Dagur - 16.03.1982, Blaðsíða 7

Dagur - 16.03.1982, Blaðsíða 7
„Hver og einn hafi viðfangsefni við sitt hæfi Viðtal við Sigfríði Angantýsdóttur sem skipar 4. sætið á lista Framsóknarflokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor í fjórða sæti á lista Framsókn- arflokksins til bæjarstjórnar- kosninga í vor er Sigfríður Angantýsdóttir, kennari við Glerárskóla. Sigfríður er ætt- uð frá Torfufelli í Eyjafiröi og er 36 ára gömul. Hún hefur dvalið og starfað á Akureyri frá árinu 1959 og átt hér heimili frá 1963. Sigfríður er gift Pétri Brynjólfssyni tré- smið og eiga þau þrjú börn, Fríðu 18 ára, Pétur 16 ára og Hjörvar 10 ára. Með húsmóðurstörfum hef- ur Sigfríður starfað meira og minna við kennslu frá árinu 1967, aðallega í Hrafnagils- hreppi og nú síðast við Glerár- skóla. Auk þess starfaði hún einn vetur við skóiadagheim- ilið Brekkukot. Sigfríður á sæti í kennararáði Glerár- skóla og er í stjórn Vistheimil- isins Sólborgar. Hún hefur nýlega lokið réttindanámi frá Kennaraháskóla íslands. Dagur ræddi við Sigfríði á dögunum og spurði hana fyrst að því, hvers vegna hún væri nú í framboði fyrir Framsóknar- flokkinn. - Þaðaðégskipafjórðasætiá lista flokksins er liður í atburð- arás, sem ég held að rétt sé að ég greini örlítið frá. Þegar ég gekk í flokkinn voru mér ofarlega í huga ýmis málefni þess hverfis, sem ég bý í. Mér þótti ýmislegt mcga betur fara og hugsaði sem svo að ekki sakaði að ganga í stjórnmálaflokk, þar sem ég gæti þá hugsanlega frekar haft ájirif og komið skoðunum mín- um á framfæri innan bæjarfé- lagsins. Ég hugsaði mér að það gæti verið ágætt að eiga flokks- bræður í nefndum oggeta komið málum á framfæri við þá. Nú, það er kannski Ijótt að nefna það, en ég rifjaði upp fyrir sjálfri mér, að í ellefu manna bæjarstjórn býr aðeins einn bæjarfulltrúinn utan Glerár, þótt í Glerárhverfi búi um þriðj- ungur bæjarbúa. Hægt að hafa mest áhrif í gegnum Framsóknar- flokkinn - En hvers vegna varð Fram- sóknarflokkurinn fyrir valinu? - Stefna Framsóknarflokks- ins almennt séð hcfur höfðað til mín, kannski fyrst og fremst vegna þess, að hann tekur fram- ar öðrum stjórnmálaöflum í landinu mið af íslenskum aðstæð- um. Stefna hansogmarkmiðeru hvorki byggð á hreinum kapital- isma né kommúnisma, heldur er afstaða tekin til hvers máls, eins og það liggur fyrir hverju sinni. Framsóknarflokkurinn á Ak- ureyri hefur haft forustu í bæjar- málunum undanfarna tvo ára- tugi. Margt hefur verið vel gert og með því að starfa með fram- sóknarmönnum tel ég mig geta haft hvað mest áhrif á gang mála í bæjarfélaginu. Eins og annars staðar, þar sem þróunin hefur verið mjög ör og uppbygg- ing mikil, hafa ýmis vandamál fylgt í kjölfarið, og þar kem ég að meginástæðunni fyrir því að ég gef kost á mér í framboð til bæjarstjórnarkosninganna í vor. Ekkl nægilega gætt að byggja upp þjónustustofiianir í nýjum hverfum Að mínu mati hefur þess ekki verið nægilega gætt, að byggja upp þjónustustofnanir um leið og fólk flytur í ný hverfi. Þetta er reyndar ekki nein ný bóla, því öll ný hverfi hafa vafalaust þurft að ganga í gegn um þessa þróun- arerfiðleika. Nú er það fyrst og fremst í