Dagur


Dagur - 04.03.1982, Qupperneq 3

Dagur - 04.03.1982, Qupperneq 3
llll ' LIIJPaíAHL Sauðárkrókur: Tveggja ára afmæli félags- skapar aldraðra VIÐ BJODUM AOEIHS HEIMSFRÆC VÖRUMERKI í byrjun janúar síðastliðinn átti félagsskapur aldraðra á Sauð- árkróki tveggja ára starfs- afmæli. Starfsemi félagsins hef- ur ávallt farið fram í safnaðar- heimili Sauðárkrókskirkju og þátttakcndur yfirleitt um fimm- tíu til sextíu óg dagskráin fjöl- breytt. Samkoma var haldin sunnudag- inn 21 febrúar en þær eru venju- lega hálfsmánaðarlega á sunnu- dögum frá september fram í maí, en þó eru þær haldnar nokkur skipti yfir sumartímann, en sjaldnar. Samkomurnar hefjast yfirleitt klukkan tvö síðdegis og var svo hinn 21 febrúar. Félagsmálastjóri Sauðárkróks- kaupstaðar, Friðrik Á. Brekkan setti samkomuna og bauð gesti velkomna. Þá afhenti Friðrik pen- ingagjöf frá Hr. Gísla Sigur- björnssyni forstjóra Elliheimisins Grundar fyrir hönd styrktarsjóðs líknarmála til uppbyggingar starfsins á Sauðárkróki. Frú Anna Hjartardóttir formaður félagsins þakkaði höfðingjalega gjöf og hlýhug þann sem henni fylgdi, en Gísli hefur stutt starfsemina frá upphafi með ýmsu móti. Þá var og sagt frá sams konar gjöf til félags- ins í Hofsós, en þar hefur verið starfandi félag eldri borgara um tveggja ára skeið. Formaður þess félags er frú Margrét Guðmunds- dóttir. Vorum að taka upp úrval af Maó- kraga skyrtum bæði á dömur og herra. Einnig herraskyrtur með venjulegum kraga. Nykomið: Peysur, vestifheil og hneppt), og buxur íkálfa- sídd. Skipagötu 5 Akureyri Sími22150 Þá var næstur á dagskrá Birgir Guðjónsson, heilsugæslulæknir á Sauðárkróki, en hann sagði samkomunni frá tilhögun lækna* náms og sínu framhaldsnámi er- lendis. Spilamennskan er mikil, nóló,grand, hálfur og heill og er fjörugt yfir salinn að líta þegar slagirnir fjúka. Þar sem bolludagur var í upp- siglingu voru bornar fram bollur við mikinn fögnuð samkomu- gesta. Frú Helga Hannesdóttir, félagsmálaráðskona las upp smá- sögu eftir Jakob Thorarensen, þá tók til máls frú Hólmfríður Jónas- dóttir, skáldkona og minntist hún látinnar vinkonu og félaga, Sveinsínu Bergsdóttur. Þá fór Hólmfríður með nokkrar smelln- ar stökur. Undir lokin var sungið við undirleik Jóns Björnssonar org- anista og stjórnanda kirkjukórs- ins. Á miðvikudögum eru föndur- samkomur í safnaðarheimilinu fyrir eldri borgara undir stjórn tveggja sjálfboðaliðá auk þess sem er létt leikfimi undir stjórn sjúkraþjálfarans af sjúkrahúsi Skagfirðinga. í sumar er ráðgerð a.m.k. ein skemmtiferð á vegum félags eldri borgara og verður hún til Siglufjarðar. Góð samvinna er hér milli allra aðila, sóknarprests, áhuga- mannafélaga, félagsmálaráðs og annarra vegna öldrunarstarfsins og engu að kvíða. Bygging dvalar- og hjúkrunar- heimilisins miðar ágætlega áfram. Ótíð hefur verið og snjókoma frá miðjum september, en þetta hefst allt með hækkandi sól. - 9STKARHU gönguskídi og slofir svig og salomoim göngubínöingor norskir skído golior skidi i sarflokki slofir Þingeyingar Leynimelur 13 Sýning í Ljósvetningabúð laugar- daginn 6. mars kl. 21. Miðasala við innganginn. LÖ og UMFA. Leynimelur 13 Aukasýningar vegna mikillar aðsóknar, verða í Freyvangi þriðju- dagskvöld 9. mars kl. 20.30 og miðvikudagskvöld 10. mars kl. 20.30. ^ Samsöngur Karlakórinn Geysir heldur samsöng í Akureyrar- kirkju föstudaginn 5. mars kl. 21 og laugardaginn 6. mars kl. 18. Aðgöngumiðar í Bókval og við innganginn. Karlakórinn Geysir. 4 Þrjár systur i Höfundur: Anton Tsékhov. : Leikstjóri: Kári Halldór. \ Leikmynd: Jenný Guðmundsdóttir. ; Tónlist: Oliver Kentish. s Lýsing: Ingvar Björnsson. Z m Sýning fimmtudagskvöld, 4. mars kl. 20.30. : Sýning föstudagskvöld, 5. mars kl. 20.30. : Sýning sunnudagskvöld, 7. mars kl. 20.30. : Aðgöngumiðasala alla daga frá kl. 16. : Sími24073. : ^ SAMYI\MTRYGGI\(iAR SKIPAGÖTU 18 Samvinnutryggingar g.t., Akureyri, óska eftir til- boðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir um- ferðaóhöpp: Chevrolet Citation Mazda 929 Mazda 929 Lada 1200 Ford Cortina 1300 árg.1980 árg. 1981 árg. 1979 árg. 1974 árg.1970 Bifreiðarnar verða til sýnis hjá Þórshamri við Tryggvabraut, mánudaginn 8. mars. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga Akureyri, fyrir miðvikU' daginn 10. mars 1981. Samvinnutryggingar g.t. Vátryggingadeild KEA Skipagötu18. 4. mars 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.