Dagur - 16.02.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 16.02.1982, Blaðsíða 5
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRIOG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Tveggja ára stjómarsamstarf Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen er tveggja ára um þessar mundir, en hún tók við völdum 8. febrúar 1980. Til stjórnarsamstarfsins var stofnað við mjög erfiðar aðstæður, auk þess sem stjórnin var saman sett á býsna óvenju- legan hátt. Landið hafði verið stjórnlítið frá því í sept- emberlok 1979, eða nokkuð á fimmta mánuð. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum í febrúar var efnahagslífið afar ótryggt, verðbólga meiri en nokkru sinni og atvinnufyrirtæki víða að stöðvast, reyndar þegar stöðvuð sums staðar á landinu. Slík var aðkoman þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Þetta kemur meðal annars fram í grein sem Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra, skrif- aði í Dag í tilefni af tveggja ára starfi ríkis- stjórnarinnar. Hann segir í grein sinni, að fyrstu 11 mánuði ríkisstjórnarinnar, fram að áramótum 1980-1981, hafi farið í að forða atvinnulífinu frá stöðvun sem yfir vofði. Skil- yrði fyrir niðurtalningu verðbólgu hafi einfald- lega ekki verið fyrir hendi og árið 1980 leið án þess að niðurtalningu væri við komið. Um áramótin 1980-1981 höfðu loks skapast möguleikar til að gera skipulega áætlun um hjöðnun verðbólgu. Meðal þeirra ráða sem gripið var til, var að hverfa frá gengissigi og fast gengi var ákveðið til nokkurra mánuða. Verðbætur á laun voru og skertar nokkuð á fyrri hluta ársins. Árangurinn varð sá, að verð- bólga varð miklum mun minni árið 1981 en að meðaltali árin á undan. Atvinna hélst mikil og kaupmáttur launa í góðu lagi. Hins vegar var afkoma fyrirtækja mjög mis- munandi. Þróun gengismála varð vissum greinum útflutnings- og samkeppnisiðnaðar óhagstæð, þannig að kostnaðarhækkanir innanlands voru örari en markaðsverð gat ris- ið undir. Gengismálin hafa nú verið tekin til endurskoðunar og aðstaða iðnaðar bætt með því og öðrum aðgerðum, þótt enn þurfi meira til að koma. Horfur í iðnaði ættu að vera betri nú en á síðari hluta ársins 1981. Markmið ríkisstjórnarinnar er að halda áfram stefnunni frá fyrra ári um markvissa niðurtalningu verðbólgustigsins, þannig að verðbólga á líðandi ári vaxi ekki meira en 35% að meðalatali frá upphafi til loka ársins og verði komin í 30% á síðari hluta ársins. Ef þetta markmið á að nást verður að tryggja almenna samstöðu um varanlegar að- gerðir. Þar má enginn skerast úr leik, hvorki atvinnurekendur né launþegar, né heldur ríkisvaldið og aðrir opinberir aðilar. „Verðum að halda opnu fyrir mjólkurbílinn“ „Jú, það er rétt. Það er frem- ur óvanalegt að kvenfólk standi fyrir búi. Það er erfið- ara að eiga við þetta sem kona, þó að ég finni ekki til þess persónulega, þar sem ég hef vanist því frá blautu barns- beini að ganga í öll verk sem tengjast búskapnum,“ sagði Ólöf Þórsdóttir, bóndi á Bakka í Öxnadal, í viðtali við Dag. Hún var þá að sækja nýja dráttarvél sem hún hafði fest kaup á hjá Véladeild Sambandsins á Akureyri. Með í för var sonur hennar, Helgi Þór Helgason. „Maður kaupir víst ekki svona tæki nema einu sinni á ævinni,“ sagði Ólöf og sagði vélina vera af gerðinni Massey Ferguson 575. „Þetta er nú með stærri vélum til heimilisnota, með drifi á öllum hjólum og moksturstækjum sem fylgja. Það kemur sér vel að hafa þessa vél, því við erum að fara í byggingaframkvæmdir og hún á eftir að nýtast vel til þeirra hluta.