Dagur - 23.02.1982, Page 1

Dagur - 23.02.1982, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR i SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREVRI 65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. febrúar 1982 21. tölublað Spörkuðu í bflana Tveir ungir piltar sem voru staddir á Akureyri á dögun- um, léku þann ieik að ráðast á kyrrstæðar bifreiðar í bæn- um og valda á þeim miklu tjóni. Piltarnir höfðu þann háttinn á að þeir spörkuðu í hurðir bifreiðanna, og alls voru það 7 bifreiðar sem urðu fyrir spörk- um þeirra. Þennan leik léku þeir á Byggðavegi, í Vana- byggð, niður Kaupvangsstræti og í Hafnarstræti. Ekki munu allar bótakröfur vegna tjónsins sem piltfarnir ollu vera komnar fram, en ljóst er að tjónið sem spörk þeirra ollu er umtalsvert og nemur tugum þúsunda. Þeir munu hafa verið eitthvað undir áhrif- um er þeir frömdu þennan verknað. íslands- met í diskó- dansi íslandsmet í maraþondansi var sett í Dynheimum á Akueyri um helgina, en fjórir unglingar Iuku þar dansi eftir hádegið, eftir að hafa verið á dansgólfinu í 27 og hálfa klukkustund. Alls voru það 74 unglingar sem hófu dansinn kl. 10 á laugardags- morguninn, en á sunnudagsmorg- un voru fjórir eftir. Þau ákváðu þá að hætta eftir hádegið, og dóm- nefnd sem hafði fylgst með dans- inum samþykkti. Dómnefndin ákvað að fyrstu verðlaun í keppninni skyldu fara til Jóhönnu Frímann, Þórdís Sig- urðardóttir hlaut önnur verðlaun, og þau Hallgerður Gunnarsdóttir og Sigurður Óli Kolbeinsson skiptu með sér 3. verðlaununum. Eldra íslandsmetið í diskódansi var 27 klukkustundir, en var sleg- ið um helgina um hálfa klukku- stund. Þess má geta til gamans, að systir Jóhönnu Frímann sem sig- raði í keppninni núna, sigraði í þessari keppni fyrir ári. Skrefatalningin er öllum til hagsbóta Því hefur lengi verið haldið fram, að fólk á landsbyggðinni hafi miklu meiri útgjöld en fólk á höfuðborgarsvæðinu vegna langlínusamtala, einkum vegna þess að langmest af þeirri þjón- ustustarfsemi sem landsmenn allir hafa tekið þátt í að byggja upp og þurfa allir að nota er í Reykjavík. Könnun sem Fjórð- ungssamband Norðlendinga hefur nýlega gert bendir ótvi- rætt til þess að þetta er rétt. Fjórðungssambandið hefur gert könnun á símanotkun og not- endafjölda annars vegar Norð- lendinga og hins vegar höfuð- borgarbúa. Árið 1980 voru not- endur sjálfvirks síma á Norður- landi 12.5% af heildarnotenda- fjöldanum. Notkun þeirra á síma nam hins vegar töluvert meiru en fjöldinn gefur til kynna, eða um 18% af heildarnotkuninni, sé miðað við teljaraskref. Sama ár voru notendur í Reykjavík 49% af notendum sjálffvirks síma á landinu öllu. Símanotkun þeirra miðað við skrefafjölda nam hins vegar ekki nema 34% af heildarnotkuninni. Þetta dæmi gefur glögga vísbend- ingu um það, hversu Norðlend- ingar, og vafalaust aðrir á lands- byggðinni, þurftu miklum mun meira að hringja milli landshluta heldur en Reykvíkingar. Þegar skrefatalningin og sú breyting sem gerð var á gjöldum fyrir símaþjónustu l.nóvember s.l. kom til framkvæmda, breyttist þetta til batnaðar, ekki aðeins fyrir fólk á landsbyggðinni, held- ur einnig fyrir þá sem búa í Reykjavík og þurfa að ná til sömu stofnana og að ofan var getið um. Fjórðungssmabandið hefur tekið saman dæmi um fyrirtæki á Akur- eyri og í Reykjavík, sem bæði hringja fimm þriggja mínútna símtöll hvern dag ársins í sömu þjónustustofnanirnar í Reykja- vík. Eftir að skrefatalningin var tekin upp er kostnaður Akur- eyrska fyrirtækisins ekki nema 52% af því sem hann hefði verið miðað við óbreytt ástand. Athygl- isverðara er þó það, að þrátt fyrir skrefatalninguna, sem margir voru andvígir, er kostnaður Reykvíska fyrirtækisins ekki nema 79% af því sem hann hefði verið, ef skrefatalningin hefði ekki verið tekin upp. Samvinnumcnn héldu upp á 100 ára afmæli hreyfíngar sinnar á föstudag og laugardag í síðustu viku með margvís- legum hætti. Á Akureyri bauð KE A félagsmönnum og viðskiptavinum sínum upp á kaffi og „með’ðí“ í verslunar- útibúum sínuin. Mynd: H.Sv bls.4 (( 44 ný sjúkrarúm á FSA þýða 80 nýjar stöður — rekstrarkostnaður nemur þriðjungi byggingakostnaðar Þótt ýmsum finnist erfiðlega og seint ganga að fá fjárveitingar til byggingar sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, þá er fjár- mögnun byggingarfram- kvæmdanna í rauninni létt byrði á ríkissjóði í samanburði við rekstrarkostnað. í grein sinni um fjárlög þessa árs í DEGI í dag, gerir Guð- mundur Bjarnason, alþingis- maður, grein fyrir fjárveiting- um til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri á þessu ári og bend- ir þar á, að rekstrarkostnaður á hverju ári nemi að jafnaði um þriðjungi byggingarkostnaðar - en það jafngildi í útgjöldum því að slík bygging væri byggð á þriggja ára fresti um alla framtíð. Við þann áfanga, að tekinn * verði í notkun nokkur hluti ný- byggingar FSA, er ráðgert að sjúkrarúmum fjölgi um 44, en samkvæmt áætlun heilbrigðis- ráðuneytisins þýðir sú aukning 80 nýjar stöður við sjúkrahúsið og aukningu rekstrarkostnðar um 18,5 milljónir króna á ári, en það er meira en tvöföld sú upphæð, sem ríkið veitir til byggingarinnar á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum Ás- geirs Höskuldssonar, fram- kvæmdastjóra FSA, mun legu- rúmum fjölga í eldri hluta bygg- ingarinnar þegar skurðstofur fly tj a í nýbygginguna og er hluti aukins legurýmis fólginn í þeim tilfærslum. Þá er ráðgert að Systrasel verði tekið í notkun sem hjúkr- unardeild aldraðra á þessu ári. áAkur- eyri 1930 bls.3 bls.9

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.