Glerárhverfi sem skór- inn kreppir og mér er mjög um- hugað um að reynt verði af fremsta megni að koma upp sambærilegri þjónustu og er í öðrum bæjarhverfum og þá að sjálfsögðu áður en fólki fer að fækka á ný og hverfi og íbúar þessfara að eldast. Brýnast er að koma upp skóla í Síðuhverfi. Auk þess þarf að ljúka frágangi í Glerárskóla. Við eigum að stefna að því að hafa skólana minni og fleiri. Hlutfallslega er sjálfsagt dýrara að reisa minni og fleiri skóla, en ég tel það miklu þroskavænlegra fyrir börnin. Það er hægt að skapa þeim meiri öryggiskennd og láta þeim líða betur ef um- hverfið er kunnuglegt og barnið þekkir þá sem það umgengst. í 700 manna skóla þekkir barnið ekki nema lítinn hluta skólasyst- kina sinna og þá getur verið meiri hætta á árekstrum, stríðni og jafnvel að einstaklingar séu lagðir í einelti. Það eykur enn á þessa hættu ef skólinn er vanbú- inn. Ég tel að við eigum að hafa fleiri og minni skóla og gera þeim strax í upphafi kleift að sinna mikilvægum fræðslu- og uppeldishlutverkum sínum. Ég vil geta þess í sambandi við Glerárhverfið, þó það sé ekki ætlun mín að fara að reka ein- hverja hverfapólitík, þar sem við verðum að leggjast á eitt um að jafna aðstöðu bæjarbúa, að töluvert skortir á að þjónusta al- mennt sé fullnægjandi. Ég vil að bæjarfélagið beiti sér fyrir því að ýmis konar þjónustu verði kom- ið upp í nýjum hverfum, svo fljótt sem kostur er. - Það er greinilegt, að skóla- málin eru ofarlega í huga þér, en hvað með önnur málefni bæjar- félagsins? Forsenda tjöl- skrúðugs og blóm- legs mannlífs að allir hafl nóg fyrir sig að leggja vera vakandi fyrir nýjum tæki- færum á því sviði, auk þess að styrkja þær atvinnugreinar sem fyrir eru. Forsenda þess að hér sé hægt að rækta fjölskrúðugt og blómlegt mannlíf hlýtur að vera sú, að allir hafi nóg fyrir sig að leggja - að atvinnumálin séu í lagi. Að öðrum kosti getum við ekki sinnt velferðar- og menn- ingarmálum sem skyldi. Atvinnumálin á Akureyri og við Eyjafjörð eru mikið í brenni- depli um þessar mundir. Mikið er rætt um að efla iðnaðinn, sem ég hlýt að sjálfsögðu að taka undir heils hugar, enda tel ég að í tengslum við þær atvinnugreinar - Það er alveg ljóst, að við verðum fyrst og síðast að hugsa um að skapa næga atvinnu og sem fyrir eru hljóti að vera margar leiðir ónýttar. Orkufrek- ur iðnaður hefur mikið verið til umræðu og stóriðja við Eyja- fjörð nefnd í tengslum við nýt- ingu orkunnar. Ég geld mjög mikinn varhug við áformum um stóriðju við Eyjafjörð, sérstaklega vegna mengunarhættu. Þetta er ákaf- lega viðkvæmt svæði - eitt mesta og gjöfulasta landbúnaðarsvæði landsins - og við megum ekki taka neina áhættu í þessum efnum. Ég tel að við eigum að hafa vaðið fyrir neðan okkur og leita leiða í atvinnumálunum, sem ekki hafa stóra óvissuþætti í för með sér. Fyrst og fremst þarf að hugsa um rétt barnanna og rétt hinna öldruðu Eftir að ég fór að kynna mér bæjarmálin að ráði, hefur það komið mér nokkuð á óvart hversu lítið fé bærinn hefur til framkvæmda. Mikið af útgjöld- unum eru bundin samkvæmt lögum og reglugerðum og þetta á meðal annars við um ýmsa fé- lagslega þætti. Sveitarfélagið