“ Bakki er nyrsti byggði bærinn í Öxnadal. Jörðin stendur vest- anvert í dalnum og áður voru þrír bæir í byggð nær heiðinni, sem allir eru nú farnir í eyði. „Þetta voru litlar jarðir og sam- göngur voru slæmar,“ segir Ólöf er hún er spurð um ástæðurnar fyrir því að bæirnir fóru í eyði. „Afkoman hefur verið ágæt hjá okkur. Þetta er stór jörð, en erfið, því hún er bæði grýtt og brött. Ég er með blandað bú, 30 kýr og 100 fjár. Ég er búin að standa í þessu síðan 1976, er ég tók við búskapnum af pabba, en ég hef unnið við búskap alla ævi. Samgöngurnar til okkar eru nú ekki allt of góðar, enda erfitt um vik að brúa framan við bæinn. Það eru hins vegar brýr við alla bæina í Öxnadal nema Bakka, þannig að það eru 2 km niður á þjóðveginn frá bænum. það veitir ekki af góðum verk- færum til að komast leiðar sinnar. Við eigum snjóblásaratil að setja aftan á dráttarvélina. Við verðum að halda opnu fyrir mjólkurbílinn. Það hefur ekki verið verulega snjóþungt hjá okkur í vetur né undanfarna vetur og þegar við notum blásarann myndast ekki ruðningar. Á bæjarstæðinu sjálfu geta á hinn bóginn mynd- ast gífurlegir skaflar, svo miklii að húsin fara nánast í kaf og vegurinn hverfur. Við notum yfirleitt litla jarðýtu til að hreinsa af hlaðinu. Skaflarnir myndast í skjóli af Bakkakirkju, sem stendur við bæinn,“ segir Ólöf bóndi, en Bakkakirkja er elsta timburkirkja landsins. Fólkið á Bakka annast um hana, en þar er messað 5-7 sinnum á ári. Sóknin tilheyrir Möðru- vallaprestakalli. Þó Bakki sé nokkuð einangr- aður og fólk þar verði sjálft að ryðja sér braut á vetrum, vilji og jafnvel nokkrar í hverri viku yfir sumartímann. það komast í bæinn, eru ferðir ekki strjálli en það, að tvær ferð- ir eru að jafnaði farnar til Akur- eyrar mánaðarlega að vetrarlagi Ólöf Þórsdóttir, bóndi Ólöf ásamt syni sínum Helga Þór við nýja Fergusoninn. Björgvin Y Júníusson F. 24.1. 1919- D. 8. 2.1982 Kveðjuorð t Kjartan Ólafsson Það var mikil lífsreynsla að kynnast Björgvini Júníussyni. Við unnum saman í gamla daga hjá Leikfélagi Akureyrar, báðir ungir, hann næstum eilífur. Hann bjó til margvísleg leik- hljóð, sérstaklega man ég „Bæ- inn okkar" en þar gerði hann mörg galdraverk á segulband við lélegar aðstæður, en maðurinn göldróttur. Árin fóru fyrir hornið og vin- áttan dafnaði og Björgvin ann- aðist fjölmargar hljóðritanir fyrir mig, ráðlagði margt, þaut með mig um bæinn og sveit að láta mig kynnast merkilegu fólki, sem hann taldi að ætti að geymast á segulbandi. Svo komu kvöldin á Ægis- götunni og við sátum heima f stofu hjá honum og Foldu, dauf Ijós á lömpum og segulbandið snerist á tækinu hans, gamlar minningar í röddum og tónum létu tímann nema staðar snöggvast. Bjartsýni hans, of- boðslega skemmtileg viðhorf hans til lífsins, fleyttu mér yfir dökka steina í lífsfljótinu