Dagur - 16.02.1982, Side 7
Prófkjör
hjá
krötum
Um síðustu helgina í febrúar verður
opið prófkjör hjá Alþýðuflokknum á
Akureyri. Kosningarétt hafa allir 18
ára og eldri sem ekki eru félagar í
öðrum flokkum. Eftirtaldir gefa kost
á sér: Alfreð Ó. Alfreðsson, Birgir
Marinósson, Freyr Ófeigsson, Ing-
ólfur Arnason, Snælaugur Stefáns-
son, Jórunn Sæmundsdóttir og
Tryggvi Gunnarsson. Utankjör-
staðaatkvæðagreiðsla hefst 22. fe-
brúar og verður í Strandgötu 9.
Bókhalds-
þjónusta
fyrir
bændur
Um þessar mundir er verið að
hleypa af stokkunum nokkuð
nýstárlegri tilraun á vegum
Búreiknistofnunar, Kaupfélags
Eyfírðinga og Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar. Hér er um
að ræða bókhaldsþjónustu fyrir
bændur á svæði B.S.E.
Fyrir valinu urðu tveir hreppar,
Svarfaðardals-, Árskógshreppur
og Dalvík. í næstu viku munu
bændur á þessum stöðum fá fyrstu
gögnin send heim, en með þau að
vopni mun verða auðveldara fyrir
bændur að útfylla skattskýrsluna
auk þess sem betra yfirlit fæst yfir
rekstur búsins. Fessi gögn eru
unnin í tölvu KEA og Halldór Jó-
hannesson starfsmaður útibús
KEA á Dalvík, mun fylgja þess-
um gögnum eftir og sjá til þess
að þau komi bændum að sem
mest-
um notum.
Ef þessi bókhaldsþjónusta
reynist vel er fyrirhugað að hefja
hana víðar um land, þar sem með
aukinni tölvunotkun kaupfélag-
anna hafa möguleikar á ýmiskon-
ar bókhaldsþjónustu aukist stór-
lega.
A ihMbíjur
Amreyrar
í kvöld þriðjudagskvöld verður
haldinn á Hótel KEA kvöld-
verðarfundur um bæjarmál á
vegum Framsóknarfélags Ak-
ureyrar. Umræðuefnið að
þessu sinni eru hafnarmál á Ak-
ureyri.
Stefán Reykjalín formaður
Hafnarstjórnar hefur framsögu
og mun hann síðan svara fyrir-
spurnum fundarmanna. Fundur-
inn hefst kl. 19,30 og er hann öll-
um opinn. Sérstaklega eru þó nýir
félagar Framsóknarfélags Akur-
.eyrar hvattir til að mæta og kynna
sér þennan þátt bæjarmála. Á
boðstólum verður léttur kvöld-
verður á mjög vægu verði.
Afli neta-
báta frá
Dalvík
Að sögn Ingva Antonssonar
hafnarvarðar á Dalvík, hófu
netabátar veiðar þann 20. jan-
úar. Þegar rætt var við Ingva sl.
fimmtudag, kom í Ijós að Biiki
EA var var aflahæstur netabáta
með tæplega 16 tonn. Sæljón
EA, sem er á línu, var búinn að
fá 19,6 tonn í 5 róðrum. Heild-
arafli neta- og línubáta frá 20.
janúar er rösk 77 tonn. ÞMK
Bændur athugið
Höfum til sölu eftirtaldar vélar á gömlu verði:
Fella stjörnumúgavél,
Vicon, 5 hjóla lyftutengd múgavél,
Z.T.R. sláttuþyrla,
Ávinnsluherfi, 3 og 4,2 m.
Nýjung:
Sjálfkeyrandi heyskerar.
Ný þjónusta. Tökum að okkur sölu á notuðum
landbúnaðarvélum.
Dragi sf.,
Fjölnisgötu 2A, sími 96-22466.
ENDURSKOÐUNARFYRIRTÆKI
Þorsteinn Kjartansson löggiltur endurskoð-
andi og Endurskoðun hf., hafa stofnað með
sér endurskoðunarfélag á Akureyri undir nafn-
inu ENDURSKOÐUN, AKUREYRI, hf.
Félagið veitir hvers konar þjónustu og ráðgjöf á
sviði:
- ENDURSKOÐUNAR
- REIKNINGSSKILA
- BÓKHALDS
- SKATTAMÁLA
ásamt
- REKSTRARRÁÐGJÖF
- ÁÆTLANAGERÐ
Folaldakjöt
nýtt, saltað og reykt.
Skrifstofa félagsins er að Glerárgötu 34, Akureyri
sími (96)22221.
endurskoöun
anureijn ?
LÖGGILTIR ENDURSKOÐENDUR
Guðni S. Gústafsson ÓlafurNilsson
Halldór H. Sigurðsson Sveinn Jónsson
Helgi V. Jónsson, hrl. Þorsteinn Kjartansson
Kaupfélag Svalbarðseyrar, Svalbarðsem
verður með opið hús í tilefni 100 ára afmælis samvinnuhreyfmgarinnar,
laugardaginn 20 febrúar 1982, kl. 14.00-17.00.
Skoðunarferðir og kynning á framleiðsluvömm fyrirtækisins
(ath.: Kartöfluverksmiðjan verður í gangi kl. 14.00-17.00).
Veitingar verða veittar í mötuneyti félagsins.
Er vonast til að allir velunnarar félagsins, ungir sem aldnir sjái sér fært að mæta.
Kaupfélag Svalbarðseyrar, Svalbarðseyri.
Afmæliskaffi
og -tilboð
í tilefni 100 ára afmælis samvinnuhreyf ingarinnar á íslandi, býður KEA
félagsmönnum sínum og öðrum viðskiptavinum upp á kaffiveitingar í
öllum matvöruverslunum félagsins og í Vöruhúsi KEA
FÖSTUDAGINN 19. FEBRÚAR NK. KL. 3-6 E.H.
Afmælistilboð: 20% afsláttur verður sama dag í öllum kjörbúðum á
reyktu svínafleski, bjúgum og London-lamb framparti frá
Kjötiðnaðarstöð KEA.
Kaupfélag Eyfirðinga.
16. febrúar 1982 - DAGUR - 7