Dagur - 18.03.1982, Qupperneq 8
JMW®
oronet larts
p,
EIRRÖR -TENGI fl
SMURKOPPAR £
s
a
s
i
w
Fundur um riðu í Svarfaðardal:
Vilja reglur um riðu-
vamir í sýslunni
Ðlönduós:
Stækkun
Héraðs-
hælisins
Sveinsstöðuni 15. mars.
Miklar framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar við Héraðshælið á
Blönduósi í sumar, en á fjárlög-
um þessa árs eru 4.9 milljónir
sem verja á til þess að byggja
þriggja hæða viðbyggingu við
Héraðshælið.
í hinni nýju byggingu verður
heilsugæslustöð, ásamt plássi fyrir
legusjúklinga á einni hæðinni.
Petta er Iangstærsta óbeina fram-
kvæmdin í sýslunni í sumar. Af
öðrum framkvæmdum má nefna
að fyrirhugað er að leggja bundið
slitlag á endafleti flugbrautarinn-
ar á flugvellinum við Blönduós,
Um þessar mundir er að ljúka
vetrarrúningi sauðfjár í Húna-
vatnssýslum. Vetrarrúningurinn
hefur færst mjög í vöxt, og á nær
öllum bæjum í As og Sveinsstaða-
hreppum er allt yngra féð rúið í
vetur og á mörgum bæjum allt fé.
MÓ
Ytra-Hvarfi Svarfaðardal 16. mars
Á föstudag var fundur í þing-
húsinu um riðuveiki í sauðfé og
varnir gegn henni. Fundinn
sóttu um 70 manns frá Ólafs-
firði, Dalvík, Svarfaðardal og
Árskógsströnd. Sigurður Sig-
urðarson, dýraiæknir hafði
framsögu á fundinum og svar-
aði fyrirspurnum sem til hans
var beint.
Á fundinum var samþykkt svo-
hljóðandi ályktun: Fundur um
varnir gegn riðuveiki, haldinn í
þinghúsinu að Grund 12. mars
beinir því eindregið til sýslu-
nefndar Eyjafjarðar og Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar að hafa
forgöngu um að koma á reglum
um riðuvarnir í sýrslunni, í sam-
ráði við héraðslækna á svæðinu og
sauðfjársjúkdómsnefnd. Fundur-
inn telur rétt ða taka upp skipu-
legar viðnámsaðgerðir gegn riðu-
veiki á svæðinu í líkingu við að-
gerðir þær sem í gangi eru á svo-
kölluðum „tilraunasvæðum“
enda virðast þær lofa góðu um ár-
angur.
Einnig telur fundurinn nauð-
synlegt að hver sveitarstjórn í
sýslunni skipi sem fyrst riðunefnd
í samráði við héraðsdýralækna,
sem starfi saman að riðu-
vörnum á sem víðtækastan hátt.
„Á hverju hausti þarf að ráða
nýja kennara, en kaupstaður-
inn á sjálfur ekkert húsnæði
sem hann getur séð þessum
kennurum fyrir, en hefur hins-
vegar útvegað þeim leiguhús-
næði, sem nú er mjög erfitt að
fá í bænum,“ sagði Gunnar
Rafn . Sigurbjörnsson skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans á
Siglufírði, í samtali við Dag.
Gunnar «agði að skólanefndin
hefði rætt það a fundi sínum ný-
lega að nauðsynlegt sé að kaup-
staðurinn eigi húsnæði fyrir
kennara eins og tíðkast víða í öðr-
um sveitarfélögum. „Við vitum
að í kauptúnum og hinum smærri
stöðum hafa sveitarstjórnirnar
ásamt ríkinu komið upp kennara-
og skólastjóraíbúðum, vegna þess
hversu erfitt er að fá kennara á
þessa staði. Feir koma ekki nema
þeir hafi öruggt húsnæði að fara
í,“ sagði Gunnar.
Siglufjörður:
„Málið virðist vera erfiðara hér
en oft áður, vegna þess að það
„Bíódraumar“
Mynd: KGA
Lengja flugbrautina
Á Siglufíröi hefur að undan-
förnu mikið verið rætt um leng-
ingu á flugbrautinni, bæði af
öryggisástæðum og einnig
vegna þess að með lengingu
væri fært að nota fleiri gerðir
flugvéla til flugs þangað.
Nú virðist sem lausn sé fundin á
þessu máli, og að framkvæmdir
við lengingu flugbrautarinnar
muni hefjast næsta vor. Hefur
fjármagn þegar verið tryggt til
hluta verksins.
blasir við að hér verður nokkuð
um kennaraskipti í haust, og þess
vegna er þetta mál meira í brenni-
depli nú en oft áður. Við höfum
ekki lent í vandræðum vegna
þessa hingað til. Okkur hefur
ávallt tekist að manna skólana og
útvega fólki íbúðir, en það væri
vissulega öruggara að kaup-
staðurinn ætti þessar íbúðir,"
sagði Gunnar.
