Dagur - 05.02.1982, Síða 9

Dagur - 05.02.1982, Síða 9
BARNAYAGNINN Heiðdís Norðfjörð: Hæ krakkar! Hvað haldið þið hara, ég fékk bréf frá ketti, segi og skrifa ketti. Auðvitað skrifaði hann bréfið ekki sjálfur, heldur gerði matmóðir hans það fyrir hann. SNODDI KÖITUR Svona er bréfiö: Kæri þáttur. Ég haföi svo sannarlega gam- an af því, að heyra söguna um Snodda snjókarl. Eg heiti nefnilega líka Snoddi, og það er svo höfðinglegt að sjá nafn- ið sitt svona á prenti. Mér finnst ég hafa öðlast eitthvað, sem ekki margir af mínu kyni geta státað af. Ég gat nú alls ekki lesið þetta sjálfur og þetta hefði alveg farið framhjá mínum skörpu aug- um, ef matmóðir mín (það er sko' mamma mömmu minnar), hefði ekki rekið aug- un í söguna og lesið hana fyrir mig, já og sýnt mér nafn mitt svart á hvftu. Ástæðan fyrir því að ég get ekki lesið sjálfur, er sú, að ég er bara heimilisköttur og þó að ég sé nú að verða 7 ára gamall, þá sé ég ekki fram á það að fá að ganga í skóla, eins og mannanna börn á sama aldri. En ég er snillingur í að koma hugsunum og ósk- um mínum á framfæri, annars væri þetta bréf jú ekki til. En svo er annað, í sama blaði, já meira að segja á sömu síðu, voru uppskriftir úr fiskaf- göngum. Matmóðirmínþurfti endilega að reka augum í það líka. Hún er nú búin að prófa eitthvað af þessum uppskrift- um og ef marka má smjatt og uml hér á matmálstímum, þá hefur þetta verið hið mesta lostæti. Enþaðerekkimergur málsins, heldur það, að hing- að til hef ég setið einn að öll- um fiskafgöngum og vildi gjarnan halda því áfram. Ég er ekki að kvarta vegna þess að ég fái ekki nóg að bíta og brenna, sei, sei nei. En þið hefðuð átt að sjá glott ið á honum fósturbróður mín um (sem er hundur) þegar fiskafgangarnir voru nýttir í annað en mig. Og nú vildi ég bara kæri þáttur, biðja þig að koma því á framfæri fyrir mig, að upp- skriftir úr kjötafgöngum yrðu sem fyrst í blaðinu og sjáum svo til hver glottir. Snoddi köttur. Já þetta er nú bréfið frá hon- um Snodda ketti, og nú getum við ekki gert annað, en að vona að hún Margrét Kristins- dóttir hafi iesið þetta og komi fljótlega með uppskriftir af kjötafgöngum, svo Snodda verði að ósk sinni. Verið þið svo blessuð og sæl. Heiðdís. <0 - I w/ Í71TVIST * Arni Jóhannesson: Fatnaöurinn hef’ur ■nildö að segja Það hefur talast svo til að ég riti nú í vetur smápistla um útivist fyrir Helgar-Dag. Al- mennt um útiveru, gefa ábendingar um hvað er at- hyglisvert að skoða hér nálægt okkur, lýsa göngu- og öku- leiðum og geta um heppilegan búnað til að vera með á ferða- lögum og við náttúruskoðun. Það er öllum hollt að iðka úti- vist eftir getu, og sem betur fer býður yndisfögur og margbreyti- leg náttúra rétt í kringum okkur, ótal möguleikar á hollri útivist við hæfi hvers og eins. Aðalat- riðið er að velja sér viðfangsefni, því víst örvar það fófk til að stunda útiveru sé hún fólgin í einhverju sem veitir áhuga. Má nefna ótal margt: Svo sem að njóta útsýnis, taka myndir, spila golf, stunda hestamennsku og náttúruskoðun af ýmsu tagi. Bara að tveir eða fleiri taki sig saman og ákveði að hittast reglulega og fara út að ganga, getur orðið til þess að á þessu verði regla. Maður er manns gaman og það að vera fleiri, og hafa ákveðið stað og tíma eykur líkur á að verði gengið úti. Það þarf nokkra sjálfsögun til að gera svona einn og reglulega. Börn sem venjast útivist ung, svo sem gönguferðum og náttúrui skoðun með foreldrum sínum, kunna að metá slíkt, og trúað gæti ég því að á slíkum stundum náist samband milli barna og foreldra sem við aðrar aðstæður er erfitt að ná. Nefna má skíða- ferðir og aðrar göngu- ferðir allan veturinn og alveg