Dagur - 04.03.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 04.03.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIDIR , SIGTRYGGUR 1 AKUREYRI & PÉTUR 65. árgangur Akureyri, fímmtudagur 4. mars 1982 25. tölublað Loks hillir undir banka- útibú á Raufar- höfn Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar: Allar greinar samþykktar með 11 samhljóða atkvæðum Fjárhagsáætlun Akureyrarbæj- ar fyrir yfirstandandi ár var endanlega samþykkt í bæjar- stjórn á þriðjudag. Hver einasti liður áætlunarinnar var sam- þykktur með 11 samhljóða at- kvæðum og er það í annað skiptið í sögu Akureyrar sem slíkt skeður. Áður skapaðist svo víðtæk samstaða um fjár- hagsáætlun árið 1979. Að sögn Sigurðar Óla Brynj- ólfssonar, bæjarfulltrúa Fram- sóknarflokksins, voru gerðar smávegis breytingar á áætluninni frá frumvarpinu og hækkuðu niðurstöðutölur um 400 þúsund krónur. Meðal breytinga má nefna, að framlag til dvalarheim- ila aldraðra var hækkað um 100 þúsund og verður því 1,2 milljón- ir, 300 þúsund krónum er áætlað að verja til húsakaupa vegna skipulagsmála, 60 þúsund krón- um verður varið til fullgera snyrti- aðstöðu í Kjarnaskógi og 100 þús- und krónum verður varið til kaupa á ísgerðarvél fyrir skauta- svell. Þá var ákveðið að lækka rekstrarkostnað dagvistarheimila um 300 þúsund, en ákveðið hefur verið að loka hverju heimili um eins mánaðar tíma í sumar, í stað þess að ráða afleysingarfólk til að halda þeim opnum. Eins og áður sagði var algjör samstaða um endanlega gerð fjár- hagsáætlunar og litlar breytingar gerðar á frumvarpinu. Einn af fulltrúum sjálfstæðismanna í bæjarstjórn, Sigurður Hannes- son, kvaddi sér hljóðs á fundinum í fyrradag og þakkaði bæjarráði og starfsmönnum bæjarins fyrir mjög vel gerða áætlun. Landsbanki íslands hefur sótt um lóð á Raufarhöfn og hyggst byggja þar hús fyrir útibú bankans. í dag rekur L.í. af- greiðslu á Raufarhöfn, en hún getur ekki annast öll þau bankaviðskipti sem fara fram í útibúi. Þetta hefur oft valdið verulegum vandræðum á Rauf- arhöfn, en íbúar þar verða oft að senda t.d. til Akureyrar eða Húsavíkur skjöl sem útibú gæti afgreitt á nokkrum mínútum. Gunnar Hilmarsson, sveitar- stjóri á Rauðarhöfn sagði í sam- tali við Dag að á þessaari stundu væri ekki vitað hvort bankinn hæfi byggingu hússins í ár. Gunnar sagði einnig að heimamenn væru ánægðir með þá ákvörðun bank- ans að setja upp útibú á Raufar- höfn, enda kæmi um leið starfs- maður sem gæti metið þörfina t.d. fyrir lánsfé svo dæmi sé tekið. - Ég get nefnt sem dæmi að það þurfti að ganga frá veðsetningu fyrir togarann. Forráðamenn Jök- uls voru að reyna að komast með hana inn á Akureyri til að leggja hana þar inn. Þeir ætluðu að fara með hana sl. miðvikudag, en þá var allt ófært. Afgreiðslan á Rauf- arhöfn getur ekki tekið við henni en allt sem þarf er stimpill og eitt- hvað þess háttar smáræði. Þar með er veðsetningin komin í gegn og fjármagnið laust. Eins og sjá má af þessu er það gífurlegt óhag- ræði að hafa ekki útibú á staðnum, sagði Gunnar að lokum. Sól er farín að hækka á lofti og ef menn eiga leið út í Slipp eða Bót má sjá trillu- karlana snúast í kringum báta sína. Myndina tók KGA í smábátahöfninni hjá Slippstöðinni. Afsláttur fasteignagjalda á Dalvík: „Hefur mælst vel fyrir“ „Viö höfum veitt afslátt af fast- eignagjöldum í nokkur ár og ég held að mér sé óhætt aö segja að þetta hafi mælst vel fyrir,“ sagði Kristján Ólafsson, sem sæti á í bæjarstjórn Dalvíkur. „Þessi afsláttur er fyrir ellilíf- eyris- og örorkuþega.