Dagur - 23.02.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 23.02.1982, Blaðsíða 9
Haraldur Ólafsson með 5 íslandsmet Síðastliðinn laugardag var Unglingameistaramót Islands í lyftingum haldið í Laugar- dalshöllinni. Meðal þátttak- enda voru fjórir Akureyring- ar. í 75 kg flokki, hlaut Haraldur Ólafsson gullverðlaun. Hann snaraði 122,5 kg og jafnhattaði 160 kg eða 282,5 kg í samanlögð- um árangri. Allt eru þetta ný ís- landsmet. Haraldur setti alls 5 íslandsmet á mótinu. I sama flokki keppti Eyþór Hauksson og hreppti silfurverðlaun. Hann lyfti 60 kg í snörum og 85 kg í jafnhöttun eða 145 kg alls. Ey- þór er mjög efnilegur lyftinga- maður og tók þarna þátt í sínu fyrsta móti. Garðar Gíslason keppti í 90 kg flokki og féll úr eftir að hafa mistekist að snara byrjunar- þyngdinni, 135 kg. Var það ein- stök óheppni, því Garðar var í mjög góðri æfingu og hefði án efa hlotið gullverðlaun í sínum flokki. Gylfi Gíslason keppti í 100 kg flokki og hlaut þar gull- verðlaun. Snaraði hann 130 kg og jafnhattaði 172,5 kg sem hvort tveggja eru ný íslandsmet. Gylfi Gíslason. Aftur sigur hjá UMSE í blakinu Á laugardaginn léku í fyrstu déild í blaki UMSE og Víking- ar. Fyrr í vetur höfðu Eyfirð- ingar tapað fyrir Víkingum, en sú var ekki raunin á í þess- um leik. UMSE náði nú sínum besta Ieik á kcppnistímabilinu og þá var ekki að sökum að spyrja, þeir unnu örugglega með þremur hrinum gegn engri. í fyrstu hrinunni komust Vík- ingar í tvö stig gegn engu, en Eyfirðingar jöfnuðu og komust yfir og sigu smám saman framúr og sigruðu með 15 stigum gegn 7. í annarri hrinunni byrjuðu Eyfirðingar mjög illa og komst Víkingur í 7 gegn 2. Þá fór þjálf- ari Eyfirðinga, Halldór Jónsson, fram á leikhlé og las vel yfir sín- um mönnum, sem þá komust í gang og náðu að jafna 8 gen 8. Síðan voru tölur jafnar eins og 11-11,14-14 og þá var leikurinn orðinn mjög spennandi. Til þess að hrinu ljúki, þarf að muna tveimur stigum, en það tók Eyfirðinga langan tíma að gera tvö næstu tig, því Víkingar voru staðráðnir í að gefa ekkert eftir. Fyrir rest tókt Eyfirðing- um að knýja fram sigur, 16-14. í síðustu hrinunni tókst UMSE vel upp og þá áttu Vík- ingar aldrei svar við stórleik þeirra, og sigruðu þeir með sömu stigatölu og í fyrstu hrin- unni, 15 gegn 7. Eins og áður segir, var þetta tvímælalaust besti leikur UMSE á þessu keppnistímabili og nú virðist lið- ið vera að smella saman. Bestur þeirra og jafnframt besti maður vallarins, var Aðalsteinn Bern- harðsson, en hann átti stórleik að þessu sinni. Vonandi hefur Eyfirðingum tekist að komast úr fallhættunni í deildinni, með þessum sigri, en ánægjulegt yrði, ef annað lið héðan af Norðurlandi kæmist í fyrstu deild, en UMF Bjarmi úr Fnjóskadal á þar mjög mikla möguleika. Aðalsteinn Bernharðsson. MANCHESTER UNITED TIL AKUREYRAR Allar horfur eru á því að Akureyringar eigi þess kost næsta sumar, að sjá Man- chester United leika hér á Akureyrarvelli. Samningar standa nú yfir, milli knatt- spyrnudeildar Vals og KA um að þeir leiki hér einn leik við KA, en United kemur til íslands á vegum Vals. Ef af þessu verður, yrði leikið miðvikudaginn 4. ágúst, og yrði það mikill hvalreki fyrir hina fjölmörgu knatt- spyrnuáhugamenn hér í bæ. Manchester United er eitt þekktasta og virtasta félag Bretlands og hafa margir kappar gert garðinn frægan í þeirra hópi. Þetta er einnig tvímælalaust vinsælasta fé- lagið hjá hinum stóra hópi áhugamanna um breska knattspyrnu. Til þess að þetta verði hægt, þurfa 3 til 4 þús. áhorfendur að koma á leikinn, en í fyrra þegar Manchester City lék hér, voru áhorfendur tæplega 3 þúsund. Gunnar Blöndal þjálfar HSÞ-b KA-stelpur unnu sinn fyrsta leik Gunnar Blöndal sem um margra ára skeið hefur leikið í fyrstu og annarrar deildar liði KA í knatt- spyrnu, hefur nú ráðið sig sem þjálfara hjá Mývetningum eða HSÞ b eins og það lið er kallað. Þá mun Gunnar einnig leika með liðinu í þriðju deildinni. Það er sjónarsviptir að missa Gunnar úr KA-liðinu en hann hefur ávallt verið sókndjarfur og er ekki þekktur af því að gefast upp þótt á móti blási. Íþróttasíð- an óskar Gunnari velfarnaðar með hinu nýja liði sínu. Um helgina léku KA-stúlkur tvo leiki í annarri deild í blaki og báða við Iið Breiðabliks. í fyrri leiknum náðu KA-stelp- urnar að vinna sinn fyrsta leik en þær sigruðu með þremur hrinum gegn einni. Þær byrjuðu að æfa í haust undir stjórn þeirra Hinriks Þór- hallssonar og Gunnars Straum- land og er nú orðinn allt annar bragur á leik þeirra en var fyrst í vetur. X síðari leiknum snerist dæmið við og Breiðabliksstúlk- urnar unnu með þremur hrinum gegn einni. Ein túlka úr K/i-lið- inu, Gyða Steinsdóttir, hefur verið valin í landslið kvenna í blaki, og er það ánægjulegt fyrir hina ungu blakdeild að fá stúlku í landsliðið strax á fyrsta starfs- ári deildarinnar. ^feþníar 1982 ^ 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.