Dagur - 16.02.1982, Side 1
GULLSMIÐIR
. SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 16. febrúar 1982
18. tölublað
1 M jé
Æ
Ólafiir Friðriksson.
Olafur
Friðriks-
son ráðinn
kaupfélags-
■ ■ / ■ /
stjori a
Sauðár-
króki
Á stjórnarfundi í Kaupfélagi
Skagfirðinga sl. föstudag, var
einróma samþykkt að ráða
Olaf Friðriksson núverandi
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri,
sem kaupfélagsstjóra Kaupfé-
lags Skagfirðinga. Að sögn
Guttorms Óskarssonar frétta-
ritara Dags, ríkir mjög almenn
ánægja með ráðningu Ólafs.
Ólafur Friðriksson sagði í sam-
tali við Dag að vissulega væri það
erfitt að fara frá Kópaskeri, en
hann hefði langað til að takast á
við stærri verkefni og einnig hefðu
menn lagt hart að honum að sækja
um starfið á Sauðárkróki. „Pó svo
margar greinar hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga séu eins eða svipað-
ar því sem gerist hjá okkur á
Kópaskeri er K.S. stærra í sniðum
og með ýmsilegan rekstur sem
ekki er til hér. Ég hlakka til að
takast á við ný verkefni,“ sagði
Ólafur.
Ólafur Friðriksson er fæddur
og uppalinn á Kópaskeri. Hann
útskrifaðist frá Samvinnuskólan-
um að Bifröst vorið 1974 og starf-
aði sem kaupfélagsstjóri hjá
Kaupfélagi Langnesinga á Þórs-
höfn í tæp tvö ár, en þá var hann
ráðinn sem kaupfélagsstjóri til
Kópaskers, þar sem hann hefur
verið síðan. Ekki er afráðið
hvenær Ólafur tekur til starfa á
Sauðárkróki.
Aðeins um 50% félaga tóku þátt í stjórnarkjörinu:
Jón Helgason áfram
formaður Einingar
— A-listinn hlaut rösklega 60% atkvæða
Stjórnarkjörinu í Einingu lauk
með sigri A-Iistans, sem hlaut
61% greiddra atkvæða. Jón
Helgason verður því áfram
formaður Einingar. B-listinn,
sem borinn var fram af Jóni
Þorsteinssyni og fleirum hlaut
36% greiddra atkvæða. AIIs
tóku um 1.700 manns þatt í
kosningunni, sem er um 50%
félagsmanna í Einingu. Þetta er
mun slakari kjörsókn en var í
t.d.kosningunum 1974 og 1975,
en þessi ár tóku um 63% félags-
manna þátt í kosningunni.
„Ég þakka sigurinn því að nægi-
lega margt fólk var tilbúið til að
standa að óbreyttu stjórnar-
fyrirkomulagi. Fólk er ekki tilbú-
ið til byltingakenndra aðgerða í
þessu þjóðfélagi," sagði Jón
Helgason í samtali við blaðið. „Sá
hópur sem stóð að B-listanum var
undir skipulagðri stjórn nokkuð
lengi, en það var ljóst að þegar
Guðmundur Sæmundsson tók sér
frí frá vinnu í sumar var hann að
undirbúa jarðveginn.
Ég tel að hlutur A-listans hefði
e.t.v. orðið meiri ef við hefðum
lagt þá vinnu af mörkum sem hinn
hópurinn hefur örugglega eert.
En ég er mjög ánægður með þessa
útkomu og sérstaklega vegna þess
að það var vegið mjög harkalega
að okkur. Guðmundur komst inní
alla fjölmiðla, en við höfðum ekki
tíma til að standa í slíku þvargi.
Ég met þessi úrslit þannig að
við eigum að stjórna á svipaðan
hátt og við höfum gert, en auðvit-
að verður maður alltaf að laga sig
að breyttum aðstæðum," sagði
Jón Helgason að lokum.
Á Akureyri voru atkvæði grekld í Alþýðuhúsinu, en þar var þessi mynd tekin
Mynd: KGA.
Samningar takast
milli KEA og KVA
A fundi stjórnar K.E.A. sem
haldinn var fyrir skömmu var
staðfestur endanlega samning-
ur sem gerður var við stjórn
Kaupfélags Verkamanna, en
samkvæmt honum keypti
K.E.A eignir K.V. og tók að
sér greiðslu skulda félagsins.
Forsaga þessa máls er sú að um
mitt sl. sumar kom fram beiðni frá
forsvarsmönnum K.V. um sam-
einingu K.V. við K.E.A. Félögin
skipuðu viðræðunefndir um málið
og í upphafi miðuðu viðræðurnar
að því að fram færi félagsleg sam-
eining á grundvelli laga um sam-
vinnufélög. Slík sameining er hins
vegar seinvirk vegna ákvæða lag-
anna og í ljós kom að flestir fé-
lagsmanna í K.V. eru einnig fé-
lagsmenn í K.E.A.