þyrfti að ráða meiru um það, hvernig það ráðstafar sínu fé. Þetta snertir meðal annars dag- vistarmálin. Við verðum að sjálfsögðu að reyna að hafa nógu margar dagvistarstofnanir til að mæta þörfinni, en við megum ekki gleyma því að þörfin er mis- mikil hjá einstaklingum. Ég tel sjálfsagt að bærinn greiði niður kostnað við að hafa börn á dag- vistarstofnunum - fyrir þá sem virkilega þarfnast þess, en að öðru leyti greiði fólk að ein- hverju leyti í samræmi við getu hvers og eins. Þegar við tölum um dagvistar- mál er oft rætt um rétt foreldra til að hafa börn á dagvistarstofn- unum. Þarna erum við á villigöt- um, því við eigum fyrst og 6 - DAGUR - 19. mars 1982 fremst að hugsa um rétt harnsins - rétt barnsins til að búa við ör- yggi og umönnun þeirra sem standa því næst. Við erum alltaf að stía fólki í sundur, gamla fólkið er á einum stað og börnin á öðrum. Við eigum að miða okkar fjölskyldupólitík við það að sameina fjölskylduna, en ekki að sundra henni. Við eigum að gefa öldruðum kost á að um- gangast börnin og öfugt. Hvern- ig það á að gerast er ekki auð- svarað, en ég held að við ættum að- hugleiða þetta og reyna að finna lausnir. Við eigum að hugsa um rétt hinna öldruðu og rétt hinna ungu, sem vill oft gleymast þeim sem eru í blóma lífsins, en það eru einmitt þeir sem helst eru að ráðskast með málefni þessara aldurshópa. - Nú hefur oft verið leitað eftir því við konur, að þær taki sæti á lista framsóknarmanna við bæjarstjórnarkosningar. Hvers vegna hefur þetta gengið betur nú en áður, að þínu mati? - Mikið hefur verið rætt og ritað um þátttöku kvenna í stjórnmálum og að þær búi í karlasamfélagi sem sé konum andsnúið á margan hátt. Konum hafi ekki verið gefið tækifæri til að spreyta sig í stjórnar- og ábyrgðarstörfum. Sú umræða sem fram hefur farið undanfarið um jafnréttismál hefur sem bet- ur fer haft áhrif á konur og þar er ég engin undantekning. Ég skal játa það hér og nú, að áður hefur verið farið fram á það við mig, að ég gæfi kost á mér á framboðslista framsóknar- manna á Akureyri. Ég hafnaði því. Ástæðan fyrir því að ég gaf kost á mér í forvali Framsókn- arflokksins núna er kannski fyrst og fremst sú, að mér finnst ég hafa málefni að berjast fyrir og mig langar að reyna að hafa áhrif. í öðru lagi hef ég orðið fyrir áhrifum af þeirri umræðu, að æskilegt væri að konur hefðu aukin afskipti af opinberum málum. í þriðja lagi hef ég öðlast aukna reynslu og aukið sjálfstraust, bæði í gegnum störf mín og með aukinni menntun. Allt hefur þetta haft áhrif. Ég hef aldrei efast um dugnað og hæfileika kvenna til jafns við karla og ef ég get lagt eitthvað af mörkum til aukins jafnréttis, þá fagna ég því. Allir þurfa við- fangsefni við hæfi - Nú ert þú í baráttusæti á lista Framsóknarflokksins. Hvernig leggst það í þig? - Það gefur auga leið, að ég hef ekki mikla reynslu í stjórn- málabaráttu, en einhverntíma verður allt fyrst. Ég er staðráðin í því að reyna að beita áhrifum mínum og vinna að þeim mál- efnum, sem ég tel góð og hef að nokkru nefnt hér að framan. Ég iofa engu, en mun gera mitt besta. Eg held að það sé megin- mál, svo fólk geti verið ham- ingjusamt, að