Dagur - 05.02.1982, Qupperneq 10
Dagbók
Hvað er hægt að gera?
Skíði: Skíðamiðstöðin í Hlíðarfjalli
verður opnuð í byrjun janúar verði
nægur snjór. Lyfturnar eru opnar
alla virka daga frá kl. 13.00 til 18.45,
nema þriðjudaga og fimmtudaga til
klukkan 21.45. Eftir 15. febrúar
verður einnig opið fyrir hádegi. Um
helgareropiðkl. 10.00 til 17.30. Veit
ingasala alla daga kl. 9.00 til 22.00.
Sími Skíðastaða er 22930 og 22280.
Sund: Sundlaugin er opin fyrir al-
menning sem hér segir: Mánudaga til
föstudaga kl. 07.00 til 08.00, kl.
12.00 til 13.00 og kl. 17.00 til 20.00,
daugardaga kl. 08.00 til 16.00 og
sunnudaga kl. 08.00 til 11.00. Gufu-
bað fyrir konur er opið þriðjudaga
ogfimmtudaga k I. 13.00 til 20.00og
laugardaga kl. 08.00 til 16.00. Gufu-
bað fyrir karla er opið mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 13.00
til 20.00 og sunnudaga kl. 08.00 til
11.00. Kennsla í sundi fyrir karla og
konur er í innilauginni á fimmtudög-
um frá kl. 18.30 til 20.00, kennari er
Ásdís Karlsdóttir. Síminn er 23260.
Skemmtistaðir
Hótel KEA: Sími 22200.
H100: Sími 25500.
Smiðjan: Sími 21818.
Sjúkrahús
og heilsugæslustöðvar
Sjúkrahúsið á Akureyri: 221 ()(>.
Heimsóknartími kl. 15-16 og 19-20.
Heilsugxslustöð Dalvíkur: 61500.
Afgreiðslan opin kl. 9-16. Mánud.,
fimmtud. og föstud. kl. 9-12.
Sjúkrahús Húsavíkur: 41333.
Heimsóknartími: kl. 15-16 og 19-
19.30.
Sjúkrahús Siglufjarðar: 71166.
Heimsóknartími kl. 15-16
og 19-20.
Heilsugæslustöð Þórshafnar: 81215.
Héraðslæknirinn, Ólafsfirði.
Læknastofa og lyfjagreiðsla: 62355.
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki: 5270.
Heimsóknartími: 15-16og 19-19.30.
Héraðshæli Austur-Húnvetninga:
4206, 4207. Heimsóknartími alla
dagakl. 15-16 og 19.30-20.
Læknamiðstöðin á Akureyri: 22311.
Opið 8-17.
Lögregla, sjúkrabílar
og slökkviliðið
Akureyri: Lögregla 23222, 22323.
Slökkvilið og sjúkrabíll 22222.
Húsavík: Lögregla 41303, 41630.
Sjúkrabíll 41385. Slökkvilið 41441.
Dalvík: Lögregla 61222. Sjúkrabíll,
á vinnustað 61200 (Eiríkur), heima
61322.
Ólafsfjörður:Lögregla og sjúkrabíll
62222. Slökkvilið 62115.
SigluQörður: Lögregla og sjúkrabíll
71170. Slökkvilið 71102 og 71496.
Sauðárkrókur: Lögregla 5282.
Slökkvilið 5550.
Blönduós: Lögrcgla 4377.
Raufarhöfn: Lögregla 51222, heima
51232.
Hvammstangi: Slökkvilið 1411.
Þórshöfn: Lögrcgla 81133.
Sjónvarp um helgina
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Ádöfinni.
Umsjón: Karl Sigtryggsson.
20.50 Allt í gamni með Harold Lloyd.
21.15 Fréttaspegill.
Umsjón: Bogi Ágústsson.
21.50 Hvað kom fyrir Baby Jane?
(What Ever Happened to Baby
Jane?)
Bandarísk bíómymd frá 1962.
LeikstjórúRobert Aldnch. Aðal-
hlutverk: Bette Davis, Joan Craw-
ford og Victor Buono.
Myndin fjallar um tvær systur,
sem báðar eru leikkonur. Önnur
átti velgengni að fagna ung, en
hin verður fræg kvikmyndaleik-
kona síðar. Þannig hafa þær hlut-
verkaskipti og þau koma óneitan-
lega niður á samskiptum þeirra.
Þýðandi: Guðrún Jörundsdóttir.
Myndin er ekki við hæfi barna.
