Dagur - 05.01.1982, Side 3

Dagur - 05.01.1982, Side 3
SIMI 25566 Við óskum viðskiptavin- um okkar gieðilegs nýjárs og þökkum við- skiptin á gamla árinu. Á söluskrá: Hamragerði: 120 fm, 5 herb. einbýlishús á einni hæð. 57 fm bílskúr. Skipti á 3-4 herb. raðhúsi koma til greina. Smárahlíð: Rúml. 50 fm, 2 herb. íbúð, til- búin undir tréverk. Afhendist 1. febrúar. Hrísalundur: Mjög góð 2ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi, ca. 55 fm. Skipti á góðri 3ja herb. íbúð koma til greina. Norðurgata: Gamalt einbýlishús, jaarfn- ast viðgerðar. Hæð, ris og kjallari. Móasíða: Ca. 105 fm, 4ra herb. raðhús, afhendist fokhelt. Skipti á góðri 3ja herb. íbúð á Brekkunni koma til greina. Skarðshlíð: 4ra herb., ca. 100 fm íbúð í fjölbýlishúsi. Laus í febrúar. Helgamagrastræti: Efri hæð í tvíbýlishúsi, rúml. 100 fm. Þarfnast viðgerðar. Lundargata: Einbýlishús, uppgert í góðu standi. Okkur vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá. Hafið samband. FASIEIGNA& (J SKIPASALA 33Z NORÐURLANDS fl Sími25566. Benedikt Ólafsson hdl., Sölustjóri Pétur Jósefsson. Er við á skrifstofunni alla virka daga kl. 16.30-18.30. Kvöld- og helgarsími 24485. Siglufjörður: Slippur til sölu Vilja að Völsungur annist 17. júní Bæjarstjórn Húsavíkur sam- þykkti fyrir skömmu að fara þess á leit við íþróttafélagið Völsung að það sjái um undirbúning og framkvæmd þjóðhátíðarhaldanna 17. júní í sumar. Sýning á grafík er framlengd Sýning á grafíkverkum í Klett- agerði 6 er framlengd til 10. janú- ar. Opið frá klukkan 16 til 22 dag- lega. Frá opnun sýningarinnar hafa nokkrar nýjar myndir bæst við. Alis sýna 6 listamenn: Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jónsdóttir, Jón Reykdal, Ragnheiður Jóns- dóttir, Valgerður Bergsdóttir og Þórður Hall. Kjörstjórn Húsavíkur Á fundi í bæjarstjórn Húsavík- ur, sem haldinn var fyrir skömmu, voru eftirtaldir menn kjörnir í kjörstjórn Húsavíkur fyrir árið 1982: Eysteinn Sigurjónsson, Haukur Logason og Aðalgeir Sig- urgeirsson sem aðalmenn, en var- amenn þeir Ragnar Helgason, Hreiðar Karlsson og Þórhallur Björnsson. Fyrirhugað er að auglýsa dráttarbrautina á Siglufirði til sölu. Dráttarbrautin er í eigu Siglufjarðarbæjar, sem hefur leigt hana. Hafnarnefnd Siglu- fjarðar hefur samþykkt að um leið verði hugsanlegum kaup- anda seldar fasteignir norðan brautarinnar, en það er nauð- synlegt svo eðlileg stækkun geti átt sér stað. Sveinn Björnsson, sem sæti á í hafnarnefnd, sagði að Siglufjarð- arbær hefði um árabil greitt alit viðhald vegna dráttarbrautarinn- ar og að leigutekjur hefðu engan veginn nægt til að greiða viðhald- ið. Hann taldi að ef nokkrir ein- staklingar eða fyrirtæki samein- uðust um reksturinn, og fengju aukið landrými norðan brautar- innar, væri líklegt að dráttar- brautin færi að gefa eitthvað af sér. Dráttarbrautin á Siglufirði get- ur tekið allt að 150 tonna stálskip upp í sleðann og nokkra minni báta er hægt að geyma úti á görð- unum. Sveinn sagði að það væri nokkur hugur í mönnum að kaupa dráttarbrautina og sagðist hann leggja áherslu á að verði hennar yrði haldið niðri, svo væntanlegir kaupendur eigi auðveldara með að fjárfesta í dráttarbrautinni. Nýir símar Auglýsingar og afgreiðsla: 24222 Ritstjórn: 24166 & 24167 Dagur, Strandgötu 31, Akureyri. I I I I ■ I I I I I I ■ I I I I I I I I I P.ALLAS Líkamsræktarstöð á Akureyri 7. janúar opnum við líkamsræktarstöð að Glerárgötu 26. Nú er rétti tímiim að taka fram trimmgallann og mæta á staðinn, vOji þú grennast og styrkja líkama þinn alhliða. Það er nánast allt hægt í tækjunum hjá okkur í Pallas. Leiðbeinandi er ávallt til staðar, reiðu- búinn að aðstoða þig og semja fyrir þig æfingaskrá sem er sérsmíðuð eftir þínum óskum. Sérstakt kynningarverð í janúar. Opnunartímar: Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur KONUR KARLAR kl. 8-12 ld. 12-22 kl. 8-22 kl. 8-22 kl. 8-22 kl. 8-12 ld. 12-22 kl. 9-12 ld. 12- 7 kl. 10-17 Mánaðargjald kr. 400.- í öll tæki + sól og sauna Komutími á æfingar er frjáls, hægt verður að fá mánaðarkort og 10 skipti í sauna og sól, og einnig eitt og eitt skipti. ATH: Sérstakur kynningardagur verður þann 9. janúar frá kl. 13.00-16.00, og er öllum frjálst að koma og kynna sér aðstæður. Verið velkomin í Glerárgötu 26, sími 25013, gengið inn frá Hvannavöllum. Allar upplýsingar eru veittar í símum 22316 og 24707. 5. janúar 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.