntunar og aukins þroska,
þannig að hann mætti sem fyrst
verða fær um að standa á eigin
fótum, en hann var alla tíð mjög
sjálfstæður maður í skoðunum og
hugsunum. Það var honum mikil
huggun á þessum erfiðu árum, að
hann átti hlýtt skjól hjá ætt-
ingjum. Hann átti aðalathvarf hjá
móðurforeldrum sínum á Patreks
lirði, Jóni Indriðasyni og Jón-
ínu Guðrúnu Jónsdóttur, og á
skólaárum síðar hjá Þorgerði
móðursystur sinni og Reyni Hörg-
dal á Akureyri og var svo í heimili
með Mörtu, móðursystur sinni, í
Reykjavík í íbúð þeirri, er foreldr-
ar hans höfðu átt og búið í þar.
Þótt foreldramissirinn væri hon-
um ákaflega sár, veit ég að hann
var ættingjum sínum ævarandi
þakklátur fyrir þá hlýju og þann
skilning, er þeir sýndu honum á
þessum viðkvæmu árum.
Helgi Rafn stundaði nám í
gagnfræðaskólum í Reykjavík,
Laugarvatni og Akureyri og lauk
gagnfræðaprófi með ágætum frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Að því búnu nam hann í Samvinnu-
skólanum í Reykjavík veturinn
1954-1955 og var því í síðasta ár-
Það voru hörmuleg tíðindi er
fréttist af andláti Helga Rafns
Traustasonar, vinar okkar og
starfsbróðurs. en liann lést mánu-
daginn ?l. desember sl. Engum
gat dottið í hug að kall hans væri
komið, mannssem varennábesta
aldri, aðeins 44 ára, manns sem
var búinn að starfa og gera mikið,
en átti þó ennþá svo margt eftir
ógert. En kalli dauðans verður
ekki áfrýjað.
Fyrstu kynni mín af Helga
Rafni voru í nóvember 1974, en
seinni partinn í þeim mánuði eru
venjulega mikil fundahöld hjá
kaupfélagsstjórum í Reykjavík.
Það vakti strax athygli mína hvað
Helgi heitinn flutti snjallar og
sköruglegar ræður. Hvert einasta
orð heyrðist og hver einasti
maður hlustaði af athygli. Við
Helgi Rafn urðum strax ágætir
vinir og félagar og hélst sú vinátta
óbreytt síðan. Það kom sér vel
fyrir byrjanda í starfi að hlusta á
skoðanir og ráðlegingar Helga
Rafns, enda voru þær fúslega
veittar. Helgi heitinn var afskap-
lega góður félagi, alltaf hress og
kátur og kom oft með skemmti-
2 - DAGUR - 5. januar 1982
ganginum, sem Jónas Jónsson frá
Hriflu, sá mikli samvinnufrömuð-
ur og skólamaður, útskrifaði áður
en hann lét af störfum og skólinn
fluttist að Bifröst í Borgarfirði.
Helgi Rafn aflaði sér námseyris
með hreingerningum í skólanum
að kvöldinu en lauk samt prófi
með ágætum vorið 1955 og það
þrátt fyrir að hann hóf störf hjá
Samvinnutryggingum mánuði
áðúr en skólanum lauk. Þar með
hófst hans eiginlegi starfsferill hjá
samvinnuhreyfingunni, en áður
hafði hann starfað nokkur sumur
hjá Kaupfélagi Patreksfjarðar og í
Fjármáladeild Sambandsins
sumarið 1954. Hann starfaði í
Sjódeild og síðar Aðalbókhaldi
Samvinnutrygginga frá 1955-
1960. Hann varð kaupfélagsstjóri
Samvinnufélags Fljótamanna
1960 og gegndi því starfi til 1963,
er hann varð fulltrúi kaupfélags-
stjóra hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki. Því starfi
gegndi hann til ársins 1972, er
hann tók við starfi kaupfélags-
stjóra hjá þessu eina stærsta og
traustasta kaupfélagi landsins, en
því starfi gegndi hann til æviloka.
Kaupfélagsstjórastarfinu sinnti
hann af elju og dugnaði, þannig
að kaupfélagið efldist og styrktist
á góðum grunni, sem fyrir var.
Undir forystu Helga Rafns byggði
kaupfélagið eitt myndarlegasta
legar athugasemdir. Einnig minn-
ist ég þeirra hjóna, Helga Rafns
og hans ágætu eftirlifandi eigin-
konu, Ingu Valdísar Tómasdótt-
ur, með hlýum huga úr þeim ár-
legu ferðum sem við kaupfélags-
stjórar förum í á sumrin ásamt
eiginkonum okkar. Þessar ferðir
eru venjulega farnar aðra helgi í
ágúst og einkum á þá staði sem
sjaldnar eru heimsóttir. Ferðir
þessar hafa góðar minningar að
geyma og þær vil ég varðveita sem
lengst.
