Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 6
BRIDGE BoUi í bolla útí á þekju Presturinn í Laufási snerist eins og skopparakringla og honum virtist vel líka kveðjumynd Lýðs. Samuel við eitt verka smna Hver kannast ekki við hann Örn Inga, myndlista- og gjöm- ingamann? Hann rekur sýning- arsal að Klettagerði 6 á Akur- eyri, þar sem hann hefur byggt sér stórt einbýlishús og er ennþá að byggja við. Allt fyrir listina. Héimilið er ennþá í kjallaranum, sem er að vísu svo stór, að ekld ætti að væsa um fjölskylduna. En þar er jafn- framt eins konar hljómleikasal- ur, því öll er fjölskyldan meira og minna i listum. Konan tón- listarkennari og börnin í tón- listarnám. Á efri hæðinni er inn römmunarverkstæði Arnar Inga ásamt sýningarsal, auk annarra herbergja. Þar verður framtíðar inngangur og í hon- um gosbrunnur. Nokkrir út- valdir em mættir til að vera við- staddir eitthvað, sem þeir vita ekki enn hvað verður. Eins konar gjörningur. Myndir H. Sv. Þeir sem eru viðstaddir eru Bolli Gústavsson í Laufási, Lýður Sigurðsson, smiður og sem jafn- framt hefur getið sér gott orð fyrir myndir sínar, Samúel Jóhanns- son, forstöðumaður íþróttahúss Glerárskóla, og nokkrir vinir Bolla og velunnarar lista, þeir Ágúst Þorleifsson, dýralæknir, Jón Gíslason, húsasmiður og Sig- tryggur Stefánsson, tæknifræð- ingur, auk Arnar Inga. Þegar menn hafa fengið sér kaffi og kökur og spjallað saman, eftirvæntingarfullir um hvað ætti að gerast, hallar Örn Ingi sér upp að vegg - og heldur smá tölu. Jú, hann hafði kallað þessa menn saman til að verða vitni að þremur atriðum. Hann fer nokkr um orðum um þau, en í öllum tilvikum er um að ræða afhjúpun listaverka. Að öðru leyti vita menn ekkert. Fyrsta atriði Fyrsta atriði byrjar. Örn Ingi tilkynnir að Lýður hafi nú ákveð- ið að hætta að handleika hamar- inn, a.m.k. um sinn, og freista gæfunnar á listabrautinni. Hann fari suður til náms hjá Hringi Jó- hannessyni við Myndlistaskólann í Reykjavík og þar muni hann einnig setja upp vinnustofu. Undanfarið hefði Lýður verið að vinna að nokkurs konar kveðju- mynd, tileinkaðri Bolla heiðurs- gesti dagsins, og nú ætti að af- hjúpa hana. Lýður biður siðan Bolla að að- stoða sig við að taka brúnan um- búðapappír af vegg, hvar myndin hangir undir. Pappírinn fellur - Bolli stendur andaktugur - hlær og snýst um sjálfan sig og veit satt að segja ekki almennilega hvernig hann á að bregðast við. Engum dylst þó að hann er ánægður. Myndin sýnir Bolla í bolla á þekju gamla bæjarins í Laufási. „Mér þykir sérstaklega gaman að vera á bestu myndinni sem ég hef séð eftir þig, Lýður minn. Ég held að þú sért að fara á rétt mið,“ segir Bolli kampakátur. Honum virðist létt - hann vissi ekki á hverju hann átti von og segir að konan sín hafi ekki viljað koma með á gjörninginn - ekki þorað. Hver veit hverju hann kann að taka upp á þessi Öm Ingi? Annað atriði Næsta atriði á dagskránni: Örn Ingi tilkynnir að nú sé liðinn níu mánaða meðgöngutími. Á síðasta ári hafi sýnt hér listamaður, sem hafi haft svo mikil áhrif á einn meðbræðra vorn, að hann hafi byrjað að mála af krafti. Nú verði fæðingin. Afturer umbúðapappír fékinn niður af vegg og við blasa þrjú stórglæsileg olíumálverk - merkt Samúel. Og þetta er sá Samúel sem áður var nefndur. Hinir útvöldu fara lofsorðum um verkin og Sigtryggur muldrar í barminn, þó svo að allir heyri eins og ætlunin sjálfsagt var: „Eg verð víst að fara að heilsa honum Samma, þegar ég mæti honum á götu.