Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 10

Dagur - 15.01.1982, Blaðsíða 10
Dagbók Hvað er hægt að gera? Skíði: Skíðamiðstöðin í Hlíðarfjalli verður opnuð í byrjun janúar verði nægur snjór. Lyfturnar eru opnar alla virka daga frá kl. 13.00 til 18.45, nema þriðjudaga og fimmtudaga til klukkan 21.45. Eftir 15. febrúar verður einnig opið fyrir hádegi. Um helgareropið kl. 10.00til 17.30. Veit ingasala alla daga kl. 9.00 til 22.00. Sími Skíðastaða er 22930 og 22280. Sund: Sundlaugin er opin fyrir al- menningsem hér segir: Mánudaga til föstudaga kl. 07.00 til 08.00, kl. 12.00 til 13.00 og kl. 17.00 tii 20.00, faugardaga kl. 08.00 til 16.00 og sunnudaga kl. 08.00 til 11.00. Gufu- bað fyrir konur er opið þriðjudaga og fimmtudaga k I. 13.00 til 20.00 og laugardaga kl. 08.00 til 16.00. Gufu- bað fyrir karla er opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13.00 til 20.00 og sunnudaga kl. 08.(K) til 11.00. Kennsla í sundi fyrir karla og konur er í innilauginni á fimmtudög- um frá kl. 18.30 til 20.00, kennari er Ásdís Karlsdóttir. Síminn er 23260. Skemmtistaðir Hótel KEA: Sími 22200. H100: Sími 25500. Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar Sjúkrahúsið á Akureyri: 22100. Heimsóknartími kl. 15-16 og 19-20. Heilsugæslustöð Dalvíkur: 61500. Afgreiðslan opin kl. 9-16. Mánud., fimmtud. ogföstud. kl. 9-12. Sjúkrahús Húsavíkur: 41333. Heimsóknartími: kl. 15-16 og 19- 19.30. Sjúkrahús Siglufjarðar: 71166. Heimsóknartími kl. 15-16 og 19-20. Heilsugæslustöð Þórshafnar: 81215. Héraðslæknirinn, Ólafsfirði. Læknastofa og lyfjagreiðsla: 62355. Sjúkrahúsið á Sauðárkróki: 5270. Heimsóknartími: I5-16og 19-19.30. Héraðshæli Austur-Húnvetninga: 4206, 4207. Heimsóknartími alla daga kl. 15-16 og 19.30-20. Læknamiðstöðin á Akureyri: 22311. Opið 8-17. Lögregla, sjúkrabílar og slökkviliðið Akureyri: Lögregla 23222, 22323. Slökkvilið og sjúkrabíll 22222. Húsavík: Lögregla 41303, 41630. Sjúkrabíll 41385. Slökkvilið 41441. Dalvík: Lögregla 61222. Sjúkrabíll, á vinnustað 61200 (Eiríkur), heima 61322. Ólafsfjörður:Lögregla og sjúkrabíll 62222. Slökkvilið 62115. Siglufjörður: Lögregla og sjúkrabíll 71170. Slökkvilið 71102 og 71496. Sauðárkrókur: Lögregla 5282. Slökkvilið 5550. Blönduós: Lögregla 4377. Raufarhöfn: Lögregla 51222, heima 51232. Hvammstangi: Slökkvilið 1411. Þórshöfn: Lögregla 81133. Bókasafnið á Raufarhöfn hefur nú opnað aftur á Aðalbraut 37 jarðhæð. Það er opið á miðvikudögum kl. 20.00 til 22.00 og á laugardögum kl. 16.00 til 18.00. StarfsmaðurerMarta Guðmundsdóttir. Apótek og lyfjaafgreiðslur Akureyrarapótek og Stjörnuapótek: Virka daga er opið á opnunartíma búða. Apótekin skiptast vikulega á um að sinna kvöld-, nætur- og helgi- dagavörslu. Á kvöldin er opið í því apóteki sem sér um þessa vörslu til kl. 19ogfrákl. 21-22. Áhelgidögum eropiðfrákl. 11-12,15-16og20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í síma 22445. Hvammstangi, lyfsala: 1345. Siglufjörður, apótek: 71493. Dalvíkurapótek: 61234. 