„Reksturinn
gengur
vel“
„Reksturinn á hótelinu gengur
Ijómandi vel og við höfum ver-
ið með ágætisnýtingu í vetur“
sagði Sigurður Jóhannsson
hótelstjóri á Hótel Blönduósi
er við slógum á þráðinn til hans
á dögunum. Sigurður tók við
rekstri hótelsins í haust en hafði
áður starfað hjá Sölufélagi
Austur-Húnvetninga.
„Við höfum gert töluvert af því
að bjóða upp á skemmtikvöld
hérna. Við höfum verið með
ferðakynningar sem er nýjung
hér. f>á vorum við með kántrý-
kvöld með Hallbirni Hjaltasyni,
Katla María skemmti hér á bollu-
daginn, við héldum þýskt kvöld
og á öllum þessum skemmtunum
hefur verið troðfullt hús“.
Sigurður sagði að mikið væri
búið að bóka fyrir sumarið og
hann væri fullur bjartsýni á
reksturinn.
Pá hefur nýr salur verið
tekinn í notkun í hótelinu, og
greinilegt að mikill uppgangur á
sér stað í hótelinu á Blönduósi
undir stjórn Sigurðar Jóhanns-
sonar.
Nýtt skip til Dalvíkur
Á laugardagskvöld kom til
Dalvíkur nýr togbátur, Baldur,
sem er fyrsta skipið af þremur
sem keypt voru notuð í Bret-
landi af ýmsum aðilum hér á
landi. Eigandi Baldurs er hluta-
félagið Upsaströnd h.f. Fram-
kvæmdastjóri er Jóhann Ant-
onsson.
Baldur er eins dekks skip, það
er 36,6 metra langt og tæpar 300
rúmlestir. Vélin er af gerðinni M.
Blackstone, 875 hestöfl. Skipið
var byggt árið 1974, en hefur ekki
verið mikið notað fram til þessa.
Seljandi skipsins er J. Marr &
Sons í Hull.
Seljandinn gerði nokkrar
breytingar á skipinu áður en það
kom hingað til lands. í brúnni eru
öll tæki í takt við nútímann, að
sögn framkvæmdastjórans. Skip-
stjóri er Gunnar Jóhannsson og
fyrsti vélstjóri er Jóhannes Bald-
vinsson. Skipið heldur fljótlega á
þorskveiðar.
A.G.
O
T MTí C~2 r * t (sr ?rr T'i
ii /iiu < Oj & Sl 11 JlIU
# Snögg
viðbrögð
Nú þegar eru farin að berast
bréf með svari við spurning-
unni í ferðagetraun Dags og
Samvinnuferða-Landsýnar.
Næsta spurning mun birtast
nk. þriðjudag, en fólk er hvatt
til að póstleggja sem fyrst
svarið við spurningunni t síð-
asta blaði. Því fleiri svör sem
berast frá hverjum og einum -
því meiri möguleiki á að
hreppa þann stóra! Það er
ekkert skilyrði af blaðsins
hálfu að fólk taki þátt í ferða-
getrauninni frá upphafi, en
með því móti aukast mögu-
leikarnir.
# Meðskjald-
bökur...
Hvers eigum við að gjalda,
stynja skjaldbökur lands-
manna um þessar mundir -
og er nema von að þær spyrji.
í útvarpi á dögunum mátti
heyra auglýsingu frá ein-
hverjum heilbrigðisfulltrúa á
Suðurnesjum, þar sem hann
hvatti alla þá sem hefðu
skjaldbökur undir höndum að
skila þeim strax. Hér fyrir
norðan geyma menn skjald-
bökur í búrum ...
# Áhuginnog
útvarpið
Beina útsendingin á enska
knattspyrnuleiknum á dögun-
um hefur vfst varla farið fram
hjá neinum. S&S hefur frétt af
hópum karla og kvenna, sem
sátu eins og límd við sjón-
varpstækin og hrópuðu, rétt
eins og setið væri í brekkunni
hjá íþróttavellinum. En e.t.v.
hefur æsingurinn hvergi verið
meiri en hjá manni nokkrum
hér ( bæ, aðdáanda Totten-
ham, sem stóð upp frá sjón-
varpinu þegar beina útsend-
ingin var rofin, kveikti á út-
varpinu, stillti á BBC og heyrði
þar síðustu mínúturnar. Þeg-
ar hann varð þess áskynja að
Tottenham hafði tapað, grýtti
hann útvarpinu í næsta vegg
og lauk þar sögu þess.
# Nýteikni-
myndasagaí
Helgar-Degi
Á morgun kemur Helgar-Dag-
ur út og hefur þar göngu sina
ný teiknimyndasaga, Gulleyj-
an, eftir John Louis Steven-
son. Þetta er ein af þeim sög-
um sem glatt hafa unga og
aldna um áratuga skeið, og er
það von Dags að lesendur
blaðsins kunni vel að meta
þessa nýbreytni í útgáfu
þess. Gulleyjan hefur oftar en
einu sinni komið út á íslensku
og þess er skemmst að minn-
ast að sjónvarpið sýndi mynd
um jólin, sem byggð var á
Gulleyjunni og bar raunar það
nafn.