“ Þriðja atriði Þriðja atriðið er það, að Örn Ingi sviptir brúnum umbúðapapp- ír af eigin verki, því fyrsta eftir ákaflega sérstæða sýningu sem hann hélt í Reykjavík í haust. Eftir þá sýningu sagði hann, að hann hyggðist færa sér í nyt þá reynslu sem hann hafi öðlast við undirbúning þeirrar sýningar og svo málverkið í bland. Myndin er ljómandi falleg - af gömlum hús- um á Hjalteyri - og verður hluti myndraðar um þróun bygginga- listar á íslandi. Það var sko ekkert annað. Örn Ingi sýnir hér á sér alveg nýja hlið og enn eru hinir út- völdu dolfallnir. Myndin er römm uð inn í hvítan, gljándi kassa og utan á honum eru hitamælar. Það þarf Örn Inga sjálfan til að út- skýra merkinguna. Gjörningunum, eða hvað á að kalia þessa skemmtilegu uppá- komu, er lokið. Afhjúpaðar hafa verið nýjar brautir Lýðs, Samúels og Arnar Inga. Sumum kann að finnast mikið við haft. Örugglega ekki þeim sem nærstaddir voru. H.Sv. Já, þetta getur hann. Þetta er alveg ný hlið á Emi Inga“ sögðu hinir útvöldu er þeir sáu „hitastigs“-myndina af Hjalt- eyri. Eg verð víst að fara að hettsa honuni Samma!“ Myndin sýnir Bolla í kaffíbolla á þekju gamla bæjarins í Laufási. Takið eftir hinum „súrrealiska“ prestakraga sem lek- ur út úr bollanum. m Sveitakeppni Bridgefélags Ak- ureyrar, Akureyrarmót, stend- ur nú yfír. Níunda umferð var spiluð sl. þriðjudagskvöld. Sveitir Magnúsar Aðalbjörns- sonar og Stefáns Ragnarssonar hafa skipst á um að hafa foru- stuna í mótinu, en í síðustu um- ferð spiluðu þessar sveitir saman og sigraði sveit Stefáns með 13 stigum gegn 7. Úrslit í 9. umferð urðu þessi: Alfreð Pálsson - Sturla Snæbjiörnsson 20-5 Kári Gíslason - Anton Haraldsson 20-5 Páll Pálsson - Stefán Vilhjálmsson 20-2 Jón Stefánsson - Örn Einarsson 20-0 Símon Gunnarsson - Sveit M.A. 19-1 Stefán Ragnarsson - Magnús Aðalbjörnsson 13-7 Leik Ferðaskrifstofu Akureyr- ar og Gissurar Jónassonar var frestað. Að loknum 9 umferðum er röð efstu sveita þessi: stig 1. Stefán Ragnarsson 154 2. Magnús Aðalbjörnsson 152 3. Jón Stefánsson 144 4. Páll Pálsson 135 5. Símon Gunnarsson 113 6. Stefán Vilhjálmsson 107 í 10. umferð sem spiluð verður nk. þriðjudagskvöld spila saman sveitir Jóns Stefánssonar og Stef- áns Ragnarssonar - og verður þar hart barist ef að líkum lætur, því undir lokin er hvert stig dýrmætt í baráttunni um Akureyrarmeistar- atitilinn. verður í Kjörmarkaði K.E.A., Hrísalundi 5, mánudaginn 18. janúar frá kl. 3-6 e.h. og í Kjör- búðinni Höfðahlíð 1, þriðjudaginn 19. janúar frá kl. 3-6 e.h. Kynntir verða Goðaréttir MNftatvörudeild ^______ ___ j Aukin Frá 1. janúar 1982 verða tryggingaíjárhœðir allra eignatrygginga, slysa- og sjúkratrygginga hjá Sanmnnutrygging^mver^tryggí^ar skv. vísitölu bg A hœkka því á 3ja mánaða íresti. i 1 j j----t ’ . ._.-L—^omvmiTatryggin&ar haia með I þessu tekið upp verðtryggingu á tryggingaíjárhœðum í ílestum greinum trygginga. Láttu verðbólguna ekki rýra tryggingavemdina - tryggðu hjá traustu tryggingaíélagi. yj a ¥ < O SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚIA3 SÍMI81411 UMBOÐSMENN UM LANDALLT Biautryöjendur í bœttumtryggingum 6 - DAGUR 15. janúar 1982 15. janúar 1982- DAGUR 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.