“ Eftirfarandi reglur gilda um af- sláttinn á þessu ári: I fyrsta lagi niðurfelling að fullu hjá einstak- lingum með tekjur allt að kr. 1.750, umfram viðmiðunartekjur og hjá hjónum kr. 3.500, umfram viðmiðunartekjur, og í öðru lagi er um að ræða lækkun um 2/3 hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 6.050, umfram viðmiðunar- tekjur, og í þriðja og síðasta lagi lækkun um 1/3 hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 16.850, urn- fram viðmiðunartekjur og hjá hjónum kr. 30.225 umfram við- miðunartekjur. Hámark skuld- lausrar eignar má vera kr. 640.000 og skilyrði er að viðkomandi búi í því húsi sem lækkunin tekur til. Kristján sagði að viðmiðunar- tekjurnar sem um er rætt væru miðaðar við lífeyri með fullri tekjutryggingu, en þær eru kr. 33.545 hjá einstaklingi og kr. 58.500 hjá hjónum. Blönduvirkjun: Mikilvægur fundur Um helgina munu hrepparnir austan Blöndu, þ.e. Lýtings- staðahreppur, Seyluhreppur og Bólstaðarhlíðarhreppur, halda fund og taka afstöðu til nýjustu tillagnanna um Blönduvirkjun. Að vísu hefur Bólstaðarhlíðar- hreppur hafnað samningsdrög- unum og því getur allt eins farið svo, að fulitrúar hans verði ekki á fundinum, en þessir þrír hreppar standa að sameignar- félagi um upprekstrarland á þeim slóðum sem virkjunin verður. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Dagur hefur aflað sér, lögðu fulltrúar Lýtingsstaða- og Seylu- hrepps hart að félögum sínum í Bólstaðarhlíðarhreppi að mæta. Það er ljóst að þesi fundur er mikilvægur. Einn viðmælenda blaðsins sagði að fundurinn væri „vendipunktur“ í þessu máli. Listahátíð á Akureyri 5—6 listsýningar auk tónleikahalds „Það er lítið af þessum málum að frétta á þessu stigi, en þau gætu farið að skýrast síðar í vikunni“ sagði Helgi Bergs bæjarstjóri á Akureyri er við spurðum hann hvort ákveðið væri hvaða atriði Listahátíðar í Reykjavík yrðu almenningi til sýnis á Akureyri í sumar. „ Við erum í sj álfu sér búnir að taka ákvörðun í málinu, en vegna anna hafa endanlegar við- ræður við forráðamenn Lista- hátíðar ekki farið af stað ennþá. En ég held að það sé ljóst að bærinn kemur sterklega inn í þetta“ sagði Helgi. Þau atriði sem rætt hefur verið um að fá norður, eru sýning Fé- lags íslenskra myndlistarmanna, tónleika London Simfoniette sem er að flestra mati þekktasta og besta hljómsveit heims sem flytur 20. aldar tónlist, og tón- leika ítalska þjóðlagaflokksins Compagnia Nouva Be Cadfnto Popolare en þessi hópur hefur verið á listahátíðum víða um heim og vakið geysilega athygli. Örn Ingi Gíslason myndlista- maður á Akureyri tjáði Degi að skólastjóri, kennarar og nem- endur Húsmæðraskólans á Ak- ureyri hafi safnað peningum í listaverkasjóð, og þessum og þessum sjóð var ráðstafað þann- ig að ákveðið var að kaupa stórt glerverk eftir Leif Breiðfjörð. Þetta verk er hann nú að vinna, og á það að koma í byggingu Húsmæðraskólans fyrir ofan innganginn. Þetta listaverk verður afhjúpað á þessum tíma í júní þegar hver listaviðburður- inn rekurannan íbænum. „Þáer ákveðið að Leifur verði með glersýningu í Amtsbókasafninu, og Textilfélagið verður með sýn- ingu í Húsmæðraskólanum“ sagði Örn Ingi. Örn Ingi tjáði okkur að sýning FÍM sem verður í íþrótta- skemmunni yrði mjög óvenjuleg fyrir Norðlendinga. Þar myndu 5-10 listamenn sýna, og yrði kappkostað að velja saman ólíka listamenn sem sýndu mikinn fjölda stóra listaverka. „En fyrir utan þetta sem þegar hefur komið fram, þá á ég von á því að 2-3 sýningar eigi eftir að bætast í hópinn þannig að hér í bænum yrði um að ræða 5-6 sýn- ingar auk tónleikanna. Það verður því um meiriháttar lista- viðburði að ræða hér í bænum í júní“ sagði Örn Ingi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.