og hann stóð ævinlega á bakkanum að rétta mér höndina er mikið lá við að ná landi um stund og blása mæðinni. Svoleiðis maður verður eilífur og í mínum huga kom ekki til mála að Björgvin gæti dáið. Líf hans var ekki allt leikur, reynslan bjó honum andlits- drætti sem urðu blíðir er á leið. Og það stóð til að við ynnum saman náið á vegum Ríkis- útvarpsins sem átti hug hans, töluvert af hjarta hans, og ég var fullur af gleði við þá tilhugsun að hafa hann mér við hlið. Hugsa sér þær kvöldstundir sem ég átti í vændum, að láta segulbandið snúast og muna okkur gleðistundir sem fóru fyrir hornið og koma ekki aftur, gerðu okkur undrun og fögnuð, eyddu sársauka. Björgvin var eilífur, annað var af og frá. Nú er Akureyri fátækari en fyrr. Ég vona að Björgvin hafi tek- ið með sér hlátur og gleði þegar hann skrapp fyrir hornið að taka þátt í eilífðinni og gera hana ögn skemmtilegri. Hann skildi eftir ógleymanlega sjálfsmynd. Verst að segulbandið hans snýst ekki meir. Jónas Jónasson. Björgvin Júníusson. Þegar KA-félagar báru Kjartan Ólafsson fyrrverandi formann sinn og heiðursfélaga úr kirkju, heilsaði heiðblár norðurhiminn og sólroðinn Kaldbakur. Þetta hefði Kjartani einhvern- tíma þótt góð mótttökuskilyrði, sem trúnaðarmaður fjölda út- varpsstöðva um allan heim. Á sjötugsafmæli hans sendi stjórn KA honum þetta skeyti: „KA þakkar órofa tryggð í leik og starfi frá fyrstu tíð“. Þessi kveðja á einnig við nú, þegar KA-félagar kveðja Kjartan að leiðarlokum. Hann kom víða við, og þegar flett er blöðum sögunnar af íþróttalífi á Akureyri er ljóst, að íþróttir voru hans yndi og eftirlæti. Kjart- an var afreksmaður í frjálsum íþróttum og á 17. júní-mótinu 1928 sigraði hann í mörgum grein- um, en hann var líka í fyrsta knatt- spyrnuliði KA sem fór til Reykja- víkur til keppni á íslandsmóti ári síðar. Hann sagði skemmtilega frá þeirri ferð, en þá var siglt með s.s. íslandi suður, einu af skipum „Sameinaða“, en til baka var farið með litlum opnum vélbáti til Borgarness, þaðan var ekið í kassabíl norður yfir heiðar í Ból- staðarhlíð. Síðan var gengið yfir Vatnsskarð til Víðimýrar, þar sem beðið var þar til að annar kassabíll fékkst til að flytja göngu- lúna ferðalanga á leiðarenda. Nú fljúga menn sömu erinda að morgni og koma heim að kvöldi. Frumherjar í íþróttum hér, mega því muna tímana tvenna, enda báru menn þá á sjálfum sér, ef framkvæmda þurfti í þágu hugðarefna. Þetta rifjaðist upp þegar Kjartan kom eitt síðsumar- kvöldið upp á grasvöllinn á KA- svæðinu í fyrra. Þar sagði hann stórum hópi sjálfboðaliða frá öðr- um Grettistökum félagsins frá fyrri tíð. Þessi eiginleiki að blanda geði með yngri kynslóðinni og tengja söguna nútíðinni var fáum gefinn í eins ríkum mæli og Kjart- ani. Enda er ég þess fullviss að tryggð hans við KA í 53 ár var ekki síst vegna þess, að hann sá uppeldisgildi íþróttanna í réttu ljósi frá fyrstu tíð og að gott íþróttafélag er einnig vegleg kennslustofnun. Það er ekki á neinn hallað þótt lögð sé áhersla á það gífurlega uppeldis- og þroska- hlutverk sem öflugt íþróttastarf gegnir í bæjarfélaginu. Þegar íþróttafélög hafa starfað um ára- tuga skeið, fer ekki hjá því að rekja má árangurinn