Dagur - 22.01.1982, Síða 3
„Þá gátum við skálað
aftur með bestu
samvisku
Nýja árið steig yfir þröskuldinn
hjá okkur á Kringsjárbæjum
með litlum fyrirgangi. Áramót-
in voru álíka og við þekktum að
heiman: Forsætisráðherran
jarmaði í sjónvarpinu og bað
láglaunafólk að heimta ekki
hærra kaup, heldur spenna
beltin og bíða eftir brotlending-
unni. Um miðnættið hvfldu
menn sig á umræðum um
vopnakapphlaupið og skutu
eldflaugum útí buskann. Morg-
uninn eftir var heilsan svona
upp og niður og útvarpið til-
kynnti afnám verðstöðvunar.
Allt hækkaði sem hugsast gat.
Æ, hvað þetta var allt saman
kunnuglegt.
Þið vitið auðvitað að við höf-
um engann forseta hér, heldur
kóng. Ólafur kóngur heilsaði
upp á okkur á sjónvarpsskerm-
inum á gamlárskvöld og bað
okkur öll vel að lifa á nýja ár-
inu. Góðlegur karl og vinsæll
meðal þegna sinna. Það verður
þó að segjast eins og er að hann
er skelfllega óáheyrilegur
ræðumaður, og hefur víst verið
það alla tíð, er mér sagt. Ég
spurði norskan útvarpsfrétta-
mann einu sinni hvers vegna
svo sárasjaldan væri útvarpað
beint frá athöfnum þar sem
kóngur talar, til dæmis þegar
hann setur Stórþingið á haust-
in. Fréttamaðurinn sagði skýr-
inguna bara vera þá að þeir út-
varpsmenn vildu hlífa þegnun-
um við að hlýða á mismæli
kóngsins síns. Hvað um það,
það var ansi gaman að heyra og
sjá kónginn á skerminum á
gamlárskvöld. Ég tók lika eftir
því að hann minntist ekki einu
orði á menninguna einsog okk-
ar eigin Vigdís gerir stundum
þegar hún tekur til máls á opin-
berum vettvangi. Það þótti mér
ágæt tilbreyting.
Skálað í tvígang
fyrir nýju ári
Svo var allt í einu komið nýtt ár og
tími til kominn að lofa sjáífum sér
því að vera góður strákur eins
lengi og gengið gæti. Við á Kring-
sjárbæjum skáluðum eins og vera
bar á slaginu klukkan 24 að
norskum tíma og stilltum síðan
sjónvarpið á Svíþjóð til að sjá
Gústa kóng ávarpa sína þegna.
Aldrei hafa Jarðbrúarbræður ver-
ið jafn konungshollir um áramót
sem nú. Ekki spillti fyrir að
ABBA flokkurinn (samanber Jón
Múli) sendi okkur eitt lag eða svo
eftir að kóngur hafði lokið sér af.
ABBA er nefnilega uppáhalds-
hljómsveitin mín þó ég fari alltaf
fremur hljóðlega með skoðanir
mínaríþeimefnum. Þegar hér var
komið sögu, var klukkan eitt að
staðartíma - miðnætti að ykkar
tíma heima á klakanum. Þá gátum
við skálað aftur með bestu sam-
visku. Við höfðum það fram yfir
bæði ykkur heima og Norðmenn
hérna að geta haldið upp á tvenn
áramót.
Öll hjólin frusu föst
Desembermánuður var óskap-
lega kaldur hér í landi. Víða
mældist meira frost að meðaitali í
desember en dæmi eru um í eina
Nýkomið
Hudson sokkabuxur
í öllum stærðum
öld. Janúaf heilsaði ekki síður
kuldalega. Dag eftir dag mældist
frostið hér í Osló 17-25 stig. Sem
betur fer eru hér oftast vindstillur
svo það er ekki svo bölvað að vera
úti í gaddinum ef ullarfatnaður er
ekki sparaður. Verra var það við
suðurströndina þar sem rakur
vindur bættist við, reft eins og að í
Reykjavík er miklu kaidara í 10
stiga frosti en á Akureyri við sama
hitastig. Inn til landsins í Noregi
austanverðum fóru kvika-
silfursúlurnar á hitamælunum
lengst niður. Mest mældist frostið
í Guðbrandsdalnum og í Tynset í
Hedmarkfylki 52 stig. Um miðjan
dag mældist jafnvel frostið þar um
slóðir 40-50 stig.Elstu menn
muna ekki annan eins fimbulvet-
ur. Auðvitað reyndu menn að
halda sig innan dyra sem mest,
enda erfitt að klæða af sér 40 stiga
frost svo þolanlegt sé! Bílar neit-
uðu að fara í gang hvernig sem að
þeim var farið. Rafmagnsforhit-
arar dugðu heldur ekkert til. Eina
leiðin var að hafa þá inni í upphit-
uðum bílskúr. Eitt Oslóardag-
blaðanna sendi fréttamann og
ljósmyndara upp í Hedmark að
afla frétta af frosnu fólki. Osló-
búar vissu ekki að þegar einu sinni hitamæiinum fari upp fyrir núllið
á einstaka stöðum næstu daga. í
dag brugðum við Guðrún okkur á
skíði og gengum um nágrennið í
vetrarveðri sem var þannig að
ekki er hægt að hugsa sér betra.