00.00 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR
16.30 íþróttir.
Umsjón: Bjami Felixson.
18.30 Riddarinn sjóumhryggi.
Ellefti þáttur.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Shelley. Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur um
letiblóðið Shelley.
Þýðandi: Jóhanna Jóhannsdóttir.
21.00 Sjónminjasafnið. Annar þáttur.
Dr. Finnbogi Rammi, forstöðu-
maður Sjónminjasafnsins grams-
ar í gömlum sjónminjum.
21.35 Furður veraldar. Þriðji þáttur.
Forn viska.
Framhaldsmyndaflokkur um
furðufyrirbæri.
Leiðsögumaður: Arthur C. Clarke.
Þýðandi: EUert Sigurbjömsson.
22.00 Konur í ástarhug.
(WomeninLove).
Bresk bíómynd frá 1969. Leik-
stjóri: Ken RusseU. Aðalhlutverk:
Glenda Jackson, Jennie Linden,
Alan Bates og Oliver Reed.
Tvær systur í litlum breskum
námabæ kynnast tveimur karl-
mönnum. Myndin segir frá kynn-
um og samskiptum þessara fjög-
urra einstaklinga.
Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir.
00.05 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR
16.00 Sunnudagshugvekja.
Ásgeir B. EUertsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni.
17.00 Óeirðir. Nýr flokkur.
Fyrsti þáttur. Hernám.
Breskur framhaldsmyndaflokkur í
sex þáttum. Þættirnir fjaUa um
ástand mála á Norður-írlandi. í
fyrsta þætti er rakin forsaga skUn-
aðar Norður-írlands og írska lýð-
veldisinsáriðl921oger horfið aUt
aftur tfl sextándu aldar og stiklað
á stóru fram tU páskauppreisnar-
innar 1916.
Þýðandi: Bogi Arnar Finnboga-
son.
Þulur: Sigvaldi JúUusson.
18.00 Stundin okkar.
Meðal efnis verður heimsókn að
Sólheimum í Grímsnesi, þar sem
búin em tU kerti; litið verður inn á
brúðuleikhússýningu, sem farið
hefur verið með í skóla á vegum
ALFA-nefndarinnar, en umsjón
með sssýningum hafa þær HaU-
veig Thorlacius og Helga Steff-
ensen. Þá les Kjartan Amórsson
tefltnimyndasögu eftir sjálfan sig.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
Umsjón: Magnús Bjamfreðsson.
20.50 Stiklur. Sjöundi þáttur.
Handafl og vatnsafl.
Víða á Suðurlandi em ummerki
um stórbrotin mannvirki, sem
gerð vom fyrr á öldinni tU þess að
verjast ágangi stórfljótanna og
beisla þau. Staldrað er við hjá shk-
um mannvirkjum í Flóa og við
Þykkvabæ. Einnig er komið við hjá
Geysi í Haukadal, sem leysa má úr
læðingi með einfaldri aðgerð á
gígskáhnni. Myndimar frá Geysi
vom teknar sl. haust eftir þá um-
defldu breytingu, sem gerð var á
þessum fræga hver, og vom þær
myndir sýndar sérstaklega föstu-
daginn 22. janúar sl.
Myndataka: Einar PáU Einarsson.
Hljóð: Vilmundur Þór Gíslason.
Umsjón: Ómar Ragnarsson.
21.30 Fortunata og Jacinta. Þriðji
þáttur.
Spænskur framhaldsmyndaflokk-
ur byggður á samnefndri sögu
eftir Benito Pérez Galdós.
Þýðandi: Sonja Diego.
22.30 Nýja kompaníið.
Djassþáttur með Nýja kompa-
nflnu. í hljómsveitinni em þeir
Tómas R. Einarsson,Sigurður H.
Flosason, Sveinbjöm I. Baldvins-
son, Sigurður G. Valgeirsson og
Jóhann G. Jóhannson.
Stjómandi upptöku: Tage
Ammendmp.
22.50 Dagskrárlok.
Þaft er betra að hafa sjónvarpið í lagi um helgina.
Mynd: áþ.
Myndir af atburðum
Bókasafnið á Ólafsfir.cOpift alla
virka daga frá kl. 16 til 18, nema
mánudaga frá kl. 20 til 22. Böka-
vörðurer Erla.
Bókasafnið á Raufarhöfn hel'ur nú
opnað aftur á Aftalbraut 37 jarðhæð.
Það er opið á miðvikudögunr kl.
20.00 til 22.00 og á laugardögum kl.
