Dagur - 15.04.1982, Síða 12

Dagur - 15.04.1982, Síða 12
Akureyri, fimmtudagur 15. apríl 1982 RAFGEYMAR í BfLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA VEUIÐ RÉTT MERKI MWATNSSVEIT: Styrkja uM ■■ viovor- unar- kerfi almanna- varna „Nú er verið að styrkja við- vörunarkerfi Almannavarna i Mývatnssveit,“ sagði Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins. „Ný- lega var gengið frá nýjum skjálftamæli við Sandmúla, sem fjarsendir merki niður í Kröfluvirkjun. Áður höfðu starfsmenn í Kröflu eingöngu hallamæli, en nú hafa þeir þessa tvo sem auka að sjálf- sögðu mikið á öryggið.“ Viðlagatrygging Islands veitti fé til kaupa á tölvubúnaði, sem ætlunin er að koma upp í Mý- vatnssveit innan fárra mánaða. Þessum búnaði er ætlað að nema útskriftir allra hallamælanna á svæðinu, bera saman við fyrri niðurstöður og meta hvort rétt sé að aðvara almannavarnar- nefnd Mývatnssveitar. „Þegar þetta kerfi kemst í gagnið mun fækka „fölskum" aðvörunum. Núverandi viðvörunarkerfi cr tengt einum hallamæli, en tölvu- búnaðurinn mun fá upplýsingar frá fjórum hallamælum. Það er ekki víst hvort við get- um haft gagn af þessum búnaði í næsta gosi-ef það verður-en ef þessi óróleiki heldur áfram næstu árin, mun tölvubúnaður- inn koma að góðu gagni. Sam- kvæmt áætlun þeirra, sem að þessu máli eru að vinna, mun þetta kerfi vera tilbúið eftir tvo til þrjá mánuði. Guöjón' sagði að umræddur búnaður kostaði tvö til þrjú hundruö krónur. Fé var vcitt til kaupanna á fjárlögum, en því var varið til kaupa á skjálftamæl- um og uppsetningu á þeim, enda var það þá talið mikilvæg- ara að mati vísindamanna. Enn er eftir að setja einn niður og vcrður sá fyrir sunnan Hvera- fjall. Á netum um borð í Heiðrúnu EA. Mynd: ÓG Skuttogarinn Örvar: Samningar tókust Samningar tókust í gær til bráðabirgða um kjör áhafnar- manna á frystitogaranum Örv- ari frá Skagaströnd, en fulltrú- ar útgerðarmanna og sjómanna funduðu um málið á KEA í gær og fyrradag. Sem kunnugt er verða 24 á skipinu og vinna þeir að ýmsu leyti annars konar störf en gert er á hefðbundnum skuttogurunum, m.a. störf sem vanalega eru unnin í frystihús- um, s.s. snyrtingu og pökkun. Samningarnir gilda til 1. ágúst og skulu endurskoðaðir fyrir 1. júlí. Þar sem langur tími líður þar til endanlegt uppgjör kemur vegna sölu aflans, en hann er seld- ur erlendis en ekki í frystihús hér heima, var töluvert rætt um þau mál ' í samningaviðræðunum. Samið var um að greitt verði 85% upp í væntanlegt söluverð, en gert er ráð fyrir að endanlegt uppgjör geti tekið 3-4 mánuði. Vegna eðlis starfanna um borð í Örvari var samið um aðra skipta- prósentu. Skiptaprósenta til áhafnar á skuttogurunum venju- legu er 29,7% af skiptaverði, en áhöfnin á Örvari fær 31,5% af söluverði erlendis. Útgerð og áhöfn tekur sameiginlega þátt í sölukostnaði. Vorið leggsl vel bændur „Vorið leggst vel í bændur. Allt er orðið alautt og nú er sunn- anblíða,“ sagði Einar Gíslason, bóndi á Skörðugili í Skagafirði í samtali við Dag. „Það er ekki nokkuð kal að sjá og ég hef ekki trú á.því að það sé kal í Skagafirði. Vatn hripar niður og jörð þornar strax. Þetta lítur því afskaplega vel út. Fé er ekki farið að bera, en það ættí að byrja hjá þessum bráðlátustu upp úr mánaða- mótum. Allmennt byrjar burður ekki fyrr er um 10. maí. Annars er unnið við undirbún- ing landsmóts hestamanna, sem verður í sumar í Skagafirði. Þau mál eru annars í traustum hönd- um Sveins Guðmundssonar og ég veit að undirbúningur gengur vel. Það stendur t.d. til að halda fund í framkvæmdatnefndinni á laugar- daginn.