á þessu sviði hjá samborgurunum á öllum aldri. Margur afinn og amman endurlifa liðna tíð í efnilegum barnabörnum og barnabarna- börnum, sem enn eru að elta Kjartan Ólafsson. boltann, synda eða fara á skíðum, svo nokkuð sé nefnt. Þannig hafa íþróttafélögin tek- ið höndum saman við heimilin um mikilvægt uppeldishlutverk og víða hjálpað til að brúa kynslóða- bilið svo að betur verður ekki á kosið. Kjartan sýndi ræktarsemi sína til félagsins með margvíslegum hætti. Mér er sérstaklega minnis- stætt tvennt frá sl. ári í því sam- bandi. Fyrra skiptið var, þegar nokkrir KA-félagar héldu mér af- mælisveislu, fimmtugum, en þar var Kjartan hrókur alls fagnaðar og klykkti út með frumortu gam- ankvæði, sem vakti mikla kátínu. Seinna skiptið var þegar afráðið var að fara til Húsavíkur og hylla Helga Schiöth sjötugan, félaga Kjartans í stétt formanna KA og heiðursfélaga. Einnig hér var Kjartan fremstur í flokki þennan ógleymanlega dag. Hann bar allt- af með sér birtuna hvar sem hann fór, og þess er ljúft að minnast. Á honum sannaðist eftirminnilega, að það eru ekki árin í lífinu, sem skipta meginmáli, heldur lífið í ár- unum. Kjartan lagði gjörva hönd á margt um dagana og átti mörg önnur hugðarefni en íþróttir, en um það fjalla aðrir mér kunngri. Að leiðarlokum vil ég minna á þessar hendingar úr KA-hvatn- ingu Guðmundar Frímann: „Heill sé þeim sem æsku alla aldrei sína köllun sveik. Heill sé þeim sem vaskast vörðu vígi sín í hverjum leik. “ Þetta gæti hafa verið ort um lífshlaup Kjartans sérstaklega, svo vel á það við um þennan bjart- sýna drengskaparmann. KA kveður vin og velunnara með virðingu og þakklæti og KA- félagar senda vandamönnum innilegar samúðarkveðjur. Jón Arnþórsson. Larsen ráðinn Danski handknattleiksþjálf- arinn sem kom til að kanna aðstæður hjá KA, fór héðan fyrir helgina með undirritað- an samning við handknatt- leiksdeild KA fyrir næsta keppnistímabil upp á vasann. Hann þjálfar nú, og hefur gert undanfarin ár, Rybe sem keppir í annarri deild og er sagt þar á toppnum. Hann mun þjálfa meistara- og annan flokk, svo og einn til eftir því sem stjórnin vill. Þá mun hann hafa yfirumsjón með þjálfun hinna flokkanna, og einnig mun hann annast allar markmannsæfingar sjálfur, en hann hefur leikið sem mark- vörður. Að sögn Jóhanns Inga Gunn- arssonar sem hafði milligöngu um ráðningu hans, er hann 3. deildin í handknattleik: Allt nú galopið — Þór sigraði Skallagrím 38-6 Larsen á fundi með leikmönnum KA. Lengst til hægrí er Jóhann Ingi Gunnarsson fyrrum landliðsþjálfari. mikið menntaður í sínu fagi, um kæmi einn leikmaður úr virtur þjálfari í Danmörku. Þá Rybe-liðinu sem áhuga hefur á var einnig talað um að með hon- að koma og breyta til. Þórsarar léku tvo leiki í þriðju deild í handbolta um helgina. Á föstudagskvöldið léku þeir við Skallagrím í Borgarnesi og sigr- uðu svo sannarlega með yfir- burðum 38 mörk gegn 6. Óvenjuleg markatala í 3. deild í handbolta. Á sunnudaginn léku þeir svo við Gróttu á Seltjarn- arnesi en þessi leikur var einn af úrslitaleikjum deildarinnar. Þrátt fyrir að Þórsarar hefðu yfir í hálfleik, og lengi fram eftir í leiknum töpuðu þeir með 25 mörkum gegn 23. Nú er