Eg veit að það er erfitt fyrir eig-
inkonu og fimm ungmenni að
missa ástkæran eiginmann og
föður. Það er þyngra en nokur tár
fá lýst, en ég veit einnig að ég tala
fyrir munn okkar kaupfélags-
stjóra þegar ég bið guð að styrkja
þau og styðja í sorgum sínum og
óska þeim allrar blessunar í fram-
tíðinni. Einnig bið ég guð að
blessa minningu Helga Rafns
starfsbróðurs okkar, við minn-
umst hans með viðringu og
söknuði.
Ólafur Friðriksson
sláturhús landsins, miklar endur-
bætur voru framkvæmdar í mjólk-
urstöð félagsins, nýtt verzlunar-
hús var byggt að Ketilási í Fljótum
eftir sameiningu Samvinnufélags
Fljótamanna við Kaupfélag Skag-
firðinga, útgerð og fiskvinnsla var
efld, verzlunaraðstaða í Varma-
hlíð endurbætt og hafin bygging
stórhýsis á Sauðárkróki fyrir nýj-
ar aðalstöðvar og aðalverzlanir
kaupfélagsins. Fjölmargt fleira
mætti nefna, sem ekki verður rak-
ið hér, en auk hins umsvifamikla
starfs kaupfélagsstjóra gegndi
Helgi Rafn fjölmörgum trúnaðar-
störfum öðrum, sem hann var
kallaður til að sinna. Hann var um
árabil varamaður í stjórn Samb.
ísl.' samvinnufélaga og allt til
dauðadags. Hann var formaður
rafveitustjórnar á Sauðárkróki
1966/78, hann var stjórnarmaður í
Fiskiðju Sauðárkróks um árabil
og formaður stjórnarinnar hin
síðari ár, einnig formaður stjórn-
ar Steypustöðvar Sauðárkróks og
hann var um árabil stjórnarmaður
í Landflutningum hf., stjórnar-
formaður þeirra í upphafi og aftur
frá vori 1981 til dauðadags og var
reyndar einn helzti frumkvöðull
að stofnun þeirra. Hann átti sæti í
Mjólkursamlagsráði og Slátur-
hússráði Kaupfélags Skagfirðinga
frá stofnun þessara ráða til ævi-
loka. Fulltrúi í Framleiðsluráði
landbúnaðarins var hann fyrir
hönd mjólkursamlaganna á 2.
verðlagssvæði 1973/77. Einnig
varamaður í stjórn Osta- og
smjörsölunnar um árabil og til
dauðadags sem fulltrúi Sam-
bandsins. Hann var form. sókn-
arnefndar Sauðárkrókskirkju
frá 1972 til æviloka og sýndi
því hlutverki mikla ræktarsemi og
áhuga, enda mjög trúaður maður,
sem sýndi kristinni kirkju mikla
virðingu. Sem forseti Lionsklúbbs
Sauðárkróks hafði hann reyndar
áður en hann tók við sóknarnefnd
arformennskunni staðið fyrir
rallögn og lýsingu kirkjugarðsins
á Sauðárkróki, sem er til mikillar
prýði, og sýndi þar strax hug sinn
til kirkjunnar. Margt fleira væri
hægt að rekja af áhugamálum og
viðfangsefnum Helga Rafns, en
þetta verður látið nægja sem aðal-
drættir í mynd gífurlegrar strafs-
ævi, sem nú er lokið svo skyndi-
lega og löngu fyrir aldur fram. í
öllum þessum störfum lagði Helgi
Rafn gjörva hönd á plóginn við-
komandi verkefnum til mikils
framdráttar, enda var hann starf-
hæfur í bezta lagi, ötull, einlægur
og samvizkusamur. Mikið skarð
er fyrir skildi við fráfall hans.
