Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 5
GLÆÐUR Loftslag Jón Gauti Jónsson hgin er reiknuð út mónaðcxrlega og hœkkunin [œðuna í byrjuri nœsta mánaðar á eítir. 50.94%. jamaður í Byggingasjóð ávöxtun spariíjár sem ui Því skal það hs lignsína.þóttróttu brýn nauðsyn ÖUIrávlkiráþvige Þettaerul Skylduspamaður ro O^HÚS wmm ú Islandi Fyni hluti Um 2.500 árum síðar seig aftur á ógæfuhliðina, úrkoma jókst og hitastig lækkaði. Hall- aði þá mjög undan fyrir birki- skóginum og skógamörk færðust neðar. Stóru hjarnjöklarnir tóku að myndast og hafa þeir síðan haldist í horfinu, urðu hvað mestir á seinni hluta síð- ustu aldar. Tímabilið frá 9.000 árum og fram til fyrir 2.500 árum hefur verið nefnt hlýviðrisskeið nú- tímans. Meðalárshiti mun hafa verið 2-3°C hærra en síðustu áratugina. Þeir sem hér numu land fyrir um 1100 árum hafa því komið að hnignandi gróðurfari, er fljótt lét á sjá, er búsmali var hingað fluttur. Enn átti þó eftir að syrta í álinn, og verður því gert skil í næsta Glæðu-þætti. Veðrið í öllum sínum marg- breytUeik er ávallt hið vinsæl- asta umræðuefni, og það sem oftast er gripið til þegar hefja á umræður eða í vandræða- legum þögnum. Slíkt er að mörgu leyti afar eðlilegt, lítil hætta er á, að lýsing þess valdi deilum og því visst öryggi að hefja samræður á slíku tali. Á þetta er minnst hér, að allt tal um veðurfar hefur borið óvenju mikið á góma í vetur og ekki af ástæðulausu, því síðastliðið ár var eitt það kald- asta, er komið hefur síðan veðurmælingar hófust hér á landi árið 1845. í þættinum að þessu sinni er ætlunin að fjalla lítið eitt um loftslag hér á landi, allt frá því að landið tók að myndast fyrir um 20-30 milljónum ára og fram til þessa dags. Verður efninu skipt í tvennt og tekur þátturinn í dag til umfjöllunar tímabilið fram að landnámi, en í næsta þætti verð- ur greint frá loftslaginu frá því að menn tóku sér fasta búsetu hér á landi fyrir rúmum 1100 árum. Helstu heimildir eru „Veðurfar á íslandi" eftir Mark- ús Á. Einarsson veðurfræðing og Bókin „Hafísinn" er Al- menna bókafélagið gaf út árið 1969. Vitneskju um loftslag fyrir landnámstíð má einkum lesa úr menjum í jarðlögum og jarð- myndunum. Gefa þær til kynna, að það tímabil, er kallað hefur veriðtertíer, en það hófst fyrir um 70 milljónum ára og stóð þar til fyrir 3 milljónum ára, hafi ein- kennst af mjög hlýju og röku loftslagi. Vitna leifar laufskóga um það og er talið líklegt að meðalárshiti hafi verið um 10- 15°C og meðalhiti hlýjasta mán- aðar á bilinu 15-20°. Undir lok þessa tímabils hefur þó tekið að kólna nokkuð og barrskógur orðið ríkjandi einkennisgróður. Fyrir um 3 milljónum ára gekk ísöld í garð. Ekki var hér um eitt samfellt kuldatímabil að ræða, eins og nafnið bendir til, heldur skiptust á jökulskeið og hlýskeið. Á jökulskeiðum var landið að mestu hulið jökli og meðalhiti líklega um 5-10°C lægri en í dag. Á hlýskeiðum er hins vegar talið, að loftslag hafi verið svipað og nú. Síðasta jök- ulskeið hófst fyrir um 70.000 árum, en fyrir um 18.000 árum tók loks að hlýna verulega í veðri aftur, en þá mun jökullinn hafa hulið nær allt landið og landgrunnið, og brotnað í sjó fram af brún þess. Loftslags- breyting til hins betra varð þó ekki án afturkippa. Fyrir rúmum 12.000 árum kólnaði skyndilega á nýjan leik í veðri, svo að jöklar fóru aftur að stækka og skríða fram. nefnist þetta kuldaskeið Álftanesstig. í kjölfar Álftanesstigsins kom um 1.000 ára hlýindakafli, en fyrir tæpum 11.000 árum kóln- aði enn á ný. Jöklar gengu fram og ýttu upp miklum jökulgörð- um, sem víða má rekja t.d. í Ljósavatnsskarði, um mynni Reykjadals og norðan Mývatns hjá Reykjahlíð og austur til Hauksstaða á Jökuldal. Er kuldaskeið þetta nefnt Búða- stig. Fyrir rúmum 10.000 árum hlýnaði enn á ný„ og hörfaði þá meginjökullinn svo hratt að um 2.000 árum síðar var hann alveg horfinn af þeim slóðum, er hann hafði verið hvað þykkastur. Þessi mikla loftslagsbreyting hefur verið sett sem þáttaskil í jarðsögunni, ísöld var þar með lokið og við tók nútími. Á þeim hlýindakafla er hófst fyrir rúmum 10.000 árum tók gróður að breiðast mjög ört út. í fyrstu voru það einkum blóm- plöntur, en birki fylgdi síðan í kjölfarið, er bendir til þess að loftslag hafi verið þurrt. Er tíma- bil þetta nefnt birkiskeið fyrra. Fyrir um 6-7.000 árum jókst úrkoma mjög, svo að mýrar tóku að myndast. Birkið hörfaði frá hinum rakari stöðum og svarðmosi varð einkennisplanta þessa tímabils, en það bendir til þess að loftslag hafi haldist hlýtt áfram. Er tímabil þetta kallað mýrarskeið fyrra. Fyrir um 5.000 árum dró aftur úr úrkom- unni og birki tók að breiðast út á nýjan leik. Á þessu skeiði mun um % hlutar landsins hafa verið grónir og um helmingur þess vaxinn skógi og kjarri. Línurnar skýrast í PALLAS Við höfum upp á að bjóða öll tæki til líkamsræktar fyrir hinn almenna borgara og íþróttafólk. Megrunarprógrömin og matarlistarnir eru komnir. Settu markid á það sem þú hefur ekki gert áður og komdu í PALLAS. Við opnum kl. 8 á morgnanna. 15. janúar 1982 - DAGUR 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.