Dagur - 22.01.1982, Qupperneq 12
Laus borð á föstudags-
og sunnudagskvöld,
en fullbókað
á laugardagskvöld.
Akureyri, föstudagur 22. janúar
ERUM farin að
afgreiða
þorramat
í trogum og í kössum.
Ur
iiiliiiim
sömhxm
Fráárinu 1956
Árið 1956 var tímamótaár í
sögu Dags. Haukur
Snorrason lét af starfi rit-
stjóra og Erlingur Davíðs-
son tók við. í fyrsta tölu-
blaðinu voru ýmsar fréttir
og eftirfarndi mátti m.a.
lesa á forsíðunni:
Allt landið þyrfti
14 sjónvarpsstöðvar
Til þess að sjónvarp geti
sést um allar byggðir
landsins, þyrfti að reisa 14
stöðvar um ailt landið og er
áætlaður kostnaður við
þetta 30 milljónir króna.
Þetta kom fram í viðtali við
Gunnlaug Briem, verk-
fræðing útvarpsins.
Danslagakeppni á
Sauðárkróki
Kvenfélag Sauðárkróks
efndi til skemmtunar um
hátíðarnar. Þar var nokkur
nýbreytni viðhöfð, en kon-
urnar efndu til danslaga-
keppni og voru þrenn pen-
ingaverðlaun í boði. 1.
verðlaun hlaut Eyþór Stef-
ánsson, 2. verðlaun Agnar
Sveinsson og 3. verðlaun
Haukur Gíslason.
Stórhugur í stafni
Héraðshæli Austur-Hún-
vetninga tók til starfa á
Blönduósi um áramótin.
Kostnaðaráætlun er 5,4
milljónir króna. Þegar hafa
sýsla og sveitafélög greitt
409 þúsund krónur. Frá
einstaklingum og einstök-
um félögum hefur stofnun-
in fengið 600 þúsund krón-
ur og hið opinbera hefur
lagt fram 1,6 milljónir
króna. Mismunurinn er
lausaskuldir og lán.
Héraðshælið er merkur
áfangi í heilbrigðismálum
Húnvetninga og hafa marg-
ir lagt hönd að verki og
stórhugur verið í stafni.
PállV. Kolka héraðslæknir
og kona hans Björg, hafa
ósleitilega unnið að fram-
gangi málsins frá fyrstu tíð
og hafa verið drifijöðrin i
öllum framkvæmdum. Jón
ísberg hefur séð um reikn-
ishald.
Almennar veittu
verðlaun
Eins og fyrri fréttir greina,
hóf Gagnfræðaskóli Akur-
eyrar kennslu í umferðar-
reglum og umferðarmenn-
ingu, þegar fimleika-
kennsla var lögð niður í
skólanum vegna mænu-
yeikinnar í vetur. Gísli
Ólafsson lögregluþjónn og
vaktstjóri í lögregluliði Ak-
ureyrarkaupstaðar, annað-
ist kennsluna ásamt fim-
leikakennurum skólans
Þórhöllu Þorsteinsdóttur
og Haraldi Sigurðssyni.
Veitt voru verðlaun í
febrúar, en þau voru papp-
írshnífar úr stáli með áletr-
un tryggingafélagsins.
Þeir, sem fengu 1. ágætis-
einkunn við próflausnir
námskeiðsins voru þessir
nemendur: Gísli Bragi
Hjartarson, Hallfríður
Magnusdóttir og Otto Tul-
inius, öll úr bóknámsdeild
4. bekkjar. Úr landsprófs-
deild 3. bekkjar hlutu
María Jóhannsdóttir og
Halldóra Ágústsdóttir
verðlaun.
Nýja sundlaugin
á Akureyri
Smíði nýju sundlaugarinn-
ar á Akureyri er nú lokið og
verður hún opnuð á laugar-
daginn (7. júlí), segir í Degi
þann 4. júlí, og miðviku-
daginn 11. júlí segir í fyrir-
sögn: Opnun nýju sund-
laugarinnar markar tíma-
mót í sundmálum bæjarins.
Dansar fyrir
Akureyringa
Á forsíðu Dags miðviku-
daginn 26. september segir
að ungfrú Maureen Jem-
met muni koma fram á
tveim fyrstu dansleikjum
haustsins að Hótel KEA.
Við hlið fréttarinnar er
mynd af ungfrúnni á bikiní
og virðist hún vera hin
lögulegasta hnáta.