Átta stiga frost, blankalogn og
sólarglampar út við sjóndeildar-
hringinn. Himininn heiður og
trén hrímuð. Ég sem hélt að svona
væri ekki til nema á jólakortum.
Við bara gengum og gengum og
nutum dagsins. Ekki var útsýninu
þó fyrir að fara. Ekki einu sinni
hægt að sj á skóginn fyrir trjánum.
Þegar Norðmaður, sem býr á
sama gangi og við, fór að dásama
veðurlagið við mig, svaraði ég
spekingslega að þetta myndi nú
ekki endast lengi. „Hann“ yrði
brostinn á um miðja vikuna. Ég
lærði nefnilega heima í Dalnum,
að alltaf væri betra aðtaka óvenju
miklu blíðviðri með mátulegri
tortryggni. Hlustað var
eftir brimhljóði við Böggvistaða
sand og kíkt eftir hvort kindur
leituðu heim að húsi eða hrafnar
settust á hlöðumæninn. Að því
búnu var birtur úrskurður veður-
spámanna á Jarðbrú; ekki alltaf
bólginn af bjartsýni. Því varð
ógjarnan trúað að „Hann“ héngi í
blíðunni lengi úr þessu.
Kringsjá, 10. janúar 1982.
Atli Rúnar.
var búið að koma bíl í gang í
Hedmark, þá mátti ekki drepa á
honum fyrr en að notkun lok-
inni.Þeir komu að sjoppu og ætl-
uðu að spyrja til vegar. Á meðan
drápu þeir á bílnum og stoppuðu í
nokkrar mínútur. Ómöglegt
reyndist að koma bílnum í gang
aftur þegar átti að halda af stað,
og hjólin voru auk þess frosin
föst. Eina ráðið var að draga bíl-
hveljuna inn á næsta verkstæði og
þýða hana upp!
Frostið er Norðmönnum dýr-
keypt. Til dæmis er kyndingar-
kostnaður margfaldur á við það
sem gerist þegar Vetur kóngur
hagar sér eins og hann á að gera.
Olía brennur og brennur, koks
selst sem aldrei fyrr og viðarbútar
í arininn eru illfáanlegir. Aðeins
eitt var jákvætt við kuldann,
fækkun glæpa! Glæpamönnum er
jafn kalt við kuldann og heiðar-
legu fólki. Þess vegna fækkaði
innbrotum og öðrum afbrotum.
Góöviörinu tekið með
tortryggni
Nú um helgina, þegar þetta er
skrifað, hefur sem betur fer dreg-
ið verulega úr frostinu um allt
land. Veðurfræðingar spá því
jafnvel að kvikasilfurssúlan á
þúert
á beinni
línu til ReykjaviKur
einu sinni í viku
Með aukinni strandferðaþjónustu býður Eimskip þér beint samband við Reykjavík, Akureyri og
ísafjörð einu sinni í viku. Hálfsmánaðarlega er einnig siglt á Siglufjörð og Húsavík og þannig
baldið uppi tíðum og öruggum strandferðum.
Við flytjum fyrir þig jafnt stóra vöru sem smáa i gámum eða frystigámum sé þess óskað. Eimskip
annast að sjálfsögðu flutning alla leið á áfangastað ef það þykir henta, bæði hérlendis og erlendis.
Reykjavík
Aðalskrifstofa Pósthússtræti 2
Sími 27100 - telex 2022
Innanhússlmar 230 og 289
fsafjörður
Tryggvi Tryggvason
Aóalstræti 24
Sími 94-3126
Húsavík
Kaupfélag Mngeyinga
Simi 96-41444
Akureyri
Eimskip v/Strandgötu
Simi 96-24131 - telex 2279
Siglufjörður
Þormóður Eyjólfsson hf.
Slmi 96-71129
Alla mánudaga frá Reykjavík
Á Akureyrí alla miðvikudaga
Alla leió meó
EIMSKIP
SIMI 27100
NOREGSPOSTUR
Atli Rúnar Halldórsson
22. janúar 1982 - DAGUR - 3