10 -DAGUR 15. jaríuar1d82 Sjónvarpsmyndin í kvöld er finnsk frá árinu 1980 og heitir á íslensku „Uppreisnin í mýrinni“. I myndinni er fjallað á gamansaman hátt um viðleitni gamals bónda að afla sér skjótfengins gróða. Laugardagur 16. janúar 16.30 íþróttir. Umsjón: Bjami Felixson. 18.30 Riddarinn sjónum- hryggi. Áttundi þáttur. Spænskur teiknimyndaflokkur um farandriddarann Don Quijote og skósvein hans, Sancho Panza. Þýðandi: Sonja Diego. 18.55 Enska knattspyrnan. Umsjón: Bjami Felixson. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Shelley. Breskur gamanmynda- flokkur um Shelley, gaml- an kunningja úr Sjónvarp- inu. Fyrsti þáttur. 20.55 Hann var ástfanginn. (Blume in Love). Bandarísk bíómynd frá 1973. Leikstjóri: Paul Mazur- sky. Aðalhlutverk: George Segal, Susan Anspack, Kris Kristoffer- son og Sheley Winters. Myndin gerist í Feneyjum og fjallar um Stephen Blume, lögfræðing, sem er skilinn við konu sína, en elskar hana enn. 22.45 Syndir feðranna. (Rebel Without a Cause). Endursýning. Bandarisk bíómynd frá ár- inu 1955. Leikstjóri: Nicholas Ray. Aðalhlutverk: James Dean, Natalie Wood og Sal Mineo. Miðaldra hjón, sem hvergi virðast ná að festa rætur til frambúðar, flytjast enn einu sinni búferlum með stálpaðan son sinn. Mynd þessi var áður sýnd í Sjónvarpinu 1. ágúst 1970. 00.35 Dagskrárlok. Sunnudagur17. janúar 16.00 Sunnudagshugvekja. Sóra Guðmundur Sveins- son, skólameistari flytur. 16.10 Húsið á sléttunni. Tólfti þáttur. Flótta- menn. Þýðandi: Óskar Ingimars- son. 17.00 Saga járnbrautalest- anna. Fimmti þáttur. Brautin langa. Þýðandi: Ingi Karl Jó- hannesson. Þulur: Einar GunnarEin- arsson. 18.00 Stundin okkar. í þessum þætti verða sýndar myndir frá árlegri þrettándagleði, sem hald- in er í Vestmannaeyjum, tvær systur, Miriam og Judith Franziska Ing- ólfsson, spila á selló og fiðlu, nemendur úr Hvassaleitisskóla kynna rithöfundinn Stefán Jónsson, sýndar verða teiknimyndir, áfram verð- ur haldið með kennslu táknmáls og Þórður verð- ur á staðnum að vanda. Umsjón: Bryndís Schram. 18.50 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Sjónvarp næstu viku. Umsjón: Magnús Bjarn- freðsson. 20.40 Nýjar búgreinar. Fyrsti þáttur af þremur um nýjar búgreinar á ís- landi. Þessi þáttur fjallar um kornrækt hérlendis. Umsjón: Valdimar Leifs- son. 21.00 Eldtrén í Þíka. Sjöundi og síðasti þáttur. Breskur framhalds- myndaþáttur um land- nema i Afríku snemma á öldinni. Þýðandi: Heba Júlíus- dóttir. 21.50 Tónlistin. Framhaldsmyndaflokkur um tónlistina. Fimmti þáttur. Öld einstaklings- ins. Leiðsögumaður: Yehudi Menuhin. Þýðandi og þulúr: Jón Þórarinsson. 22.40 Dagskrárlok. Síðasti þátturinn i framhaldsmyndaflokknum „Eldtrén í Þíka“ er á dagskrá á sunnudagskvöld kl. 21. Myndin sýnir mæðgurnar sem mest koma við sögu í þáttunum. Föstudagur 15. janúar 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Ádöfinni. Umsjón: Karl Sigtryggs- son. 20.45 Popptónlistarþáttur í um- sjá Þorgeirs Ástvalds- sonar. 21.50 Uppreisn í mýrinni. (Kátkáláinen). Finnsk sjónvarpsmynd frá 1980. Myndin segir á gaman- saman hátt frá viðleitni fátæks bónda til að afla skjótfengins gróða. Þýðandi: Kristín Mántylá. 