fram á vor. Ökuferðir og göngu- ferðir, vor og sumar, tengdar fugla- og gróðurskoðun. Lita- dýrð haustsins og jafnvel sjálft skammdegið hefur stn einkenni og dásemdir. Veðrið er það sem fólk setur oft fyrir sig og sé eitthvað að því er ekkert farið, bara setið inni. Auðvitað er best að vera úti í góðu veðri, en við nútímafólk, eigum eða getum átt nóg af hent- ugum fatnaði, sem gerir það að verkum að við vitum lítið af hríð eða rigningu þegar komið cr af stað út. Séu leiðir sem farnar eru, og það sem aðhafst er rétt valið, getur breytilegt veður ver- ið krydd á útiveruna. Sé verið úti í misjöfnu veðri hefur fatnaður- inn mikið að segja. Fólk þarf að vera þannig kætt að því líði vel. Sá sem gengur eftir gangstéttum í bænum getur notað annan fóta- búnað en hinn sem vill bregða sér á stígana í Kjarna eða fara hring upp á Breiðumýri niður hjá fjárréttinni og þaðan suður undir borgirnar og niður hjá Vökuvöllum á Þórunnarstrætið hjá kirkjugarðinum. Á göngu er best að vera í létt- um fötum og áríðandi að skór séu hlýir og rúmi fæturna í góð- um ullarsokkum. Ullarpeysur og ullarhúfa innanundir „anor- akk" með hettu er ágætur bún- aður. Sé verulega kalt er bara að bæta við annarri peysu og þá er lambhúshettan, sem nær vel niður á hálsinn alveg ofan á peysuna góður höfuðbúnaður. Buxur eru góðar úr þéttofnu ullarefni og nærbuxur úr ull. Hnébuxur og háir sokkar er lip- ur búnaður. Léttir gönguskór með hæfilega stífa sóla gróf- mynstraða, reimaðir upp á ökklann, eða alveg upp á kálf- ann eru góðir. Tcnging á skóm og buxum er mikilvæg. Háir skór og sokkar eða lcgghlífar varna því að t.d. snjór fari ofan í skóna eða að gjósi upp undir buxnaskálmarnar og að þær verði blautar. Vaðstígvél eru við viss skilyrði góður fótabúnaður, en mikið oftar eru gönguskór betri. Ullarvettlinga og vind- þéttar „lúffur" eða skinnvett- linga er gott að hafa á höndun- um. Eldra fólk ætti að hafa með sér staf, það er góður vani og veitir öryggi og er til hjálpar yfir t.d. hálkubletti. Ég hef ekkert á móti úlpum, stökkum né öðrum fatnaði yfirleitt, aðalatriðið er að hann sé hlýr og þægilegur og þvingi ekki hreyfingar. Allur þessi létti og lipri fatnaður úr gerviefnum sem er á boðstólum, er svo sem góður og blessaður, en hefur sínar takmarkanir, mikið af honum er of þéttur svo maður svitnar og gufan þéttist innan á fatnaðinum, og svo er skrjáfið leiðinlegt. Sjálfsagt er að hafa svona föt með til að verja sig roki eða regni stutta stund. Það fer lítið fyrir þeim og þau eru svo létt, en verða hin- svegar að teljast ófullnægjandi sem hlífðarföt í lengri ferðum. Áttavita og flautu er sjálfsagt að hafa með sér. Alveg sérstak- lega ætti að venja börn við að hafa áttavita og forvitn- ast með þeim um áttir og kenna þeim að tileinka sér notkun hans. Þetta getur komið sér vel seinna meir og þá við verri skil- yrði. Fyrir þann sem er einn á gangi er flautan sjálfsögð sem hluti af búnaðinum. Sásem dett- ur og brotnar eða snýr sig illa getur blásið í flautu svo heyrist langt og án mikils erfiðis. Að hrópa er bæði erfitt og heyrist stutt. Sólgleraugu og vasahníf og svoleiðis smávegis ber öllum að hafa með. Endurskinsmerki ætti ekki að þurfa að nefna, svo sjálf- sagt er að hafa þau á yfirleitt öll- um útifatnaði. Sá búnaðúr sem talinn er upp hér að framan, er miðaður við að vera notaöur í stuttum ferð- um í bæjarlandinu, en hentar ekkert síður á gönguskíðum nema hvað skóna varðar. Síðar ef rætt veröur um lengri göngu- ferðir verður búnaði sem í þær hentar, lyst sérstaklega. Arni Jóhannesson. 9lvfebrúar 1982- DAGgR-9 ‘iiJlöS, M— ?*UÍJv-. 3 - V

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.