Til að greiða fyrir skjótum
framgangi málsins var því horfið
að því ráði að K.E. A. keypti eign-
ir K.V. og tæki að sér greiðslu
skulda þess.
Eignir þær, sem K.E.A. kaupir
af K.V. eru í aðalatriðum hús-
eignirnar Strandgata 9 og hluti
K.V. í Strandgötu 7. Ennfremur
allar innréttingar og áhöld K.V.,
svo og vörubirgðir, sendiferða-
bifreið og útistandandi skuldir.
K.V. hafði hætt verslunarstarf-
semi sinni um það leyti er það tók
upp samninga við K.E.A. og var
lokun sölubúða félagsins algjör-
lega óháð samningum við K.E. A.
Ekki hefur enn verið ákveðið á
hvern hátt K.E.A. mun nýta hús-
eignir þær og lóðir sem keyptar
voru af K.V. Erþað til athugunar
í sambandi við mótun á framtíðar-
stefnu félagsins í skipulagi smá-
söluverslunar á Akureyri.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar:
Reynt að halda eftir fé til framkvæmda
Fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar verður lögð fram í bæjar-
stjórn til fyrri umræðu í dag.
Að sögn Sigurðar Óla Brynj-
ólfssonar, bæjarfulltrúa,
endurspeglar þessi áætlun þá
verðbólguþróun sem átt hefur
sér stað hér á landi undanfarin
misseri.
Tekjur eru nú áætlaðar 153.7
milljónir króna og er það hækkun
um 50.2% frá fyrra ári. Rekstr-
argjöldunum er tvískipt: í fyrsta
lagi hrein rekstrargjöld, sem nú
eru áætluð 105.8 milljónir króna,
en það er59.6% hækkun og í öðru
lagi gjaldfærður stofnkostnaður
sem er áætlaður 25.6 milljónir
króna og er hækkun um 42.8%.
Meðalhækkun á þessum rekstrar-
liðum er 50.2%. Hækkunarpró-
senta er misjöfn á einstökum lið-
um rekstursins. Fjármagnskostn-
aður vex um 144%, en langmesta
krónuhækkunin er á liðnum Fé-
lagsmál, sem nú er áætlaður 28.7
milljónir króna og hækkar um
87,2%. Inn á þessum lið eru fram-
lög bæjarins til tryggingasjóða,
Byggingarsjóðs verkamanna og
fleiri sjóða, samtals að upphæð
15.5 milljónir króna, sem er
95.1% hækkun. Þá vaxa rekstrar-
gjöld fræðslumála, heilbrigðis-
mála og til fegrunar og skrúð-
garða um 51 %, en aðrir gjaldalið-
ir minna.
Mismunur tekna og rekstrar-
gjalda er samkvæmt áætluninni
22.3 milljónir króna, sem er
14.5% af tekjum ársins, á móti
17.7% á síðastliðnu ári. Gert er
ráð fyrir lántökum að upphæð nær
18 milljónum króna þar af um 5.8
milljón krónur vegna gengismun-
ar og verðbótá á lán sem bærinn
hefur tekið. Afborganir eldri lána
eru áætlaðar 11.2 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir skerðingu
veltufjár bæjarsjóðs um 2 milljón-
ir króna, vegna góðrar innheimtu
og stöðu um síðustu áramót.
Samkvæmt áætluninni verður
varið 27 milljónum króna til ný-
bygginga, en þá er meðtalið fram-
lag ríkisins til skólabygginga,
íþróttamannvirkja og dagvistar
að upphæð 6.9 milljónir króna.
Til vélakaupa er áætlað að verja 6
milljónum króna.
„Það gekk bæði vel og illa að
koma áætluninni saman, en reynt
var að halda eftir fé til fram-
kværnda," sagði Sigurður Óli.
„Staðan í fjármálum sveitarfélaga
er yfirleitt erfið og rekstrarútgjöld
og umsvif vilja vaxa bæði meðvit-
að og stundum ómeðvitað, en
ekki síst vegna ýmissa laga og
reglugerða, sem löggjafinn setur,
og kostar sveitarsjóði mikið fé, án
þess að niður séu felld verkefni
eða að tekjupóstar komi í staðinn.
Þessi þróun hefur staðið undan-
farna áratugi. Aðeins einu sinni
varð veruleg lagfæring sveitarfé-
lögunum í vil, en það var fyrir ein-
um áratug eða svo.“