16.00 til 18.00. StarfsmaðurerMarta
Guðmundsdóttir.
Apótek og lyfjaafgreiðslur
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek:
Virka daga er opið á opnunartíma
búða. Apótekin skiptast vikulega á
um að sinna kvöld-, nætur- og helgi-j
dagavörslu. Á kvöldin er opið í þvi
apóteki sem sér um þcssa vörslu til
kl. 19ogfrá kl. 21-22. Á helgidögum
cropiðfrákl. 11-12. l5-16og20-21.
Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á
bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í
síma 22445.
Hvammstangi, lyfsala: 1345.
Siglufjörður, apótek: 71493.
Dalvíkurapótek: 61234.
Einn vinsælasti dagskrárliðurinn
í ríkisfjölmiðlunum er án efa
fréttirnar. Rétt fyrir klukkan sjö
á kvöldin setjast þúsundir lands-
manna niður við kvöldverðar-
borðið og kveikja á útvarpinu og
stundu síðar, þegar fjölskyldan
hefur komið sér þægilega fyrir í
stofunni, er sjónvarpið sett af
stað Hittersvoafturannað mál
að hafi. fjölskyldan hlustað á út-
varpsfréttirnar klukkan sjö, er
afskaplega ólíklegt að sjónvarp-
ið geti komiö fólki á óvart. Yfir-
leitt eru sjónvarpsfréttirnar
mjög keimlíkar útvarpsfréttun-
um svo nánast er um upprifjun
að ræða. „Viö öðru er ekki að
búast. Þessir tveir fjölmiðlar
þurfa að fjalla um sömu atburði.
Láttu þér þá nægja að horfa á
sjónvarpið eða hlusta á útvarp-
ið. Hættu að gagnrýna," kann
einhver að segja, en ég ætla samt
sem áður ekki að láta staðar
numið.
Að sjálfsögðu eru til þeir at-
burðir sem bæði útvarp og sjón-
varp taka til umfjöllunar. Til
dæmis er oft sagt frá sömu at-
burðum á Alþingi á báðum
stöðum. En sjónvarpið er óneit-
anlega í mun sterkari aðstöðu -
það getur sýnt myndir af vett-
vangi, það getur brugðið upp
svipmyndum af því sem um, er
rætt, en útvarpið verður að láta
sér nægja hið talaða orð. Ef af
hverju notfærir sjónvarpið sér
ekki mun meir þá möguleika
sem það hefur? Eg kann ágæt-
lega við andlit Magnúsar Bjarn-
freðssonar og Sonju Diego svo
dæmi séu tekin, en mergurinn
málsins er sá að í sjónvarpi á
ekki að lesa freftir í belg og biðu
og sýna stöðugt myndir af þeim
sem les - það eru atburðirnir
sem skipta máli. Sjónvarpið hef-
ur möguleika á að sýna fólki
hvað gerðist í rauninni.
Sá grunur læðist að mér að
samskipti tæknideildar sjón-
varpsins og fréttastofunnar gætu
verið betri, mér finnst eins og
„tímavinnuhugsjónin“ sé ríkj-
andi í tæknideildinni og að hún
Fjölmiðlar
geti lagt mun meir af mörkum til
þess að lífga upp á fréttir. Það
getur t.d. varla verið mikið verk
að fletta upp í spjaldskrá þegar
ræða á um loðnuveiðar og finna
filmu af slíkum veiðiskap. Sé
það vitað að morgni dags að um
kvöldið verði sagt frá höfninni í
Keflavík getur það tæpiega vat-
ist fyrir tækniliðinu að fara suður
í Keflavík og taka þar myndir.
Hver sekúnda í fréttatíma
sjónvarps er dýrmæt og á undan-
förnum árum hefur mörg sek-
úndan farið forgörðum vegna
mistaka. Skiptingar eru oft
ónákvæmar og rangar myndir
koma á skjáinn - þá loks þær
koma. Sjóvarpsþulir og frétta-
menn, bíða stundum vandræða-
legir meðan fimir fingur tækni-
manna eru að vandræðast bak
við vélarnar og finna ekki rétta
takka.
Við vitum að það er hægt að
gera betur og eflaust vantar betri
tæki til sjónvarpsins. Þau hafa
hins vegar ekki allt að segja - ef
einhvern hluta starfsmannanna
vantar metnað skiptir ekki máli
hve mikið af tækjum verður
innan veggja sjónvarpsins.
10 - DAGUR - 9. febrúar 1982