“ sagði Einar að lokum. Net VHF stöðva á Norðurlandi Nú er búið að koma upp VHF- öryggistalstöðvum á vegum Almannavarna ríkisins á Akur- eyri, Dalvík og á Húsavík. Þessar stöðvar eru hlekkir í þráðlausu talstöðvarkcrfi Al- mannavarna ríkisins, og er ætl- að það hlutverk að vera til taks ef sími fer úr skorðum vegna álags eða annars. í húsakynn- um Almannavarna í Reykjavík er endurvarpsstöð sem verður sett upp í Grímsey innan tíðar. Stöðvar af þessu tagi eru nú þegar komnar á Suður- og Vesturlandi. Hvað Norðurland varðar, þá munu Almannavarnir ríkisins setja upp stöðvar frá Hólmavík til Húsavíkur, en síðan verður al- mannavarnarnefndum á svæðinu gefinn kostur á að kaupa stöðvar og komast inn í umrætt kerfi. Að sögn Guðjóns Petersen, fram- kvæmdastjóra Almannavarna, verða þessar stöðvar seldar á mjög vægu verði. „Stöðvarnar fyrir Ólafsfjörð, Siglufjörð, Sauðárkrók, Blöndu- ós og Hólmavík eru hjá okkur, til- búnar til að fara norður og það munu þær gera innan skamms,“ sagði Guðjón. Hópur áhugamanna í V-Húnavatnssýslu: Þingmönnum fjölgi ekki á kostnað dreifbýlisins Nokkrir áhugamenn um stjórn- arskrármálið í Vestur-Húna- vatnssýsu, sem tilheyra öllum stjórnmálaflokkum, hafa sent frá sér bréf þar sem þeir lýsa yfir andstöðu við fyrirhugaða kjördæmabreytingu og fjölgun þingmanna í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi á kostnað landsbyggðarinnar, eins og seg- ir í bréfi þeirra. „Þar sem hér er ekki aðeins um hag hinna dreifðu byggða að ræða, heldur allrar þjóðarinnar, þegar til lengri tíma litið, teljum við nauðsyn á að íbúar lands- byggðarinnar standi saman og hrindi fyrrnefndum áformum af höndum sér, þannig að slíkt komi ekki til framkvæmda,“ segir m.a. í brefi áhugamannanna. Þar segir einnig: „Staðreynd er, að megin áhrif búsetubreýtinga landsmanna á síðustu áratugum eru fólgnar í af- gerandi forystuhlutverki höfuð- borgarsvæðisins á flestum sviðum. Þar eru nú höfuðstöðvar embættiskerfisins, hagsmuna- samtaka, stjórnmálaflokka, fjölmiðla og fjármálavalds. Með tilliti til framangreinds verður að álíta, að þrátt fyrir minna atkvæðavægi, eru áhrif íbúa Stór-Reykjavíkursvæðisins til stjórnunar þjóðmálanna mun meiri en íbúa landsbyggðarinnar. Aðalframleiðsla þjóðarinnar á sér stað úti um hinar dreifðu byggðir, en fjármunir renna til Reykjavíkur og eru síðan skammtaðir þaðan úr hnefa.“ Undir bréfið rita tveir fulltrúar áhugamanna hvers félags þ.e. úr Framsóknarfélaginu, Sjálfstæöis- félaginu, Alþýðuflokknum og Al- þýðubandalagsfélaginu í Vestur- Húnavatnssýslu, flestir frá Hvammstanga. GÉIS # Grænt páskaegg Það fór heldur betur um frú eina þegar hún skoðaði páskaegg er hún keypti af kaupmanni í bænum. Fótur- inn á egginu var orðinn grænn af myglu og bragðið af súkkulaðinu var eftir því. Eggið var framieitt af Sælgæt- isgerðinni Víkingi, sem varð gjaldþrota í fyrra, og var því orðið rösklega árs gamalt. S&S fór á kreik og samkvæmt upplýsingum þess er leyfilegt að geyma páskaegg frá ári til árs - ef þau eru í góðum geymslum. Einn viðmælanda S&S benti á að t.d. útlenskt súkkulaði er ekki dagstimpl- að svo vel má vera að það sé í sumum tilfellum a.m.k. rúm- lega ársgamalt - ef ekki eldra. Það síðasta sem S&S frétti af egginu og frúnni var það að hún ætlaði til kaupmannsins, og eflaust hefur hann skipt á egginu og látið hana fá ferskara egg í staðinn. # Ferðin borgaði sig í fyrra hreppti Jón Sigurðs- son frá Garði í Kelduhverfi, ferðavinning í ferðagetraun Dags og Kjartans Helga- sonar. Jón fór til Búlgaríu og skemmti sér konunglega, enda var maðurinn á besta m \h — V—□ !Íl GJ — V- Jl. aldri og ókvæntur að auki. En þessi ferð hafði sínar afleið- ingar, eins og svo margar aðrar. Fararstjórinn var ung kona, Þorbjörg Bragadóttir, og staðfesti Jón það í samtali við S&S að þau væru nú búin að draga upp hringana. Segið svo að það borgi sig ekki að taka þátt í ferðagetraun hjá Degi! # Val á nautum S&S var um daginn að lesa búnaðarblaðið Frey og sá þar m.a. grein eftir Jón Viðar Jón- mundsson. Greinin bar yfir- skriftina: Val á nautum. Sumar setningarnar í grein- inni voru dálítið skondnar samanbereftirfarandi: „Fjöldi nautsfeðra á þessu tímabili er 31. Það samsvarar að til jafn- aðar séu 4,7 naut undan hverjum nautföður... Sam- tals eru átta kýr sem eiga tvo syni í nautastofninum á þessu árabili, en engin fleiri.“ # Ferðagetraun Ferðagetraunin birtist næst í þriðjudagsblaðinu. Ef einhver á eftir að skila svari við síð- ustu getraun er sá hínn sami hvattur til að gera það nú þegar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.