23.10 Dagskrárlok. Sjónvarp um helgina Lágmarkskrafa að menn þekki fréttareglur I fýrrakvöld kom forkostulegur pistill í þættinum „Á vettvangi" í útvarpinu. Pistilinn samdi Guð- brandur Magnússon, sem undan- farið hefur sent pistla frá Akureyri í þennan þátt. í þættinum voru reglur Ríkisútvarpsins um frétta- flutning þverbrotnar með alls kyns dylgjum og athugasemdum, svo vart verður orða bundist. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem Guð- brandur gerir sig sekan um óvönd- uð, eða vísvitandi ósæmileg vinnu- brögð, því hver man ekki einhliða áróðurinn sem fram kom í „kant- steinamálinu" margfræga, sem reyndum útvarpsmönnum, sem þekkja vinnureglur á þeim bæ, hefði jafnvel ekki dottið í hug að fara með á öldur Ijósvakans. í reglugerð um Ríkisútvarp segir orðrétt: „Fréttir þær sem Ríkis- útvarpið flytur af eigin hvötum og á eigin ábyrgð, mega ekki vera blandnar neins konar ádeilum eða hlutsömum umsögnum, heldur skal gætt fyllstu óhlutdrægni gagn- vart öllum flokkum og stefnum í opinberum málum, stofnunum, félögum eðaeinstaklingum." Hvað segja menn um eftirfarandi máls- grein úr oíangreindum pistli með hliðsjón af þessari reglu? Hún LJin dagskrána: hljóðaði svo: „Reyndar eru bæjar- stjórnarfundir opnir almenningi, en yfirleitt sjást þó mjög fáir í bæjarstjórnarsalnum til þess að hlusta á það sem þar fer fram, enda eru fundirnir á vinnutíma. Hér á Akureyri hefjast þeir klukkan 4 á þriðjudögum, þegar allt venjulegt fólk er í vinnu. Þar að auki eru þessir fundir ekki auglýstir opin- berlega. Hvort fúndartíminn er val- inn með tilliti til þess, að almenn- ingur geti ekki mætt, skal ósagt látið, en hver maður hlýtur að sjá að tíminn er ekki sérlega hentug- ur. “ Ef þessi umsögn er ekki bland- in ádeilum og hlutsömum umsögn- um, þá hafa þessi orð breytt um merkingu án minnar vitundar. Annað dæmi úr sama pistli: „Bæjarblöðin eru bæði flokkspóli- tísk málgögn og því dáiítið erfitt að treysta frásögnum þeirra af gangi mála í bæjarstjóm, þó þessi bless- uð blöð séu ekki alvond.“ Um bæjarmálefnin sagði enn- fremur í pistlinum: „Hvers vegna bæjarfulltrúarnir hafa ekki enn gert ráðstafanir til að bæjarbúar fylgist betur með störfum þeirra, er ekki á hreinu. Sumir þeirra kæra sig ef til vill alls ekki um að almenn- ingur sé vel upplýstur . . .“ Það verður að gera þá lágmarks- kröfu til þeirra sem vinna fyrir ríkisfjölmiðlana, að þeir þekki þær reglur sem gilda um flutning efnis. Menn hvorki mega né geta flaggað persónulegum skoðunum, sem e.t.v. má rekja til þess að þeim hef- ur misheppnast eitthvað á lífs- hlaupinu. Varðandi pólitík er rétt að það komi fram, að til er annars konar pólitík en flokkspólitík. Ég veit ekki betur en kvennaframboðið á Akureyri berjist fyrir opnara bæjarkerfi. Er Guðbrandur að draga taum og koma á framfæri baráttumálum kvennaframboðs- ins? Þau geta að vísu verið góð og gild og verð fyllstu athygli, en „kaf- bátahernaður“ til að stuðla að framgangi einnar stefnu á kostnað annarra á hins vegar ekki heima í Ríkisútvarpinu. H.Sv.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.