hver og einn hafi viðfangsefni við sitt hæfi. Hver og einn verður að finna að hann sé einhvers virði og að hann sé einhvers megnugur. Tökum börnin sem dæmi: Ef þau víkja frá eðlilegum þroskaferli þarf að skapa þeim viðráðanleg við- fangsefni, sérkennslu eftir þörfum. Þeir sem skara fram úr í námi þurfa á sama máta að fá viðfangsefni sem þeim hæfa. Sama er að segja um þá sem eru með skerta starfsorku, t.d. vegna aldurs. Þeir þurfa að hafa eitthvert viðfangsefni að glíma við og finna að þeir séu ekki sett- ir hjá, heldur séu nýtir þjóðfé- lagsþegnar. Taugarnar titruðu í H-100 Það ríkir oft mögnuð stemn- ing í samkomuhúsinu H-100 á Akuryri, en sl. laugardag urðu þó húsmunir þar fyrir óvenjulegri heimsókn. Þá ruddust þar inn nokkrir tugir knattspyrnuáhugamanna, og var tilefni heimsóknarinnar að berja augum, á 60 tommu sjónvarpsskermi í beinni út- sendingu, úrslitaleik Totten- ham og Liverpool í ensku deilda rbikarkeppn in ni. Menn komu ábúðarfullir og alvarlegir á staðinn. Sumir voru með trefla og húfur í litum þess félags sem þeir héldu með, Liverpooláhangendur með rauða og Tottenhamsstrákarnir með svarta. Menn komu sér vel fyrir, fullir vissu um að þeirra menn „myndu hafa það,“ og setningar eins og : „þetta verður létt hjá okkur í dag,“ heyrðust fljúga um loftið. Það var stórkostlegt að fylgjast með þessum „brjaluðu" áhugamönnum eftir að leikurinn hófst. Þeir afmynduðust af spennunni á einnar mínútu fresti, mikið var stunið og skrækt og greinilegt var að menn þjáðust. Svo var það er skammt var liðið á fyrri hálfleik að Tott- enham tók forustuna í leiknum og stukku þá áhangendur liðsins á fætur og létu öllum illum látum. Áhangendur „Rauða- hersins“ frá Liverpool krepptu hnefa og sögðu að þetta væri ekki búið. Það var rétt hjá þeim. Nokkrum mínútum fyrir leiks- lok jafnaði Liverpool, og hefur sannarlega ekki verið fagnað . . . „Jöggvan“ var með þetta allt á hreinu, en hlustaði þó á út- skýringar „Bigga í Brekku“ með athygli. jafnmikið og innilega í „Háinu“ í annan tíma. Liverpool-áhang- endur dönsuðu stríðsdans um allt hús, upp á borðum og stólum jafnt sem á gólfum niðri og stemningin náði hámarki. Dómarinn, sem minnti einna helst á Bjöfgvin Schram heild- sala í útliti varð því að grípa til framlengingar, og er skemmst frá því að segja að Liverpool tók öll völd og bætti við tveimur mörk- um áður en yfir lauk. Þessum úrslitum var vel fagnað af þeirra mönnum á Akureyri, og alla helgina mátti sjá menn í bænum með rauða trefla og húfur. Þeir báru höfuðið hátt þessa helgi, en hinir sem héldu með Tottenham og gera væntanlega énn voru ögn niðurlútari. Þeir sem ekki skilja æsing manna yfir ensku knattspyrn- unni hrista höfuðið. Þeir geta þó átt von á „öðrum skammti“, því enn er eftir úrslitaleikur „Ensku bikarkeppninnar" (FA-CUP) og hver veit nema þá gerist senur enn magnaðri en um sfðustu helgi og þótti þó sumum nóg um. . . . „Jöggvan“ þurfti þó að skjóta inn orði við og við . . . . . . og ekki er annað að sjá en þeir vinirnir séu sammála og sáttir við hvorn annan og tilver- una. Myndir KGA 19. mars 1982 - D AGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.