Besti dómari
landsins
Hann var ekki slorlegur
dómurinn sem Albert
Guðmundsson felldi yfir
Rafni Hjaltalín eftir að Ák-
ureyringar kepptu við
Hafnfirðinga. Að sjálf-
sögðu sigruðu Akureyring-
ar. Rafn Hjaltalín dæmdi
og var Albert spurður um
hans þátt. „Þið eigið besta
dómara landsins,“ segir
Albert ákveðið. „Rafn
Hjaitaiín ætti að koma
suður og lofa fólkinu að sjá
hvernig á að dæma knatt-
spvmu og dómararnir
hefðu líka gott af að sjá
hann dæma.“
Sjónvarpið ætti að
athuga sinn g
Sumir lofa það en aðrir lasta.
Ekki verður farið út I þá sálma
hér, en myndsegulbönd, eða
videó, er hins vegar staðreynd
og þeim fjölgar sífellt sem
kaupa sér myndsegulbandstæki
og leigja sér siðan spólur. Á
Akureyri eru a.m.k. þrjú fyrir-
tæki sem sjá bæjarbúum fyrir
spólum og tækjum ef þeir eiga
þau ekki. Eitt þessara fyrir-
tækja er Videó-leigan og annar
eiganda hennar er Björn Krist-
jánsson.
Björn sagði að barnaefni væri
meðal vinsælasta efnisins sem
fyrirtæki hans lánaði út til al-
mennings, en bætti því við að
erfitt væri að fá efni fyrir börn frá
framleiðendum efnisins. „Við
höfum gert ítrekaðar tilraunir, en
þeir virðast frekar vilja framleiða
hryllings- og kúrekamyndir. En
að sjálfsögðu höfum við einnig
myndir sem allir fjölskyldumeð-
limirnir geta horft á og slíkar
myndir eru mjög vinsælar." Því
næst var Björn spurður um hvort
mikið væri um að myndir frá
Videó-leigunni væru bannaðar
börnum og sagði Björn að það
væri til i dæminu og sagði: „En á
sama tíma og deilt er á videóleig-
urnar, að þar sé aðeins að fá hryll-
ings- og klámmyndir, sýnir sjón-
varpið myndir sem geta flokkast
undir hvort tveggja. Ég held til
dæmis að forráðamenn sjónvarps-
ins ættu að athuga myndina sem
sýnd var síðast liðið laugardags-
kvöld (ló.janúar). Það var svo
sannarlega klámmynd og ekkert
annað.“
„Hvaðan færð þú þínar
spólur?“
„Fyrst og fremst í gegnum
heildsala í Reykjavík. Auk þess
kaupum við myndir af fyrirtækj-
um í Englandi og í Bandaríkjun-
um. Upphaflega vorum við með
myndir sem höfðu ekki tilskilin
leyfi, það er best að viðurkenna
það, en þær myndir eru nú horfn-
ar af okkar skrám og í staðinn
komnar myndir, þar sem greitt er
fyrirhöfundarréttinn. Þærmyndir
eru dýrari í innkaupi, en við vild-
um ekki standa í neinu stríði."
„Regnboginn hefur mikið kom-
ið við sögu í sambandi við videó-
spólur. Verður þitt fyrirtæki með
myndir þaðan?“
„Nei, verslunin Cesar hefur
fengið umboð fyrir myndir frá
Björn var að lokum spurður um
framtíðina í myndsegulböndum.
Hann sagði að nú væri kominri
„videódiskur" á markaðinn. Þessi
diskur minnir einna helst á venju-
lega hljómplötu og er mun ódýr-
ari en videóspólur eins og þær sem
Regnboganum og við verðum
ekki með neinar myndir þaðan.“
Það kostar 35 krónur að leiga
eina spólu, sem á er efni er endist í
45 mínútur, og spóluna máttu
hafa fyrir þetta verð í einn sólar-
hring. Hægt er að velja um allt
milli himins og jarðar, en Björn
sagði að lítil hætta væri á að fólk
ánetjaðist vídeóinu, yrði að
“vídeóótum,, eins og sumir kalla
þá, sem mega vart standa á fætur
frá sjónvarpinu.
notaðar eru í dag. Björn sagði að
það væri ekki að efa að diskurinn
ryddi spólunum úr vegi. Það er
ekki hægt að taka upp á diskinn,
frekar en hljómplötuna í skápn-
um þínum, en myndgæði eru
meiri og platan er fyrirferðar-
minni. Það verður einhver bið á
að diskurinn verði alls ráðandi hér
á landi og fram til þess tíma munu
menn notast við spólurnar.
Snyrtivöru- og
skartgripaúrvalið
er hja okkur