Það var mikið gæfuspor í lífi
Helga Rafns Traustasonar þegar
hann þann 12. október 1957 gekk
að eiga eftirlifandi eiginkonu
sína, Ingu Valdísi Tómasdóttur,
dóttur hjónanna Tómasar Sig-
valdasonar, loftskeytamanns í
Reykjavík, og konu hans Magneu
D. Sigurðardóttur, en við þau
hjón bast Helgi Rafn miklum og
sterkum vináttuböndum, auk
tengdanna. Þau Helgi Rafn og
Inga Valdís urðu strax mjög
samhent, enda að mörgu leytu
ákaflega lík í sinni traustu
skapgerð, smekkvísi og hjarta-
hlýju. Þau bjuggu sér notalegt
heimili í Reykjavík í upphafi, síð-
an Haganesvík og svo á Sauðár-
króki, en heimili þeirra þar er eitt
hið myndarlegasta og notaleg-
asta, sem maður heimsækir. Börn
þeirra hjóna eru Trausti Jóel,
fæddur 21. október 1958, Rann-
veig Lilja, fædd 6. marz 1960,
Tómas Dagur, fæddur 26. októ-
ber 1961, Guðrún Fanney, fædd
Hinsta kveðja til
Helga Rafns Traustasonar
frá Félagi kaupfélagsstjóra
28. nóvember 1963 og Hjördís
Anna, fædd 8. ágúst 1966. Börnin
eru eins og foreldrarnir, hlý og
traust og dugleg í hverju viðfangs-
efni. Unnusta Trausta er Ásta
Búadóttir og unnusti Rannveigar
Lilju er Þorsteinn Hauksson. Ég
og kona mín og börn okkar höfum
átt því láni að fagna að kynnast
mjög vel þessari góðu fjölskyldu á
Sauðárkróki og Helgi Rafn hefur
verið náinn samherji minn, félagi
og vinur um langt árabil. Mér og
fjölskyldu minni er fráfall hans
mikið harmsefni. Ég veit að hann
er einnig sárt tregaður af félögum
í stétt kaupfélagsstjóra og af vin-
um og félögum í samvinnuhreyf-
ingunni allri, ekki sízt í Kaupfél-
agi Skagfirðinga. En svo sár sem
tregi okkar allra er, er hann þó
hjóm eitt miðað við þá þungu
sorg, sem knúið hefur miskunn-
arlaust dyra að Smáragrund 2 á
Sauðárkróki og lagt farg sitt á hug
og hjarta Ingu Valdísar og barn-
anna og fjölskyldunnar allrar.
Mér er kunnugt um æðruleysi
þeirra og viljastyrk og ég vil vona,
að trúin á Guð og minningin um
góðan dreng og einstæðan heimil-
isföður megi verða þeim huggun í
miklum harmi, sem tíminn von-
andi fær sefað eftir því sem stund-
ir líða. Ég sendi þeim dýpstu sam-
úðarkveðjur mínar og fjölskyldu
minnar.
Að lokum vil ég senda Helga
Rafni kveðjur og þakkir Kaupfé-
lags Eyfirðinga. Elann var góður
granni og náinn samstarfsmaður.
Einnig sendi ég honum kveðjur
og þakkir stjórnar Sambands ísl.
samvinnufélaga og samvinnu-
hreyfingarinnar í landinu allrar.
Hann var mikill samvinnumaður
og öflugur liðsmaður í forystu-
sveit. Guð blessi minningu hans.
Valur Arnþórsson
«t
Móðirmín,
BJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR
Gránufélagsgötu 22, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 27. desember. Útförin
fer fram fimmtudaginn 7. janúar frá Akureyrarkirkju kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Marteinn Sigurólason
og vandamenn.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför,
HANNESAR STEFÁNSSONAR
frá Þórðarstöðum.
Hólmfríður Stefánsdóttir,
Jónatan Stefánsson,
Guðsteinn Þengilson,,
Rannveig Þormóðsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÁSGEIRS GUÐJÓNSSONAR,
Munkaþverárstræti 42, Akureyri,
Guð blessi ykkur öll.
Hulda Kristinsdóttir,
Björg Ásgeirsdóttir, Jóhann Hauksson,
Kristinn Asgeirsson, Þórunn Ingólfsdóttir,
Harpa Kristinsdóttir.
OTTO ERDLAND
riddari af hinni íslensku fálkaorðu, lést hinn 25. desember. sl.,
74 ára að aldri.
Hann var mikill íslandsvinur.
Samkvæmt óskum hins látna eru blóm og kransar afbeðnir en
þeim, sem vildu minnast hans, skal bent á Slysavarnarfélag ís-
lands eða hliðstæða vestur-þýska stofnun.
Otto Erhard, Loogeplatz 4,
Import Export, Hamburg 20.
Ástkær eiginmaður minn, okkar elskaði og umhyggjusami
faðir, tengdafaðir og afi, riddari af hinni íslensku fálkaorðu,
OTTO ERDLAND
lést hinn 25. desember sl., 74 ára að aldri.
Lát hans bar að alltof skyndilega fyrir okkur sem eftir lifum, en
hann lætur eftir sig hugljúfar minningar. Við munum ávallt
minnast hans með ástúð, virðingu og þakklæti.
Samkvæmt ósk hins látna eru blóm og kransar afbeðnir, en
þeim, sem vildu minnast hans, skal bent á Slysavarnarfélag
islands, eða hliðstæða vestur-þýska stofnun.
Sigrid Erdland, fædd Jacobsen,
Dr. Gudrun Wahl, fædd Erdland, Heinz Wahl,
Solveig og Kurt Waser-Erdland og Solveig yngri.
Hegereiterweg 17, Hamburg 61.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Helgamagratræti 10, Akureyri, skúr-
bygging, lóðaréttindalaus, þinglesin eign Jóns Steins
Elíassonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkis-
sjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 8. janúar 1982 kl.
14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.