staðan í deildinni orðin mjög tvísýn, en Tvöfalt hjá UMSE Eyfirðingar gerðu góða leiki í blaki um helgina þegar þeir kepptu við UMF Laugdæla í fyrstu deild. í fyrstu deild er leikin fjórföld umnferð, og höfðu þessi lið leik- ið saman einu sinni áður í vetur og þá sigruðu Laugdælir. Eyfirð- ingar voru því án stiga fyrir leik- ina um helgina. Það er skemmst frá því að segja að UMSE sigraði örugglega í báðum leikjum og unnu allar hrinurnar. Á laugardaginn áttu þeir í nokkru basli með sigurinn og í öllum hrinunum náðu Laugdælir góðri forustu til að byrja með, en alltaf náðu Eyfirðingar að jafna og komast síðan yfir á lokatölunum. Fyrsta hrinan vannst með 15 gegn 12, önnur á 15 gegn 11 og sú þriðja á 15 gegn 13. A sunnu- daginn small allt betur saman hjá norðanmönnum og sigruðu þeir með yfirburðum í öllum hrinunum. Eftir þessa leiki eru bæði þessi lið neðst og jöfn að stigum í deildinni með 4 stig hvort, og eiga eftir að leika einu sinni saman. Þar verður því sennilega um úrslitaleik að ræða, þ.e.a.s. hvort liðið tollir í deildinni eða hvort fellur í aðra deild. Vonandi er nú allt smollið saman hjá UMSE og að þeir tryggi sér áframhaldandi setu í deildinni. Öruggt hjá S.A. Á laugardag fór fram á Akur- eyri Islandsmót í íshokkí 16 ára og yngri. Tvö lið mættu til leiks.lið Skautafélags Reykja- víkur og Skautafélags Akur- eyrar. Keppt var um veglegan far- andgrip sem gefin var af Sveini Kristdórssyni sem áður lék ís- hokkí hér á Akureyri, en flutti síðan til Reykjavíkur og æfir nú og keppir með Skautafélaginu þar. Strákarnir frá Akureyri sýndu mikla yfirburði í þessari keppni og sigruðu örugglega með 13 mörkum gegn 3 Á sunnudaginn fór síðan fram hraðkeppni og í henni kepptu drengir yngri en 16 ára og voru tvö lið frá hverju skautafélagi. Úrslit í þeirri keppni urðu þessi: A-lið SA - A-lið SR 3-0 B-lið SA - B-lið SR 2-1 A-lið SA - B-lið SR 9-0 B-lið SA - A-lið SR 1-2 Það var því A-lið Skautafélags Akureyrar sem sigraði í þessu hraðmóti. Eftir tvær vikur fer fram í Reykjavík íslandsmót fullorð- inna í íshokkí, en þar munu sennilega bara keppa lið fra SA og SR. fjögur lið eiga möguleika á að komast í aðra deild, en þau eru þessi: Þór 13 10 1 2 355-267 21 Ármann 13 10 1 2 337-229 21 Grótta 13 10 1 2 403-287 21 Keflavík 10 7 0 3 247-184 14 Ungmennafélagið Bjarmi í Fnjóskadal tekur þátt í íslands- mótinu í blaki, annarri deild. Strákarnir æfa í íþróttahúsinu á Stórutjarnaskóla, en þar er sæmi- lega góð æfingaaðstaða. Þeir hafa staðið sig mjög vel í vetur og eru nú efstir í annarri deild, en rétt á hæla þeirra er B-lið Þróttar og UMF Samhyggð. Þingeyingarnir léku tvo leiki um helgina við lið Þróttar frá Neskaupstað og sigruðu í þeim báðum með þremur hrinum gegn engri. Vonandi tekst þeim vel upp í lokin, þannig að þeir tryggi sér sæti í fyrstu deild. Körfubolti í kvöld Leikur Þórs og Tindastóls frá Sauðárkróki sem fram átti að fara í 2. deiidinni í körfubolta um helgina var frestað. Tindastólsmenn komust ekki til Akureyrar vegna ófærðar, en leikurinn hefur verið settur á í kvöld. Hann hefst í Skemmunni kl. 19.45. 4 - DAGUR -16. febrúar 1982 16. febrúar 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.