Dagur - 18.03.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 18.03.1982, Blaðsíða 6
w Smáaugl ýs inga r— Húsnæði i Sal Til leigu. Rúmgóö 2ja herb. íbúð til leigu. Tilboöum skilað til Dags, merkt: „Rúmgóð". Er ekki einhver róleg og reglu- söm persóna sem vill deila 3ja herb. leiguíbúð á brekkunni með 20 ára annars árs MA-ingi. Ef ein- hver hefur áhuga, vinsamlegast leggið óskir um upplýsingar inn á afgreiðslu Dags fyrir 1. apríl, merkt: „Samstarf og bræðralag". Bifreiðir Playmobil og LEGO leikföngin sígildu fást hjá okkur. Leikfanga- markaðurinn, Hafnarstræti 96. Álafosslopi, hespulopi, plötulopi, lopi-light, tweed-lopi, eingirni, hosuband m/perlon, prjónaupp- skriftir. Klæðaverslun Sig. Guð- mundssonar, Hafnarstræti 96. tBarnagæslaj Vantar gæslu fyrir 3ja ára dreng frá kl. 10-2 alla virka daga. Þyrfti helst að vera sem næst miðbæn- um. Uppl. ísíma 23521 millikl. 10- 2. Ford 6600 dráttarvél árg. 1977 til sölu, ekinn 1700 vinnustundir, stór tvívirkámoksturstæki. Uppl. í síma 62461 eftirkl. 18.00. Atvinna Til sölu er snjósleði, tegund Kawasaki Inter Ceptor 550, árg. 1982. Aðeins einn eigandi. Mjög vel með farinn og lítið ekinn. Uppl. gefur Rúnar Gunnarsson í síma 41571 á Húsavík. Vel með farinn kerruvagn til sölu (1.700) og sem nýtt burðarrúm (300). Uppl. í síma 22019 eftir kl. 17.00. Til sölu Silver Cross barnavagn, vel með farinn. Verð kr. 1000. Uppl. í síma 25171. Til sölu Polaris Colt 250 vélsleði, árg. 1978, léttur og lipur sleði í góðu lagi. Uppl. í síma 24928, eftir kl. 19. Til sölu frambyggður Rússa- jeppi, árg. 1973. Uppl. í síma 24522. Chevrolet Van sendiferðabíll árg. 1972 til sölu. Sæti fyrir 12 manns. Skipti á fólksbíl koma til greina. Uppl. i síma 22757, milli kl. 20 og 22. Til sölu Volvo 144 árg. 1971, Honda SS 50 árg. 1978, skráð árið 1980 og Honda MB 50 árg. 1982 svart, ekið 14000 km. Uppl. í síma 61539 eftir kl. 20 og í hádeginu. Vantar mann við færanlega heykögglaverksmiðju. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Uppl. gefur Stefán Þórðarson í síma 31126. Okkur vantar ámoksturstæki fyrir Zetor 4718. Uppl. í síma 21755. mnslegt Til sölu Volvo De Lux 144 árg. 1973, ekinn 124.000 km. Skipti á Mazda árg. 1978-1979 koma til greina. Uppl. í síma 61251. Ökukennsla - æfingatímar. Kenni á Subaru 4 WD 1982. Tíma- fjöldi við hæfi hvers einstaklings. Öll prófgögn og æfingatímar í vetrarakstri. Sími 21205. Félagslíf Aðalfundur Ungmennafélags Möðruvallasóknar veröur haldinn laugardaginn 20. mars kl. 21.00 að Freyjulundi. sÞiónusta Hreingerningar - Teppahreins- un. Tökum að okkur teppahreins- un, hreingerningar og húsgagna- hreinsun, með nýjum og fullkomn- um tækjum. Gerum föst verðtilboð ef óskað er. Uppl. í síma 21719. Laugalandsprestakall: Messaö á Grund sunnudaginn 21. mars kl. 13.30. Sóknarprestur. Sunnudagaskóli Akurey rarkirkju veröur nk. sunnudag kl. I! f.h. Allir velkomnir. Söknarprest- arnir. Akureyrarprestakall. Guðsþjón- usta verður í Akureyrarkirkju nk. sunnudag 21. mars kl. 2 e.h. Sálmar: 340, 55, 42, 350, 362. Þ.H. Glcrárprcstakall: Barnamessa í Glerárskóla nk. sunnudag 21. mars kl. 11.00 Guösþjónusta í Lögmannshlíö- arkirkju sama dag kl. 14.00. P.M. Hjálpræöisherinn, Hvannavöll- um 10. Sunnudaginn kl. 13.30. Sunnudagaskóli kl. 17.00. Al- menn samkoma. Niels Erlingsson talar. Mánudaginn 22/3 kl. 16.00. Heimilasamband. Verið hjartan- lega velkomin. Kristniboöshúsið Zíon: Sunnu- daginn 21. mars, sunnudagaskóli kl. 11. Öll börn velkomin. Sam- koma kl. 20.30. Ræðumaður Jón Viðar Guðlaugsson. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. Allir velkomnir. Laugardagur 20. mars, fundur í Kristniboðsfélagi kvenna kl. 3. Allar konur vel- komnar. Ffladelfía Lundargötu 12. Fimmtudagur 18.3. kl. 20.30, biblíulestur. Sunnudagur 20.3. kl. 11.00, sunnudagaskóli. Kl. 17.00 skírnarsamkoma, ræðu- maður Einar J. Gíslason frá Reykjavík. Þriðjudagur 23.3. kl. 20.30, bænasamkoma. Ailir eru hjartanlega velkomnir. Kvcnfélagið Framtíöin heldur kvöldverðarfund í Smiðjunni fimmtudaginn 25. mars kl. 19.30. Þátttaka tilkynnist í síma 23527 fyrir nk. mánudag. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Frá Sálarrannsóknarfélagi Akur- eyrar: Félagsfundur verður hald- inn að Hótel Varðborg (litla sal) föstudaginn 19. mars kl. 21. Þor- geir Jakobsson sér um fundarefni ásamt fleirum. Ferðafélag Akureyrar: Páskar í Laugafelli 9.-11. apríl. Ekið í Laugafell (snjóbíl og dvalið þar í 2 nætur. Ekið á Hofsjökul, ef veður leyfir. Takmarkaður sæta- fjöldi. Skrifstofan verður opin fimmtudag og föstudag kl. 18.00- 19.00, sími 22720. Bændur athugið: Þið scm eigið notuð baggabönd sem þið nýtið ekki sjálfir, vinsamlega komið þeim á Bögglageymslu KEA, þar munu vistmenn Dvalarheimilis- ins í Skjaldarvík vitja þeirra og hnýta úr þeim spyrður. Með fyrir- fram þakklæti um góðar undir- tektir. Vistmenn. Félagsvist Geðverndarfélags Ak- ureyrar verður föstudagskvöldið 19. mars kl. 20.30 í sal Færey- ingafélagsins í Kaupangi. Allir velkomnir. Nefndin. Hótel Varðborg Veitingasala Fermingarveislur - Upppantað 8. apríl en getum bætt við örfáum veislum hina dagana. Getum lánað diska og hnifapör. Útvegum þjónustufólk simi 22600 Júníus heima 24599 Vilja virkja Blöndu Fundur stjórnar- og trúnaðar- mannaráðs Framsóknarfélag- anna í Austur-Húnavatns- sýslu, sem haldinn var á Hótel Blönduósi sl. föstudag ályktaði um orkumál. Ályktunin, sem var samþykkt með 20 atkvæð- um gegn 2, er svohljóðandi: „Fundurinn hvetur til skjótra framkvæmda til orkuöflunar hér á Norðurlandi-vestra og mælir því eindregið með að gengið verði frá hið allra bráðasta, lokavinnslu samninga við landeigendur um .virkjun Blöndu, sem nú eru að hluta til mótaðir, svo undirbún- ingsframkvæmdir geti hafist þeg- ar á þessu ári. Fundurinn bendir á hversu virkjun Blöndu yrði snar þáttur í byggðajafnvægi og byggðaþróun kjördæmisins og hve þeirra áhrifa sé nú einmitt þörf með tilliti til stöðu landbúnaðar, þar sem ekki er í sjónmáli möguleiki á að hann geti tekið við nema litlum hluta þess fólks er kemur til starfa f kjördæminu á næstu árum. Að gefnu tilefni og með tilliti til þess sem hér að framan er um getið, skorar fundurinn á þing- menn flokksins í kjördæminu, alla sem einn, og Framsóknar- flokkinn í heild, að taka afdrátt- arlausa afstöðu til framgangs virkjunar Blöndu, og leggjast á eitt um að áður nefndir samningar takist og sem bestur friður um þá skapist í héraði.“ Styrkur til þjálfara Framkvæmdastjórn íþróttasam- bands fslands hefur ákveðið að tillögu Unglinganefndar ÍSÍ, að veita þremur þjálfurum eða leið- beinendum á sviði unglinga- þjálfunar, styrki til að sækja námskeið erlendis á þessu ári að upphæð kr, 5.000.00 hvern. Væntanlegir umsækjendur um þessa styrki skulu vera starf- andi fyrir íþrótta- og ungmenna- félög, héraðssambönd eða sér- sambönd innan ÍSÍ. Sérstök umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu ÍSÍ, og er umsóknarfrestur til 21. apríl 1982. Tæplega 50 þúsund laxar veiddust á síðasta ári Nú liggja fyrir skýrslur um lax- veiði á síðasta ári. AIls veiddust 46.881 lax að heildarþunga 163.419 kg. Þetta er um 27% lakari veiði en meðaltal síðustu 10 ára á undan, en þó var árið 1981 það 12. besta í röðinni yfir bestu veiðiár hérlendis. Mesta stangveiðin var í Laxá í Kjós þar sem 1550 laxar komu á land. Á Blöndusvæðinu komu Mælingamaður - Framtíðarstarf Vegagerö ríkisins Akureyri, óskar eftir að ráöa mælingamanntil mælingaog útreikningaáveglín- um. Stúdentspróf eöa sambærileg menntun æskileg. Umsóknir sendist Vegagerö ríkisins, pósthólf 38, Akureyri, fyrir 29. mars 1982. Lagermaður - Lyftaramaður Viljum ráöa nú þegar reglusama menn í eftirtalin störf: 1. Afgreiðslustörf á lager. 2. Akstur á lyftara o.fl. K. Jónsson & Co. hf., Niðursuðuverksmiðja. 1537 laxar á land og Laxá í Aðal- dal kom þar skammt á eftir með 1455 iaxa. Næstar voru Laxá á Ásum í Húnavatnssýslu með 1413 laxa, Víðidalsá og Fitjaá með 1392, Þverá í Borgarfirði með 1245, Miðfjarðará 1213, Norðurá 1185 og Elliðaá 1074. Fleiri ár náðu ekki að skila veiðimönnum 1000 löxum eða þar yfir. Stangveiðin var býsna breytileg eftir ám, miðað við fyrri ár. Veið- in var tiltölulega best á ánum í Húnavatnssýslu og Dalasýslu, en lökust í ám á Norðurlandinu eystra og á Austurlandi. Á Norðurlandi eystra var veiðin 40% minni en meðaltal 10 ára þar á undan. 6 - DAGUR -18. mars 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.